Þjóðviljinn - 13.12.1991, Qupperneq 8
Ferskir
rökkurtónar
HÖH/CURRENT 93-IsIand,
World Serpent/Skífan 1991
Hún er hlægiieg hégóma-
gimd landans fyrir listamönnum
sem á einhvem hátt slá í gegn í
útlöndum. Síðan Hilmar Óm
Hilmarsson fékk Felix-verðlaun-
in hefiir nýja platan hans fokið úr
búðunum, en fyrri afurðir hans
voru ofl ár að mjatlast út. Og nýi
diskurinn á það sannarlega skilið
að á hann sé hlustað. Hér er kom-
ið athyglisverðasta popp-verk
ársins, svo sannarlega ferskur
andvari í heldur ömurlegt popp-
tónlistarár.
Hilmar gerir þennan disk í
samvinnu við David Tibet. Hilm-
ar semur tónlistina en David text-
ana. David er Breti og í heima-
landinu nokkuð kunnur fyrir tón-
list sína og útgáfustarfsemi. Dav-
id hefur m.a. starfað með hljóm-
sveitinni Death in June og gefið
út m.a. upplestur Sveinbjöms
Beinteinssonar og kristalla- tón-
list Harry Oldfield. David er auk
þess hljómsveitin Current 93 sem
hefur gefið út fjöla platna og er
skrifuð fyrir hlut Davids í „Is-
land“. Hinir ensku textar Davids
em nokkuð athyglisverðir, en því
miður ekki prentaðir á umslag-
inu, svo skrifa verður til London
til að fá þá senda í pósti. Rödd
Davids er dálítið hengilmænuleg,
en hæfir efninu engu að siður vel.
Að venju hljómar tónlist
Hilmars dulúðleg og seiðandi og
ekki ósvipað yfirbragð yfir „Is-
Iand“ og á allri þeirri kvikmynda-
tónlist sem hann hefur samið.
Hún er oft angurvær og falleg, en
alltaf er gmnnt á spennu og ein-
hvetja falda ógn.
Lögin líða áfram eitt af öðm,
hlaðin ókennilegum hljóðum,
óvæntum hlutum og mjúku kven-
raddabergmáli. Það er ekki fyrr
en í „Crowleymass" og ,JPaper-
back honey“ að diskurinn fer að
verða partýhæfur, en áður er
hann fullkominn í afslöppunar-
og íhugunartilfellum. Fjöldi lista-
manna aðstoða þá Hilmar og
David að gera góða plötu: Fjöldi
söngkvenna kemur við sögu og
nægir að nefna Björk Guðmunds-
dóttur, Ásu Hlín Svavarsdóttur
og Rose McDowall. Þór Eldon
og Godkrist (Guðlaugur Óttars-
son) eiga gítartilþrif og Einar Öm
raddar skemmtilega í „Fields of
rape and smoke“ og segir okkur
frá ömmu sinni og vindlaverk-
smiðju í Köln. Margir fleiri koma
við sögu, en Þjóðviljinn er of
þunnur til að hægt sé að nefna þá
alla.
„Island" hefur verið 5 ár í
vinnslu og er ótrúlega þétt og
samheldin miðað við það. Það er
greinilegt að þeir Hilmar og Dav-
id hafa einungis fiskað það allra
besta úr samvinnunni og árangur-
inn er indælis gæðadiskur, marg-
slunginn, ferskur og tilvalinn í ís-
lenska skammdeginu.
Vi& höfum
þolinmæði
„Elsta" hljómsveit landsins, hljóm-
sveitin Silfurtónar, heldur tónleika i
kvöld á Hótel Borg. Ný Dönsk hitar
upp. Ótrúlega lítið hefurfarið fyrir
Silfurtónum í gegnum tíðina. Þó á
sveitin að baki fjórar smáskifur, og
hver man ekki eftir lögum eins og
„Töfrar" og „Guðmundur surtur“.
