Þjóðviljinn - 19.07.1991, Side 14
Konur
Konur láta ekki sitt eftir
liggja í golfi frekar en öðru sem
þær taka sér fyrir hendur. Geysi-
leg aukning hefur orðið á þátt-
töku kvenna í golfíþróttinni hin
síðari ár og eru þær á öllum aldri,
ungar sem gamlar.
Ein af þeim konum sem leikið
hefur golf í langan tíma og með
góðum árangri er Inga Magnúsdótt-
ir, sem í dag er félagsmaður í Golf-
klúbbnum Keili í Hafnarfirði. Inga
situr nú í stjóm Golfsambands Is-
lands og er eina konan í þeirri
stjóm. Greinarhöfundar hittu hana
fyrir á golfvellinum og náðu tali af
henni áður en hún hvarf út í veður-
bliðuna sem hefur glatt golfara
landsins á þessu sumri.
Inga taldi aö ástæðan fyrir þeirri
miklu aukningu sem orðið hefur á
þátttöku kvenna sé í tengslum við
þá hugarfarsbreytingu sem átt hefúr
sér stað í þjóðfélaginu varðandi at-
vinnuþátttöku kvenna og auknu
sjálfstæði þeirra. Konur hafa rétt á
tómstundum eins og karlar og á
golfiþróttin einkar vel við þær þar
sem iðkun hennar krefst ekki neinna
aflrauna. Ef þær em hraustar og fæt-
umir í lagi þá geta þær allar stundað
golf, ungar sem aldnar, svo lengi
sem áhuginn er fyrir hendi. Konur
sem leika golf vilja auðvitað allar
bæta sig og spila vel en þær em yf-
irleitt ekki að sperra sig eins mikið
og karlmennimir og er það kannski
vegna þess að karlamir em alla
jafna metnaðargjarnari. Konur eiga
góðan dag á golfvellinum, sama
hvað á gengur, og njóta útivemnnar
og félagsskaparins.
Iðkun golfiþróttarinnar tekur
mikinn tíma hjá þeim sem taka hana
alvarlega, en flestir þeirra sem fá
áhugann taka golfið mjög alvarlega.
Inga sagðist oft hafa heyrt karlmenn
kvarta yfir því að það sé ekki lengur
hægt að fá fólk í heimsókn á sumrin
ef eiginkonan stundar golf. Hcima
hjá þeim sé ekkert gcrt yfir sumarið,
ryk yfir öllu, Ieirtauið óhreint í
vasknum og ekkert til með kaffinu.
Já, það er hart í ári hjá körlum þessa
dagana. Inga taldi það bráðnauðsyn-
legt fyrir hjón að fara saman í golf
því það væri meiriháttar þegar bæði
væm í þessu og gætu farið saman
upp á golfvöll. Hún sagðist bara
ekki geta ímyndað sér hvað hún og
maður hennar væm að vesenast í
dag, núna þegar öll bömin em farin
að heiman, ef þau væm ekki í golfi.
Þar sem fleiri og fleiri konur
væra nú famar að stunda þessa
íþrótt þá taldi Inga nauðsynlegt fyr-
ir konur að blanda sér meira í stjóm-
un klúbbanna. Enn þekkist það
meðal golfklúbba í landinu að í
stjóm þeirra sé engin kona, en í
flestum þeirra er þó um eina konu
að ræða, sem tekur þá oftast að sér
að sjá um allt það sem snýr að kon-
um i klúbbnum. Verkefni þeirra
þyrftu þó að verða fjölbreyttari því
konur hafa önnur viðhorf og áhersl-
ur og sjá hlutina í öðm ljósi. Golf-
klúbbar þurfa tvímælalaust á kven-
höndinni að halda.
Eins og áður var getið þá er Inga
eina konan sem situr í stjóm Golf-
sambandsins af ellefu stjómarmeð-
limum. I dag em um 5.500 manns í
klúbbum landsins og þar af er talið
að konur séu um 800 - 1000 talsins,
eða 20 prósent allra félagsmanna.
Til gamans má geta þess að lengi
vel var hlutfall kvenna einungis um
1 - 2 prósent af heildarfjölda skráðra
félaga Golfsambandsins. Þessi
aukning hefur öll átt sér stað hin síð-
ustu ár og er því greinilegt að hún er
stórfelld. Sú hugmynd að stofna
þyrfti sérstaka kvennanefhd innan
Golfsambands íslands taldi Inga
vera neikvæða þar sem það mundi
bara stuðla að aðskilnaði kynjanna
en þetta væri ein íþrótt fyrir alla,
konur og karla. Æskilegra væri að fá
fleiri konur inn í stjóm Golfsam-
bandsins og vafalaust væri lítið mál
að finna þær sem áhuga hafa á að
sitja þar. En í þessu sambandi, því
miður, þá virðist gamla viðhorfið að
karlmenn eigi að stjóma, lifa góðu
lífi.
I dag era þrir flokkar kvenna,
þ.e. meistaraflokkur, sem er.forgjöf
0 - 15, 1. flokkur, forgjöf 16 - 22, og
2. flokkur, forgjöf 23 - 36. Inga taldi
að tímabært væri að huga að nýjum
flokki sem yrði þá 3. flokkur
kvenna. Þá þyrfti einnig á sama tíma
að breyta forgjafarmörkunum og
færa þau niður t.d. að meistara-
flokkur væri ffá 0 - 12 o.s.frv. Hún
sagði að í meistaraflokki í dag væm
margar af eldri kvenkylfingum sem
væm með forgjöfina 13 - 15 og ættu
þær enga möguleika í þessar ungu
og efnilegu konur sem væm komnar
fram í dag og kepptu um sæti í
landsliði. Einnig væm sama upp á
teningnum hvað varðaði háforgjaf-
arkonur í 2. flokki í dag, því mikill
munur væri á konu með forgjöf 23
og konu með forgjöf33.
