Þjóðviljinn - 05.07.1991, Page 14

Þjóðviljinn - 05.07.1991, Page 14
Golfþætti fylgt úr hlaöi Kæru lesendur og golfáhuga- fólk! Hér hefja göngu sína vikuleg- ir pistlar um golfíþróttina og ým- islegt sem tengist henni. Geysilegur áhugi á golfíþrótt- inni hefur gripið um sig meðal al- mennings og eru nú æ fleiri famir að stunda þessa íþrótt af fúllu kappi. Að mörgu þarf að huga bæði fyrir þá sem þegar stunda þessa íþrótt og þá sem hug hafa á að hefja iðkun hennar. Þar má fyrst telja þau áhöld sem nauð- synleg eru til að hefja leik, þ.e. golfkylfúr og golfkúlur auk þessa þarf golftösku, golfhanska, tí, flatarmerki, golfkerra og svona mætti lengi telja. Annað sem ekki er síður mikilvægt að hafa í haf- urtaskinu þegar golf er spilað og það er þolinmæði og þrautseigju, þvi golf er sú íþrótt sem eflaust reynir hvað mest á þessa þætti, og síðast en ekki síst er gott að hafa með sér golfreglumar til að vera við öllu búinn. Við munum í þessum vikuleg- um pistlum koma inn á ýmislegt það sem er að gerast í golflþrótt- inni. Þar munum við reyna að leita grasa meðal golfklúbba i landinu og reynum þá að fá upp- lýsingar um það sem er að gerast í þeim fjölmörgu klúbbum sem dreifðir era um allt land. Fastir liðir verða á sínum stað í hverri viku. Þar má fyrst nefna stuttar ábendingar um hin ýmsu atriði sem mikilvæg era þegar spilað er golf. Á íslandi era nú fjórir starfandi kennarar og munu þeir sjá um að gefa góð ráð er þetta varðar. I þessum pistil er tekið fyrir stefna kylfuhaussins þegar högg er tekið og afleiðingar þess að réttri stefnu er ekki haldið. Það er hin þekkti golfkennari John Drummond, sem var kennari i Golfklúbb Reykjavíkur í 7 ár en spilar nú atvinnumannagolf er- lendis, sem ætlar að gefa góð ráð í þetta sinn. I hverri viku munum við svo velja golfara vikunnar sem verður hver sem er úr röðum þeirra fjölmörgu einstaklinga sem stunda golflþróttina. Þá munum við taka fyrir þau ýmsu vafaatriði sem upp geta komið er varða regl- ur og hvað má og hvað ekki má i því sambandi. Við vonum svo að allir hafi eitthvað gagn og gaman af að fylgjast með þessum pistlum okk- ar. Sjáumst á golfvellinum. Evrópukeppni karlalandsliða í Madrid Landslið íslands sem hélt til Spánar til þátttöku í Evrópumóti landsliða var skipað eftirtöldum leikmönnum: Ulfar Jónsson GK, Siguijón Arnarsson GR, Þor- steinn Hallgrímsson GV, Guð- mundur Sveinbjömsson GK, Sveinn Sigurbergsson GK og Bjöm Knútsson GK. Liðsstjóri var Jóhann Benediktsson og far- arstjóri Frímann Gunnlaugsson. Einnig í for með liðinu var John Gamer, landsliðsþjálfari. Nokkrar væntingar vora gerð- ar um góðan árangur þar sem ár- angur íslenska liðsins hefúr verið mjög viðunandi undanfarin ár, verið á meðal B-þjóða ffá árinu 1985. Vonir voru bundnar við að strákamir myndu nú vera ofarlega í B-riðli og jafnvel eygja mögu- leika á sæti í A-riðli. Leikið var á Puerta de Hierro vellinum í Madr- id, en þar er einmitt „Madrid Op- en“, mót í evrópsku atvinnu- mannamótaröðinni leikið ár hvert. Völlurinn er par 72 og SSS hans er 73. En á fýrsta degi lék Golfari vikunnar í þessari viku er það hún Sig- ríður Th. Mathiesen sem er gol- fari vikunnar. Hún hóf að leika golf fyrir þremur áram síðan og hefúr bara gengið vel. Hún sagði okkur að þessi íþrótt eigi hug