Þjóðviljinn - 19.07.1991, Qupperneq 5
TrÖQTTTTTI A ^ITTTÍIT'T'TTTÍ
Jr T UJLrA.tjr>3T TvTL T T TTv
Bílakirkjugarður hersins í
augsýn erlendra ferðamanna
Eitt það fyrsta sem erlendir
ferðamenn sjá, þegar þeir
koma til iandsins í gegnum
Leifsstöð, eru nokkrir tugir bíl-
hræja er liggja rétt fyrir innan
vallargirðinguna. Að sögn Frið-
þórs Eydal, blaðafulltrúa hers-
ins, voru bílarnir færðir frá
upprunalegum geymslustað,
sem er á miðju vallarsvæðinu,
vegna framkvæmda og færðir
þangað sem þeir eru núna.
Friðþór segir að ekki sé ætlunin
að geyma bílana þarna lengi.
Eftir því sem Þjóðviljinn
kemst næst eru þama um 30-40
bílhræ að ræða sem komið hefur
verið fyrir í gryfju rétt innan girð-
ingar herliðsins. Bílakirkjugarður
hersins er með þessu móti í beinni
sjónlínu þeirra sem ferðast, til eða
frá Leifsstöð, í langferðabifreið-
um sem eru hærri en venjulegar
bifreiðar.
Friðþór Eydal segir að þama
sé um að ræða bifreiðar sem tekn-
ar hafa verið úr umferð eða séu
ónýtar. Astæðan segir hann að séu
að þurft hafi að flytja þessar bif-
reiðar tímabundið um set, án þess
að hann geti sagt til um hvað sá
tími verði langur.
Aðspurður hvers vegna þessar
bifreiðar væru ekki fluttar til Stál-
bræðslunnar, sagði hann að
ákveðnar kvaðir væm á þessum
bifreiðum. - Þetta em bílar sem
hafa verið teknir úr umferð eða
skildir eftir einhver staðar. Það
verður að geyma þá í ákveðinn
tíma áður en hægt er að losna við
þá, sagði Friðþór.
Þegar hann var inntur eftir því
hvort herinn ætiaði að hafa bílana
þama ferðamönnum til yndis-
auka, sagði hann að enginn hafi
gert sér grein fyrir þvi að þeir sæ-
ust frá veginum er liggur frá flug-
stöðinni. - Eg mun að sjálfsögðu
vekja athygli á þessu máli og býst
við að einhveijum jarðvegi verði
mtt upp að bilunum svo þeir
hverfi úr augsýn frá veginum,
sagði Friðþór.
-sþ
Vinnu-
skóla-
rokk
Áður var það
Woodstock, en
hjá krökkunum (
Vinnuskóla
Kópavogs
nefndist tónlist-
arhátið sem
þau héldu í gær
Tréstokk. Á
meðal
þeirra sem
þöndu hljóðfær-
in með litlu
minni snilld en
sýruhippar í
Woodstock
forðum daga,
voru
þeir Hjalti og
Matti, sveitar-
imir í Svein-
dóminum.
Af myndinni
verður allavega
ekki betur greint
en að þeir fari
fimum fingrum
um gítarana.
Engin hugmyndafæð um uppruna grútarins
eirri hugmynd hefur verið
velt upp að grútarmengunin
á Ströndum stafi af því að ekki
hafi verið veitt neitt að ráði af
loðnu síðastliðinn vetur. Loðn-
an hafi þannig drepist í meira
mæli en áður að lokinni hrygn-
ingu og hafi einhvernveginn
umbreyst í lýsi sem nú reki sjó-
velkt á strendurnar við Húna-
flóa.
Jakob Jakobsson forstjóri
Hafrannsóknastofnunar sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
sér og sérfræðingum stofnunar-
innar finndist þessi tilgáta afar
ósennileg. Hann benti á að þá ætti
allt að hafa verið vaðandi í grút
um allan sjó fyrir 1965, áður en
loðnuveiðar hófust í einhverjum
mæli. Benda má á að stofnar þeir
sem éta loðnuna, t.d. þorskur og
steinbítur, voru stærri fyrir 1965
en nú.