I golfinu er félagslega hliðin
mikilvæg. Öllum nýliðum er vel
tekið og þeim hjálpað eins og frek-
ast er unnt. Inga sagði að golf væri
íþrótt sem hentaði konum á öllum
aldri og það væri aldrei of seint að
byrja. Mikill samgangur og sam-
vinna er á milli kvenna í hinum
ýmsu klúbbum á landinu, og í þeim
málum skiptir vegalengd ekki máli.
Þetta sannaðist þegar konur ffá Ak-
ureyri komu um hvítasunnuna á rútu
til að hitta stöllur sínar fyrir sunnan
og eiga við þær keppni. Komu þær
við í Keili í Hafnarfirði, Kili í Mos-
fellsbæ og einnig fóm þær í Golf-
klúbb Suðumesja i Leim, þetta var
því fyrsta flokks keppnisferðalag.
Þá er samvinna á milli kvenna í
Golfklúbbi Reykjavíkur og Golf-
klúbbi Suðumesja og keppa þær um
farandskjöld ár hvert. Til gamans
má geta þess að Suðumesjakonur
keyrðu úr hlaði í Grafarholti með
skjöldinn góða innanborðs fyrr í
sumar, en konur í Golfklúbbi
Reykjavíkur sögðust koma suður
eftir á næsta og endurheimta grip-
inn.
Þegar leikmaður púttar má enginn hreyfa sig, tala eða standa nálægt
leikmanni. Ekki má heldur standa í púttlínu leikmanns, aftan eða framan við
holuna eða boltann sem leikið er. Það sama á við þegar leikmaður miðar
bolta eða slær högg.
Golfari vikunnar
Það er félagsmaður hjá Kili í
Mosfellsbæ sem er golfari vik-
unnar að þessu sinni. Hann heifir
Gunnar K. Gunnarsson og hefur
stundað golf af kappi frá upphafi
en þetta er þriðja sumarið hans.
Litla hvíta kúlan er þó ekki eini
boltinn sem hann hefur elt um æv-
A FLOTINNI
m
Umsjón
Jóhanna Waagfjörð og
Gunnar Sn. Sigurðsson
ina, því Gunnar æfði og spilaði
handbolta hér á ámm áður við góð-
an orðstír. Hann sagði að þegar
hann hætti að elta stóra boltann þá
hófst þessi mikli eltingaleikur við
þann litla og ekki sé séð fyrir end-
ann á þeim eltingaleik i bráð. Gunn-
ar segir að í staðinn fyrir að sitja
fyrir ffaman
sjónvarpið á
kvöldin þá fari
hann út á golf-
völl og njóti þar
hollrar og góðr-
ar útivera sem
enginn ætti að
láta fram hjá sér
fara.
í golfi
MÆ'
Kennara-
hornið
Arnar Már
Ólafsson
Staða bolt-
ans í uppstill-
ingunni hefur
mikil áhrif á
hvernig flug hans mun verða.
Sú meginregla gildir um stöðu
boltans að hann iiggur ávallt
vinstra megin við miðju stöð-
unnar. Með þessari boltastöðu
er auðveldara að halda líkam-
anum ávallt eins í uppstilling-
unni.
Það sem ákvarðar stöðu bolt-
ans við uppstillingu er mismun-
andi flái kylfúnnar. Á myndinni
sést hvemig boltinn er færður ör-
lítið aftar þegar flái kylfunnar
verður meiri. Athugið þó að bolt-
inn er aldrei aftan við miðju. Með
því að færa boltann til í stöðunni
getið þið breytt flugi hans. Bolti
sem liggur mjög framarlega mun
fljúga hærra en bolti sem liggur
aftarlega. Til dæmis má nefna að
þegar leikið er í mótvindi er skyn-
samlegt að færa boltann aftar í
stöðuna til að hann fljúgi lægra.
Ráð mitt í þessari viku er að
kynnast þessu afbrigði golfins.
Farið út á æfingabraut og leikið
ykkur að því að breyta stöðu bolt-
ans í uppstillingunni og sjáið
hvaða áhrif það hefúr.
Gangi ykkur vel
Arnar Már Ólafsson
Leikmaður hefur ieik á teig.
Hvenær telst boltinn vera „í
leik“?
A. Um leið og boltinn hefur verið
„tíaður“ upp fyrir teighöggið.
B. Um leið og leikmaðurinn hefúr
tekið sér stöðu við höggið.
C. Um leið og leikmaðurinn hefur
tekið sér stöðu við höggið og lagt
kylfúna niður fyrir aftan boltann.
D. Um leið og leikmaðurinn hefúr
greitt boltanum högg á teignum.
SVAR:
ueain|§3j
-j]o§ qia iiuæjuies 1 uuei) e|puoi)
-goui §0 ejfojq ‘bjjous si§unum
BUJ „5fI3I J“ UUIUI05J J3 uujjjoq
§0 gi3| uifi :puiose§nqjv
Q
14.SÍÐA— NÝTT HELGARBLAÐ Föstudagur 19. Jjúlf 1991