Þjóðviljinn - 19.07.1991, Blaðsíða 18

Þjóðviljinn - 19.07.1991, Blaðsíða 18
Hort fyrsti Þýskalands- meistarinn eftir sameiningu Fyrsta þýska meistaramótinu eftir sameiningu lauk í blænum Bad Neuenahr fyrir stuttu. Þaö var gamla kempan Vlastimili Hort sem stóð uppi sem sigurveg- ari í hópi 16 keppenda og hlaut 12 vinninga eða 80% vinnings- hlutfall. Mótið var ekki nándar nærri eins sterkt og aðstandendur þess höfðu vonast eftir, því aðeins fimm stórmeistarar mættu til leiks, en auk Horts, sem fyrir nokkrum árum gerðist v-þýskur ríkisborgari, voru skákmenn úr gamla A- Þýskalandi all áberandi með gömlu kempuna Wolfgang Uhlmann í broddi fylk- ingar. Hort var efstur nánast allt mótið í gegn og háði harða keppni við Miinchen-búann Jorgen Hickl og hafði betur á lokasprettinum. Fyrir síðustu umferð skildi þá 1/2 vinningur. Hort vann æsispennandi skák við Stcfan Bucker, en Hickl tapaði fyrir Muse. Lokaniðurstaðan hvað varðar efstu menn: 1. Hort 12 v. 2. Hickl 10 1/2 v. 3. Uhlmann 10 v. 4. Muse 9 1/2 v. 5.-7. Bönsch, Voke og Schmittdel 9 v. Nú eru meira en 20 ár síðan Hort og Uhlmann voru í hópi allra fremstu skákmanna heims. Uhl- mann var meðal áskorenda eftir millisvæðamótið í Palama 1970 og Hort tefldi sama ár á 4. borði fyrir heimsliðið gegn Sovétmönnum á eftir Larsen, Fischer og Portisch og hafði betur gegn Polugajevskij. Upp úr því var lokað fyrir ferðir a- þýskra skákmanna til annarra landa en kommúnistarikjanna og Hort fékk víst áreiðanlega sinn skammt af myrkrinu sem fylgdi í kjölfar vorsins i Prag. Þessir heiðursmenn mættust í 7. umferð þýska meistaramótsins og Hort hafði betur í snarpri baráttu- skák. Hort tefldi fremur óvenjulegt afbrigði gegn kóngsindversku vöminni og upp kom svipuð staða og í Samisch- afbrigðinu. Uhlmann sólundaði miklum tíma í að ná upp- skiptum á svartreita biskupnum, og er Hort kom með óvæntan hnykk, 22. f41, liðaðist staða svarts kóngs- megin í sundur. Eftir 27. HO gat hann ekki varist fjölmörgum hótun- um hvíts s.s. 28. Rxdó eða 28. Hh3 og gafst því upp. Þýska meistara- mótið 1991 Vlastimil Hort - Wolfgang Uhl- mann Kóngsindversk vöm 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6 5. Rge2 e5 6. d5 0-0 7. Rg3 h5 8. Bg5 De8 9. Bd3 Rh7 Helgi Oiafsson 10. Be3 h4 11. Rfl Ra6 12. Rd2 f5 13. Í3 Bf6 14. a3 c5 15. exf5 gxf5 16. Dc2 Bg5 17. Bxg5 Rxg5 18. 0-0-0 Bd7 19. Hhgl Kh8 20. Hdfl b5 21. cxb5 Rc7 8 7 .6 5 4 3 2 1 a b c d e f g h 22. f4 e4 23. fxg5 exd3 24. Dxd3 Bxb5 25. Rxb5 Dxb5 26. Rc4 f4 27. Hf3 Nýi Elo-listinn Það kennir margra grasa á nýja Elo-listanum sem birtur var í upp- hafi mánaðarins. Hvað varðar list- ann yfir 10 stigahæstu skákmenn heims þá þykjast menn nú sjá fram á endalok veldis Kasparovs og Kar- povs. Vasilij Ivantsjúk kemst upp fyrir þann síðamefnda og heims- meistarinn má þola 30 stiga tap. Listinn yfir stigahæstu skákmenn heims erþessi: 1. Kasparov 2770 2. Ivantsjúk 2735 3. Karpov 2730 4. Baarew 2680 5. Salov 2665 6. Gelfand 2665 7. Short 2660 8. Beljavskij 2655 9. Anand 2650 10.