Þjóðviljinn - 13.09.1991, Page 15

Þjóðviljinn - 13.09.1991, Page 15
r é t t i r Helmings niðurskurður Það er ekki laust við að maður hallist að því að spítalinn hafi lent með öðrum í stórum potti í heilbrigðisráðuneytinu. Við erum síðan það óheppin að vera dreginn úr honum og lend- um í þessum niðurskurði heil- brigðisráðuneytisins, sagði Árni Sverrisson, framkvæmdastjóri St. Jósepsspltala I Hafnarfirði eftir að honum hafði verið til- kynnt að fjárframlög til spltalans verði skorin niður um meira en helming. - Það einkennilega er að það hefur engin fagleg umræða farið fram um að leggja niður spítalann. Eg og formaður spítalastjómar vor- um boðaðir á fund aðstoðarmanns heilbrigðisráðherra og ráðuneytis- stjóra ráðuneytisins og tilkynnt að fjárframlög til spítalans yrðu skor- in niður um 120 miljónir króna. Við eigum síðan sjálfir að koma með tillögur um breytt rekstrar- form, en sterklega var gefið í skyn að hægf væri að setja upp hjúknrn- arhejmili fyrir aldraða, sagði Ámi. Ami sagðist ekki vita hvemig heilbrigðisyfirvöld ætluðu sér að anna þeim sjúklingum sem St. Jós- epsspítali hefúr haft til meðferðar árlega. - Við höfúm ffamkvæmt um 1800 skurðaðgerðir á ári hveiju. Ég get ekki séð annað en að bið- listar eflir aðgerðum muni lengjast þeim mun meira en nú er ef þær detta niður, sagði Ámi. Aðspurður hvaða aðgerðir væru ffamkvæmdar á spítalanum, sagði hann að spítalinn hafi sérhæfl sig í beinaaðgerðum, lýtaaðgerð- um, móðurlífsaðgerðum o.fl. - Ég stend bara ráðþrota gagn- vart svona vinnubrögðum, því við höfúm staðið okkur mjög vel bæði í fjárhagslegu og faglegu tilliti, sagði Ami. Bæjarráð Hafnarfjarðar kom saman í gær vegna þessa og var þar bókað að bærinn sem á 15% í spít- alanum hafi ekki vitað neitt um þessar hugmyndir. „Bæjarráðið mótmælir harðlega lítt ígrunduðum hugmyndum i þessa veru og ekki síður vinnubrögðum rikisvaldsins,“ segir m.a. í bókuninni. Bæjarráðið segir að við kaup á St. Jósefsspítala 1987 hafi það ver- ið forsenda kaupanna af hálfú bæj- arsjóðs og ríkisvaldsins einnig að spítalinn yrði áfram rekinn með óbreyttum hætti. I lok bókunarinnar segir bæjar- ráð að brýnt sé að leggja þessi áform þegar í stað á hilluna. -sþ Jón Baldvin skikkar sína menn Allir þingmenn Alþýðuflokks- ins hafa skuldbundið sig til að styðja fjárlagafrumvarp ríkis- stjómarinnar að því er mennta- málaráðuneytið varðar, segir I fréttatilkynningu sem formaður Alþýðuflokksins sá ástæðu til að senda frá sér í gær varðandi skólagjöld og afgreiðslu þeirra og flárlagarammans innan þing- flokks og ríkisstjórnar. Jón Baldvin segir að þetta hafi verið samþykkt að gefnum ákveðn- um forsendum sem séu þær að nefnd sé að kanna lagaheimildir skóla til að innheimta skólagjöld og að hún sé að samræma fýrir- komulag skólanna um innritunar- og efnisgjöld sem lög heimila. Auk þess eru forsendumar þær að um heimildarákvæði sé að ræða og að skólum sé í sjálfsvald sett að hve miklu leyti þeir mæta útgjaldaþörf sinni með spamaði og að hve miklu leyti með gjaldtöku. Jón Baldvin vitnar til bókunar þriggja þingmanna sem segjast fallast á ramma fjárlaganna er snýr að menntamálaráðuneyti, en áskilja sér rétt til að hlutast til um breyt- ingar á lögum til að tryggja að námsgjöld standi ekki undir rekstr- arkostnaði framhaldsskóla. Sömu þingmenn sögðu einnig að ef skólagjöld yrðu færð sem sértekjur í fjárlagafmmvarpi myndu þau ekki standa að þeim lið frumvarps- ins. Síðan hafa fjórir þingmenn lýst því í bréfi til menntamálaráðherra að þau styðji ekki álagningu skóla- gjalda - og að þannig sé ekki þing- meirihluti fyrir skólagjöldum. Af fréttatilkynningu Jóns Bald- vins má hinsvegar skilja að hann telur þessa þingmenn skuldbundna af samþykkt sinni og bókun á þing- flokksfundi Alþýðuflokksins. -gpm Þjóðviljinn SJÁLFBOÐALIÐSSVEITIN getur bœtt við sig fleiri félögum til að vinna ýmis verk við áskrifendasöfnun Blaðsins okkar Látið skrá ykkur í síma 681333 Fjármálaráðherra Friðrik Sophussort að rétta af kúrsinn i fjölmiðalumræðunni um fjárlagarammana. Að baki hans sitja Bolli Þór Bollason og Magnús Pétursson, fjármálaráðuneyti. Mynd: Jim Smart. Skólagjöldin enn inni Friðrik Sophusson fjámnála- ráðherra vísaði til samþykktar rlkisstjómarinnar um fjárlaga- rammann þegar hann var spurður um það á blaðamanna- fundi I gær, hvort rlkisstjómin hefði fallið frá þv( að leggja skólagjöld á nemendur í fram- haldsskólum og i háskólum. Hann benti hinsvegar á að fjár- lagafrumvörp tækju iðulega breytingum I meðförum þings- ins. Eftir að Össur Skarphéðinsson þingflokksformaður Alþýðuflokks- ins sendi menntamálaráðherra bréf um að fjórir þingmenn flokksins styddu ekki álagningu skólagjalda einsog hún er hugsuð í fjárlaga- rammanum er ljóst að ekki er þing- meirihluti fyrir því þrátt fyrir það að rikistjómin hafi um það gert samþykkt. Friðrik boðaði til blaðamanna- fundar til þess að rétta af kúrsinn í umræðunni um fjárlögin, að eigin sögn. Hann vildi ekki ræða ein- staka liði frumvarpsins svo sem sjómannaafslátt, innritunargjöld á sjúkrahús, skólagjöld né annað sem ekki lýtur að heildarramma fjár- lagafrumvarpsins. Hann tók ítrekað fram að hann sæi enga ástæðu til þess þar sem slíkt hefði ekki tíðk- ast við gerð fjárlaga. Þetta kæmi í Ijós í októberbyrjun þegar fjárlaga- frumvarpið yrði lagt ffam á þingi, sagði fjármálaráðherra. Ekki er fúllgengið frá tekjuhlið frumvarpsins í einstökum atriðum og gæti það dregist ffam undir jól sem er mjög venjulegt. Þar á meðal er sjómannaafslátturinn og annað er snýr að skattamálum. Þó kom ffam hjá Friðrik að engin ákvörðun hefúr verið tekin um sjómannaafsláttinn, en að hann sé eins og margt annað til skoðunar i fjármálaráðuneytinu sem hafi gert ýmiskonar útreikninga varðandi af- sláttinn rétt eins og margt annað. Friðrik sagði að ef ekkert hefði verið að gert hefði stefnt í rúmlega 20 miljarða króna halla á fjárlögum næsta árs, aðallega vegna útgjalda- aukningar vegna nýrra laga og samninga, vegna óbreyttra laga, aukinnar fjárfestingar, minni skatt- tekna og vegna þess að nú á að gjaldfæra skuldbindingar ríkissjóðs jafnóðum og þær eiga sér stað. Þetta á allt að gera án skattahækk- ana. Til að ná hallanum niður fyrir fjóra miljarða króna á næsta ári á að skera niður rekstrarútgjöld og lækka tilfærslufé um 7,3 miljarða, það á að leggja þjónustugjöld á at- vinnuvegi og einstaklinga fyrir 2,8 miljarða króna og falla ffá áform- um um fjárfestingu eða slá þeim á ffest og spara þannig 4,9 miljarða króna. Friðrik sagði ekki rétt að líta á þjónustugjöld sem skatta, en sam- kvæmt þessu verða sértekjur rikis- ins auknar um sem samsvarar þremur prósentum af tekjum rikis- sjóðs. Til samanburðar þá verður eftir 12,2 miljarðar af tekjuskattin- um í ríkiskassanum. Innheimtir eru tæplega 80 miljarðar í ár, en rúm- lega helmingur fer til baka í per- sónuafslátt og stór hluti í útsvar og hitt fer til baka i formi sjómannaaf- sláttar, bamabóta, vaxtabóta, hluta- fjárafsláttar og sóknargjalda. Hin nýju þjónustugjöld samsvara því um 23 prósentum af því sem ríkið heldur eftir af tekjuskattinum. Þá kom ffam á fúndinum að Friðrik telur viðauka við búvöru- samning ekki vera hluta af búvöru- samningnum. En með því að túlka þetta á mismunandi veg getur Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra sagt að skera eigi niður um 1.200 miljónir vegna búvöru- samningsins, en Halldór Blöndal getur á sama hátt komið ffam í fjölmiðlum og sagt að það eigi ekki að hrófla við búvörusamn- ingnum. -gpm HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - sími 17800 1 Námskeið í október j Vefnaður Myndvefnaðurl Tóvinna Prjóntækni Dúkaprjón 3.okt-18.nóvkl. 19.30-22.30 7.okt.-25.nóv. kl. 19.30-22.30 l.okt,- 5.nóv. kl. 19.30-22.30 3.okL- 7.nóv. kl. 19.30-22.30 5.okt,- 9.nóv. kl. 13.30-16.30 Fatasaumur (jakkar og buxur) 3.okt.-21 .nóv. kl. 19.30-22.30 Þjóðbúningasaumur 5.okt.-30.nóv. kl. 10.00-13.30 Bútasaumur 2.okt- 6.nóv. kl. 19.30-22.30 Leðursmíði 2.okL- 6.nóv. kl. 19.30-22.30 Þæfing fýrir böm og fullorðna 5.okt.-26.okt. kl. 10.00-13.00 Skrífstofa skólans er opin alla virka daga frá kl. 16 -18. lT Skráningferframáskrifstofuskólansísíma 17800. - í . J

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.