Þjóðviljinn - 05.07.1991, Page 6
Atvinnuleysi tvöfaldast
Nú horílr Klaus Dworschak með söknuði um öxl
til Berlínarmúrsins
D:
Iag einn fyrir um það bil ári fór Austur-Berlínarbúinn Klaus
Dworschak snemma á fætur til að sækja fyrstu raunveruiegu
peningana, sem hann hafði eignast á ævinni, eða það fannst
honum. Það var fyrsta júlí 1990 og vesturmarkið hafði um mið-
nætti haldið innreið sína í Austur- Þýskaland.
„Ég gleymi þeim degi aldrei,“
segir Dworschak. „Ég var óstyrk-
ur á taugum og sveittur á hönd-
um.“ Hann segir síðan frá fram-
tíðardraumum og fyrirætlunum
sem hann og ótalmargir fleiri
voru gagnteknir af á þessum dög-
um vonar.
Nú er hinsvegar svo komið að
Dworschak horfir með söknuði
um öxl til Berlínarmúrsins og
austurþýska ríkisins gamla. Helst
vildi hann að sú tið kæmi aftur. Þá
þurfti ekki að óttast atvinnuleysi,
húsaleigan var lág og menn höfðu
peninga afgangs til að fá sér eitt
eða tvö glös af bjór á kránni hinu-
megin við homið.
EBFSS
ESSUNNI
Ef þú ert fóstra..................
sem hefur áhuga á að breyta til, þá vantar okkur
liðsauka á leikskólann Sólvelli í Neskaupstað.
Við munum taka vel á móti þér og útvega þér hús-
næði á góðum kjörum.
Á sumrin er hér mikil veðursæld og svo búum við
nálægt einu besta skíðasvæði landsins.
Leitaðu frekari upplýsingar hjá Guðrúnu yfirfóstru í
síma 97-71485 eða félagsmálastjóra í síma 97-
71700.
Börn og starfslið Sólvalla
Atvinna - útkeyrsla
Þjóðviljinn vantar starfsmann í útburð og útkeyrslu
blaða. Þarf að vera léttur í spori og hafa bíl til um-
ráða. Starfstími frá ca. kl. 04.00 til 08.00 f.h. Nánari
upplýsingar veitir afgreiðslustjóri.
Þjóðviljinn
Atvinna
Okkur vantar starfsmann á afgreiðslu blaðsins, við
símavörslu og fleira. Um er að ræða hálft starf til að
byrja með. Nánari upplýsingar hjá afgreiðslustjóra.
Skriflegar umsóknir sendist framkvæmdastjóra
Þjóðviljans fyrir 10. júlí.
Þjóðviljinn
Aðalfundur
Aðalfundur Útgáfufélags Þjóðviljans fyrir árið
1990 verður haldinn að Hverfisgötu 105, mánu-
daginn 8. júlí, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Samningur við Útgáfufélagið Bjarka hf.
3. Niðurstöður úr lesendakönnun Þjóðviljans.
4. Önnur mál.
Stjórnin
Á þeirri horfnu tíð vann
Dworschak hjá stóru fyrirtæki i
rafeindaiðnaðinum, Werk fur
Femsehelektronik, í Austur-
Berlín. Það var þá ríkiseign, en nú
stjómar því Treuhandstofhunin,
sem hefiir það hlutverk að einka-
væða austurþýska atvinnulífið.
Og nákvæmlega ári eftir að
Dworschak sótti sín fyrstu vestur-
mörk var honum sagt upp vinn-
unni þar. Hann var búinn að vinna
hjá þessu fyrirtæki samfleytt í 29
ár. Nú er líf hans „kaputt", eins og
hann orðar það.
Kohl á dögum endursameiningar-
innar - lofaði að næstum allir
skyldu hafa það betra en áður.
„Ég er orðinn fimmtugur og
því verðlaus á vinnumarkaðnum.
Það er ekki annað að gera en sitja
heima og reyna að drepa tímann
við ekkert. Hafi ég svolítið af
heppni með mér, kemst ég kann-
ski í endurmenntun og síðan á eft-
irlaun nokkrum árum fyrir tím-
ann.“
Klaus Dworschak er einn af
um 4000 starfsmönnum Werk fiir
Femsehelektronik sem misstu at-
vinnuna fyrsta júlí. Þann eina dag
fækkaði starfsmönnum þess fyrir-
tækis um næstum helming. Og
það er bara byrjunin á þeim breyt-
ingum á rekstri þess, sem nauð-
synlegar eru ef það á að hafa ein-
hverja möguleika á heimsmark-
aðnum, að áliti Manfreds Hytry,
sem er í stjóm sambands málm-
iðnaðarmanna.
Þetta er dæmigert fyrir það,
sem skeður þessa dagana og vik-
umar um allt hið fyrrverandi aust-
urþýska ríki. Fyrsta júlí féllu úr
gildi atvinnuöryggislög, sem urðu
til samkvæmt samkomulagi vest-
urþýsku stjómarinnar og þeirrar
austurþýsku og ætluð vom til að
auðvelda Austur-Þjóðveijum
breytingu tilskipanaefhahagslífs
þeirra í markaðskerfi.
