Þjóðviljinn - 14.12.1990, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 14.12.1990, Blaðsíða 18
Kasparov samdi af sér Lok nítjándu skákar Karpovs og Kasparovs voru snubbóttari en búast heföi mátt við eftir feikna baráttu í síðustu skákum. Að lokn- um 39. leik sínum bauð Kasparov skyndilega og öllum á óvart jafnt- efli sem Karpov þáði samstundis. Viðbrögðin létu ekki á sér standa í skákskýringasalnum. Jafnvel Boris Spasskij, sem með árunum hefur gerst æ friðsamari, átti ekki orð til að lýsa hneykslan sinni: „Ég hef aldrei upplifað annað eins á ferli mínum.“ Aðrir voru hógværari í orðavali, þ.á m. umboðsmaður heimsmeistarans, Andrcw Paige, sem taldi þá ákvörðun Kasparovs að bjóða jafntefli bera vott um auk- inn þroska. Staðreyndin er vitan- lega sú að með hverju jafntefli þok- ast Kasparov nær sigri í einvíginu. Nú þarf Karpov 3 1/2 vinning úr þeim fímm skákum sem eftir eru tii að hreppa titilinn. 19. einvígisskák: Anatoly Karpov - Garrij Ka- sparov Kóngsindversk vöm 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 Kasparov grípur aftur til kóngs- indversku vamarinnar og skyldi eng- an undra eftir hrakfarimar í 17. skák- inni. 4. e4 d6 5. Rf3 0-0 6. Be2 e5 7. Be3 c6 Kasparov hefúr fram að þessu reynt flesta aðra möguleika í þessari stöðu: 7... Ra6,7... De7 og 7... exd4. 8. d5 Rg4 9. Bg5 f6 10. Bh4 Ra6 11. Rd2 Rh6 12. a3 RÍ7 13. D Bh6 14. Bf215 15. Dc2Bd7 16. b4c5 17. Hblb6 Byrjunin einkennist af hægfara liðsflutningum að baki víglínunnar. Sumir kynnu að halda að slík staða ætti vel við Karpov SKÁK en í þessu tilviki er afar erfitt fyrir hann að ná gegnumbroti. 18. Rfl Bf4 20. h4 Rc7 22. fxg4 Bf4 24. Rcdl h6 26. Hgl Rf6 28. Kfl Rd8! Þessi leikur fe 19. g3 Bh6 21. g4fxg4 23. Re3 Re8 25. h5 g5 27. Hg2 Dc8 í sér áætlun sem Karpov lætur fram ganga án þess að gera nokkuð í málinu. 29. Kgl Rb7 30. Khl cxb4 31. axb4 a5! Kasparov hefúr náð að hrifsa til sínum frumkvæðið. 32. Rf5 Bxf5 33. exf5 axb4 34. Hxb4 Rc5 35. Hxb6 Rce4 36. Hc6 Db7 37. Bel Hal 38. B13 Rc5 39. Bc3 Hcl 8 7 6 5 4 3 2 1 - Og hér bauð Kasparov jafhtefli setn Karpov þáði. Vissulega mikil vonbrigði fyrir skákunnendur því það er heilmikið eftir af skákinni. Samdi Kasparov af sér? Já! Alitlegasti leikur hvíts virðist vera 40. Db2. Eftir 40. .. Hb8!? ( 40. .. Dxb2 kemur einnig til greina ) 41. Hxd6 e4! 42. Dxb7 Hxb7 43. Hd8+ Kf7 44. Be2 Hbbl 45. Hgl Hc2! á svartur unnið tafl. Þetta er eitt lítið afbrigði af mörgum sem gefúr þó vel til kynna meginerfiðleika hvíts, lélegan samgang mannanna. Staðan í einvíginu: Kasparov 10 Karpov 9 Tuttugasta skákin verður tefld á morgun. Allgóöur árangur í Novi Helgi Sad Ólafsson staða íslenska ólympíuliðsins á ól- ympiumótinu í Novi Sad verður að teljast vel viðunandi. Af 108 þjóðum hafnaði íslenska sveitin í 8. sæti með 32 1/2 vinning af 56 mögulegum. Þetta er næstbesti árangur sem ís- lenskt lið hefúr náð á ólympíumóti ftá upphafi en besti árangurinn náðist í Dubai fyrir fjórum árum - 5. sæti. í Dubai vantaði nokkrar sterkar þjóðir