Þjóðviljinn - 14.12.1990, Side 17

Þjóðviljinn - 14.12.1990, Side 17
Undan illgresinu er hörkuspennandi og leyndar- dómsfull bók fyrir böm og unglinga. Guðrún Helgadóttir segir hér sögu sveipaða mögnuðum dularblæ af nærfæmi, hárfínni kímni og mannlegri hlýju. Hún nær meistaralega til lesenda sinna á öllum aldri, því hún töfrar einatt fram þá ævintýraheima sem koma okkur öllum við. Núna heitir hann bara Pétur er undur ljúf og falleg bók fyrir yngstu bömin eftir Guðrúnu Helgadóttur sem hér segir söguna af honum Pétri. Hann lenti í svolitlum vandræðum þegar hann einu sinni sem oftar fór að gefa öndunum á tjörninni. Þær litu ekki við brauðinu hans. En hvað gerir Pétur þá? Litla leyndarmálið hans Péturs verður að ævintýri sem börnin vilja heyra aftur og aftur. ÍÐUNN VANDAÐAR BÆKUR ♦ í 45 Á R ♦ í Minningabók Vigdísar Grímsdóttur niðar hafið. Öldumar hníga jafhskjótt og þær rísa, en í sérhverri lýsir skamma stund minning frá genginni tíð. Lesandinn skynjar veröld sem var, með yfirbragð trega því að hún kemur aldrei aftur. En um leið er hún lifandi og hlý, ekki að fullu farin, heldur nálæg, önnur og ný í þeirri veröld sem er og verður. Vigdts Grímsdóttir hefur þegar skipað sér sess meðal fremstu höfunda okkar með smásögum sínum, skáldsögum og ljóðum. Ismeygileg kímni, napurt háð, einlæg samúð, sterkir þræðir í nýrri skáldsögu sem á enga sína líka. Saga fólks sem byrgir bresti sína og leyndarmál á bak við luktar dyr, ættarsaga í formi eftirmæla, greina og sendibréfa héðan og að handan. Viðamikið og frumlegt skáldverk eftir rithöfund sem á erindi við þig og samtíð þína. IÐUNN VANDAÐAR BÆKUR ♦ f 45 ÁR ♦ Steinunn Sigurðardóttir Vigdís Grímsdóttir

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.