Þjóðviljinn - 14.12.1990, Blaðsíða 28
Ein frægasta skáldsaga Doris Lessing og
fyrsta bókin í sagnabálki hennar ura
Mörtu, uppreinargjama sveitastúlku af
ættum í Afríku. Hún tvístigur
mörkum bemsku og þroska og á sér
um réttlátara samfélag og frelsi
hinnar fullorðnu konu. Mögnuð þroska-
saga sem byggð er að miklu leyti á lífi
skáldkonunnar - saga nútímakonu í átökum
samvisku sína og samtíð.
Sigurðsson rithöfundur þýddi.
Reykjavíkurskáldið Megas og sagn-
ffæðingurinn Þórunn Valdimarsdóttir hafa
lagt bemskuminningar sínar, drauma og
fmyndunarafl að veði f ævintýralega og
töfrandi bók um litla písl sem ólst upp í
Norðurmýri í Reykjavík rétt eftir síðari
heimsstyrjöld. í sögunni kannast margir
við sjálfa sig, því hún er sannferðug
úttekt á lifí íslenskra bama. Þetta er
ekki ævisaga, heldur rabbsódía um
Reykjavik -umhverfí og atvik - í lífi
lítillar píslar.
Spennandi og tilfinningaþrungið listaverk
um ungan dreng - óvelkomið lif sem
kviknar i kviði þrettán ára móður. Fyrstu
ár ævinnar er hann geymdur uppi á háa-
lofti svo ekki falli blettur á heiður fjöl-
skyldunnar. Síðan hefst hraksaga hans
um heiminn - saga um baráttu gegn fá-
fræði og fordómum. Blóðbrúðkaup
hefur verið lesin i Rikisútvarpið og
hlotið frægustu bókmenntaverðlaun
Frakka, Goncourt-verðlaunin.
Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
Sigurður Pálsson er ótvírætt i ffemstu
röð islenskra ljóðskálda og hver ný
ljóðabók frá hans hendi er bókmennta-
viðburður. Þetta er þriðja bókin i flokki
ljóðnámubókanna og hér lokar hann ljóð-
námuhringnum. Lífskraftur, innsæi og
óvæntar samlikingar einkenna ljóðin. Hér
sýnir sig margt í senn; ísmeygileiki, ofsa-
fenginn galsi eða sár alvara. I endumýjun
fslensks ljóðmáls standa fáir Sigurði á sporði.
Hér sýnir Ólafur Gunnarsson nýja og óvænta
hlið á list sinni. Og hann þekkir svo sannar-
lega Skuggahverfið i Reykjavik. Rússneska
vetrarstríðið geisar á Frakkastíg. Við
Vatnsstíginn kúrir Stjáni grobb yfir skræð-
unum en i garði bamakennarans kúra lífs-
þreyttar pútur. Sögumar em fullar af ærsl-
um og angurværð en tmdir niðri lúrir
háskinn, þvi skuggar mannsins - óttinn,
hégóminn og þráhyggjan - leynast lika i
Skuggahverfinu.
Aldrei hefur innsæi og stílgáfa Fríðu Á.
Sigurðardóttur risið hærra en í þessari
afburðasnjöllu sögu. Söguhetjan er Nína,
húri situr við rúm deyjandi móður, hún
er glæsileg, ömgg nútímakona. Að
maður skyldi halda. En meðan nóttin
líður vakna efasemdir, fortíðin sýnir sig
i svipmyndum og öðlast mál. Þetta er
áleitinn og miskunnarlaus skáldskapur
um fólk nútímans - harm þess og
eftirsjá, vit þess og vonir.
Rokkið tekur stöðugt á sig nýjar myndir
þar sem æskan veitir tilfinningum sínum
og draumum útrás. Hér er fjallað um
stefriur og strauma i íslenskri rokktón-
list.hljómsveitir og tónlistarmenn,
söngtexta, skemmtanalíf og hljóm-
plötugerð. í bókinni em um 300 ljós-
myndir og ítarlegar skrár yfir hljóm-
sveitir og plötuútgáfu. Fjörlega
skrifuð og tvímælalaust besta hand-
bæra heimild um sögu rokktónlistar
og æskumenningar á íslandi.
Bjöm Pálsson á Löngumýri metur
engan eiginleika meira en gamansemi
og frelsi. Hann lætur engan kúga sig
eða kúska, hvorki bankastjóra, sýslu-
menn né ráðherra. Kímnin situr jafrian
i fyrirrúmi og ffásagnargleðin er ó-
svikin, hvort sem Bjöm segir frá
bemsfói sinni og búskap, málaferlum eða
störfum á alþingi. Saga hans er i senn
tæpitungulaus, ögrandi og ekki síst gagn-
merk heimild.
Gylfi Gröndal ritaði sögu Bjöms.
Egill Grímsson, dreifbýlisdrengur,
skólaður í Reykjavik, tvistigandi í
Kaupmannahöfri, á ffamabraut i Banda-
ríkjunum. Glanni og rola í senn. í
bölvuðu basli við þann veruleika sem
nútíminn leggur karlmönnum á herðar.
Og ekki er ástin honum beinlínis auðveld -
hvað þá gimdin. Þessi snjalla skáldsaga
Rúnars Helga Vignissonar er í senn tákn-
ræn og sértæk, nautnaleg og hrollvekjandi,
ærslafull og sorgleg. Sannkallaður
nautnafundur.
FORLAGIÐ
LAUGAVEGI18, SIMI91 -25188
Auglýsingadeikj Þjóðviljans