Þjóðviljinn - 19.07.1991, Blaðsíða 11
HELGARMENNING
Barist í bökkum
Erlent fjármagn streymir inn í
íslenska kvikmyndagerð sem
aldrei fyrr. Það er hins vegar göm-
ul saga að peningamir renna ekki
eingöngu og sjálfkrafa til allra
þeirra listamanna sem eiga skilið
að fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Jakob Halldórsson heitir 25
ára gamall Akumesingur sem lok-
ið hefúr sínu þriðja ári af fjórum
við School of Visual Arts í New
York borg. Hann sýnir fimm stutt-
myndir í Regnboganum 22. og
Jakob Halldórsson sýnir 5 stuttar
myndir í Regnboganum.
25. júlí og kallar sýninguna Barist
í bökkum.
Tilgang þessara sýninga segir
Jakob vera þann að sýna að ennþá
fmnist ungir og sjálfstæðir, ís-
lenskir kvikmyndagerðarmenn
sem vilji halda áfram að þróa
þessa ungu listgrein. I Regnbog-
anum mun Jakob sýna Bráðina.
Bráðin er leikin mynd sem hann
lauk við nú í vor og fjallar um
slæman dag í lífi einstaklings.
Ylfa Edelstein kemur aðeins við
sögu í myndinni en auk hennar og
Jakobs sjálfs em leikaramir í
myndinni ffá Equador, Grikklandi
og Bandaríkjunum. Ferro Alloy
heitir mynd sem tekin er í Jám-
blendiverksmiðjunni á Gmndar-
tanga og sýnir hún framleiðslufer-
il deiglu. Þriðja mynd á sýning-
unni heitir Vélin. Þar birtist New
York eins og vél sem manneskj-
umar hafa flækst inn í. í ljórða
lagi verður sýnd mynd sem heitir
Kona. Það er stutt tónlistarmynd
þar sem „Presto“ úr Árstiðunum
eflir Vivaldi er túlkað með mis-
munandi hraða í samspili myndar
og hljóðs. I fimmta lagi er svo
„New York City Best“ sem er
stutt heimildamynd sem Jakob og
bekkjarfálagar hans gerðu um
neyðarþjónustu New York borgar.
Áhugafólk um kvikmyndagerð er
hvatt til þess að sýna hinum unga
kvikmyndagerðarmanni stuðning
og mæta á þessa sýningu.
-kj
Sigrlður Hagaín leikur annað aðalhlutverkið í Börnum náttúrunnar
Listgreinar Börnum náttúrunnar
leiddar saman hrósað í Noregi
Samvinna söngs og mynd-
verka er á dagskrá hjá þeim Sól-
veigu Eggerz Pétursdóttur og
Önnu Júlíönu Sveinsdóttm í
Hafnarborg, á morgun, laugar-
daginn 20. júli kl. 14.00. Margar
af myndum Sólveigar eru nokkurs
konar lýsingar á ljóðatextum er
Anna Júlíana syngur og tilraun til
að skapa bakgrunn fýrir suðræna
söngva við gítarundirleik. Sólveig
hefur reynt að vinna með vatnslit-
um á nokkuð fjölbreyttan máta og
við opnun sýningarinnar mun
Anna Júlíana syngja nokkur lög
úr söngskrá sinni.
Anna Júlíana hefur haldið
ljóðatónleika bæði hérlendis og
Listræn
gifting
Myndlistarmaðurinn Guð-
mundur Rúnar Lúðvíksson opnar
fyrstu einkasýningu sína í Lista-
miðstöðinni Hafnarborg, Hafnar-
firði á morgun, laugardaginn 20.
júlí. kl. 14.00
Guðmundur hefur lokið námi
við Myndlista- og handíðaskóla
Islands, Fjöltæknideild. Á sýn-
ingunni verða 9 verk, öll unnin á
þessu ári. Hún ber heitið:
„SLÓÐ-Myndir í land“ og verður
í skála og kaffistofu Hafnarborg-
ar.
