Þjóðviljinn - 22.02.1991, Side 16
\
SÍMASAMBANDIÐ
- Eyja, ert þú búin að gera skatta-
skýrsluna?
- Elsku Óli minn! Ert þú að spyrja
um skattaskýrsluna?
- Ertu búin að gera þína?
- Já, já. Ég lauk henni á tilsettum
tíma. Náði að stinga henni inn um
bréfalúguna á Skattstofunni rétt fyrir
miðnætti á skiladaginn. Mér finnst
orðið langt síðan það var 10. febrúar.
- Pabbi og mamma eru enn að
gera sína. Þau fengu frest. Af hverju
fékkst þú ekki frest?
- Æ, mín er ekki svo flókin og mer
finnst líka best að Ijúka þessu af. Ég
hef ekkert að telja fram nema minar
föstu tekjur og svo skuldirnar af íbúð-
inni.
- Skuldar þú líka?
- Já, ég skulda svolítið. Ekkert
hættulega mikið þó.
- Skulda allir?
- Ég er hrædd um að vel flestir
skuldi nú eitthvað. Þjóðfélagið er
bara þannig. Við lifum öll um efni
fram.
- Mamma fór að gráta þegar hún
sá á skattaskýrslunni hvað þau
skulda mikið. Hún sagði að þau verði
aldrei búin að borga allar þessar
skuldir. Samt eru þau alltaf að vinna.
Þau eru aldrei heima. - Verð ég líka
að gera skattaskýrslu, þegar ég er
orðinn stór?
- Já. Þú kemst nú varla hjá því,
Óli minn. Allir verða að gera skatta-
skýrslu og þorga skatt.
- Líka Ólafur Ragnar?
- Já, já, líka Ólafur Ragnar.
- En fær hann ekki alla pening-
ana?
- Nei, nei, Óli minn,
ekki hann sjálfur. Hann
fær bara kaupið sitt og
verður að borga skatt af
því, eins og allir aðrir.
Skattpeningarnir eru það
sem við köllum sameigin-
legan sjóð allra lands-
manna. Ólafur Ragnar og
alþingismennirnir stjórna
því bara hvernig þessum
peningum er skipt á milli
okkar aftur. Við fáum þá
nefnilega til baka, skil-
urðu.
- Fáum við þá til
baka? Hvernig þá?
- Jú, sjáðu til. Við eig-
um öll saman það sem
gert er fyrir skattpening-
ana. Við eigum skólana
og dagheimilin og sjúkra-
húsin og elliheimilin og
vegina og flugvellina og
útvarpið og sjónvarpið og
leikhúsin og íþróttahúsin
og strætisvagnana og ég
veit ekki hvað. Við eigum
þetta allt saman.
- Líka ég?
- Já, líka þú. Auðvit-
að!
- En ég hef aldrei
borgað neinn skatt.
telpa á leikskólanum Grænuborg.
- Nei, en afi þinn og amma hafa
gert það, og pabbi þinn og mamma
og ég og Valdi og margir, margir fieiri
hafa borgað hann fyrir þig. Svo þegar
þú ert orðinn stór, þá borgar þú fyrir
krakkana sem þá fara í skóla og fyrir
okkur, sem verðum orðin gömul og
þurfum að fara á elliheimili. Finnst
þér það ekki sanngjarnt?
- En þá verð ég að fá alveg rosa-
lega mikið kaup. Eru ekki elliheimili
svo dýr?
- Jú, jú, þau eru dýr. Þess vegna
verður þú ekki látinn borga þau einn.
Allir hinir sem vinna fyrir kaupi borga
líka skatt.
- Sjokk! Hvað ég er feginn.
- Já, og svo skaltu bara njóta
þess að vera í skólanum ÞÍNUM og
ganga á gangstéttunum ÞÍNUM. Og
ég skal kenna þér vísu sem við
krakkarnir sungum oft úti á götu þeg-
ar ég var stelpa.
Hún er svona:
MAÐURINN MEÐ HATTINN
STENDUR UPP VIÐ STAUR.
BORGAR EKKI SKATTINN
ÞVÍ HANN Á ENGAN AUR.
MUNIÐ LJÓÐABÓK BARNANNA
Jæja, krakkar. Nú er að grípa
tækifærið. Ef þið hafið verið að skrifa
Ijóð, eða teikna eitthvað skemmtilegt,
annaðhvort heima hjá ykkur eða skól-
anum, þá getið þið fengið það gefið út
í bók núna í vor.
ASÍ (Alþýðusamband íslands) á
75 ára afmæli í næsta mánuði og ætl-
ar af því tilefni að láta gera bók með
Ijóðum barna og teikningum. Bókin á
að koma út í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið og bókaútgáfuna Ið-
unni. En aðalatriðið eruð þið! Þið,
sem skrifið og teiknið og eruð 12 ára
og yngri.
Þið getið látið kennarana ykkar fá
Ijóðin, því skólarnir ætla að safna
þeim og teikningunum saman og
koma þeim til MFA (MFA þýðir Menn-
ingar- og fræðslusamband alþýðu).
Þið getið líka sjálf sent Ijóðin og
myndirnar beint til MFA, Grensásvegi
16, 108 Reykjavík.
SKILAFRESTUR ER TIL 1.
MARS. MUNIÐ 1. MARS.
Framhaldssagan
í síðustu tveim helgarblöðum
höfum við birt framhaldssöguna
hennar Sifjar Hrafnsdóttur í
Lundi í Svíþjóð. í dag kemur 3.
hluti. Kötturinn Snjólfur hafði
gefið Gunnjónu mús, sem hún
kunni ekki að meta. Hún rak
hann út. Snjólfur ályktaði sem
svo að Gunnjóna væri hrædd við
mýs og ákvað að fyrirgefa henni.
En á ieiðinni heim lenti hann í
slagsmálum við köttinn Baldur.
ÞÁ KOM LÖGGUMANN
OG HIRTI HANN
OG STAKK HONUM NIÐUR [
KJALLARANN.
GLtUjJLÍfcí:
T
!
r ^ <5>(g)
(X cT TTx u-r, * | • |
mih ^il
G-<X\OY)\£?hlA, :Xi-r
MV L & T lnojrnn
FRAMHALDSSAGA
16.SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 22. febrúar 1991
t
Framhald í næsta Helgarblaði
V