_Þá má líka nefna að loðnan
er það horuð þegar hún drepst að
óhugsandi er að hún geti verið
völd að öllum þessum grút, sagði
Jakob Jakobsson.
Þessi tilgáta um loðnuna er
dæmi um hugmyndaauðgi lands-
manna varðandi uppruna grútar-
mengunarinnar. Og svo virðist
sem vísindamennimir okkar geti
ekki afskrifað neina tilgátu hversu
fáránlega sem hún hljómar. Þann-
ig hefur mönnum dottið í hug að
grúturinn sé rotnandi rauðáta eða
þá að þörungar séu valdir að
menguninni. Þessar hugmyndir
koma upp eftir að hugmyndir um
mengun af mannavöldum hafa
verið þurrausnar. Svend Aage
Malmberg haffræðingur hjá Haf-
rannsóknastofnun sagði að sér-
fræðingar teldu allar þessar hug-
myndir um náttúrlegar orsakir
mjög hæpnar svo ekki sé meira
sagt.
Grímur Valdimarsson, for-
stöðumaður Rannsóknarstofnunar
fiskiðnaðarins telur hins vegar
ekki útilokað að grútinn megi
rekja til rauðátu. í Fréttum
Sjónvarps í gærkvöldi sagði
Grímur að heimildir bentu til
viðlíka grútarmengunar í
Norðursjó og í norður Kyrrahafi
fyrir nokkmm ámm, en þá var
orsökin rekin til rotnandi rauðátu.
Ekki hefur tekist að finna að
mengunin hafi komið frá útlendu
skipi sem hafi ólöglega hent lýsi í
sjóinn né að hún hafi borist með
hafís frá Grænlandi, og ekki held-
ur að hana hafi rekið frá Sval-
barða. Siglingamálastofnun held-
ur þó enn uppi fyrirspumum um
skipaferðir dagana fyrir slysið. Þó
hefiir mönnum tekist að afskrifa
að mengunin hafi borist frá olíu-
skipi sem sökkt var á stríðsámn-
um á Húnaflóa og gæti hafa haft
lýsi innanborðs.
Þá hafa menn einnig leitað
heimilda aftur í aldir, allt til ársins
1651. Það ár lýstu menn mengun
sem svipar mjög til grútarmeng-
unarinnar á Ströndum. Umhverf-
isráðherra auglýsti meira að segja
á blaðamannafúndi eftir frekari
sagnfræðilegum upplýsingum.
Svona mætti lengi telja. Stað-
reyndin er sú að yfirvöld hafa
ekki hina minnstu hugmynd um
hvaðan þessi mengun kemur eða
hvemig hún hafi myndast ef um
náttúrlegar orsakir er að ræða.
Þessvegna er þrautaráðið nú
að kanna útbreiðslu grútarins og
reyna þannig að rekja sig til baka
til uppmna mengunarinnar. Svend
Aage sagði að það væri mikilvægt
að sjófarendur létu Hafrann-
sóknastofnun vita ef þeir rækjust
á eitthvað og sendu stofnuninni
einnig sýni. Án sýna er ekkert
hægt að staðhæfa.
Undanfama daga hafa borist
fréttir af því að mengunin væri að
breiðast út eða væri útbreiddari en
menn héldu í fyrstu. Þannig töldu
menn sig hafa séð grút norður af
Tjömesi, við Grímsey og síðan
austur íyrir allt suður að Djúpa-
vogi. í gær sagði Svend Aage að
óstaðfest væri að um grút væri að
ræða. Hann sagði að skipstjórinn
sem tilkynnti um hugsanlega
mengun fyrir utan Tjömes hefði
talið að íjölmiðlar hefðu nú gert
heldur mikið úr því sem hann sá.
Sýni var ekki tekið. Sýni var hins-
vegar tekið fyrir austan land og er
það á leið til Reykjavíkur í rann-
sókn.
Svend Aage sagði að það væri
alls ekki óalgengt að sjá hvítar
rastir á sjónum sem hæglega gætu
líkst grútarmenguninni á Húna-
flóa. Það safnast oft ýmislegt fyr-
ir í röstum á straummótum, oft er
um froðu að ræða sem gæti líkst
grútarmenguninni, sagði Svend
Aage. Rannsóknaskip Hafrann-
sóknastofnunar, Ámi Friðriksson,
fór út í gærkvöldi til rækjurann-
sókna, en mun einnig taka sýni í
sjónum. Ámi fer yfir svæði fyrir
miðju Norðurlandi og í Húnaflóa.