Víða í Austur-Þýskalandi
fjölgaði atvinnulausum við þetta
um helming á einni nóttu. I stál-,
efna- rafeindaiðnaði o.fl. iðn-
greinum er fimmti hver maður at-
vinnulaus. Á sumum þeirra
svæða, þar sem ástandið er verst,
er næstum helmingur vinnufærra
manna án atvinnu.
,TImn efnahagslífsins á svæð-
inu er yfirvofandi,“ tilkynnti um
helgina vinnumiðlunarskrifstofan
í Erfurt.
Höfðu Austur-Þjóðveijar
hugsað sér að endursameiningin
yrði með þessum hætti? Með at-
vinnuleysi í auslri og ofurþenslu á
atvinnumarknum í vestri? Með
hækkandi verðlagi og húsaleigu?
„Ég minnist þess er við sóttum
búnka af bæklingum á ferðaskrif-
stofumar og sátum síðan á kvöld-
in og skipulögðum ferðalög. En
svo missti maðurinn minn vinn-
una og nú er ég atvinnulaus Iíka,“
segir kona að nafni Christa Dauer.
Hún er 55 ára og hefur unnið í
yfir 30 ár hjá sama fyrirtækinu.
Nú stendur hún í biðröð við skrif-
stofu starfsmannafélagsins þar til
að fá upplýsingar um hvemig hún
eigi að ná í atvinnuleysisbætur.
Reiði í garð Kohls
„Ég verð svo yfirgengilega
reið er ég hugsa um það, sem
Helmut Kohl sagði fyrir endur-
sameiningima og kosningamar.
Þá lofaði hann því að enginn
skyldi búa við verri kjör en áður
og að kjör næstum allra skyldu
batna,“ segir Christa Dauer.
Nú afsakar Kohl sambands-
kanslari sig með því að hann hafi
vanmetið vandamálin, en það hafi
einnig aðrir gert. Enginn hafi fyr-
ir ári getað áttað sig á, hvílíkt
þrotabú Austur-Þýskaland hafi
verið, segir kanslarinn.
Nú er hverjum miljarðinum á
fætur öðmm dælt inn í austurfylki
Þýskalands til að koma atvinnu-
lífinu þar á skrið og koma í veg
'fyrir að atvinnuleysi og vonleysi
breyti þessum hluta landsins í
púðurtunnu.
Austur-Þjóðveijamir kreppa
hnefana, en enn sem komið er að-
eins í vösunum. Fyrr á árinu var
talsvert um mótmælafundi og -
göngur, en það hefur lagst af.
„Það þýðir ekki annað en að
horfast í augu við það, að við gæt-
um ekki þótt við reyndum komið
af stað mótmælafiindum gegn
fjöldauppsögnunum,“ segja tals-
menn málmiðnaðarmannasam-
bandsins í Berlín, er þeir em
spurðir hversvegna því sé ekki
mótmælt að áðumefnd lög um at-
vinnuöryggi vom felld niður um
mánaðamótin.
Á hinn bóginn er hætta á að
óttinn við ffamtíðina leiði af sér
drykkjuskap, ofbeldi á götum og
aukna glæpatíðni. Manfred Hytry
óttast að svo kunni að fara og
bendir á vaxandi fylgi nýnasista
meðal atvinnulausra ungmenna.
Jafhffamt er í vexti þykkja
milli Þjóðverja í austri og vestri.
Vestur-Þjóðveijar em gramir út af
hækkunum á sköttum og afgjöid-
um, sem ákveðnar vom til að fjár-
magna endursameininguna. I
hinu fyrrverandi Vestur-Þýska-
landi fer þeim fjölgandi, sem ótt-
ast um velferð þá, er þeir hafa bú-
ið við í fleiri áratugi, og óska þess
að Múrinn væri ennþá á sínum
stað.
Óvelkomin
sníkjudýr
Austur-Þjóðveijum finnst
hinsvegar að í Þýskalandi hinu
nýja sé litið á þá sem óvelkomin
sníkjudýr. Það leiðir til þess að
þeir leggja oft fram kröfur sínar af
nokkurri hörku, og það eykur
bara þykkjuna milli þeirra og
hinna.
„Hefði einhver sagt við mig
fyrir ári að ég yrði atvinnulaus
eftir 12 mánuði, að ættingjar mín-
ir fyrir vestan myndu þá setja upp
ólundarsvip við að sjá mig og að
ég hefði ekki hugmynd um hvem-
ig ég ætti að borga húsaleiguna
fyrir næsta mánuð hefði ég skelli-
hlegið,“ segir Christa Dauer og er
nú gráti nær en hlátri.
(Eftir Tomas Lundin hjá
Svenska Dagbladet.
Myndatextar eru Þjóð-
’viljans.)
Heimilisleysingjar drepa tlmann á testofu I Leipzig. Þeim hefur slðustu mánuði hraðfjölgað I austurþýska r(k-
inu fyrrverandi. Margir, sem misst hafa atvinnuna, hafa ekki lengur efni á að borga húsaleiguna, sem hækkar
óðum til jafns við það sem er I vesturhluta Þýskalands.
6.SÍÐA — NYTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. júlí 1991