Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 18
íslandsmótið í atskák fór fram um síðustu helgi. I atskák er um- hugsunartími takmarkaður, venju- lega 30 mínútur á skák, og er þetta þannig eins konar millistig milli hraðskákar og kappskákar. Skák- imar verða því tæplega eins góðar og þegar umhugsunartími er lengri en á móti kemur að skemmtan á- horfenda vex, því nóg er af æsileg- um augnablikum í hverri umferð. Sextán skákmenn höfðu tryggt sér rétt til að tefla í úrslitunum og voru þar tefld fjögurra manna út- sláttareinvígi þannig að keppend- um fækkaði smám saman. I lokin áttust þeir við Þröstur Þórhallsson og Jóhann Hjartarson og var viður- eign þeirra sýnd í sjónvarpinu á sunnudaginn. Lauk svo að Þröstur sigraði eftir tvísýna keppni. Hann vann fyrstu skákina, Jóhann aðra, sú þriðja varð jafhtefli en Þröstur vann fjórðu og síðustu skákina og hlaut þannig 2 1/2 vinning gegn 1 1/2 vinningi Jóhanns. Síðasta skák- in var mikill tímahrapsbamingur. Þröstur tapaði tveim peðum en gat þó þvælt taflið, hótað máti og margs konar leiðindum enda unnu riddari og hrókur hans vel saman. Jóhann féll svo á tíma í jafnteflis- stöðu. Er Þröstur því íslandsmeist- ari í atskák árið 1991 og vel að þeim titli kominn. Þriðja og fjórða sætinu deildu þeir Friðrik Olafsson og Karl Þorsteins. Úrslitakeppninni var sjónvarp- að beint, og milli þess sem leikir Atskák og gömul tíð vom raktir og skýrðir - um þá hlið sá Jón L. Amason með góðum stuðningi Áskels Kárasonar - vom tekin viðtöl við ýmsa kunna skák- menn af eldri kynslóðinni, forustu- menn skákhreyfmgarinnar og á- horfendur. Óneitanlega fór mikið fýrir samanburði á fyrri dögum og því sem nú er að gerast í þessum viðtölum, mönnum varð tíðrætt um árangur ungu mannanna núna, betri aðbúnað á skákmótum og veg skák- hreyfingarinnar. Þá vom rifjaðir upp atburðir í sambandi við merk mót eins og einvígi Fishers og Spasskys 1972, einvígi Friðriks og Larsens 1955 og minningarmót Guðjóns Ó. 1956. Tvær síðartöldu keppnimar fóm fram í Sjómanna- skólanum og var aðsókn að keppni Friðriks og Larsens svo mikil að fyrsta kvöldið komu yftr 800 áhorf- endur en margir urðu frá að hverfa. Leikjunum var útvarpað með stuttu millibili og í blaðafrásögnum má sjá að útvarpsstjórinn var jafnvel vakinn upp um nætur af bráðlátum skákunnendum sem vildu fá fréttir. Larsen vann naumlega með 4 1/2 gegn 3 1/2 en þeir tefldu um Norð- urlandameistaratitilinn í skák. Árið eftir var svo Guðjóns- mótið, en það var haldið til minn- ingar um Guðjón M. Sigurðsson skákmeistara, einn sterkasta skák- mann íslendinga fyrstu árin eftir stríð, en hann lést langt um aldur fram. I mótinu kepptu átta íslend- ingar og tveir gestir frá Sovétríkj- unum, þeir Taimanov sem þá var skákmeistari Sovétrikjanna og al- þjóðlegi meistarirm Ilivitsky sem hafði náð ágætum árangri árin á Jón Torfason undan. Það var einnig haldið í Sjó- mannaskólanum í