Hljómsveitin var stofnuð 1971 og
hefur komið fram óteljandi sinnum
á tónleikum og einkasamkvæmum
síðan þá. I fyrstu var tónlist Tón-
anna altekin af þjóðlegri tónlist
með trúbadorívafi og starfaði
hljómsveitin þá nokkuð í samvinnu
við meðlimi Savanna Tríósins og
blindu bræðuma frá Vestmanna-
eyjum. Um 1975 fór að gæta
áhrifa af hippa- og glamörrokkinu,
en í kjölfar pönksins, árið 1981,
ákvað hljómsveitin að fara í pásu.
Silfurtónar fóru ekki í gang aftur
fyrr en 1987 og hafa verið að
byggja upp fyrri vinsældir á síð-
ustu árum.
Sveitin er skipuð gamaikunnug-
um andlitum; Júlíus og Magnús eru
sem fyrr í forgrunni, syngja og leika
á gítara, Hlynur er á bassa og Bjami
trommar. Nýr meðlimur, Ámi úr
Rut+, gekk nýlega í sveitina sem
þriðji gítarleikarinn. I tilefni tón-
leikanna í kvöld ræddi Helgarvagg
stuttlega við gömlu brýnin. Að
fyrstu spyr ég þá út í ferilinn.
„Það hafa orðið miklar manna-
breytingar hjá okkur í gegn um árin.
Við bytjuðum að dunda okkur inni í
bamaherbergi, en svo þróaðist
þetta, og eftir því sem plötunum
fjölgaði jukust vinsældir okkar.“
- Hvemig leið ykkur á pönk-
tímabilinu?
„Við vomm bara jákvæðir á
pönkið. Við reyndum að spila Silf-
urtónapönk, en yngri mönmnum
fannst það púkó, svo við ákváðum
að leggja upp laupana 1981, eða
taka okkur góða pásu. Það var ekki
beint út af pönkinu, það var bara
farið að hlaðast svo mikið upp af
efni hjá hveijum og einum og við
þurftum að vinna úr því. Það komu
út nokkrar sólólötur á þessu tíma-
bili, en svo leiddumst við út í
sveitaballabransann, hver í sínu
homi með ýmsum böndum sem við
látum ónefnd hér. Þetta var hálfgerð
niðurlægingartíð og 1987 bytjuðum
við aftur og leið okkar hefur verið
bein og greið síðan. Velgengni okk-
ar að undanfomu hefur ekki síst ýtt
undir endurstofnun Savanna Tríós-
ins. En við skulum ekki dvelja of
lengi í fortíðinni, framtíðin er það
sem skiptir máli og framtíðin end-
Silfurtónar ásamt Ara Matt kynni.
urspeglast voðalega mikið af fortíð
okkar.“
- Hefur ykkur aldrei langað til
að „meika það“ erlendis?
„Jú, okkur langar til að verða
fyrsta íslenska hljómsveitin sem
meikar það erlendis með íslenskum
textum og íslenskri tónlist, af því að
við viljum ekkert breyta tónlistinni í
þágu alheimstungumála. Við höfum
svo mikinn tíma að það liggur ekk-
ert á þessu. Á þessum 20 árum höf-
um við kynnst því að bíða og þess-
vegna höfum við mikla þolin-
mæði.“
- Hvað ber framtíðin í skauti
sér fyrir hljómsveitina Silfurtóna?
„Það em náttúrlega tónleikamir
í kvöld; hátíðartónleikar ljóss og
friðar, og við ætlum að spila öll
okkar frægustu lög auk nýrri laga.
Ný Dönsk ætlar að hita upp mann-
skapinn. Þeir standa í þakkarskuld
við okkur, því í rauninni emm við
afar þeirra í tónlistinni. Hvað plötu-
útgáfu varðar stefnum við að þvi að
gefa út safnplötu með nýju og
gömlu efni. Það ætti að blessast á
næsta ári og það er ekki seinna
vænna því gömlu plötumar okkar
em allar uppseldar og hafa verið
það alltof lengi.“
Ástin og sálarástand þóáarinnar
Hörður Torfa - Kveðja.
