Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 14
Ég horfi til vinstri og ég sé bílana spúa eiturreyk upp í ósonlagið ég sé sígarettustubba liggj andi í sviðnu grasinu ég sé nammibréf á gang- stéttinni við hliðina á ruslatunnunni ég sé flöskur, kork og pappa sem fljóta í olíu brákinni við höfnina ég sé, það sem ég vil ekki sjá ég lít undan og horfi til hægri og ég finn lykt af grútnum í fjör unni ég sé dauðar endur fljóta í grútnum ég er farinn, ég vil ekki vera hérna. En hvað á ég að gera við tómu bjórdolluna? Æ ég hendi henni bara í sjóinn, hún gerir ekki mikinn skaða. Páll Sigurgeir Jónasson 7. y Seyðisfirði Ml Hvað er ég + þú? og Hvað er ég á móti þér? Kæru krakkar Rétt eftir áramótin birtum við á Hænsnaprikinu stutta sögu eftir stelpu á Seyðisfirði. Sagan var úr blaði sem krakkar úr 7. bekk gáfu út um umhverfismál og mengun. í blaðinu var mikið af athyglisverðu efni. í dag birt- um við eitt Ijóð. Eins og þið vitið auðvitað sjálf, þá eru það ekki börn eða unglingar, sem menga jörðina mest. Það erum við fullórðna fólkið með alla okkar tækni og þægindi. Hástig mengunar er stríð. Ekkert eyðileggur jörðina eins og stríð. Jörðin brennur og tætist í sundur af sprengjum. Herþoturnar brenna óheyrilegu magni af eldsneyti í hverri sprengjuför. Olían flæðir og brennur. Og kjarnorkuver sem yrðu fyrir árás veldur meiri geislavirkni en nokkur getur ímyndað sér eða ráðið við. Nú er enn einu sinni hafið stríð. Og enginn spurði ykkur álits. Fullorðið fólk er ekki vant að spyrja börn, eða hlusta á börn. Það er bara fegið að vera ekki lengur börn sjálft og fá engu að ráða. Samt eru auövitað margir til, sem reyna að muna, hvernig það er að vera barn. Þeir eru til sem reyna að tala máli barna. Reyna að hlusta. Þess vegna skuluð þið halda áfram að segja það sem ykkur finnst. Það er áreiðanlega einhver sem heyrir. Það er áreiðanlega einhver sem sér, það sem þið skrifið. Áfram krakkar. Kveðja Munið utanáskriftina: „Hænsnaprikið" Þjóðviljinn Síðumúla 37 108 Reykjavík HA? ö o - Eyja. Þetta er Óli Helgi. - Sæll vinur. Ertu eitthvað daufur í dálkinn? - Það eiga að vera próf í skólan- um mínum. - Er nú komið að því! - Já. Mér kvíðir svo fyrir. - Það er nú alveg óþarfi. Próf eru ekkert hættuleg. - Jú. Við eigum að læra alveg rosalega mikið. Svo fáum við ein- kunnir og svoleiðis. - Uss. Þú skalt nú bara gleyma þessu með einkunnirnar. Þær skipta ekki nokkru máli, þegar mað- ur er svona lítill. Aftur á móti er eitt gott við próf. Maður rifjar upp það sem maður er búinn að vera að læra. Maður dregur það saman ogi reynir að koma einhverju skipulagi á það I hausnum á sér. Maður æfir sig í að muna. Og maður æfir sig í' að hugsa skýrt. - Af hverju þarf maður að muna allt mögulegt? - Maður kemst nú ekki hjá því í lífinu. Eiginlega er maður eitt alls- herjar minni. - Ég man ekki neitt. - Manstu ekki neitt. Þú mundir símanúmerið mitt. Þú manst hvað þú heitir. Þú manst eftir að fara í skólann á morgnana. Þú manst hvað stafirnir heita og hvernig þeir raðast saman í orð. Eg skal segja þér það Óli minn, að þú manst svo mikið, að ég gæti aldrei talið það allt upp, þótt ég spjallaði við þig vikum saman. - Erþað? - Já. Og galdurinn við próf er bara að vera rólegur og hugsa skýrt um allt það sem maður man. - En við eigum að muna fullt af skrýtnum orðum, sem ég veit ekkert hvað þýða. - Þá eru það orð, sem þú þarft ekkert á að halda enn. Þú lærir orð- ið sjálfkrafa, þegar þú þarft á þeim að halda. En það getur nú verið skemmtilegt að kunna skrýtin orð. - Mér kvíðir samt fyrir. - Óli. Nú ætla ég að leggja fyrir þig eina spurningu. Ég bið þig að vera alveg rólegur og hugsa skýrt: Hvort heldurðu að sé réttara að segja: Mér kvíðir fyrir. Eða: Ég kvíði fyrir? - Mér kvíðir fyrir. Nei. Ég kvíði fyrir. - Af hverju heldurðu það? - Af því annars hefðirðu ekki spurt. Fullorðið fólk er alltaf að leið- rétta mann. - Ólafur Helgi. Mikið asskoti hugsar þú skýrt. Höf.: Cecilia Torudd 14.SÍÐA- ll AGl2 - NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. janúar 1991 ■ GAja>?A3J3H TTYM teGt lEÚnsl .2S íu^Ebuizö^)

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.