Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 20

Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 20
f«íiV( t, T~ n— 3 V- iT (p 7 2 8 R? 9 10 // 12 13 w /5' i0> S? 17 II Z 8 S? 18 /9 7 13 J7 S? 2 V (o 20 17 S? Zl 7 13 U II V vz 20 23 22 (0 17 7 S? i8 H 8 22 8 7 27 7 7 3 Z2 2S 20 13 27 K 2 11 /3 2S ZS 8 II n 7 Z7 3 23 Z8 20 7 n H S? (p 9 n 13, /6 S? 22 8 9 to S? 8 u 8 n 7 10 H 20 & 7 S? ísr 7 8 V 12 rt 8 11 2& 7 S? 2(T 8 13 Zí 2o S? J22 3 2o y 9 17 /9 S? 9 2.0 H 17 8 V 1 20 // 1S 7 II 3 n 23 S? 22 2S 30 S? íb 31 17 V s 8 2/ >7- 8 27 22 8 7 20 S? 7 20 9 8 % 2? 2S 28 8 17 S? // 3 8 S? IDyr Æ iSK *l AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRS 4 Krossgáta nr. 131 Setjið rétta stafi ( reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu I Hafnarfiröi. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Slðumúla 37, 108 Reykjavlk, merkt „Krossgáta nr. 131“. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin verða send til vinningshafa. 22 13 II 8 / s Íd h '■23 Verðlaun fyrir krossgátu nr. 131 eru „Leður: Handbók fyrir heimili og skóla“ eftir Guðrúnu Helgadóttur og Skúllnu Hllf Kjartansdóttur. Náms- gagnastofnun gaf út 1990. Lausnarorð á krossgátu nr. 127 var Hlíðartún. Dregiö var úr réttum lausnum og upp kom nafn Stefáns S. Kristinssonar, Heiðarvegi 29, Reyðarfirði. Hann fær senda bókina „Margrét Þórhildur Danadrotning segir frá Iffi slnu“. Örn og Örlygur gaf út 1990. Fimmti hver 7 ára nemandi treglæs Uggvænlega horfir með lestrarkunnáttu enskra ungmenna. Lærðir ekki á eitt sáttir hverju skuli um kenna Ætla má að fimmta hvert bam á grunnskólaaldri í Eng- Iandi og Wales uppfylli ekki lág- markskröfur um lestrarkunnáttu. Þetta er niðurstaða einnar um- fangsmestu rannsóknar sem gerð hefur verið á lestTarkunnáttu bama og ungmenna í Bretlandi í áratug. Tilskipun um rannsóknina kom frá hæstu stöðum, sjálfum menntamálaráðherranum í sum- ar sem leið eftir að birtar höfðu verið ógnvekjandi niðurstöður úr lestrarkönnunum í nokkmm fræðsluumdæmum er sýndu að lestrarkunnáttu sjö ára bama hafði ekki verið eins áfátt í um hálfrar aldar skeið. A ljómm ár- um haíði hlutfall þeirra bama aukist um helming sem ekki reyndust geta stautað sig fram úr einföldustu orðum og setning- um. Að mati sálfræðinganna sem að könnununum stóðu er breytt- um aðferðum við lestrarkennslu um að kenna. I stað þess að böm- in læri að lesa með því að þekkja hljóð stafanna, hefur sú aðferð að bömum sé kennt að þekkja heil orð notið mestrar hylli með- al kennslufræðinga. Rannsókn menntamáiaráðu- neytisins sem tók til um 120 skóla í Englandi og Wales stað- festir í meginatriðum þær niður- stöður sem sálfræðingamir kom- ust að: Ekki sé um að villast, tre- glæsi og ólæsi hafi færst í vöxt. Samkvæmt athugunum mennta- málaráðuneytisins reyndist einn nemandi af hveijum fimm tre- glæs og ófær um að lesa og skilja einfaldan texta og að endursegja efni hans. Hins vegar er ráðuneytið ekki eins visst í sinni sök og sál- fræðingamir að kenna megi breyttum aðferðum við lestrar- kcnnslu um slakan árangur nem- enda á lestrarprófúm. Nemendur sem gangi í skóla þar sem skort- ur er á hæfúm kennurum og skólastjómin er ekki upp á það besta, séu mun líklegri til að vcrða eftirbátar jafnaldra sinna en í þeim skólum þar sem allt er í lukkunnar velstandi. Eins og búast mátti við bmgðust samtök kennara ókvæða við þeirri gagnrýni að kennslu og kennsluháttum væri um að kenna að lestrarkunnáttu nemenda hefði stórlega hrakað. David Hart, ritari Yfirkennarafé- lagsins segir að ágreiningur um það hverjar séu orsakir verri lestrarkunnáttu nemenda kalli á frekari rannsóknir, - þótt niður- stöðumar hljóti að ýta við kenn- umm og fá þá til að hugsa alvar- lega sinn gang. Betty Root, forstöðukona, Lestrarmiðstöðvarinnar við Re- ading háskólann segir að jafnvel þótt skólakerflð eigi þarna sök að máli, megi ekki gleyma þætti foreldra. - A mörgum heimilum er lestur vanræktur. Foreldrar em önnum kafnir og eyða ekki nægj- anlegum tlma með bömum sín- um. The Sunday Times/-rk Verðlaunamyndagáta Þjóðviljans Vart verður annað sagt en að viðtökur lesenda við verðlauna- myndagátu Þjóðviljans hafi ver- ið með ágætum. Hátt á þriðja hundrað lausnir bámst og skulu iesendum hér færðar bestu þakk- ir fyrir áhugann. Dregið hefúr verið úr réttum lausnum. Sú heppna er: Ragnheiður Kristjánsdótt- ir, til heimilis að Skipagötu 1 á Akureyri. Hún fær senda bókina „Perl- ur í náttúm Islands" eftir Guð- mund P. Ólafsson líffræðing er út kom á vegum Máls og menn- ingar fyrir síðustu jól. Rétt lausn á myndagátunni er þessi í samfelldu máli: Akvörðun Öryggisráðs Sam- einuðu þjóðanna urr) að hefja striðsaðgerðir gegn Irak vekur ugg í brjósti fólks um víða ver- öfd. Miðausturlönd em púður- tunna sem ekki má kveikja í. Þá er voðinn vís. Verkakvennafélagið Framsókn Allsherjaratkvæðagreiðsla Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf í fé- laginu fyrir árið 1991 og er hér með auglýst eftir tillög- um um félagsmenn í þau störf. Frestur til að skila listum er til kl. 12 á hádegi föstudag- inn 1. febrúar 1991. Hverjum lista þarf að fylgja meðmæli 100 fullgildra fé- lagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu félagsins Skipholti 50A. Stjórnin 20.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. janúar 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.