Þá ætti útbreiðslan á því svæði að
fást staðfest.
Ljóst er að einhver tími mun
líða áður en víst verður hvað
raunverulega gerðist og ekki er
ólíklegt að það upplýsist aldrei.
En víst er að það verður ekki
vegna skorts á hugmyndum.
-gpm
Föstudagur 19. júlí 1991 NÝTT HELGARBLAÐ — SÍÐA 5
Heræfingar
héra
landi verði
bannaðar
„Á meðan stórveldin semja um
samdrátt í herafla og ná nýjum
áföngum i takmörkun á fjölda kjam-
orkuvopna, skýtur skökku við að ís-
lendingar skuli þurfa að horfa upp á
hemaðarmaskinu Nató snurða á
okkar ffiðsama landi“ segir í ályktun
frá þingflokki Kvennalistans þar
sem því er mótmælt að hér á landi
skuli leyfar heræfingar einsog
Bandaríkjamenn ætla að standa fyrir
í lok mánaðarins.
Þingflokkurinn telur að heræf-
ingamar séu i hrópandi andstöðu við
friðarandann sem nú einkenni þau
riki sem i hálfa öld hafi staðið and-
spænis hvert öðru grá fyrir jámum.
„Með reglulegum heræfingum
hér á landi er verið að venja fólk við
hertól og vopnaskak sem er fúll-
komin andstæða við þær friðsam-
legu aðferðir sem Islendingar hafa
löngum beitt i samskiptum við aðrar
þjóðir og vilja viðhalda,“ segir í
álykfiminni. Þingflokkurinn telur af-
farasælast að íslendingar efli ímynd
sína sem friðelskandi þjóð og beiti
sér hvarvetna í þágu friðar og af-
vopnunar. Þá leggur Kvennalistinn
til að bann verði sett við heræfing-
um hér á landi. -gpm
Varist fúsk-
araá
bygginga-
markaðnum
Nú er sá árstími þegar húseig-
endur láta gera við hús sín. Það er of
algengt að ekki sé nógu vel gengið
frá því í samningum við verktaka,
sem annast viðgerðir, hvað á að gera
og hvað það muni kosta. í samning-
um þarf að ganga mjög tryggilega
frá slíkum atriðum.
Þess eru alltof mörg dæmi að
þeir sem bjóða þjónustu sína geri
óljós tilboð sem síðar standast ekki,
jafnvel að hlaupist sé frá óloknu
verki. Of mörg dæmi eru um að
reikningar séu í engu samræmi við
áður gerðar kostnaðaráætlanir eða
óljós tilboð. Oft munar hundruðum
þúsunda á upphaflegri kostnaðar-
áætlun og endanlegum kostnaði,
jafnvel þegar um er að ræða við-
gerðir á íbúðarhúsum. í sumum til-
vikum hafa þeir sem taka að sér slík-
ar viðgerðir ekki nauðsynlega fag-
menntun.
Neytendasamtökin, Húseig-
endafélagið og Meistara- og verk-
takasamband byggingamanna
hvetja húseigendur til þess að ganga
tryggilega frá því í skriflegum
samningum hvað nákvæmlega eigi
að gera og hvað það muni kosta og
að um öll frávik frá þessu verði að
semja sérstaklega, til dæmis ef verk-
taki telur að viðgerð verði að vera
víðameiri en talið var i upphafi.
Ofangreindir aðilar vilja einnig
hvetja húseigendur til þess að biðja
verktaka að framvísa meistaraskír-
teinum sem gefin eru út af Meistara-
og verktakasambandi bygginga-
manna (MVB), eða ganga úr skugga
um það með öðrum hætti að við-
komandi hafi nægilega fagmenntun.
Auk þess er athygli vakin á því að
viðgerðadeild MVB hefúr viður-
kennt nokkum fjölda fyrirtækja á
þessu sviði og liggur listi yfir þau
fyrirtæki hjá Neytendasamtökunum,
Húseigendafélaginu og MVB.
-KMH
I