hennar allan og gaman væri þegar vel gengur. Þessa dagana er hún áð taka þátt i meistaramóti Gólf- klúbbs Reykjavíkur en hún er meðlimur í þeim klúbb. Þetta er í annað sinn sem hún tekur þátt í þessu fjögurra daga móti og ósk- um við henni góðs gengis. Regluþáttur Spurning: Leikmaður merkir og lyftir bolta á flötinni til að hreinsa boltann. Þegar leikmaður- inn setur boltann aftur á ílötina rennur hann nokkra sentimetra niður í smá dæld i flötinni. Hann leggur hann til baka og það sama gerist. Hvað á hann að gera? A. Halda áfram að leggja boltann á réttan stað þar til hann helst þar. B. Leika boltanum þar sem hann liggur. C. Leggja boltann á næsta stað, ekki nær holu, þar sem hann helst og leika honum þaðan. •uuipury jnQBis jruub U3 jnQB uuiqbis B83|Euruddn B UUBIJOq BragO[ QB JIJ JIUnBJJIJ JEBAJ jnQjoA bjoS qb QiSnqjy :hLV PC-OZ D :Jbas liðið ekki vel. Samtals skor ís- lenska liðsins var því 387 högg og var 15. sætið hlutskipti þess þenn- an fyrsta dag. Þrátt fyrir heldur slakan ár- angur vora íslendingamir enn bjartsýnir á að halda B- þjóðar- sætinu með eðlilegum leik á seinni degi höggleiksins. Það dapurlega hlutskipti beið nú Is- lendinganna að leika í C-riðli í ffamhaldskeppninni. Seinni dag höggleiksins var sveitin samtals á 386 höggum og í heild var skor ís- lenska liðsins 773 högg sem þýddi 16. sæti, tíu höggum lakar en sú sveit sem hafnaði í 15. sæti og lék þar með í B-riðli. En keppninni var ekki lokið og næsta verkefni var landsleikur við Finna. Landsleikimir fara þannig fram að, að morgni era leiknir 2 leikir, tveir leikmenn annars liðs- ins leika einum bolta og slá annað hvert högg gegn tveimur leik- mönnum hins liðsins sem gera slíkt hið sama. Leikin er holu- keppni. Síðdegis era svo fimm leikir, þá er leikin holukeppni, einn á móti einum. Fyrri hálfleik- ur leiksins við Finna gekk mjög vel og íslensku strákamir unnu báða fjórleikina. Úlfar og Sigur- jón léku saman og unnu á 19. hoiu, þ.e. eftir einnar holu umspil, og Bjöm og Guðmundur léku saman og unnu næsta auðveldan sigur í sínum leik, 5/4 (þeir höfðu unnið fímm holum meira en and- stæðingamir þegar fjórar holur vora eftir.) Staðan var því 2-0 ís- landi í hag og útlitið mjög bjart þar sem sú þjóð sem fyrri verður til að fá fjóra vinninga sigrar leik- inn. I fyrsta leik eftir hádegi tap- aði Þorsteinn fyrir sínum and- stæðingi 5/3 og staðan þvi orðin 2-1. En Úlfar og Sveinn tryggðu íslenskan sigur með því að sigra sína andstæðinga 6/5 og 7/5. Þeg- ar ljóst var að íslenskur sigur var í höfn sömdu Sigurjón og Guð- mundur um jafntefli við sína and- stæðinga og leiknum lyktaði því með sigri íslendinga, 5-2. Lokaverkefhi íslenska liðsins var leikur um 16. sætið í mótinu við Belga. Sá leikur gekk vægast sagt illa hjá íslenska liðinu og skemmst er ffá því að segja að ís- land tapaði þeim leik 1 1/2-5 1/2. Úlfar og Sigurjón töpuðu sínum leik 1/0 á 18. Þess má geta að Úlf- ar var þegar hér var komið sögu orðinn mjög veikur, en matareitr- un heijaði á íslenska liðið síðari hluta ferðarinnar. Guðmundur og Bjöm töpuðu einnig sínum leik, 2/1. Staðan var þvi orðin 2-0 fyrir Belga. Eftir hádegi tók ekki betra Á FLÖTINN við, Þorsteinn tapaði 4/3 og Bjöm tapaði einnig 8/6 og úrslitin vora þar með ráðin. Siguijón, Sveinn og Guðmundur