Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 05.07.1991, Blaðsíða 15
HELGARMENNINGIN Sonur duftsins Einar Benediktsson skáld: Með gull og með kransa frá landi til lands / hans leikarasigur var unninn Félag áhugamanna um bók- menntir heldur þing um Einar Benediktsson í Norræna húsinu á morgun, laugardaginn 6. júlí. Þingið hefst kl. 10.00 og dagskrá- in er glæsileg. í þeirri samantekt sem hér fer á eftir er einkum stuðst við „Væringjann mikla“ eftir Gils Guðmundsson. Sú bók kom út hjá Iðunni í fyrra. Einar Benediktsson (1864- 1940) var einhver dramatískasti fúlltrúi aldamótakynslóðarinnar á íslandi. Hann var þversagnakennd persóna, stórbrotið skáld og myrk- fælinn heimsborgari sem náði að risa hátt og falla lágt að veraldar- gengi. Faðir Einars var Benedikt Sveinsson, sýslumaður og alþingis- maður. Benedikt var sonur Sveins Benediktssonar, prests á Mýrum í Álftaveri og Kristínar Jónsdóttur. Sveinn var drykkfelldur úr hófi ffam, þótti undarlegur í háttum en greindur maður. Benedikt ólst upp við mikla fátækt en var þó settur til mennta og skaraði ffam úr í námi. Hann var um tíma heimiliskennari ríks bónda, Einars Stefánssonar ffá Reynistað í Skagafirði. Einar styrkti þennan efnilega námsmann til lögffæðináms í Kaupmannahöfh og fastnaði honum dóttur sína tólf ára gamla. Þessi litla stelpa varð síðar móðir Einars Benediktssonar. Hún hét Katrín Einarsdóttir ffá Reynistað. Þau Benedikt giffu sig þegar hann kom heim aftur með glæsilegt próf. Hún var þá átján ára, hann 33 ára. Katrín ffá Reynistað var falleg stúlka, gáfuð og listfeng, stórættuð og stórlynd. Þau Benedikt eignuð- ust sex böm, fjögur þeirra lifðu og Einar Benediktsson var sá þriðji í röðinni. Hjónaband Katrínar og Bene- dikts var stormasamt. Aldursmunur var mikill, bakgrunnur hjónanna ólíkur, skapsmunir miklir á báða bóga, en Benedikt æpti og æsti sig, Katrín beitti háði og kulda. Hún lagði með sér mikinn auð í hjóna- bandið, fyrst heimanmund, síðar foðurarf. Benedikt sóaði öllum þeim fjármunum. Hann drakk sér til vansa og drakk ffá sér embætti yfir- dómara, fjárfesti vitlaust og var óheppinn. Þegar þau hjónin skildu eftir 13 ára hjónaband, árið 1872, var Katrin öreiga. Heimilið hafði verið í upplausn í tvö ár fyrir skilnaðinn. Einar hafði þann tíma verið að mestu í vörslu vinnufólksins sem lét ýmislegt fjúka og sem gamall maður rifjaði hann þetta upp og sagði: „Heldurðu að þetta hafi haft góð áhrif á mig? Eg, sem var allur eitt skilningar- vit!“ (GG26). Þegar Benedikt Sveinsson fékk sýslumannsembætti í Þingeyjar- sýslu varð það að samkomulagi að tvö elstu bömin fylgdu honum norður, þau Ragnheiður og Einar. Tvö yngstu bömin, Kristín og Ólaf- ur Haukur, fylgdu móður sinni. Einar ólst síðan upp á Héðins- höfða hjá föður sínum, en sam- komulag þeirra var slæmt ffaman af, Einar baldinn og einráður, Bene- dikt óþolinmóður og fautalegur. Smám saman jafhaðist samband feðganna, enda virðist Benedikt hafa þótt æ vænna um strákinn þrátt fyrir sjálffæði hans. Hann skrifar stoltur til Tryggva Gunnarssonar um uppátæki ,3insa litla“. r Skáldið á yngri árum. Einsi litli var settur til mennta og lauk lögfræðiprófi i Kaup- mannahöfh árið 1892 með sæmi- legri annarri einkunn, sem þótti ffemur gott miðað við það að hann hafði haft öðmm hnöppum að hneppa á Hafnarárunum, var byij- aður að yrkja, stundaði krámar óspart og lærði af lífinu. Hann mun líka ásamt fleiri íslendingum hafa sótt fyrirlestra Brandesar