marsmánuði og mikil vinna lögð í mótshaldið. Meðal annars voru skákimar skýrð- ar í hliðarsal og mun það hafa verið eitt af fyrstu skiptunum sem það var gert hér á landi. Þá daga sem mótið stóð var samstjóm Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að hrökklast frá og kosningar í aðsigi. Það var því mikið um að vera og einkennilegt að sjá að ekki er minnst einu orði á mótið í Morgunblaðinu þessa daga, en Þjóðviljinn aftur á móti með fréttir og skákir daglega. Kann að vera að þama haft pólitíkin eitthvað blandast í en önnur skýring er sú að sá góðkunni skákmaður Guðmund- ur Amlaugsson sá um skákþátt í Þjóðviljanum á þessum ámm með miklum ágætum. Úrslitin urðu þau að Friðrik Ó- lafsson sigraði með 8 vinninga af 9 mögulegum, en Taimanov og llivit- sky urðu næstir með 7 1/2 vinning hvor. Þessir menn gerðu allir jafn- tefli innbyrðis en að auki gerðu báðir Rússamir jafntefli við Ben- óný Benediktsson og það dró þá niður um þann hálfa vinning sem munaði á þeim og Friðriki. Frá þessum atburðum mun komið við- umefnið “Rússabani” sem lengi loddi við Benóný. í næstu keppend- ur var 3 1/2 vinnings bil, en næstur var Gunnar Gunnarsson, síðan Benóný, Guðmundur Ágústsson, Baldur Möller, Jón Þorsteinsson, Freysteinn Þorbergsson og Sveinn Kristinsson. Það er vert í þessari upprifjun að skoða loks skák Benónýs við Taimanov. Byijunin var að vísu ekki efnileg, því Benóný lenti með svörtu í afbrigði af Nimzoind- verskri vöm, en um þá bytjun hafði Taimanov þá nýlega skrifað ágæta bók, en við skulum sjá hvemig fór. Hvítt: Taimanov Svart: Benóný Benediktsson 1. c4 - Rf6 2. Rc3 - e6 3. d4 - Bb4 4. e3 - b6 5. Rg-e2 - Bb 6. a3 - Bxc3+ 7. Rxc3 - a5 Dæmigerður Benóný. 8. Bd3 - d5 9. 0-0 - Rb-d7 10. b3 - 0-0 11. Bb2 - He8 12. Hcl - e5 13. Rxd5 - Rxd5 14. cxd5 - e4 15. Bb5 - Bxd5 16. Dc2 - c6 Nú má ekki 17. Bxc6 vegna Hc8 og biskupinn er leppur. 17. Bc4 - Rf6 18. Bxd5 - cxd5 19. a4 - h5 Hvítur nær einu opnu linunni á borðinu svo Benóný leitar mótfæra á kóngsvæng eins og kemur í ljós síðar. 20. Ba3 - Hc8 21.De2-Dd7 22. Da6 - ... Skemmtilegur leikur. Nú hefúr hvítur vald á c8-reitnum svo svartur á ekki gott með að andæfa á c-lín- unni. 22. ... - De6 23. h3 - Kh7 25.Hxc8- Hxc8 27. Da6 - Kg6 29. Ba3 - Ha8 24. Db7 - g5 26. Be7 - Dc6 28. f3 - Rg8 30. De2 - Rf6 Staðan er nokkum veginn í jafnvægi. Ef hvítur kemst í gegn verða peð svarts veik þannig að hann má vara sig. Benóný verst með því að hafa stöðugt uppi til- burði til aðgerða á kóngsvæng og binda menn hvíts þannig niður. 31.f4-g4 32. Be Kóngurinn er sterkur maður bæði í sókn og vöm, gæti Benóný hafa hugsað með sér. 33. Bxf6 - Dxf6 34. Hcl - De6 35. Df2 - Df6 36. Hc7 - Hg8 37. Dg3 - h4 38. hxg4+ - Hxg4 39. Dh3 - ... Það lítur vel út að leppa hrók- inn, en Benóný verst því auðveld- lega. Ef 39. Df2 kemur Hg3 og hvítur á alltaf ffamrásina h4-h3 yfir höfði sér, en þá galopnast kóngs- staða hans. 39.. .. - De6 40. Hb7 - Kf6 41. Kh2 - Kg7 42. Hxb6 - ... Er Benóný að leika af sér? Ef svartur drepur hrókinn fellur hans hrókur með skák og síðan tínir hvít- ur upp peðin og vinnur. 