-14. Khalif- man, Timman, Speelman, Gurevitsj og Polugajevskij allir með 2630. A íslenska listanum hafa orðið þær breytingar að undirritaður er fallinn í 3. sæti eftir 70 stiga tap. Listinn nær til flestra móta sem háð vom á fyrri helmingi ársins, en mótið á Saint Martinique er ekki inni, en það gæti breytt stöðu Marg- eirs Péturssonar. Þessir em yfir 2400 Elo-stigum: 1. Jóhann Hjartarson 2550 2. Margeir Pétursson 2540 3. Helgi Ólafsson 2525 4. Jón L. Ámason 2520 5. Héðinn Steingrímsson 2505 6. Friðrik Ólafsson 2485 7.- 8. Hannes Hlífar Stefánsson og Karl Þorsteins 2470 9. Guðmundur Sig- uijónsson 2465 10. Þröstur Þór- hallsson. 11. Björgvin Jónsson 2420. Piket hollenskur meistari Jerome Piket varð skákmeistari á meistaramóti landsins sem lauk í Amsterdam fyrir skömmu. Hann hlaut 8 vinninga af 11 mögulegum og varð 1/2 vinningi á undan helsta keppinaut sínum Van der Wiel. Van der Sterren kom næstur með 7 vinn- inga. Piket er greinilega næststerk- asti skákmaður Hollands á eftir Jan Timman, en Van der Wiel hefur hinsvegar á undanfomum ámm valdið löndum sínum miklum von- brigðum með slakri frammistöðu í hveijum mótinu á fætur öðra. Hol- lendingar halda á ári hveiju geysi- lega sterk alþjóðleg mót s.s. í Til- burg og Wijk aan Zee ásamt minn- ingarmóti um Max Euwe í Amster- dam. Engu að síður gengur þeim mjög erfiðlega að eignast skák- mann á borð við Timman, en ffammistaða Pikets að undanfömu bendir til þess að Timman muni í framtíðinni eignast verðugan keppinaut.. Afbragðs árangur Helga Áss Helgi Áss Grétarsson náði af- bragðs árangri á heimsmeistaramóti unglinga 14 ára og yngri sem lauk í Varsjá í Póllandi um síðustu helgi. Hann hlaut 8 vinninga úr 11 skák- um og varð í 2. sæti á eftir heima- manninum Kaminski. Jón V. Gunn- arsson tefldi í flokki skákmanna fæddra eftir 1979 og varð um miðj- an hóp með 5 1/2 vinning úr 11 skákum. Þá tefldi Bergstein Einars- son í móti keppenda fæddra 1981 og síðar og hlaut 6 1/2 vinning úr 11 skákum. Helgi hefúr tekið stórstígum framfomm í vetur. Hann á eftir að heyja einvígi við Áskel Öm Kára- son um þátttökurétt í landsliðs- flokki á Skákþingi íslands sem hefst í Garðabæ í lok ágúst. Næsta lota hafin Síðustu leikirnir í 1. umferð Bikarkeppni Bridgesambandsins voru spilaöir um og fyrir síðustu helgi. Sveit Guðlaugs Svcinssonar, Rcykjavík sigraði svcit Eyþórs Jónssonar, Sandgcrði, í nokkuð jöfnum leik. Sveit Roche sigraði sveit Sigríðar Gestsdóttur, Skaga- strönd, ömgglcga. Sveit Fasteigna- þjónustu Suðurnesja sigraði sveit Jakobs Kristinssonar, Akureyri, í hörkuspcnnandi leik. Svcit Dodda Bé frá Akrancsi sigraði óvænt sveit Japansfara, Guðmundar