Þjóðviljinn - 19.07.1991, Blaðsíða 15
Fers
Ný dönsk - Kirsuber, Steinar
1991
Eg man að þegar ég heyrði
fyrst í hljómsveitinni Ný dönsk
hugsaði ég, a-ha, nýir Stuðmenn.
Síðan þá hefur mikið vatn runnið
til sjávar og Ný dönsk þroskast og
dafnað. I fyrra komst núverandi
meðlimatala á hreint. Popp-pælar-
amir Jón Olafsson og Stefán Hjör-
leifsson gengu í bandið og Stuð-
manna- áhrifin viku fyrir þyngra
poppi með skemmtilegum „sæka-
delik“ keim. Eflaust má skrifa
þessa breytingu að einhverju leyti
á Jón sem virðist vera áhugamaður
um þetta tímabil rokksögunnar.
A Regnbogalandinu, síðustu
plötu ND var margt gott, titillagið,
Frelsið og tíminn voru allt frábær
popplög en yfirgnæfandi fjöldi
ballaða dró plötuna niður að mínu
mati. Sumarútgáfa hljómsveitar-
innar „Kirsuber" inniheldur tvö ný
lög og fimm gömul í tónleika-
formi. Kirsuber er eftir þá Jón og
Björn bassaleikara og er með bestu
lögum sveitarinnar - æðislegt
popp sem maður vill heyra aftur og
aftur. Maður fær eflaust drullu ef
étið er of mikið af alvöru kirsu-
beijum en ekkert bólar á andlegri
drullu þó hlustað hafi verið á lagið
á hveijum degi á mínu heimili síð-
an diskurinn kom út. Stelpumar
eru hrifnar af textanum. Þetta er
svona lýsingarorðahrúga um feg-
urð kvenlíkamans sem alltaf hittir í
mark í dægurpoppinu. Eg er hrifn-
ari af laginu sjálfu. Rólyndislega
siglir það áfram með viðkomu á
Beach Boys-brimi og rekur á land
fullkomlega slípað og skínandi.
Snilld.
Hitt nýja lagið, „Blásið í“ eftir
Stefán sýnir að hann er í örum og
góðum lagahöfunda-vexti. Lagið
hossast áfram í finu fonki en tekur
svo óvæntar stefhur í viðlaginu.
Fínt hjá Stebba. Fimm lögin gömlu
voru tekin upp á tónleikum á Púls-
inum s.l. nóvember þegar Jón og
Stefán voru nýgengnir i sveitina.
Lögin vom á fyrri plötum sveitar-
innar en tónleikaútgáfúmar em
nokkuð frábmgðnar. Það var gott
hjá hljómsveitinni að leyfa okkur
að heyra þessar upptökur því þær
gefa okkur e.t.v. réttari mynd af
sveitinni en hljóðversupptökur
sem legið hefúr verið yfir. „Hjálp-
aðu mér upp“ og „Fram á nótt“ em
voðaleg kveikjara-lög. Mann lang-
ar ósjálfrátt að stökkva á fætur og
veifa tendmðum kveikjara þegar
þau heyrast. „Draumur“, „Him-
alaya“ og „Skýmir“ em allt áheyri-
leg verk í góðum útgáfúm á plöt-
unni.
ND hafa sagt að næsta skífa
verði kraftmeiri en þær fyrri. Eg er
strax farinn að hlakka til. Á meðan
verð ég að narta í Kirsuber eins og
aðrir aðdáendur.
Endurútgefið meistaraverk
Trúbrot-Lifun, Geimsteinn 1991
(áður Tónaútgáfan 1971 og Stein-
ar 1979)
Þeir sem halda að íslensk tónlist
hafi fyrst orðið góð í kjölfar rokk-
byltingar Bubba og Fræbblanna
ættu að hugsa sig betur um. Sjálfúr
var ég á þessari skoðun, enda höfðu
árin á undan ekki verið merkileg.
Fyrir uppreisnargjama smástráka
var ekki fýsilegt að hlusta á Ljósin í
bænum eða Lummumar.
