Þjóðviljinn - 17.04.1991, Page 5
Etrijrnbar feettir
Enn talað um „alþjóðlega
nálægð“ í Irak til bjargar Kúrdnm
Jafnframt því sem banda-
rískar hersveitir, sem her-
setið hafa hluta Suður-íraks
frá því að Persaflóastríði
lauk fyrir hálfum öðrum
mánuði, fluttu sig þaðan á
brott, hvöttu ýmsir enn á ný
til þess að erlendir aðiiar yrðu
áfram til staðar innan landa-
mæra íraks til verndar miklum
hluta landsmanna gegn stjórn
þess.
Að því stuðla yfírlýsingar firá
stjómum Tyrklands og Irans, sem
segja að þeim sé ómögulegt að sjá
ráð fyrir þeim fjölda flóttamanna,
sem á náðir þeirra hefur leitað,
enda ráð fyrir því gert að sá
straumur sé hvergi nærri á enda.
Princeton Lyman, fram-
kvæmdastjóri flóttamannadeildar
bandaríska utanríkisráðuneytisins,
sagði á mánudag að þörf væri á
„alþjóðlegri nálægð“ í Irak til þess
að fólk þar þyrfti ekki að óttast um
öryggi sitt. Douglas Hurd, utanrík-
isráðherra Bretlands, sagði á þingi
í Lundúnum í gær að Sameinuðu
þjóðimar ættu að koma sér fyrir í
Norður-írak í þeim tilgangi að
„Kúrdar þyrftu ekki að reiða sig
eingöngu á loforð frá Bagdað" og
að „þeim væri óhætt að snúa
heim.“
En nú hefur verið skeggrætt í
viku um erlenda íhlutun í Irak til
hjálpar Kúrdum og sjítum án þess
að mikið hafi út úr því komið og
kemur ýmislegt til. Bush Banda-
ríkjaforseti þvertekur enn sem fyrr
fynr það að láta „draga Banda-
ríkjaher út í fen borgarastríðs í Ir-
aks,“ eins og bandarískir ráðamenn
hafa orðað það. Bæði KJna og
Sovétríkin, sem hafa fastafulltrúa í
Öryggisráði S.þ. og þar með
möguleika á að hindra að það sam-
þykki íhlutun til bjargar Kúrdum,
hafa bmgðist neikvætt við tillög-
um um „griðland" fyrir Kúrda í
Norður- Irak. Og arabaríki þau,
sem vom Bandaríkjanna megin í
Persaflóastríði, em mótfallin öllu
sem komið gæti raski á stjómarfar
í írak.
Stúlkur ( Bagdað eftir eina af loftárásum bandamannahers - þrátt fyrir það glfurlega tjón, sem Bandaríkjamenn ollu Irak I
Persaflóastrlði em þeir landsmenn, sem vildu að andstæðingarnir I því stríði tækju meira af landinu og yrðu þar lengur
líklega fleiri en hinir, sem gleðjast við brottför þeirra.
Skilaboð til Bakers
Vopnaðir Israelar hófú í gær
að reisa nýja nýbyggð gyðinga
á hæð um 18 km ffá Nablus á
Vesturbakka og verður hún
nefnd Revava. Einn forustu-
manna þeirra, sem standa að
framkvæmdum þessum, sagði
að þær væm ásamt með öðm
skilaboð til James Baker, utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna,
sem von er á til ísraels á morg-
un, þeirra erinda að miðla mál-
um með aröbum og Israelum.
Bandaríkin hafa oftsinnis lýst
yfir óánægju sinni með land-
nám Israela í hémðunum sem
þeir halda hersetnum síðan eftir
sexdagastríðið 1967.
Hvatt til sátta
Bandaríkjanna og
Kúbu
Alþjóðasamband jafnaðar-
manna hefúr ákveðið að fara
frarn á það við Bandaríkin að
þau afnemi viðskiptabann sitt
gegn Kúbu, að sögn varafor-
manns samtakanna fyrir Róm-
önsku Ameríku, José Francisco
Pena Gomez. Að sögn hans
vilja samtökin að Bandaríkin
og Kúba taki að nýju upp eðli-
leg stjómmála- og viðskipta-
sambönd sín á milli. Pena
Gomez hefúr ennfremur lagt til
að Bandalag Ameríkuríkja
(OAS) taki Kúbu í samtökin á
ný.
Mengunarslysi afstýrt?
Hafnarstjóri ítölsku borgar-
innar Genúu hélt því fram í gær
að olíulekinn úr geymum risa-
tankskipsins Haven, sem sökk
eftir bruna á Genúuflóa á
sunnudag, hefði stöðvast. Miklar
birgðir þykkrar, íranskrar hrá-
olíu eru í geymum skipsins.
Hafnarstjórinn telur að þar með
sé mesta hættan á stórfelldu meng-
unarslysi liðin hjá. Áður hafði því
verið spáð að af þessu myndi leiða
mesta mengunarslysið hingað til á
Miðjarðarhafi. Olía, sem rann úr
geymunum áður en skipið sökk, er
þó á floti á flóanum og berst með
vindi áleiðis að ffönsku Rivíe-
runni. Eitthvað af olíubrák hefur
þegar skolast upp á strönd ítölsku
Rivíerunnar. Kolsvartan reykjannökk lagði upp af Haven áður en það sökk.
