Þjóðviljinn - 13.12.1991, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 13.12.1991, Qupperneq 4
Afstaðan til EES Þjóðin er klofin í tvennt í afstöðu sinni til Evrópsks efnahagssvæðis samkvæmt skoðanakönnun Félags- vísindastofnunar. í könnuninni kemur einnig fram að einungis um 60 prósent aðspurðra hafa myndað sér skoðun á málinu, en 40 prósent hafa ekki gert upp hug sinn ennþá. Þrátt fyrir það að töluverð umræða hafi átt sér stað í þjóðfélaginu um EES telja rúmlega 70 prósent að- spurðra sig ekki hafa fengið nægilega miklar upplýs- ingar um hvað samningurinn felur í sér fyrir ísland. Sú umræða sem farið hefur fram hefur verið afar einhæf. Utanríkisráðherra hefur farið í fundaferð um landið og kynnt ágæti þessa samnings. Samstaða gegn aðild Islands að samningnum fór fram á að fá að kynna sín sjónarmið á fundunum, en ráðherra neitaði því. Einungis jákvæð viðhorf áttu að fá að svífa yfir vötnum á sigurreið Jóns Baldvins um landið, þar sem hann ítrekaði hvað eftir annað að íslendingar hefðu fengið allt fyrir ekki neitt. Nokkrum vikum eftir fundaferðina kom svo í Ijós að þetta var fleipur eitt. Ráðherra hafði fullvissað þjóðina um að ríki Evrópu- bandalagsins sættu sig við að fá að veiða langhala í íslenskri lögsögu þrátt fyrir að engin fullvissa væri fyrir að hann væri í veiðanlegu magni á íslandsmiðum. EB var hinsvegar ekki á þeim buxunum og heimtaði karfakvóta í stað langhala ef af samningum ætti að verða. Þetta var í annað skiptið sem utanríkisráðherra var staðinn að því að kynna niðurstöður úr þessum samningaviðræðum sem stóðust ekki og því ekki til að auka trú á ágæti þess samkomulags sem undirrit- að hafði verið í Lúxemborg, einkum og sér í lagi þar sem enginn hafði fengið að sjá samninginn í heild sinni. Þjóðinni er því gert að gera upp hug sinn með því að byggja alfarið á orðum ráðherra og annarra samningamanna. Það fór líka svo, að samtök hags- munaaðila í sjávarútvegi létu af stuðningi við samn- inginn að svo komnu máli og hefur þó verið látið í veðri vaka að sjávarútvegurinn og fiskvinnslan muni hagnast mest á samningnum. Það að 70 prósent þjóðarinnar telja sig ekki hafa fengið nægjanlegar upplýsingar um eðli samningsins þarf því ekki að koma á óvart. Mikilvægi hlutlægrar fræðslu um samninginn sést best á því, að um helmingur þeirra sem taka afstöðu óttast að sjálfstæði þjóðarinnar sé í hættu gerist ís- land aðili að samningnum, 40 prósent telja að sér- kenni íslenskrar menningar verði í meiri hættu en nú er, og tæplega 70 prósent þeirra sem taka afstöðu telja að forræði þjóðarinnar yfir auðlindum verði í meiri hættu en nú er, ef ísland gerist aðili að samn- ingnum um evrópska efnahagssvæðið. Niðurstöður þessarar könnunar eru merkar fyrir margra hluta sakir og hljóta stjórnmálamenn að taka mið af henni þegar umfjöllun um samninginn kemur til kasta Alþingis. Guðmundur Alfreðsson þjóðréttar- fræðingur hefur varpað fram fjölmörgum spurningum um hvort samningurinn sé brot á stjórnarskrá íslands, en það mál hefur ekki verið kannað nægilega. Mikil- vægt er að það sé kannað til hlítar áður en tekin verð- ur afstaða til samningsins. Niðurstaða skoðanakönnunar Félagsvísindastofn- unar undirstrikar nauðsyn þess að samningurinn um EES verði borinn undir þjóðaratkvæði. Einnig er aug- Ijóst að mun ítarlegri umræða og upplýsingaflæði þarf að eiga sér stað áður en slík atkvæðagreiðsla fer fram. Það dugar ekki að utanríkisráðherra einn þeysi um héruð og dásami króann í bak og fyrir, slíktflokk- ast ekki undir upplýsingar, heldur sjálfshól og áróður. -Sáf Helgarblaö ÞJÓDVIIJIN M Útgefandi: Útgáfufélagið Bjarki h.f. Framkvæmdastjóri: Hailur Páll Jónsson Ritstjórar: Árni Bergmann, Helgi Guðmundsson. Ritstjórnarfulltrúar: Árni Þór Sigurðsson, Sigurður Á.Friöþjófsson Umsjónarmaður Heigarblaðs: Bergdís Ellertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinar Haröarson Afgreiösla: «68 13 33 Auglýsingadeild: «68 13 10-68 13 31 Símfax: 68 19 35 Verð: 170 kr. í lausasölu Setning og umbrot: Prentsmiðja Þjóöviljans hf. Prentun: Oddi hf. Aösetur: Síðumúla 37, 108 Reykjavík B ó k a r ý n i Forseti lýðveldisins Gylfi Gröndal Kristján Eldjárn Forlagið 1991. Gylfi Gröndal hefur víða við komið í ævisagnaritun, mestan part hefur verið um viðtalsbækur að ræða með dæmigerðum göllum þeirra og kostum. Þessi bók hér er mun metnaðarmeiri, hér eru aðfong önnur og meiri en lengst af áður og útkoman er merkilegri. Það er þá eins gott að koma fram með kvartanimar strax. Við vitum að ævisaga hvers og eins getur þanist út í margar áttir og því reynir mjög á valgáfu höfundar, á að hann kunni að gera mun á mylsnu og smælki og því sem meira varðar. Þetta tekst höfúndi ekki alltaf sem skyldi. I annan stað telur lesandinn sig eiga rétt til að kvarta yfir hlutfollum í bókinni ef svo mætti segja. Þar er margt að dregið um ætt og uppruna Kristjáns Eldjáms, um þann heim sem leyfði honum að lýsa sjálfum sér sem hálfgerðum miðaldamanni, svo stórstígar höfðu breytingar orðið á högum manna frá því hann mundi fyrst eftir sér. Við kynnumst líka mætavel fræðimanninum Kristjáni Eldjám eins og síðar skal að vikið nánar. En okkur finnst óneitanlega eyða fyrir „stjómmálamanninum“ Kristjáni Eldjám. Eins og menn vita vasaðist Kristján ekki mikið í íslenskri flokkapólitík. En vitaskuld hugsaði hann sitt um „blessað þjóðfélagið, sem alltaf vill vera að ota mér i einhvem fjandann“, eins og hann segir um eril í embætti þjóðminja- varðar. En um það allt fréttum við litið. Við fáum að sjá dagbókar- glefsu um viðbrögð ungs Hafnar- stúdents við nasískri áróðursmynd. Og þegar að því kemur löngu síðar að Kristján býður sig fram til for- seta, þá er þess getið að stuðnings- menn keppinautarins, Gunnars Thoroddsens, hafi reynt að halda því á lofti að „Kristján hefði verið á framboðslista Framsóknarflokks- ins 1949 og tckið þátt í baráttunni gegn herstöðinni og Keflavíkur- sjónvarpinu". Um þessi mál öll segir Gylfi ekki annað en þetta: „Allt var þetta rétt, en að sjálf- sögðu ekki sambærilegt við stjómmálaþátt- töku Gunnars Thoroddssens, svo að vopnið reyndist bitlít- ið.“ Afskipti Kristjáns Eld- jáms af þjóð- málum og skoðanir hans á hinum stærri málum þjóðar og heims einnig eftir að hann er orðinn forseti - verða með þessum hætti einskonar leyndarmál eða feimnismál. Það sýnist óþarfi, eins þótt t.d. heimildir um stjómar- myndanir sem Kristján hafði afskipti af séu enn ekki opin- berar heimildir. En hvað sem því líður: af texta þess- um, ekki síst þar sem hann styðst við dagbækur Kristjáns sjálfs, fá- um við geðþekka og allskýra mynd af manninum og fræðimanninum Kristjáni Eldjám. Við sjáum hann skýrast fyrir okkur við fomleifafa- Árni Bergmann skrifar rannsóknir á Grænlandi og í Þjórs- árdal, í nokkm samviskustríði út af því hver fær að eiga þess kost að grafa upp rústir á Stöng, í áhyggju út af því að ekki sé nóg starfað og allt hefði mátt betur gera. Við kynnumst vönduðum fræðimanni sem hefur skynsamlegan hemil á ályktanagleðinni, þjóðminjaverði sem hefúr góðan metnað fyrir sína stofnun: „Safnið á ekki að vera klausturklefi handa þeim, er flýja vilja mannheima og gleyma samtíð sinni yfir dauðu grúski. Það á að vera handa alþýðu manna á Islandi, þar á hún að geta skoðað sjálfa sig í skuggsjá fortíðarinnar og um Ieið skilið betur kjör sín og örlög, líf og sögu þjóðarinnar i landinu.“ Lesandinn kynnist líka þeim ei- lífa „sveitamanni“ sem er heill og sannur fulltrúi þess ágætasta í menningu og siðemi þjóðarinnar, sem saknar þeirra tíma þegar mannlífið var „einfalt, tryggt og gott“ og gefúr Íítið fyrir þá „yfir- borðsmennsku“ góðborgaranna sem hann skaut - meðal annars - á í pistlum sínum nafnlausum í tíma- ritinu Lífi og list fyrir margt löngu. Myndakostur er mikill í bók- inni. Ég gerði aðeins skyldu mína... Kazuo Ishiguro í heimi hvikuls Ijóss Bjartur 1991 - Þýðing: Elísa Björg Þorsteinsdóttir. Kazuo Ishiguro er einn þessara Iánsömu höfunda sem getur séð í heima tvo: Japani að uppruna, skrifandi á ensku. í fyrra kom út saga