um kenn- ingar heimspekingsins Nietzsche. Árið 1891 birtust í tímaritinu Sunn- anfara fyrstu ljóð Einars undir fullu nafni en það vom: Grettisbæli, Draumur, Hvarf séra Odds ffá Miklabæ og Snjáka. Þegar heim kom gerðist Einar aðstoðarsýslumaður föður síns sem þá var kominn á effi ár og heilsu- veill. Einar var settur sýslumaður um skeið og á þessu tímabili, nánar tekið árið 1893 lenti hann í hinu skelfilega Sólborgarmáli. Hann var kallaður að Svalbarði í Þistilfirði þar sem systkini höfðu verið haod- tekin, grunuð um sifjaspell og bamsmorð. Stúlkan Sólborg var sett í gæsluvarðhald á bænum. Kvöldið eftir að sýslumaður kom játaði bróðirinn og næsta dag átti að yfirheyra Sólborgu. Um nóttina vöknuðu heimamenn við skerandi kvalaóp og enginn virðist hafa gert sér grein fyrir hvað var að gerast, minnst af öllum hinn ungi sýslu- maður. Hann lét sækja fjögurra ára dóttur Sólborgar ef það mætti róa hana, en það bar engan árangur. Stúlkan dó um morguninn. Hún reyndist hafa tekið inn refaeitur. Þessir atburðir em uppistaða í verð- launasögu Thors Vilhjálmssonar, Grámosinn glóir, þar sem hann túlkar þennan harmleik listilega. Margir hafa líka orðið til að tengja hann við ljóð Einars: Hvarf séra Odds ffá Miklabæ, og benda á að skáldskapurinn hafi hér „skrif- að“ vemleikann. Ekki undi Einar sér lengi sem aðstoðarmaður foður síns og árið 1894 gerist hann fijáls og óháður lögfræðingur og málafærslumaður í Reykjavík. Öfugt við spár flestra hagnaðist Einar Benediktsson mjög á fast- eignaviðskiptum sínum og var nú kominn i álnir, auk þess að vera áberandi maður á allan hátt. Það var kominn tími til að festa ráð sitt. Hann var 34 ára þegar hann festi sér Valgerði Zoega sem þá var 17 ára, fædd 1881. Árið 1904 sótti hann um sýslu- mannsembættið í Rangárvallasýslu þó að tekjur hans lækkuðu vemlega við það. Hann var ffægur maður og Rangæingar vissu eiginlega ekki á hveiju þeir áttu von: „Allir könnuð- ust við nafnið. Þetta var skáld og hafði gefið út sögur og kvæði og þýtt „Pétur Gaut“ og selt hvert ein- tak á hundrað krónur... Og svo hafði hann gefið út blað og stofnað stjómmálaflokk. Hvemig átti svona maður að geta verið sýslumað- ur?“(159) „Svona maður“ átti svolítið bágt með að vera sýslumaður í því réttarkerfi sem hér var kringum aldamótin. Einar fékk lausn frá embætti sínu árið 1907 og næstu tuttugu ár- in dvöldu hann og fjölskylda hans að mestu erlendis, lengst af i Bret- landi. Nú hófst ferill Einars sem viðskiptajöfurs eða „athafha- skálds". Sá ferill verður ekki rakinn hér. Ár Einars í útlöndum vom sveipuð miklum ævintýraljóma í augum íslenskra sveitamanna sem ekki höfðu hugmynd um hvað orð- ið „kaupsýsla" þýddi. í bókinni Væringinn mikli eftir Gils Guð- mundsson sem stuðst er við hér má þó sjá að það er fátt dularfullt við feril eða velgengi Einars í útlönd- um. Hann hefur verið hugmynda- ríkur, trúað á verkefnin sem hann braut upp á og unnið eins og hestur ffaman af. Sannfæringarkraftur hans hefur trúlega oft verið vel heppnaður leikur - en það verkefni sem hann lagði mesta alúð við eða virkjun íslensku fossanna virðist hafa verið honum raunvemlegt hjartans mál. Þegar ffá leið fór Einar hins vegar leið afa síns og foður, varð drykkjumaður og smám saman missti hann allar sínar eigur. Síð- asta tímabil ævi sinnar var hann fá- tækur, einmana maður sem var háð- ur ást Hlínar Johnsen sem annaðist hann og sá fyrir honum síðustu ár ævi hans. Hann dó 12. janúar