Þjóðviljinn - 13.09.1991, Page 7
Bresk stjórn í Púlsinum
Rut+ lætur
móðan mása
Breska fönkhljómsveitin Government er komin til landsins; spilaði í fyrsta skipti á
Púlsinum í gærkvöldi, en verður aftur á ferðinni á Púlsinum í kvöld, annað kvöld
og á sunnudagskvöldið.
Hljómsveitin hefur verið mikið á rúntin-
um; er nú í miðjum Skandinavíu-túr og fer
héðan beint til Svíþjóðar. Þar hefur sveitinni
tekist að skapa sér nokkurt nafh og verður
þetta í annað skipti á árinu sem Govemment
spilar fyrir frændur okkar Volvo-eigenduma.
Það skal fara varlega í sakimar þegar lesið er
að The Govemment sé fönkhljómsveit, því
það fönk sem þeir spila er nokkuð fjarri al-
faraleið fönksins. Sjálfir segjast þeir „vera
að kanna dekkri hlið fönksins“, og í erlend-
um blaðagreinum hefur þeim einatt verið líkt
við hljómsveitimar Defunkt (sem spilaði hér
um árið), Was (Not Was) og The Red hot
chili peppers. Ymsum stílbrigðum hefur ver-
ið hrúgað á hljómsveitina; þeim er sagt hafa
tekist að gifta fönk og rokk farsællega og
bræða djass og pönk í fúllkominn bræðing.
Það dugar því ekkert nema að sjá sveitina
með eigin augum og mynda sér eigin skoð-
un.
Govemment fjórmenningarnir; Brian
Foley, sem syngur og blæs í saxafón, Paul
Huges, sem spilar á gítar, Roger Leece, sem
E.t.v. má kalla hljómsveitina RUT+ súpergrúppu í íslenska „neðanjarðar" popp-
inu. Líkt og meðlimir úr nokkrum „rokksprengingar" hljómsveitum hrönnuðust í
KUKLið 1983, hrönnuðust Árni gítarleikari úr Vonbrigðum, Atli gítarleikari úr
Wapp og Múzzólíní, Ari bassi úr Bless og Sogblettum, og Maggi trommari og
Bjössi barki úr Bleiku böstunum í hljómsveitina RUT+ snemma á þessu ári.
Hljómsveitin kallar sig eftir samnefndri plötu Rutar Reginalds og býður nafnið
einnig uppá að hægt sé að notast við það á ensku. RUT+ hefur djammað í ban-
anageymslu í allt sumar en nk. fimmtudag ætlar hljómsveitin að spila í fyrsta
skipti opinberlega á Tveim vinum. í tilefni opinberunarinnar var tekið viðtal og
fyrsta spurningin hljómaði: RUT+ súpergrúppa?
trommar, og Steve Jones bassaleikari hafa í
tilefni lslandsfararinnar æft upp stuðpró-
gramm með lögum Bowie, Stones, Hendrix
og fleiri kappa, og munu auk þeirra að sjálf-
sögðu spila eigið efni, m.a. af tveimur smá-
skífum sem þegar eru komnar út og af nýrri
plötu sem er í vinnslu. Dægurtónlistarfíklar:
Skyldumæting í Púlsinn um helgina!
Gunnar L.
Hjálmarsson
skrifar
„Já, við erum Trúbrot tíunda áratugar-
ins,“ fúllyrða drengimir. „Samt má kannski
fekar segja að RUT+ sé griðastaður fyrir at-
vinnulausa poppara."
- Er tónlistin hrœrigrautur áhrifa frá
fyrri hljómsveitum?
„Nei, alls ekki!“ mótmælir sveitin móðg-
uð. „Þetta er mjög ólíkt öllum okkar fyrri af-
rekum. Þetta er mun þyngri tónlist. Ef þú vilt
skilgreina okkur getur þú sagt að við spilum
skipulagðan hávaða. Við erum lausir við allt
yfirborðskjaftæði. I textunum er ekki mælt
undir rós, það er allt sagt.
- Hvað er sagt?
„Við syngjum um raunverulegar tilflnn-
ingar, um okkar raunverulega líf. Hið raun-
verulega líf farandverkamannsins...nei
nei!...“
- Hver semur?
„Maggi á flesta textana. Tónlistin er
samin í hóp, þetta er mjög lýðræðisleg
hljómsveit.“
Hávaði og
dýrslegar hvatir
Ari Eldon bassaleikari er ekki viðstadd-
ur, en nú kemur Bjössi skoppandi, svo ég
hef fjóra af fimm í heljargreipum viðtalsins.
