Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 2
Hreyfing
er fyrir
ölíu
- Ætli maður gæti ekki hlaupið
smásprett, sagði fijálsíþróttaleiðtog-
inn Jóhann Jóhannesson í gasr. En
þann 30. júlí efnir Glimufélagið Ár-
mann til hlaups-skokks-göngudags
til heiðurs Jóhanni og fleiri köppum,
sem gerðu garðinn frægan með
íþróttaafrekum sínum íyrr á árum.
Síðasta dag júlímánaðar heldur
Jóhann upp á 85 ára afmælið sitt og
þá heldur fijálsíþróttadeild Armanns
mót honum til heiðurs á Varmárvelli
í Mosfellsbæ. Þótt árin séu orðin
mörg er Jóhann hress og segist hann
þakka íþróttunum hversu unglegur
hann er.
- Hlaupið hefur verið mín della i
lífinu, og ég var svo heppinn að kona
mín hafði ekki síður áhuga á íþrótt-
unum en ég. Ég varð fjórfaldur
meistari á meistaramótinu árið 1930,
en þótt ég hafi lítið keppt eftir að ég
tók að eldast þá hef ég verið viðloð-
andi íþróttimar. I 60 ár hef ég verið i
stjóm fijálsíþróttadeildar Armanns,
og í ein 50 ár var ég formaður deild-
arinnar. Ég losnaði íyrst úr stjóminni
í fyrrahaust.
I heiðurshlaupinu verða hlaupnir
tveir til tólf kílómetrar í nágrenni Ár-
mannssvæðisins og er öllum vel-
komið að taka þátt. Kjörorð beggja
mótanna verða: hreyfing, vellíðan,
bindindi og heilbrigði. Eða eins og
Jóhann sagði: Hreyfmg er fyrir öllu.
Hressir [þróttakappar á besta aldri. Þeir Guðmundur Arason, Jóhann Jóhannesson og Þorsteinn Einarsson.
Hlaupið verður að auki haldið til verður einnig heiðmð minning iát- Gunnars Eggertssonar og Stefáns
heiðurs stórvinum hans Guðmundi inna Ármenninga, þeirra Jens Guð- Kristjánssonar.
Arasyni og Þorsteini Einarssyni. Þá bjömssonar, Jóns Þorsteinssonar, BE
Lágværar
lágmyndir
og aggressívir
skúlptúrar
Kollegamir Sveinn Þorgeirsson og Daníel Magn-
ússon em búnir að leggja undir sig Nýlistasafhið. Þeir
sýna alls ólík verk; Sveinn hefur komið fyrir tröllvöxn-
um skúlptúrum og veggskreytingum á neðstu hæðinni
og salnum inn af henni, en Daníel hefur hengt upp lág-
myndir sínar uppi á lofti, þar sem er skemmtilegt útsýni
yfir bakgarðinn og skrítnu svalimar á húsinu á móti.
Sýning þeirra félaga stendur til 14. júlí.
Uppi á lofti við lágmynd, hattlaus en með fortáta húfu, listamaðurinn Daniel Magnússon.
Mynd: Kristinn.
Franskur
saxófónn
Heitt var í kolunum á Púlsinum
á miðvikudagskvöldið. Blés þá í
saxófón Frakkinn Daniel Beaussier
ásamt kvartett sínum við mikinn
fögnuð djassara á staðnum. Með
honum í hitanum vom auk þess
landar vorir, þeir Eyþór Gunnars-
son á píanó, Tómas R. Einarsson á
kontrabassa og Pétur Grétarsson
trommuleikari.
Daniel þessi er mjög fjölhæfur
blásari og fátt sem hann getur ekki
Ieikið á. Hann spilar á tenór og
sópransaxófón, flautu, óbó og
bassaklarínett.
Kristinn myndasmiður rak inn
nefið á Púlsinn og smellti þessari
mynd af Frakkanum snjalla.
ÍRÓSA-
•GARÐINUM
OG ÉG SEM HELT
ÞAÐ VÆRI STARRI í
GARÐI
Köld vor verstu óvinir Kísil-
iðjunnar við Mývatn
(DV)
ÞAÐ VANTAR
AÐHALD í RIKIS-
REKSTURINN
Jón Óttar verði útvarpsstjóri
(DV)
ER STRIGAKJAFT-
URINN AÐ LINAST?
„Ég má ekkert, vil ekkert og
get ekkert um þetta sagt,“ sagði
Sverrir Hermannsson bankastjóri í
morgun.
(DV)
HVER SKER ÚR
UMÞAÐ?
Sjúklingar en ekki skrimsli.
(Þjóóviljinn)
BÚIST ÞIÐ VIÐ
KRAFTAVERKI?
Ætlar ríkisstjómin að ákveða
sig í dag?
(Tíminn)
EÐLILEG SJÚK-
DÓMSEINKENNI
- Þegar geðsjúkir eiga í hlut
vísar hver á annan
(Alþýóublaóió)
lítill glans það
Glansbrúðkaupið sem ekkert
varð úr
(MorgunblaóiQ
ÞAÐ ER MARGT
ROTIÐl.
„Samstarf* íslands og Banda-
ríkjanna afhjúpað í dag
(MorgunbtaóiO)
ÞEGAR NEYfMN
ER STÆRST...
Fjöldi íslendinga sem ég veit
um hefir hjálpað landinu sínu með
því að kaupa íslenzka vodkað
dyggilega.
(Morgunblaóió)
2.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. júlí 1991