Páls Amar- sonar, Rcykjavík, með um 17 stiga mun. Sannarlega óvænt úrslit, scm þó koma fyrir í keppni sein þcssari. Og sveit Tryggingamiöstöðvarinnar fékk gefins leik gegn svokallaðri Lúðrasveit (sem sennilcga er ckki starfandi á þessum árstíma). Og þá liggur ljóst fyrir hvaða 16 sveitir hafa tryggt sér sæti í 2. umferð; cftirtaldar sveitir mætast (heimasveit talin á undan): SAMTEX, Reykjavík gegn Ei- ríki Hjaltasyni, Kópavogi. Fasteignaþjónusta Suðumesja, Keflavík gegn Sigmundi Stefáns- syni, Reykjavík. Ævar Jónasson, Tálknafirði gegn LANDSBRÉFUM, Reykja- vík. Myndbandalagið, Reykjavík gegn Guðlaugi Sveinssyni, Reykja- vík. Lúsifer, Reykjavík gegn Bemódusi Kristins- BRIDGE syni, Reykjavík. Sigurður Skúlason, Homafirði gegn Ásgrími Sigurbjömssyni, Siglufirði. Doddi Bé, Akranesi gegn Tryggingamiðstööinni, Reykjavík. Omar Jónsson, Reykjavík gegn Roche, Reykjavík. Leikjum í 2. umferð skal vera lokið í síðasta lagi sunnudaginn 18. ágúst. Meistarastig frá áramótum til loka maí '91 cm komin út. 27 spil- arar hafa öðlast nafnbótina stór- mcistarar (500 stig cða meir). Þeir cm cftirtaldir spilarar: Jón Baldursson 1471, . Valur Sigurðsson 1261, Guðlaugur R. Jó- hannsson 1251, Öm Arnþórsson 1245, Sigurður Svcrrisson 11 i 3, Þórarinn Sigþórsson 1106, Ás- mundur Pálsson 1078, Guðmundur Páll Amarson 1065, Karl Sigur- hjartarson 1031, Aðalstcinn Jörgen- sen 1028, Símon Símonarson 941, Þorlákur Jónsson 892, Sævar Þor- bjömsson 873, Guðmundur Sv. Hennannsson 872, Bjöm Eystcins- son 770, Guðmundur Pétursson 757, Jón Ásbjömsson 757, Hörður Amþórsson 717, Ólafur Lámsson 706, Hcrmann Lámsson 700, Hjalti Elíasson 697, Sigtryggur Sigurðs- son 693, Hrólfur Hjaltason 685, Stefán Guðjohnsen 609, Ásgeir Ás- bjömsson 593, Ragnar Magnússon 573 og Þorgeir P. Eyjólfsson 567. Næsti vonarbiðill er Páll Valdi- Ólafur Lárusson marsson með 495, en 12 spilarar hafa milli 400-500 stig. Og áfram um meistarastigin. Flest gullstig frá áramótum skora: Matthías Þorvaldsson 115, Svcrrir Ármannsson 103, Aðalsteinn Jörg- ensen 101, Jón Baldursson 98 og Þorlákur Jónsson 73. Flcst silfurstig skora: Kristján Már Gunnarsson 146, Vilhjálmur Þ. Pálsson 146, Anton Haraldsson 144, Stefán Ragnarsson 124 og Pét- ur Guðjónsson 118. Flest baronsstig skora: Sverrir Ármannsson 841, Dröfn Guð- mundsdóttir 708, Ásgeir Ásbjöms- son 692, Guðlaugur Sveinsson 650 og Sigrún Pétursdóttir 575 og Halla Ber[>þórsdóttir 570. I hópi 248 stigaefstu spilara landsins em 19 konur, eða 8 pró- sent. Þar em stigefstar: Esther Jak- obsdóttir (53) 318, Kristjana Stein- grímsdóttir (89) 223 og Erla Sigur- jónsdóttir (98) 204. Af spilumm yngri en 20 ára, em þeir bræður frá Siglufirði, Steinar Jónsson (148) 133 stig og Ólafur Jónsson(lól) 121 stig, langefstir. Elsti stigefsti spilarinn er hins vegar Láms Hermannsson (102) með 197 