Þjóðviljinn - 14.12.1990, Blaðsíða 28

Þjóðviljinn - 14.12.1990, Blaðsíða 28
 Ein frægasta skáldsaga Doris Lessing og fyrsta bókin í sagnabálki hennar ura Mörtu, uppreinargjama sveitastúlku af ættum í Afríku. Hún tvístigur mörkum bemsku og þroska og á sér um réttlátara samfélag og frelsi hinnar fullorðnu konu. Mögnuð þroska- saga sem byggð er að miklu leyti á lífi skáldkonunnar - saga nútímakonu í átökum samvisku sína og samtíð. Sigurðsson rithöfundur þýddi. Reykjavíkurskáldið Megas og sagn- ffæðingurinn Þórunn Valdimarsdóttir hafa lagt bemskuminningar sínar, drauma og fmyndunarafl að veði f ævintýralega og töfrandi bók um litla písl sem ólst upp í Norðurmýri í Reykjavík rétt eftir síðari heimsstyrjöld. í sögunni kannast margir við sjálfa sig, því hún er sannferðug úttekt á lifí íslenskra bama. Þetta er ekki ævisaga, heldur rabbsódía um Reykjavik -umhverfí og atvik - í lífi lítillar píslar. Spennandi og tilfinningaþrungið listaverk um ungan dreng - óvelkomið lif sem kviknar i kviði þrettán ára móður. Fyrstu ár ævinnar er hann geymdur uppi á háa- lofti svo ekki falli blettur á heiður fjöl- skyldunnar. Síðan hefst hraksaga hans um heiminn - saga um baráttu gegn fá- fræði og fordómum. Blóðbrúðkaup hefur verið lesin i Rikisútvarpið og hlotið frægustu bókmenntaverðlaun Frakka, Goncourt-verðlaunin. Guðrún Finnbogadóttir þýddi. Sigurður Pálsson er ótvírætt i ffemstu röð islenskra ljóðskálda og hver ný ljóðabók frá hans hendi er bókmennta- viðburður. Þetta er þriðja bókin i flokki ljóðnámubókanna og hér lokar hann ljóð- námuhringnum. Lífskraftur, innsæi og óvæntar samlikingar einkenna ljóðin. Hér sýnir sig margt í senn; ísmeygileiki, ofsa- fenginn galsi eða sár alvara. I endumýjun fslensks ljóðmáls standa fáir Sigurði á sporði. Hér sýnir Ólafur Gunnarsson nýja og óvænta hlið á list sinni. Og hann þekkir svo sannar- lega Skuggahverfið i Reykjavik. Rússneska vetrarstríðið geisar á Frakkastíg. Við Vatnsstíginn kúrir Stjáni grobb yfir skræð- unum en i garði bamakennarans kúra lífs- þreyttar pútur. Sögumar em fullar af ærsl- um og angurværð en tmdir niðri lúrir háskinn, þvi skuggar mannsins - óttinn, hégóminn og þráhyggjan - leynast lika i Skuggahverfinu. Aldrei hefur innsæi og stílgáfa Fríðu Á. Sigurðardóttur risið hærra en í þessari afburðasnjöllu sögu. Söguhetjan er Nína, húri situr við rúm deyjandi móður, hún er glæsileg, ömgg nútímakona. Að maður skyldi halda. En meðan nóttin líður vakna efasemdir, fortíðin sýnir sig i svipmyndum og öðlast mál. Þetta er áleitinn og miskunnarlaus skáldskapur um fólk nútímans - harm þess og eftirsjá, vit þess og vonir. Rokkið tekur stöðugt á sig nýjar myndir þar sem æskan veitir tilfinningum sínum og draumum útrás. Hér er fjallað um stefriur og strauma i íslenskri rokktón- list.hljómsveitir og tónlistarmenn, söngtexta, skemmtanalíf og hljóm- plötugerð. í bókinni em um 300 ljós- myndir og ítarlegar skrár yfir hljóm- sveitir og plötuútgáfu. Fjörlega skrifuð og tvímælalaust besta hand- bæra heimild um sögu rokktónlistar og æskumenningar á íslandi. Bjöm Pálsson á Löngumýri metur engan eiginleika meira en gamansemi og frelsi. Hann lætur engan kúga sig eða kúska, hvorki bankastjóra, sýslu- menn né ráðherra. Kímnin situr jafrian i fyrirrúmi og ffásagnargleðin er ó- svikin, hvort sem Bjöm segir frá bemsfói sinni og búskap, málaferlum eða störfum á alþingi. Saga hans er i senn tæpitungulaus, ögrandi og ekki síst gagn- merk heimild. Gylfi Gröndal ritaði sögu Bjöms. Egill Grímsson, dreifbýlisdrengur, skólaður í Reykjavik, tvistigandi í Kaupmannahöfri, á ffamabraut i Banda- ríkjunum. Glanni og rola í senn. í bölvuðu basli við þann veruleika sem nútíminn leggur karlmönnum á herðar. Og ekki er ástin honum beinlínis auðveld - hvað þá gimdin. Þessi snjalla skáldsaga Rúnars Helga Vignissonar er í senn tákn- ræn og sértæk, nautnaleg og hrollvekjandi, ærslafull og sorgleg. Sannkallaður nautnafundur. FORLAGIÐ LAUGAVEGI18, SIMI91 -25188 Auglýsingadeikj Þjóðviljans

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.