sem sátu heima s.s. Svía og Hollend- inga. Að öðru leyti liggur munurinn á frammistöðu liðsins í því að í Dubai byrjaði liðið mjög vel en í Novi Sad var það lengi að hristast í gang. Svo virðist sem Islendingar þurfi ekki að óttast neina þjóð nema Sovétmenn. Við vorum óheppnjr að vinna ekki Bandarikjamenn og Englendingar rétt mörðu jafntefli gegn okkur. í barátt- unni við þessar þjóðir var sigurviljinn mikill. Að sama skapi lá við að mönnum leiddist að tefla við þjóðir sem ekki eru til eins og A-Þjóðvetja eða Júgóslavíu B. En lítum á lokaúrslitin: 1. Sovétríkin 39 v. 2. Bandaríkin 35 1/2 v. 3. England 35 1/2 v. 4. Tékkóslóvakía 34 1/2 v. 5. Júgóslavía 33 v. 5. Kina 33 v. 7. Kúba 44 v. 8. ís- land 32 1/2 v. í pistli sínum sl. föstudag gerði Jón Torfason grein fyrir árangri ein- stakra liðsmanna. Því er við að bæta að vitaskuld er árangur varamann- anna Héðins og Björgvins vart mark- tækur því þeir tefldu alltof fáar skákir en eru reynslunni rikari. Og aðrir voru með í for. Þráinn Guðmundsson hefúr verið fararstjóri á fjölmörgum ólympíumótum. Ávallt þægilegur í umgengni og hvetjandi. Áskell Öm Kárason reyndist hörku- duglegur liðsstjóri og hefúr athyglis- verðan eiginleika sem kemur sér afar vel í hópi þar sem ýmislegt er látið flakka; það er ekki hægt að móðga hann! Og er þá komið að þeim ein- staklingi sem stal senunni gersamlega í allri umræðu um þetta mót. Gunnar Eyjólfsson lagði á sig ómælt erfiði við undirbúning fyrir mótið og á mótsstað. Miðað við það hversu erf- iðlega liðinu gekk í byijun er óhætt að fullyrða að Gunnar hafi staðið fyrir ófáum vinningum. Einkum reyndist hann vel þegar þurfti að stappa stál- inu í menn fyrir erfiða viðureign. Það sést best á því að eftir ósigur kom ávallt sigur. Hvað varðar þær öndun- ar- og einbeitingaræfingar sem liðs- menn gerðu dag hvem, þá er ég sann- færður um að þær geta nýst hveijum þeim sem þarf að vinna undir miklu andlegu álagi í lengri eða skemmri tíma. íslenska liðið vann marga fallega sigra í Novi Sad. Eftirminnilegur var t.d. sigur Jóhanns Hjartarson yfir John Federowicz, „baráttujaxlinum frá Bronx“ eða „Rambo“ eins og hann er ýmist kallaður. Þegar líða tók að lokum þeirrar skákar mátti heyra Federowicz tauta fyrir munni sér gjörsamlega óprenthæft slangurmál, runnið upp í útjöðmm heimsborgar- innar þar sem hann hefúr alið allan sinn aldur. Jóhann Hjartarson - John Fe- derowicz Kóngsindversk vörn I. c4 Rf6 3. e4 d6 5. R13 0-0 7. 0-0 Rc6 9. Rel Rd7 II. Bd2 Rf6 2. Rc3 g6 4. d4 Bg7 6. Be2 e5 8. d5 Re7 10. Rd3 f5 12.13 Þetta afbrigði kom fyrir í skák Jó- hanns í fyrstu umferð gegn Indveij- um. Hér hefúr lengi verið algengast að leika 12... f4 en Federowicz velur aðra leið sem miðar að því að ná upp- skiptum á svartreita biskupnum. 12... Kh8 13. Hcl Reg8 14. b4 H17 15. c5 Df8 16. g4! Gamalt vín á nýjum belgjum. Með þekktri leikaðferð Paul Benkö reynir hvítur að stemma stigu við út- þenslu svarts á kóngsvæng jafnffamt því sem hann reynir að opna sér leið á drottningarvæng með öflugri peða- sókn. 16... De7 17. Kg2 Re8 18. g5f4 19. h4h6 20. Hhl Bf8 21. Rb5 Hh7 Svartur kemur ekki auga á hug- mynd hvíts. Betra var 21. .. hxg5 en svarta staðan er erfið engu að síður. 