Þjóðviljinn - 21.03.1991, Side 15
Altaristaflan
stóð í mér
Hér er ein stutt um ferming-
arbarnið sem var spurt
hvernig fermingin hafi verið:
„Jú, jú. Vínsullið var svosem
allt í lagi, en það var verra
með altaristöfluna. Hún fest-
ist í kokinu.“
Pappírsverk-
smiðju
á Keilisnes
Alþýðubandalagið á Reykja-
nesi hélt velsóttan fund í
samkomusal íþróttahússins í
Hafnarfirði á þriðjudags-
kvöldið. Alls mættu um 80
manns á fundinn. Ólafur
Ragnar Grímsson formaður
flokksins komst ekki á fund-
inn fyrr en seint um kvöldið
vegna anna á Alþingi. Ólafur
ræddi vítt og breitt um
stjórnmálabaráttuna fram-
undan og kom meðal annars
inn á það að í kjördæminu
væri maður í framboði með
pappírsverksmiðju. Fundar-
menn áttuðu sig ekki strax á
hvert fjármálaráðherra var
að fara. Ólafur bætti þá við
að þessi pappírsverksmiðja
hefði átt að framleiða ál.
Skattar í A-flokki
Skattamál voru rædd á fund-
inum, enda fjármálaráðherra
í ræðustól. Fannst fundar-
mönnum súrt í broti hversu
mikið fasteignagjöld í Hafn-
arfirði hefðu hækkað, en
einsog kunnugt er þá fóru
verkalýðsfélögin í Hafnarfirði
fram á það við Alþýðuflokks-
meirihlutann í bænum, að
fasteignagjöldin hækkuðu
ekki umfram aðrar hækkanir
í þjóðfélaginu. Kratarnir
daufheyrðust hinsvegar við
því. Ólafur Ragnar sagði
það vonlegt, enda væru
skattar í Hafnarfirði í A-
flokki.
Sjö bollar á dag
Meðalneysla landsmanna 16
ára til 75 ára á koffeindrykkj-
um, eru sjö bollar á dag.
Þetta kemur fram í nýjasta
tölublaði Heilbrigðismála.
Könnunin var gerð af Geð-
rannsóknastofnun Háskól-
ans og kom í Ijós að 95%
fullorðinna Islendinga neyta
koffeindrykkja daglega. Kaff-
ið er lang algengast, 78%
drukku það, kóladrykkir voru
í öðru sæti 27%, 21%
drukku te og 10% súkkulaði-
drykk.
Kóladrykkirnir höfðu vinning-
inn í yngri aldurshópunum
en kaffið í þeim eldri.
RÚSÍNAN...
Fögnuður
í menntamálaráðuneytinu
Svavar Gestsson sker tertuna I menntamálaráðuneytinu ( gær. Með honum á myndinni eru meðal annarra þær Guðnín
Ágústsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra, og Svanhildur Kaaber, formaður Hins Islenska kennarafélags. Mynd: Jim Smart.
að var tilefni til fagnað-
ar í menntamálaráðu-
neytinu í gær þegar
Svavar Gestsson fagn-
aði með starfsmönnum
ráðuneytisins og nokkr-
um gestum merkum áfongum
sem náðust á sviði menntamála á
síðustu dögum Alþingis.
Það voru fimm stefnumarkandi
mál sem menntamálaráðuneytið
náði að koma í gegnum þingið á
síðustu dögum þess: ný grunn-
skólalög, ný Ieikskólalög, ný lög
um listamannalaun, niðurfelling
virðisaukaskatts á tækjum til vís-
indarannsókna og kaup á stórhýsi
Sláturfélags , Suðurlands fyrir
Listaháskóla Islands.
Svavar sagðist telja lögin um
leikskóla vera málefnalegan stór-
sigur, þar sem leikskólinn væri nú
orðinn viðurkenndur sem hluti af
skólakerfi landsins, þótt ekki sé
um skólaskyldu að ræða. Sagðist
hann vita að margir starfsbræður
hans á Norðurlöndunum öfunduðu
okkur af þessum árangri, en þar
hefur þessi breyting ekki enn náð
fram að ganga.
Svavar sagði að það hefði ver-
ið sérlega ánægjulegt við af-
greiðslu grunnskólafrumvarpsins,
hversu víðtæk samstaða hefði
náðst um það mál á milli allra
f1''vka, þannig að frumvarpið hefði
ð afgreitt samhljóða. Þetta væri
ilvægt fyrir starfsfólk ráðu-
tisins í framtíðinni, þar sem all-
ir flokkar bæru nú jafna ábyrgð á
frumvarpinu. Svavar sagði að
breytingamar sem orðið hefðu á
frumvarpinu í meðferð þingsins
væru til bóta að hans mati.
Lögin um listamannalaun fela í
sér þá nýbreytni að horfið er frá
gamla kerfinu til þess að myndaðir
em fjórir sjóðir: myndlistarsjóður,
rithöfundasjóður og tónlistarsjóður
og svokallaður listasjóður, sem
einkum er ætiað að veita starfs-
styrki til túlkandi listamamia.
Þeir sem nú em á listamanna-
launum munu áfram fá styrki úr
þessum sjóði, en þeir munu smám
saman falla niður og nýja kerfíð
taka við.
Stærð hinna einstöku sjóða
verður miðuð við það hversu mikið
heftir mnnið til viðkomandi list-
greinar undanfarin ár.
Hið nýja kerfi verður meira
miðað við starfsstyrki til ákveð-
inna verkefna en áður, og verður
möguleiki á veitingu starfslauna til
stærri verkefna í 2-3 ár. Þá er einn-
ig miðað við að sjóðurinn geti að-
stoðað dansara og aðra listamenn
sem hafa stuttan starfsaldur til end-
urmenntunar.
Lögin um niðurfellingu virðis-
aukaskatts af vísindatækjum munu
skipta sköpum fyrir ýmsar rann-
sóknastofnanir, t.d. Norrænu eld-
fjallastöðina.
Sagt er frá nýju húsnæði fyrir
listaskóla annars staðar í blaðinu í
dag.
Þjóðviljinn samgleðst með
starfsmönnum menntamálaráðu-
neytisins vegna árangursríks starfs.
-ólg.
I 1 i
Nú skal ég svo
sannarlega leggja
mig alla fram um
að vera góð!
O
o,
Síða 15
ll
ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 21. mars 1991