I seinni tíð hef ég lagt mig fram
við að kynnast íslenskri tónlist ár-
anna 1965-1973, eða Bítla- og
hippaárin eins og má kalla þessi ár.
Það er ekki auðvelt að ná sér í tón-
list frá þessum ámm. Safnarabúðin
lumar örsjaldan á einstaka plötu og
endurútgáfúr á þessu efni hafa verið
ómarkvissar.
Nú hefur útgáfufyrirtæki Rún-
ars Júlíussonar, Geimsteinn, gefið
út meistarastykki Trúbrots „Lifun" í
fyrsta skipti á geisladiski. Lifun
kom fyrst út fýrir tuttugu ámm en
einnig í heilu lagi á safnplötunni
Brot af því besta 1979. Sú ágæta
plata er löngu uppseld.
Rúnar fær páfugl í hattinn fýrir
að leyfa okkur að heyra Lifun á ný.
Öll vinna, bæði við útlit og hljómur,
hefúr heppnast glæsilega og Lifun
hljómar frábærlega á geisladiski -
enda líklega vandfúndin órispuð
eintök af plötunni. Þessi vinnu-
Trúbrot á Lifunar-skeiðinu. Mynd: Kristján Magnússon.
brögð ættu að vera öðram útgefend-
um fýrirmynd. Þó svo „Afhir til for-
tíðar“- safnplötur Steina séu ágætar
sem slíkar vantar mikið upp á. Jafnt
gamlar, nýjar og ókomnar kynslóðir
eiga heimtingu á að geta nálgast það
besta í dægurtónlistinni á auðveldan
hátt. Hvenær getum við farið út í
búð og keypt okkur á disk „Magic
key“ með Náttúru, Tvöfalt albúm
Oðmanna, aðrar plötur Trúbrot, tón-
list Dáta, Tatara, Icecross og allt
efni Hljóma, svo ég nefni nokkur
nöfn? - En hvemig er Lifún? Ég
s e t t i
diskinn á
HELGARVAGG
með var-
úð sem
Gunnar L.
Hjálmarsson
jafnan fýlgir þegar hlustað er á eitt-
hvað sem á að vcra æðislcgt í fýrsta
skipti. En það var óþarfa varúð. Lif-
un á allt það lof skilið sem á hana
hefur verið hlaðið. Lifun er frá þeim
tima þegar „Consept'‘- plötur vom í
tísku. Heilsteyptar plötur, þar sem
gengið var útfrá einni ákveðinni
hugmynd, réðu rikjum. Hjá Trúbrot
var ætlunin að túlka lífsferil ein-
staklingsins. Við fýlgjumst með
hinni ónefndu söguhetju fæðast,
vaxa úr grasi, velta fýrir sér spum-
ingum lifsins, verða að gömlum
manni og loks deyja. Hvert æviþrep
er túlkað með viðeigandi tónlist.
Það tók Trúbrot mánaðar vinnu að
fúllsemja Lifún. Drengimir æfðu
daglega kl. 9 til 5 í bak-
húsi við Laugaveginn.
Verkið var fmmflutt á
tónleikum í Háskólabíói
í apríl 1971 og tekið skömmu síðar
upp í Morgan hljóðverinu í London.
Trúbrot varð til uppúr íslensku súp-
erbandasprcngingunni 1968 og gaf
út fjórar plötur með mismunandi
mannaskipunum. Gunnar Þórðar-
son og Rúnar Júlíusson vom alltaf í
bandinu og á Lifun vom auk þeirra
Karl heitinn Sighvatsson og Gunnar
Jökull trommari, sem báðir höfðu
verið með á fyrstu plötu sveitarinn-
ar, og Magnús Kjartansson sem
hafði verið með á annarri plötu Trú-
brots „Undir áhrifum". Allir em í
toppformi á Lifun. Allir eiga frá-
bæra spretti en þó em Gunnar Jök-
ull og Karl Sighvatsson fremstir
meðal jafningja. Hammondsprettir
Kalla og frjálslegur trommuleikur
Gunnars fær gæsahúðina oftar en
ekki til að hrislast um skrokkinn á
manni.