sömdu um jafnt- efli. Þar með var ljóst að 17. sætið varð hlutskipti íslendinganna og vora það allnokkur vonbrigði fyr- ir alla sem að liðinu stóðu. Að sögn Frímanns Gunnlaugssonar, ffamkvæmdastjóra Golfsam- bandsins og fararstjóra íslenska liðsins, var þetta sérstaklega sárt þar sem liðið var ekki langt ffá því að tryggja sér sæti í B-riðli og greinilegt var að flestir leikmanna léku talsvert undir getu. En Frí- mann kvaðst samt bartsýnn á framhaldið hjá íslenska golflands- Iiðinu. Hann sagði að greinilegt væri að Islendingum hefði farið mikið ffam á undanfömum árum og það eina sem vantar nú er reynsla. Einnig álitur Frímann að endurskoða þurfli undirbúning liðsins fyrir keppni af þessu tagi. Leika verði stigamótin, sem not- uð era til að velja liðið, á völlum sem gera svipaðar kröfur til leik- manna og þeir vellir sem keppt er á erlendis. Hann telur að sá þáttur hafi gleymst en sé mjög mikil- vægur fyrir val á liðinu. Reyndar sagði hann að mótið hafi verið sérstaklega vel spilað og ótrúlegt að um áhugamenn hafi verið að ræða. Til sönnunar þessu nefndi hann að á „Madrid Open“ fyrir stuttu vora fímm efstu menn sam- anlagt 26 undir pari að loknum 36 holum, en 5 efstu menn í Evrópu- mótinu vora samaniagt 22 undir pari að 36 holu undankeppninni lokinni. Munurinn greinilega sáralítill og ástæðuna telur hann vera þá að þeir sem leika í þessu móti hafi margir augastað á at- vinnumennsku og leggi harðar að sér við æfmgar að þeim sökum. Aðspurður kvaðst hann ekki í vafa um að starf Johns Gamer landsliðsþjálfara er nú byijað að skila sér í íslensku golfi en hann sagði landsliðið enn skipa að nokkra leyti mönnum sem John Gamer hefúr ekki mótað ffá upp- hafi og því þurfum við enn að bíða í nokkur ár í viðbót eftir greinilegum áhrifúm frá starfi hans. Nú era margir ungir strákar í mikilli ffamfor og Frímann sagði að miklar vonir væra bundnar við næstu kynslóð ís- lenskra kylfinga. Það er ánægju- legt til þess að vita að þrátt fyrir mikil vonbrigði með árangur ís- lenska liðsins í Evrópumótinu er bjartsýnin enn í fýrirrúmi og spennandi verður að fylgjast með gengi Iiðsins í Norðurlandamót- inu síðar í sumar. Umsjón: Jóhanna Waagfjörð og Gunnar Sn. Sigurðsson John Drummond Kennara- hornið Einn af mikilvægustu þáttum uppstillingarinnar er staða kylfuhaussins þegar kylfuhaus hittir boltann, þá stjórnast flug hans af þeirri stöðu sem kylfuhausinn er í. Ekkert veldur eins miklum vonbrigðum og það að full- komlega gott högg stefhir í ranga átt. Það er nokkuð víst að högg þitt mun ekki fara beint ef kylfijhausinn stefhir ekki beint á flaggið eða þann stað sem stefht er að. Möguleikar þínir að enda á réttum stað með högg >itt eru allavega miklu meiri ef )ú byijar á því að hafa stefhu cylfuhaussins rétta. Ef kylfúhausinn stefnir til hægri þá er það kallað að hann sé opinn (fyrir rétthenda spil- ara) og þá mun boltinn fara til hægri. Ef hann stefhir til vinstri þá er það kallað að hann sé lok- aður (fyrir rétthendan spilara) og þá mun boltinn fara til vinstri. Mitt ráð í þessari viku er því að gæta vel að því hvert kylfuhaus stefhir. Það hefúr úr- slitaáhrif á það hvort höggið mun heppnast. 14.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 5. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.