Þjóðviljinn - 25.01.1991, Blaðsíða 3
Katarína Nolsöe í hlutverki trúðsins Flvils.
Nurlarinn
Færeyskur leikhópur flytur færeyskt bamaleik-
rit á íslensku í Norræna húsinu um helgina.
Um helgina verða aufúsu-
gestir í Norræna húsinu.
Það eru færeyskir listamenn,
leikhúsfólk í leikhópnum Leik-
apettið, sem sýna munu barna-
leikrit er hlotið hefur nafnið
Kraddarin á færeysku, en það
útleggst Nurlarinn á íslensku.
Eins og nafnið bendir til er
Nurlarinn gírugur mjög, en þar að
auki fer af honum hið versta
þjófsorð. Hann stelur sérlegum
stakki frá veðurguðunum Gnísu
og Gumpu sem guðimir mega
auðvitað ekki vera án. Trúðurinn
Fívil kemur veðurguðunum til
hjálpar og leiðir áhorfandann um
leið inn í ævintýrið. Það er ekki
heiglum hent að ná stakknum, en
tekst þó að lokum.
Kraddarin er saminn upp úr
gamalli færeyskri sögn um sauða-
manninn á Söndum, af Súsönnu
Tórgarð og Biritu Mohr. Söng-
texta hefur Axel Tórgarð samið,
en tónlistin er eftir Hans Pauli
Tórgarð og Egi Dam. I hlutverki
trúðsins er Katarina Nolsöe. Þess
má geta að Katarina og Birita
hafa báðar lokið prófi frá Leiklist-
arskóla íslands.
Leikurinn var frumsýndur í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn
þann 7. nóvember síðastliðinn og
hefur notið gríðarlegra vinsælda.
Þannig hafa á sjötta þúsund
manns séð leikinn, sem þýðir að
um það bil 10% þjóðarinnar hefur
þegar séð leikritið.
Atvinnuleiklist hefur eflst á
undanfömum árum í Færeyjum
og fjárveitingar hins opinbera til
leiklistar hafa aukist. A síðast
liðnu ári veitti færeyska Lögþing-
ið tveimur milljónum danskra
króna til leiklistar og sér sérstök
nefnd Leikpals Föroyja um að út-
deila þessu fé.
Nýlega sýndi hópur úr Havn-
ar sjónleikarfelag söngleikinn
Skuggagestir eftir Martin Joen-
sen. Söngleikir hafa sjaldan verið
á Qölum leikhúsanna og em
Skuggagestir fýrsti færeyski
söngleikurinn sem upp er settur.
Starfsemi áhugaleikfélaga er
þó burðarásinn í færeysku leik-
listarlífi og em áhugaleikfélög
stöðugt með sýningar af ýmsu
tagi víða um eyjamar.
hágé.
SUMIR VIRÐAST ALLTAF GETA VEITT SÉR MEIRA EN AÐRIR
Hvemig stendur á því?
ÆUa má að skilvís Ijölskylda spari sér
meira en hundrað þúsund krónur
iriega, þegar þess er gætt hvemig farið
getur, ef gjalddaga hinna ýmsu
skuldbindinga hennar er ekki gætt
Nútfma heimilishaid getur kallað bæði
i lintökur af margvíslegum toga og
neyslu, sem greidd er eftir i. Nefna mi
útgjöld til húsnæðiskaupa, veitugjöld
hvers konar og opinber gjöid sem
dæmi. Dráttarvextir og innheimtu-
kostnaður safnast hratt f útrúlegar
fiirhæðir ef skilvísi er ekki í hivegum
höfð i heimilinu.
16. febrúar leggjast dráttarvextir i lin
með linskjaravfsitölu.
1. mars leggjast dráttarvextir i lin
með byggingavisitöiu.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
SUÐURLANDSBRALÍT 24 108REYKJAVIK ■ SlMI 696900
... OG NÚ ERU ÞAÐ
HÚSNÆÐISLÁNIN.
GIALDDAGI ÞORRA ER
1. FEBRÚAR.
KOTASÆLA
fitulítil og freistandi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi
SKEMMTISKREPP UM HELGI TIL...
MUPMMMHOFH
Söluskrifstofur Flugleiða: vrSA
Lækjarqötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir i síma 6 90 300.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum Flugíeiða, I.
, hjá umboðsmönnum og ferðaskrifstofum
HELGAHFERÐ
FÖSTUDAGUR TIL MÁNUDAGS
ADMIRAL / SOPHIE AMALIE
TVEIR í HERR. KR. 36.390 Á MANN
FLUGLEIÐIR
Þjónusta alla leið