stig. Aldurinn cr hins veg- ar hans einkamál, ekki satt? Og að lokum þörf ábending til meistarastiganefndar. Með þeirri nútímatækni og daglegum sam- skiptum sem starfsmenn meistara- stiga hljóta að sinna, rétt eins og annað fólk, er mcð öllu óþolandi að nöfn látinna félaga séu birt með þeim hætti, eins og fram kemur í út- sendri skýrslu skrifstofu BSÍ. Það ætti ekki að vera tiltökumál að úti- loka slíka vinnuhætti. Að öðm leyti er skýrslan vel unnin og til fyrir- myndar að áunnin stig úr hinum ýmsu áttum, sé nákvæmlega getið í skýrslu til formanna félaganna. Hvaðan stigin koma og fyrir hvað. Það ætti að gefa spilumm betri yfir- sýn yfir eigin stig, en eins og flestir vita, er misbrestur á skilum stiga til BSÍ. í frétt frá rikisstjórninni i vik- unni kemur fram að ákveðið hefur verið að styrkja íslenska karlalands- liðiö um 2 milljónir króna, til keppni á heimsmeistaramótinu í Yokohama í Japan í september. Þessi styrkur kemur í kjölfarið á fræknum árangri liðsins á Evrópu- mótinu á Irlandi, en þar tryggði lið- ið sér þátttökurétt á HM. Áætlaður kostnaður við þátttökuna er um 4 millj. króna. Tekið er á móti ffam- lögum á reikning nr. 5252 við útibú Landsbanka í Garðabæ. Gott mál þar. Sum spil em svo einfold í eðli sínu, að það þarf mjög góðan spil- ara til að tapa þeim. Eða, frekar lé- lcgan spilara til að vinna þau. Lítum á dæmi: 4: 976 ♦: D3 ♦: ÁDG8643 *: K 4: ÁG2 V: Á85 ♦: 92 ♦ ÁD1085 Þú ert sagnhafi í 3 gröndum í Suður. Vestur spilar út spaðakóng. Hvað nú? Hugleiðum málið. a) Ef við tökum á ásinn og tígulkóngur liggur öfúgur, er spilið í hættu. b) Ef við látum tvistinn, er hætt við að Vestur skipti yfir í hjarta, með held- ur dapurlegum enda fyrir okkur, ef Austur á kónginn í hjarta. c) En að henda gosanum í spaða sem agn; við viljum jú frekar fá spaða áfram, og svína síðan fyrir tígulkong, ekki satt? Okkar maður valdi þriðja kost- inn. Lét gosann í spaða. Vestur spil- aði þá spaðadrottningu, sem okkar maður tók á ás. Þá kom tígulnía upp á gosa. Lítið fyrir framan og tían í hjá Austur. Nú já, þá er að komast inn á hendina heima til að spila tígli að borðinu. Laufakóngur yfirtekinn á ás og meiri tígull. Lágt frá Vestur og drottning. En þá yfirtók snilling- urinn í Austur á kóng og spilaði hjarta. Allt spilið var svona; 4: 976 ♦:D3 ♦: ÁDG8643 4: KD108 4: 543 T: K1042 T: G976 ♦ : 75 ♦: K10 *: 632 *: G974 4: ÁG2 *: Á85 ♦: 92 *: ÁD1085 Hafði einhver samúð með spilamennsku Suðurs? Svarið við því fer væntanlega eftir því hvort meistarinn sat í sagnhafasætinu eða byrjandinn. Sá síðameíhdi hefði trúlega hafið lcikinn á lágum spaða undir kónginn. Og þar hefði sú saga endað. Svona spil em nefnilega allt- af skrifúð um meistara. Ekki satt? 18.SÍÐA — NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. júlí 1991

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.