Ofar/Steinar 1991.
Hörður Torfason hefur verið í
hópi virtustu tónlistarmanna þjóðar-
innar ffá því að hann gaf út fyrstu
plötu sína, og jafnvel fyrstu íslensku
trúbardorplötuna 1971. Hörður er
þekktur fyrir sterkan og kraflmikinn
flutning á eigin lögum og textum og
er áttunda plata hans, „kveðja",
engin undantekning á öruggum
gæðum í flutningi og laga- og texta-
smíðum.
Hörður hefur í gegnum tíðina
notið aðstoðar einstakra aðstoðar-
manna og hljómsveitin Kamarorg-
hestamir spiluðu undir á plötunni
„Tabú“ sem kom út 1984. Á
„kveðju" stendur góður hópur að-
stoðarmanna með Herði. 1 sumum
Iögum er hlaðið hljóðfærum (þó
aldrei ofhlaðið), en í öðmm er und-
irleikur í lágmarki. í öllum lögunum
er Hörður og kassagítarinn þó alltaf
í aðalhlutverki. Riþmapar Sólarinn-
ar, Jakob og Ingólfur Ijá Herði lið,
svo og munnhörpuleikarinn Sigurð-
ur Sigurðsson úr Centaur, söngkon-
an Edda Heiðrún Bachman og Har-
aldur Reynisson sem sér um gmnn
gítarspil og bakraddir. Ekki má svo
gleyma undragítaristanum Guð-
mundi Péturssyni sem á oft góða
sprctti. Efni disksins má skipta í
þrjá flokka. Mest ber á rólyndisleg-
um kassagítarlögum, hinu hefð-
bundna vörumerki trúbadorsins.
Svolítið ber á hörðum kassagítar-
verkum með stcrkum spænskum
einkennum, einhverskonar íslensku
flamengói. Þetta em lög eins og
„brjálað veður“ og „svarta ekkjan".
Þriðji flokkurinn em svo „venjuleg“
dægurlög, þ.e.a.s. lög með hefð-
bundnu undirspili, góðar dægur-
lagaperlur eins og „krútt og kropp-
ar“ og titillagið „kveðja“.
Óllu þessu veldur Hörður ákaf-
lega vel; hvergi er ofleikið og flutn-
ingurinn ávallt kraflmikill og bein-
skeyttur.
Hörður er meðal bestu dægur-
lagatextasmiða þjóðarinnar. Honum
er margt hugleikið, en þó aðallega
ástin og sálarástand íslensku þjóðar-
innar. I „Velfcrðarsöngur" syngur
Hörður:
„Sama fólkið - sömu húsin - sama
malbikið.
Sömu krámar - sama tunglið -
sama helvítið.
Allt er eins og ekkert breytist.
Ég eldist, hröma, slitna
og þreytist.
Það batnar ekkert og börnin hlœja.
Þau brosa og láta
sér liftð nœgja."
Varla er hægt að tjá þetta betur,
skammdegisþungann, leiðann og ei-
lífar endurtekningar borgarinnar.
Ef orðinu „einlægur“ hefði ekki
verið nauðgað í söluskmmi jólanna
myndi ég segja að „kveðja“ Harðar
væri einlæg. Og hún er einnig kraft-
mikil og í alla staði ákaflega vel
heppnuð.
c
/ii/i/1 oj öfieima/u/i
r/ómao&tcm.
fíerifu/>é/1/nat úr fi/jó/a/i/ta.
KAFFI MARINQ
góða kaffið
rauðu dósurium
frá MEXÍKO
Skútuvogi 10a - Sími 686700
NYTT HELGARBLAÐ