Á sama stað, kl. 15.00,
kvongast listamaðurinn Tinnu
Rut Njálsdóttur (Gaflara). Prest-
ur verður Sr. Einar Eyjólfsson.
Á sýningunni mun jasssveit
Kjartans Valdimarssonar leika
nokkrar sveiflur ásamt brúðar-
marsi. Ásamt Kjartani, sem leik-
ur á píanó, er sveitin skipuð þeim
Páli Pálssyni á kontrabassa og
Steingrími Guðmundssyni á slag-
verk. Þá mun Jóhannes Á. Stef-
ánsson, þulur, lesa ljóð eftir
myndlistarmanninn Kristberg
Pétursson -kj
ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
erlendis. Hún kennir söng við
Tónlistarskóla Kópavogs og óp-
erusögu og sögu ljóðalagsins við
Tónlistarskólann í Reykjavík og
Nýja tónlistarskólann. Á fimmtu-
daginn kemur heldur hún tónleika
í Hafnarborg kl. 20.30. Þar verða
flutt sönglög við gítarundirleik.
Það er Þórarinn Sigurbergsson
sem leikur á gítarinn en hann
lærði að spila á gítar hjá þeim Ey-
þóri Þorlákssyni og Luis Gonza-
les á Spáni.
Böm náttúrunnar heitir ný
kvikmynd eftir Friðrik Þór Frið-
riksson og „Dagbladet" í Noregi
segir að hún sé framúrskarandi.
Það eru Gísli Halldórsson og Sig-
ríður Hagalín sem fara með aðal-
hlutverk í myndinni. Hún verður
frumsýnd í Stjömubíó 31. júli,
n.k. en á norsku kvikmyndahátíð-
inni í Haugasundi í ágúst.
Þeir Dagblaðsmenn í Noregi
hafa fengið að líta á nokkrar af
þeim kvikmyndum sem sýndar
verða á hátíðinni og um Böm
náttúmnnar segja þeir að erfitt sé
að vita hvort réttara sé að gráta
eða hlæja yfir henni, þetta sé fal-
leg mynd um elli og ást og það
komi eins og þmma úr heiðskími
lofti að hún hafi verið tekin til
sýningar á kvikmyndahátíðinni í
Haugasundi án nokkurrar for-
kynningar.
1 fréttatilkynningu ffá Is-
lensku kvikmyndasamsteypunni
segir m.a. að eftirvinnslan á Böm-
um náttúmnnar sé nú á lokastigi
og áætlað að ffumsýna hana í
Stjömubíó 31. júlí. Myndin segir
frá gömlum bónda sem komið er
fyrir á elliheimili og hittir þar
æskuást sína. Aðalhlutverk em í
höndum Gísla Halldórssonar og
Sigríðar Hagalín. Meðframleið-
endur em Max film Berlin og
Metro film Osló. Böm náttúmnn-
ar var fýrsta íslenska kvikmyndin
sem hlaut styrk úr kvikmynda-
sjóði Evrópu. -kj
-kj
Hjá okkur færðu umhverfisvænar
hreinlætisvörur og matvörur
sem þú getur treyst.
• lífrœnt rœktaöar kornvörur
• lífrœnt rœktaö grœnmeti og óvexti
• unnar matvörur úr lífrœnt rœktuðu hráefni og án allra aukaefna
• umhverfisvœnar hreinlœtis- og snyrtivörur sem hafa ekki veriö
prófaðar á dýrum.
- sápur, sjampó, olíur, krem o.fl.
- þvottaduft í þvottavélina og uppþvottavélina
- þvottalög í uppþvottinn
Hreinlœtisvörurnar eru án fosfata, án gervi tensíða, án ensíma,
án ilmefna, án bleikiefna.
YGGDRASILL, Kárastíg 1 - Sérverslun meö heilsuvörur
Opiö 12-18 virka daga og laugardaga 11-13, sími 624082