42.. .. - Df5 43. Hb5 - Dh5 44. Hxd5 - f5 45. Hc5 - Kg6 46. Hc6+ - Kg7 47. Hc7+ - Kg6 Og jafntefli með þráskák. Hvemig stóð nú á þessu? Jú, hvítur er kominn í neyðarlega klemmu með drottninguna. Meðan svarti kóngurinn valdar f5-peðið hótar hann Hg3 og drottningin er af. Ekki dugar heldur að víkja kóngnum frá því þá, bijótast hrókur svarts og drottning inn í stöðuna með skelfi- legum afleiðingum fyrir hvít. Frækileg vöm Benónýs bar því þama góðan árangur. Hverjir verða meistarar? Sveitir Tryggingamiðstöðvar- innar og Samvinnuferða annars vegar og Verðbréfamarkaðar ís- landsbanka og Landsbréfa hins vegar munu spila til úrslita um Reykjavíkurmeistaratitilinn um þessa helgi. Undankeppni Reykjavíkur- mótsins lauk um síðustu helgi. 12 efstu sveitimar tryggðu sér rétt til þátttöku í Islandsmótinu. Röð efstu sveita varð: 1. Tryggingamiðstöðin 362 2. V.l.B. 360 3. Samvinnuferðir 358 4. Landsbréf 354 5. S. Ármann Magnússon 340 6. Valur Sigurðsson 333 7. Omar Jónsson 306 8. Roche 295 9. Steingr. G. Pétursson 288 10. Gunnlaugur Kristjánsson 281 11. Hótel Esja 270 12. Sverrir Kristinsson 261 Næstu sveitir urðu: 13. Hreinn Hreinsson 260 14. Sigmundur Stefánsson 258 Athyglisvert er að skoða inn- byrðis viðureignir 6 efstu sveit- anna, en leiða má líkur að styrk- leika þeirra (raunverulegum) með þeirri aðferð. Útkoman er þessi: 1. V.Í.B. 90 stig 2. S. Ármann Magnússon 83 stig 3. Samvinnuferðir 78 stig 4. Landsbréf 73 stig 5. Valur Sigurðsson 66 stig 6. Tryggingamiðstöðin 55 stig Athyglisvert er að efsta sveit- in úr undankeppni skuli vera neðst í þessum samanburði. Úrslitakeppni mótsins hefst kl. 13 á morgun og er spilað á Loflleiðum. Spiluð verða 48 spil i undanrás, en 64 spil í úrslitum. Nv. Reykjavíkurmeistari í sveitakeppni er sveit Tiygginga- miðstöðvarinnar. Frítt verður inn fyrir áhorfendur og leikir sýndir á sýningartöflu. Eggert Benónýsson er látinn. Eggert var á árum áður einn af okkar albestu spilurum. Islands- meistari í tvímenningskeppni 1958 og 1962, íslandsmeistari í sveitakeppni 1951, 1955, 1956, 1959, 1961, 1963, 1966, 1967 og 1970, alls 9 sinnum. Hann spilaði fyrir íslands hönd á Norðurlanda- mótum, Evrópumótum og Ol- ympíumótum. Forseti Bridge- sambands íslands og formaður Bridgefélags Reykjavíkur. Eggert tók síðast þátt í íslandsmóti 1988 ogkomst þá í úrslit í tvímennings- keppni mótsins. Einnig stóð hann að útgáfu fyrsta Ólafur Lárusson tímarits um bridge hér á landi, á árunum upp úr 1950. Eftirlifandi bömum Eggerts eru færðar innilegustu samúðar- kveðjur. Aðalsveitakeppni Bridgefé- Iags Reykjavíkur, hefst miðviku- daginn 30. janúar. Keppt verður eftir Monrad-fyrirkomulagi, alls 12 umferðir. Skráning er hjá BSI eða Jóni Baldurssyni í s: 