8 7 6 5 4 3 2 1 22. Rxc7!! Stórglæsileg mannsfóm sem mylur stöðu svarts niður. Tafl- mennska Jóhanns í framhaldinu er hreint augnayndi. 22.. . Dxc7 23. cxd6 Dd8 Hér yrði 23... Dxd6 svarað með 24. Rxe5! o.s.frv. 24. Rxe5 Hg7 25. Bxf4 h5 26. Rc4 Rxd6 27. Be5 IU7 28. Bxg7+ Bxg7 29. f4! Eftir þannan einfalda og sterka leik fær svartur ekki við neitt ráðið. Peðamassinn er óstöðvandi. 29.. . Re7 30. d6 Rc6 31. e5 Rxb4 32. Dd2 Ra6 33. Bd3 b5 34. Bxg6 Bb7+ 35. Kh2 Rh6 36. Re3 Bxhl 37. Hxhl Rg4+ 38. Rxg4 hxg4 39. Hel Db6 8 7 6 5 4 3 2 1 40. Kg3! Fer ólympíumótið í dammi (kotru) líka fram hér? spurði einhver. Og John Donaldsson, hinum hægláta liðsstjóra, fannst spumingin ekki fyndin. Lokastaðan verðskuldar stöðumynd. Reykjavíkurmót Reykjavíkurmótið í sveitakeppni mun að líkindum hcfjast fimmtudag- inn 3. janúar. Skráning stendur yfir þessa dagana, hjá skrifstofú BSI. Mótið er jafnframt úrtökumót fyrir ts- landsmótið í sveitakeppni og komast 12 efstu sveitimar áfram í úrslit. Nán- ar síðar. Evrópumótið í tvímenningi 1991 verður að þessu sinni (enn á ný) spil- að á Ítalíu, nánar tiltekið í bænum Montecama, sem fróðir menn segja sunnarlega á Ítalíu. ísland á rétt á að senda 9 pör til þátttöku, en 1989 fóm 4 pör héðan til þátttöku í þessu móti. Af þeim komust 2 pör í sjálfa úrslita- keppnina, sem telst góður árangur. Nánari upplýsingar em á skrifstofú Bridgesambandsins. Forráðamenn félaganna em minntir á innsendingu áunninna stiga, sem birtast eiga í næstu meistarastiga- skrá. Ekkert hefur þó heyrst frá BSÍ, en gera má ráð fyrir að næsta skrá komi út í byrjun árs '91. Á Akureyri stendur nú yfir aðal- sveitakeppni félagsins. Aðeins 12 sveitir em með að þessu sinni. Þeir norðanmenn leysa það vandamál snyrtilega með því að spila tvöfalda umferð, allir v/alla, alls 22 leiki eða 11 kvöld. Alvara lífsins greinilega. Eftir 14 umferðir var staða efstu sveit- anna þessi: sveit Dags 275, Grettir Frimannsson 268, Jakob Kristinsson 251 og Hermann Tómasson 248. 50 spilarar taka nú þátt í ein- mcnningskcppni hjá Húnvetningum sem hófst í síðustti viku. Eftir 1. kvöldið var staða efstu spilara: Valdi- mar Jóhannsson 398, Guðlaugur Ni- elsen 382 og Eirikur Jóhannsson og Þorleifúr Þórarinsson hvor með 376. Góð þátttaka hjá Húnvetningum. Hinn árlegi jólasveinatvímenn- ingur Bridgefélags Akrancss verður laugardaginn 29. desember. Nýlokið er Butler-tvímenningi hjá félaginu og urðu sigurvcgarar Einar Guðmunds- son og Ingi Steinar Gunnlaugsson. Næsta fimmtudag verður eins kvölds hraðsveitakeppni og verða pörin dregin saman í sveitir. 14 umferðum er nú lokið af 17 (þátttakja 18 sveitir) hjá Brciðfirðing- um í Reykjavík. Sveit Óskars Þ. Þrá- inssonar er enn efst. Kristján Már Gunnarsson og Vilhjálmur Þ. Pálsson urðu Suðurlandsmeistarar í - tví- menningi 1990. 