Bjössi sýndi eftirminnilega stuðtakta með
Böstunum en tónlist RUT+ er miklu þyngri
svo ég spyr hann hvort hann fái að njóta sín í
nýju hljómsveitinni.
„Já, það er ekki spuming,“ svarar Bjössi
glottandi. „Ég neglist allur niður við þessa
tónlist. Þetta er mjög dýrsleg og yndisleg
tónlist.“
„Hljómsveitin fór ekki almennilega í
gang fyrr en Bjössi gekk til liðs við okkur
fyrir mánuði,“ segja hinir. „Við erum gífúr-
lega frjóir um þessar mundir, höfúm ekki
undan að æfa.“
„Ég fer alltaf að hugsa um perverta þegar
ég heyri þessi lög,“ fullyrðir Bjössi en hinir
reyna að þagga niður í honum: „Það eru
kannski örfá lög sem fjalla um perverta en
megnið er um ást og sannar tilfinningar,“
segir Maggi.
- Hvað fáum við að heyra á fimmtudag-
inn?
„Hávaða og dýrslegar hvatir,“ lofar
RUT+ ásamt aðdáanda. Mynd: Kristinn.
Bjössi. „Hver veit nema fjöldamorðingi
mæti á svæðið.“
„Við spilum í svona þijú korter, á eflir
frábærum upphitunaratriðum,“ segir Ámi.
„Þetta er afrakstur þrotlauss erfiðis, mjög
fjölbreytt efni, lögin 2 og upp í 5 mínútur,
þungt og hratt, eða hægt og létt... eða þungt
og létt í einu. Við erum búnir að finna upp
formúlu til að semja fúllkomin lög, en við
gefum hana ekki upp. Spíddmetal kemur
kannski eitthvað við sögu í formúlunni.“
- Hvernig nenniði svo að hjakka i þess-
ari tónlist sem svo fáir kœra sig um?
„Tæknilega séð er ástæðan sú að við er-
um of miklir aumingjar til að stunda sund,“
segir Atli, „eða við erum að ýta undir mögu-
leikann á að við náum í kærustur.11
„Það er ótrúlega gaman að þessu hel-
víti,“ segir Ámi með sæluglott á vör. „Gald-
urinn er bara að halda áffarn endalaust, hætta
aldrei. Þú sérð nú bara Ríó- tríóið; alltaf era
þeir jafn leiðinlegir en hætta samt aldrei. Við
hættum ekki þótt fólk nenni ekki að hlusta á
okkur. Það er ekki okkar vandamál þótt fólk
hafi óþjálfað eyra. Við stefnum á að slípa
eyra landsmanna með tímanum!"
Leiksvið fáránleikans spilar sitt
kraftmikla nýbylgjupönk á Duus- húsi
nk. fimmtudagskvöld. Hljómsveitin
sýndi það nýlega á tónleikum á Púls-
inum að hún hefúr rokkbein í nefinu
og er til alls likleg...
Ekki var mæting á tónleika Skid
Row um síðustu helgi eins góð og
menn væntu. Þó eru Rokk-menn síður
en svo búnir að gefast upp.
Spörfugl hvíslaði því að mér að
næsti rokkinnflutningur yrði í nóvem-
ber og að enska rokksveitin The Cult
væri líklegur kostur...
Nokkuð hefur verið fjallað um líf-
legt rokklíf á Húsavík hér á síðunni.
Nú gefst borgarbúum einstakt tæki-
færi til að sjá og heyra það besta af
Húsavíkur- rokkinu á sérstöku Húsa-
víkur- rokkkvöldi á Tveim vinum
nk. sunnudagskvöld. Að öllum líkind-
um koma fram fimm hljómsveitir.
Þijár era hreinræktaðar Húsavíkur-
sveitir; Rotþróin, Ræsið og Krum-
mar, sem er afbrigði af hljómsveit-
inni Hrafnar. Hljómsveitin Exit er
meira frá Akureyri en Húsavík, og til
að vega upp á móti öllu norðlenska
karlarokkinu verður fimmta sveitin
reykvísk kvennahljómsveit; Hljóm-
sveit Jarþrúður...
Nýlega kom út safnspóla frá Gall-
erí Krúnk sem heitir ekkert en hefúr
að geyma sex hljómsveitir í pönkaðri
kantinum; Cazbol, Indiana, Horver,
Drullu, Kjaftæði og kvennasveitina
Dritvík. Meira um þessa spólu í næsta
Vaggi.
22
68 55
//
/
NÝTT HELGARBLAÐ
7 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991