ANC og PAC fordæma afnám innflutningsbanns
Afríska þjóðarráðið (ANC)
og Panafríkanska ráðið (PAC),
tvenn af helstu samtökum suður-
afrískra blökkumanna, for-
dæmdu í gær sameiginlega þá
ákvörðun stjórna Evrópubanda-
lagsríkja að leyfa á ný innflutn-
ing á járni, stáli og gullmynt frá
Suður-Afríku.
í yfirlýsingu ANC og PAC um
þetta hvetja samtökin einnig íbúa
EB- ríkja til þess að beita sér fyrir
því að stjómir þeirra setji innflutn-
ingsbann á þessar suðurafrísku
vömr á ný.
Samþykktin um þetta var gerð
á fúndi ANC og PAC í Harare,
höfuðborg Zimbabwe, og er mál
fréttaskýrenda að fundurinn og
í gær lést í Lundúnum breski
kvikmyndahöfundurinn og leik-
stjórinn David Lean, 83 ára að
aldri. Hann er talinn hafa verið
einn mestu snillinga á sínu sviði
og 28 af myndum hans fengu
Oskarsverðlaun.
samþykktin bendi til þess að nú
dragi saman með þeim. Hingað til
hefur löngum verið kalt á milli
þeirra.
Af kvikmyndum hans em hvað
þekktastar Lawrence of Arabia
(Arabíu-Lawrence), The Bridge on
the River Kwai (Brúin yfir Kwai-
fljótið), Dr. Zhivago og A Passage
To India.
David Lean látinn
A Umsjón: Dagur Þorleifsson
Bandaríkja-
hermenn
til Norður-
✓
Iraks
Bandaríkjastjóm hefur
ákveðið að senda hermenn inn
í íraska Kúrdistan til að hjálpa
til við að dreifa matvælum,
lyfjum og öðmm hjálpargögn-
um til flóttamanna þar, að sögn
Marlins Fitzwater, talsmanns
Hvíta hússins.
Bandarískar, breskar og
ffanskar flugvélar og þyrlur
em nú stöðugt á flugi yfir
íraska Kúrdistan til að dreifa
hjálparbirgðum til flóttamanna.
Bandarískir embættismenn
taka ffam að aðeins fáir her-
menn verði sendir inn í Irak og
að þeir eigi eingöngu að sinna
líknarstörfum. Kemur ekki
ffam af ummælum þeirra að
hermönnum þessum sé ætlað
að verða flóttafólkinu til
vemdar gegn íraska hemum.
Imelda:
Orðin önnur
manneskja
Imelda Marcos, ekkja
Ferdinands Marcosar sem í tvo
áratugi var forseti og einræðis-
herra yfir Filippseyjum, segist
nú vera orðin önnur mann-
eskja. Fyrra líf hennar hafi ver-
ið ftillt af hégóma og heimsku-
pömm, en nú sé búið með það.
Hún segist fastákveðin í að
snúa heim til Filippseyja til að
þjóna þjóðinni, en þvertekur
fyrir að hún hafi áhuga á að
verða forseti. Orðrómur um
það er nú kominn á kreik.
Imelda hefur verið útlæg
ffá þvi að þau hjón flúðu land
1986 og Corazon Aquino, nú-
verandi forseti, hefur til þessa
neitað henni um leyfi til að
snúa aftur. Er hún sökuð um
hlutdeild í stórfelidum fjár-
drætti með manni sínum.
Frægust er hún orðin fyrir
miklar birgðir dýrindis fatnað-
ar og annarra gersema, sem
hún safhaði að sér sem forseta-
frú, sérstaklega voru kaup
hennar á skófatnaði umfangs-
mikil.
Ferdinand Marcos lést á
Hawaii 1989.
Frestað að ná
Komsomolets
upp
Hollenskir aðilar, sem hafa
í hyggju að ná upp af hafsbotni
sovéska kafbátnum Komso-
molets, sem sökk í Barentshaf
í apríl 1989, hafa ákveðið að
ffesta þeim aðgerðum fram á
mitt ár 1993. Áður hafði verið
fyrirhugað að byrja á því að ná
flakinu upp sumarið 1992.
Ástæðan til ffestunarinnar er
að Sovétrikin, sem ætla að
kosta framkvæmdir þessar,
hafa ekki enn getað lagt fram
fé til þeirra, að sögn fyrirtækj-
anna sem hafa tekið þær að
sér.
Komsomolets var kjama-
knúinn og hafði um borð tvö
tundurskeyti með kjamaodd-
um. Er óttast að það leiði til
mengunar í hafinu þar af völd-
um geislunar, en vísindamenn
hafa sagt að ekki eigi að vera
hætta á því næstu þijú árin
a.m.k.
Flakið liggur á um 1700
metra dýpi. 42 sjóliðar fómst
með bátnum.
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 17. apríl 1991