árið 1940. Þrátt fyrir sviptingasamt líf Einars Benediktssonar og litrikan persónuleika sem gerðu hann að goðsögn í lifanda lífi er það skáld- skapur hans sem mun halda nafni hans á lofti um ókomna tíð. Ljóða- bækur Einars urðu fimm: Sögur og kvæði (1897), Hafblik (1906), Hrannir (1913), Vogar (1921) og Hvammar (1930). Auk þess þýddi harrn Pétur Gaut eftir Henrik Ibsen, samdi ótölulegan fjölda ritgerða - og revíuna Við höfnina. í ljóðum sínum tekst Einar á við sjálfan sig og samtíð sína, kafar djúpt og flýgur hátt. Þar má sjá hve mikið og hve lítið hann treysti tungumálinu, þar má sjá innsæi hans og þekkingu, en líka yfir- borðsmennsku og leikaraskap. Fáir eða engir hafa tjáð spennu áratug- anna kringum aldamótin eins vel og hann, enda lærðu þrjár kynslóðir ís- lendinga ljóð hans utanbókar og fannst hann tjá sína eigin reynslu. Allt þetta verður til umræðu á þingi Félags áhugamanna um bókmenntir um Einar Benediktsson í Norræna húsinu á morgun, laugardaginn 6. júlí. -kj Þannig var Einar Benediktsson í augum samtíðarmanna sinna: Um Einar og móður hans: Kristín (Benediktsdóttiij taldi það lífsógæfu þeirra systkina, hvemig þess- um málum var ráðstafað. Einar var uppáhald móður sinnar, ákaflega hændur að henni og þau skaplík. Sjö ára gamall hraktist hann til ókunnugra og sagði Kristín, að það helði verið æviharmur Katrinar móður hennar. (256) Einar í menntaskóla: Sérstaklega dáðist ég að hjartagæsku hans. Hann var allra manna hjálp- samastur, henti aldrei skop að skólabræðrum sínum sem miður stóðu sig. Það var þó ætíð löstur í skóla á þeim tímum. (34) Meðal skólabræðra minna féll mér einna lakast við Einar Benediktsson, enda var hann lítt þokkaður í skóla vegna yfirlætis, kaldyrða og kerskni jafnt við kennara sem skólabræður sína. Um háskólaár Einars: Þá var meira um þunglyndi en nú á tímum. Margir skólapiltar voru þung- lyndir. Það bar kannski ekki á því á yfirborðinu. En það kom frarn í samtali pilts við pilt. Mest var þá talað um andlegu málin, og flestir voru efandi um til- veru guðs og annars lífs. Af efasemdunum og tilgangsleysinu urðu þeir bölsýn- ir og þunglyndir. Og þá fóru ungir menn að fyrirfara sér. Brandes drap Bertel Þorleifsson. Hann drap líka Sigurð Jónasson. Og hann drap Gísla Guðmunds- son frá Bollastöðum. Úr ritdómum: Um Kvæði og sögur: Það er rétt sem Þjóðólfur bendir Einari á, að hann ætti að gefa sig allan við skáldskapnum en hætta sínum pólitísku rassaköstum. Þar getur hann aldrei unnið nokkurt gagn, verður þar aldrei annað en skúrra og skoffm. Og faðir hans gæti fengið ótal menn til að skrifa fyrir sig, sem gerðu það mikið betur. En á hinu verksviðinu hefur hann hæfileika til að vinna gagn. Ef hann verði kröftum sínum rétt, gæti hann vafalaust náð sómasamlegu sæti í bókmennta- sögu okkar. Þó er hann ekkert stórskáld, ekki einu sinni þótt miðað sé aðeins við íslensk skáld. Og það sem eftir hann liggur nú hálffertugan, er mjög lítið að vöxtunum. (Þorsteinn Gíslason, 114) Um Hrannir: Annar löstur á mörgum kvæðum Einars Benediktssonar er bombastið, ofs- inn og íburðurinn, hið taumlausa andríki - að ætla sér að hafa tólf í höggi eins og Úlfar sterki. Þessi andríkis íburður... þessir ragnarakaformálar - þetta djúp- setta reginmoldviðri á undan aðalefninu... fipar svo fyrir lesaranum, að öll naum, öll hrifni kafnar í umþenkingum (reflectíónum). (Matthías Jochumsson) 232. Föstudagur 5. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.