eftir hann uin ömurlegt lífs- hlaup hins breskasta af öllu bresku: hins skyldurækna þjóns sem engin göfug ætt má án vera. í þessari sögu hér er hann hinsvegar að lýsa Japan og afskaplega japönskum listamanni, Masuji Ono. Masuji Ono er hniginn á efri ár þegar hann hefur söguna. Það er árið 1948: hann hefur verið virtur listamaður, en lætur nú sem minnst fyrir sér fara, getur ekki einu sinni sýnt dóttursyni sínum myndir sín- ar. Það er eitthvað í fortíðinni sem þrengir að honum með ýmsum hætti, m.a. þcim að liann á erfitt mcð að gifta yngri dóttur sína: kannski hefur sá skuggi fallið á orðstír Ijölskyldunnar að enginn vill við hana kannast og henni tengjast? Sagan scgir bæði af því, að Japan er að rísa, íurðu fljótt reynd- ar, úr rústum cftir loftárásir stríðs- ins (sögunni lýkur 1950) og hún er um leið á fcrð inn í fortíðina. Það er þægileg fcrð og Misuji Ono er hún þvert um geð. Hann reynir að ýta því verkefni frá sér, en það tekst ekki. Hann hrckst fyrir vofum fortíðar sem tengjast hinni jap- önsku sekt. Mcðábyrgð á því að Japanir lögðu í landvinningastríð og ráku þau af mikilli grimmd, meðábyrgð á þeim hörmungum sem gengu yfir þjóðina áður en lauk. En Masuji hefur stundað með sínum hætti „pólitíska" list (ein- hverra hluta vegna halda menn að sovéskir séu einir um það), hann hefur búið til myndir sem áttu að hvetja unga menn til að fóma sér fyrir keisara og föðurland. Meira en svo: hann hefur það á samvisk- unni að leynilögreglan tók einn af efnilegustu lærisveinum hans fýrir „óþjóðlega" list og lék hann mjög grátt. Þetta er pesónulegt uppgjör sem um leið sprengir ramma slíks uppgjörs. Þjóðverjar skrifuðu mik- ið af slíkum verkum upp úr stríð- inu: hvar varst þú? spurðu þeir Böll og Lenz og margir fieiri, og drógu hvergi undan, hlífðu ekki heldur hvunndagsmanninum valdalausa. Rússar bera sína stalín- tíma á herðum og hafa í vaxandi mæli fjallað um ábyrgð og með- sekt af þeim, allt frá Krabbadeild Solzhenitsins. En okkur er sagt að í Japan gangi mönnum einna erfið- legast að horfast í augu við óþægi- lega fortíð - og Masuji Ono er sú tregða holdi klædd. Eins og í öðrum ríkjaskápum sem fullir eru með beinagrindur skýtur hann sér fyrst og síðast á bak við það, að hann hafi barasta viljað landi sínu vel, gert skyldu sína, unnið í góðri trú. Og þegar að er honum kreppt, er hann reiðubú- inn (til að ekkert verra komi fyrir og ekki sé dæmið skoðað nánar) að viðurkenna mistök og yfirsjónir og telur sig geta borið bratt sinn hala fyrir bragðið. En nú er komið að því ísmeygilega og áleitna háði sem höfundur kann svo vel á: tím- inn líður og Japan byggir upp og hin hálfvolga iðrun listamannsins gamla (loks þegar að henni kemur) hún er týnd fyrr en varir. Allir sem í kringum hann eru keppast við að sýkna hann eiginlega áður en hann hefúr gert það sjálfur, og áður en lýkur fer sveigjanleiki samvisk- unnar og minnisins með sigur af hólmi: „Hvaða mistök sem þjóð okkar kann að hafa gert í fortíðinni er svo að sjá að nú hafi hún fengið nýtt tækifæri til að gera betur.“ Þetta er vönduð saga, um margt, rökfost og miskunnarlaus á sinn hógværa hátt. Hún fjallar um hluti sem alltaf skipta máli. Hún hefur líka til að bera kost sem menn taka of sjaldan eftir í skáld- sögu: hún er blátt áfram fróðleg. Við erum leidd inn í annarlegan heim með sérkennilegu fjölskyldu- mynstri og ströngum kurteisisregl- um. Og síðast en ekki síst (eins og vel kemur fram í köflum um meist- ara og lærisveina í myndlistum og öðru) - höfundur lýsir á mjög skýran hátt þeirri hlýðni, þeirri undirgefni undir áhrifavald, sem er svo snar þáttur í öllu uppeldi jap- anskrar þjóðar. Hlýðni sem er upp- haf glæpa og réttlætingar á glæp- um - eins og dæmi úr Þýskalandi og Rússlandi sanna einnig. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýðir bókina og nær oftar en ekki vel þeim kurteisa og þar með eins og fjarlæga tón sem mótar orð og hugsun listamannsins aldna. NYTT HELGARBLAÐ 4 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.