77223. Sigurvegarar í aðalsveita- keppni Hafnfirðinga varð sveit Drafnar Guðmundsdóttur. Með henni spiluðu í sveitinni; Ásgeir R Ásbjömsson, Hrólfur Hjaitason og Sverrir Ármannsson. Minnt er á skráninguna í ís- landsmót kvenna og yngri spilara í sveitakeppni, sem spiluð verður um aðra helgi. Skráð er á skrif- stofu Bridgesambandsins, og lýk- ur skráningu á miðvikudaginn. Mjög góð þátttaka var hjá Skagfirðingum sl. þriðjudag. Yfir 50 spilarar mættu til leiks, í eins kvölds tvímenningskeppni. Efstu skorir tóku Ármann J. Lámsson og Olafur Lámsson 287 og Ragn- heiður Tómasdóttir og Lovísa Jó- hannsdóttir 263. Næsta þriðjudag verður enn eins kvölds tvímenningskeppni, en þriðjudaginn 5. febrúar hefst svo aðalsveitakeppni deildarinn- ar. Erlendir gestir á Bridgehátíð 1991 verða að líkindum sveitir frá USA (Sontag, Polowan, Molson og Baran), Austurriki (Fucik, Meinl, Berger og Terreano) og blönduð sveit með höfðingjann Zia í fararbroddi. Einhverjar breytingar gætu þó orðið í þessum efnum, m.a. vegna vaxandi ókyrrðar í heiminum. Nánar siðar. Eftirfarandi spil kom fyrir hjá Skagfirðingum þriðjudaginn 15. janúar (eins kvölds tvímennings- keppni). Flestir urðu sagnhafar í 6 spöðum eða 6 gröndum á spilið. Á öllum borðum varð sama niður- staða. Einn niður (tvo niður í alsl- emmu, sem sást einhversstaðar). Þórður Sigfússon kom að máli við undirritaðan og gaukaði spilinu að honum með þeim orðum, að alltaf mætti vinna spilið, en það væri ekki sjálfgefið. Lítum á þetta glæsilega spil: S:--- H' 53 T: DG1096 L: DG10876 S: ÁD973 S: KG1082 H: Á2 H: K4 T: Á73 T: K84 L: K92 L: Á53 S: 654 H: DG109876 T: 52 L: 4 Vestur er sagnhafl í 6 spöðum, eftir að Norður hefur „spriklað" í láglitunum og Suður gefið (óvænt) hjartasögn á leiðinni. Út- spil Norðurs er laufadama. Og þú tekur við, lesandi góður. Einhver áætlun? Við Þórður vorum sammála um, að vinningsleiðin væri ekki skýrð í bókum (né kirkjuritum). Einna helst að líkja mætti aðferð- inni við „aftöku í björtu“ og sleppa frá því. Lítum á úrvinnsluna, að „hætti“ Þórðar: Við tökum á laufakóng heima. Spaðann tökum við þrisvar. Tígul á kóng, tígul að ás. Leggjum nið- ur hjartaás og hendum kóng undir og meira hjarta. Suður á ekkert nema hjarta eftir. Við trompum í borði, hendum tígli að heiman, spilum trompi heim og síðasta trompið þvingar Norður í tígli og laufi. I þriggja spila endastöðu á sagnhafi heima, eitt tromp, einn tígul og eitt lauf. Norður á hæsta tígulinn og laufagosa og tíu og blindur er með einn tígul og laufa- ás annan. Þegar síðasta trompinu er spilað, er Norður einfaldlega þvingaður i láglitunum. Stór- glæsilegt spil. Þórður Sigfússon á heiður skilinn fyrir frábært „auga“ í leiknum. Spil sem þessi liggja víða á spilakvöldunum. Málið er að koma auga á þau. Gefa þeim líf. 18.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 25. desember 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.