20 pör tóku þátt í mót- Ólafur ;nið vamr Lárusson um síðustu helgi. 1 2. sæti urðu svo Guðlaugur Sveinsson og Magnús Sverrisson. Keppnisstjóri var heimamaðurinn, Ólafúr Steinarsson. Hátt í 30 pör mættu til leiks hjá Skagfirðingum sl. þriðjudag, á jóla- konfektkvöldi deildarinnar. Efstu pörin urðu: N/S: Sverrir Kristinsson og Sig- tryggur Sigurðsson. A/V: Baldvin Valdimarsson og Hjálmtýr Baldurs- son. Á þriðjudaginn kemur verður síð- asta spilakvöldið í ár. Af því tilefúi bjóða Skagfirðingar öllu spilaáhuga- fólki til spilamennsku án endurgjalds, í árlega jólasveinakeppni. Vegleg konfcktverðlaun eru í boði, að venju. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35 og hefst spilamennska kl. 19.30. í næsta þætti, 21. desember, verð- ur annáll ársins í íslenskum bridge. Og Snorri karlinn Sturluson verður á sínum stað, í jólablaði Þjóðviljans. Að þessu sinni verður greint frá Kaup- hallarmótinu, frá sjónarhóli Snorra. Og í síðasta þætti ársins, fóstudaginn 28. desember, verður valinn bridge- spilari ársins. Það verður í 14. skipti sem slík útnefning á sér stað í islensk- um bridge. Breiðhyltingar ljúka árinu með rúbertukvöldi næsta þriðjudag. Allt spilaáhugafólk velkomið í Gerðu- berg. Og Kópavogsmenn ljúka árinu með jólaglögg, í bland við jólatví- menning. Allt spilaáhugafólk vel- komið í Þinghól næsta fimmtudag. Bridgefélag Hafnarfjarðar heldur sitt árlega jólamót laugardaginn 29. des. Spilað verður í Víðistaðaskóla og hefst spilamennska kl. 12 á hádegi. Væntanlega verða spilaðar 2 umferðir eftir Mitchell- fyrirkomulagi. Gera má ráð fyrir 50-60 para þátttöku. Góð verðlaun. Hvað viltu spila á þessar hendur?: S: x S: Dxx H: xxx H: ÁKDx T: ÁDIO T: Kxxx L: ÁKDxxx L: xx Ef þú velur 6 lauf, færðu þína 12 slagi. Ef þú velur 6 hjörtu, færðu einn- ig 12 slagi. En ef þú velur 3 grönd (eins og hálfúr salurinn hjá Bridgefé- laginu sl. miðvikudag) færðu aðeins 8 slagi, með spaða út. Ótrúlegt, en satt. Lítum á kennslubókardæmi um vandaða spilamennsku: S: KG H: ÁK4 T: Á7432 L: G106 S: Á642 S: 7 H:----------- H: G1098765 T: G1095 T: KD L: 542 S: D109853 H: D32 T: 86 L: 97 Sagnir ganga: Austur Suður VesturNorður 3 hjörtu Pass Pass Dobl Pass 3 spaðar Pass Pass pass Vestur hefúr leikinn á laufaás, síðan laufakóng og loks laufadrottn- ingu. Einhver spilaáætlun? í þessari stöðu er vert að íhuga framhaldið. Ef við trompum, og spil- um spaða, Vestur gefúr og tckur síðan á ás og spilar tígli, kornumst við ekki hjá því að hleypa Austur inn í spilið og Vestur fær stungu í hjartanu. Þetta vandamál leysum við, snyrtilega, með því að láta tígul að heiman í þriðja laufið (tapara í tapara). Þannig „slít- um“ við samgang vamarinnar og 9 slagir era auðveldir með einfaldri „handavinnu". En ef Vestur spilar tígli í þriðja slag? Hvað þá? Svar (að hætti utan- ríkisráðherra): „Næsta mál á dag- skrá“. (I burtu með bikarinn, bróðir). framundan L: ÁKD83 18.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 14. desember 1990

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.