Það er í raun út í hött að vera að
veija bestu lögin af jafn frábærri og
sígildri plötu og Lifún er, en samt
get ég ekki stillt mig um að nefna
lögin Tangerine girl, Am I really li-
ving og What we belive in. Allt frá-
bærir kaflar. Svo er loka verkið, De-
ath and fmale, einnig minnisstætt.
Þar fer Karl ótrúlegum hamfomm á
Hammondið og sýnir enn eina ferð-
ina hversu mikill snillingur hann
var á orgelið.
Lifun hefur elst ótrúlega vel,
enda allt sem hippískt er komið í
tísku aftur. Því er hin nýja órispan-
lega útgáfa verksins skyldueign í
safn allra tónlistaráhugamanna,
hvort svo sem þeir em gamlir eða
nýhippar, eða bara opnir fýrir
óheftri, ferskri rokktónlist
FóctudaQur 19. júlí 1991 NÝTT MELOARSLAÐ — SÍÐA 1S
Vaggtíðindi
Kuran Swing-flokkurinn
leikur á Púlsinum í kvöld.
Flokkurinn er leiddur af Szymon
Kuran fiðlara og aðrir meðlimir
em Bjöm Thoroddsen, Ólafur
Þórðarson, Þórður Högnason og
Magnús Einarsson. Sveitin leik-
ur blöndu af swingtónlist og
bluegrassjass með sígauna-
keim. I kvöld verður boðið uppá
sólskinstónlist í takt við blíð-
viðrið undanfarið. Vinir Dóra
blúsa enn á ný á laugardags-
kvöldið og Reykjavíkurkvintett
spilar á sunnudagskvöldið. Sú
sveit er m.a. skipuð Ingimar
Oddssyni, söngvara úr Jojo, og
leikur brot af því besta úr 25 ára
sögu rokksins...
Óeirðir bmtust út við gröf
Jim Morrison í París í síðustu
viku þegar hundmðir Doors-að-
dáenda söfnuðust saman til að
minnast 20 ára dánarafmæli
Morrisons. 16 vom handteknir
og leiði Jims er illa útleikið...
Óeirðir bmtust einnig út á
Guns N'Roses tónleikum í
Missouri nýlega. Söngvarinn
Axl Rose sá mann með mynda-
vél í þvögunni, stökk í áhorf-
endaskarann og tók að lemja
ljósmyndarann. Hljómsveitin
hætti að spila í kjölfar atburðar-
ins og tónleikamir leystust upp i
slagsmál og læti. A.m.k. 60 voru
í sámm eftir atburðinn og flytja
þurfti heilmarga í steininn. Nú
em plötur GNR „Use your III-
usion 1 & 11“ sagðar eiga að
koma út í september...
Róttæka folk-söngkonan
Michelle Shocked, sem spilaði
hér á landi um árið, ferðast nú
um heiminn og hljóðritar nýtt al-
búm. Shocked hefur þegar tekið
upp með Doc Watson, Dan Cray
og The Red City Ramblers og
mun bráðlega taka upp með The
Messengers í Ástralíu og Hot-
house Flowers á írlandi...
Carlos Santana, gítarhetja,
var nýlega handtekinn á flug-
vellinum í Houston fýrir að hafa
marijúana I fjómm sér. Carlos
var með fimm grömm á sér og
var sleppt gegn 500 dala trygg-
ingu...
Dauðasveitin Sororicide (áð-
ur Infousoria) hefúr bætt við
fimmta manni, söngvaranum
Boga Reynissyni. Bogi var áður
í Gor, Putrid og Insectary.
Hljómsveitin er um þessar
mundir að æfa stíft fýrir Galta-
læk, þar sem hún kemur ffam
tvisvar um verslunarmannahelg-
ina. Ágóðann af þeim tónleikum
hyggst hljómsveitin nota í upp-
tökur á nýju efni. Ekki er víst að
Platonic records, fýrirtæki
Hilmars Amar, gefi plötuna út.
Ef ekki ætla Sororicide-menn að
gefa sjálfir út demó-spólu og
reyna að fá samning eriendis...