Þjóðviljinn - 13.12.1991, Side 11
á fætur öðrum fram á 12. öld, en þá
er upplausnin í norsku samfélagi
talsverð og ekki lengur á veldisstóli
konungar sem hafa tign og virðingu
til jafns við Ólafana tvo, heldur
menn sem eiga allt sitt undir burð-
um höfðingja. í Inngangi Lykilbók-
arinnar reynum við að draga fram
þessa þætti í byggingu verksins.
Kristið miðaldarit
Bergljót: Heimskringla er krist-
ið miðaldarit þar sem hugmyndir
islensks höfðingja á þrettándu öld
um konungsvald og tign birtast.
Koma Ólafs helga er undirbúin
strax í upphafi með guðlegum upp-
runa Noregskonunga. Verkið er ein
heild og kristnin er rauður þráður í
gegnum það. I Hálfdanar sögu
svarta er sagt fyrir um fæðingu 01-
afs með draumi. Síðan lýsir Heims-
kringla m.a. átökum heiðni og
kristni og Ólafur Tryggvason er
forveri Ólafs helga. Þeir félagar eru
eins og Jóhannes skírari og Jesús,
svo vitnað sé til orða Sverris Tóm-
assonar. I Ólafs sögu helga er skýrt
dregið fram, einkum og sérilagi
með draumum, að Ólafur er kon-
ungur af guðs náð og þiggur vald
sitt af guði. Tengslin milli Ólaf-
anna tveggja eru m.a. undirstrikuð
þannig að Olafur Tryggvason skírir
nafna sinn Haraldsson.
Ömólfur: Síðari hluti verksins
er bundinn, hinum fyrri m.a. með
jarteinum Ólafs helga. Þær verða
einslags bindiefni. Lesandinn fylg-
ist síðan með því hvemig menn
sem hafa þegið vald sitt frá Ólafi
helga fara misjafnlega með. Enginn
þeirra sameinar alla eðliskosti og er
réttborinn og réttlátur konungur
nema Ólafur helgi.
Þjóðarsaga
Ömólfur: Heimskringla er
þjóðarsaga Norðmanna sögð með
ævisögum einstakra konunga. Jafn-
framt er hún ættarsaga, saga af-
komenda Haralds hárfagra á veldis-
stóli.
Bergljót: Að minnsta kosti kon-
unga sem segjast vera afkomendur
Haralds.
Ömólfúr: Óhóflegur bamgetn-
aður Haralds hárfagra flækir málin.
Menn koma gjama eins og skratt-
inn úr sauðarleggnum vestan af
Englandi eða jafnvel af himnum of-
an, kalla til ríkis og segjast vera
réttbomir synir tiltekinna konunga.
Það var erfitt að færa sönnur á rétt-
mæti valdatilkalls, eina sönnunin
var fólgin í harðfylgi viðkomandi
og baráttuþreki.
Höfóingiar og
alþýoa
Bergljót: Heimskringla fjallar
auðvitað ekki bara um átök kristni
og heiðni. Hún lýsir fyrst og fremst
átökum norskra höfðingja við ein-
valdskonunga. Hún segir líka frá
viðskiptum Norðmanna við um-
heiminn, baráttu konunga til ríkis á
Bretlandseyjum, í Danmörku og
víðar. Þar koma vitaskuld einnig
við sögu útlöndin, þeirra á meðal
úteyjamar ísland og Færeyjar.
Ömólfur: Sjálfstæðishetjur á
19. öld vitnuðu gjama til Heims-
kringlu þegar mikið lá við, ekki síst
til ffægrar ræðu Einars Þveræings
um veiðistöðina Grímsey. En þrátt
fyrir þá ræðu dregur Snorri að því
er virðist hvergi í efa réttmæti
norska konungsveldisins, nauðsyn
þess að guð skipi sinn fulltrúa efst í
mannfélagsstigann. Hann er hins
vegar sýnilega þeirrar skoðunar að
konungar eigi að taka tillit til höfð-
ingja við landstjómina, kannski á
svipaðan hátt og okkur þykir eðli-
legt að ríkisstjóm hafi að minnsta
kosti veður af vilja alþingis.
Bergljót: Alþýðan birtist yfir-
leitt nafnlaus í Heimskringlu. Bæði
höfðingjar og konungar eiga þó sitt
undir henni. Hún er uppistaðan í
leiðöngrum höfðingja sem beijast
Bragi Halldórsson og Jón Torfason.
til rikis, hún stendur á mannfund-
um þar sem menn kalla til valda og
em til þeirra teknir, og síðast en
ekki síst er það alþýðan sem veltir
valdsmönnum úr stóli.
Ömólfúr: Ólafur helgi fellur
t.d. fyrir búandher á Stiklastöðum
1030. En við fáum ekki miklar
upplýsingar um viðhorf alþýðu-
fólks, líf þess og starf í Heims-
kringlu.
Bergljót: Yfirleitt er ekki fjall-
að mikið um daglegt líf í verkinu,
hvorki alþýðu né höfðingja. Það er
einkum í Ólafs sögu helga sem
dregnar em smámyndir af slíku.
Heimskringlu allrar og
skýringar við þær tæp-
lega 600 visur sem em
í Heimskringlu. Við
höfum lagt mikla
vinnu í að gera vísum-
ar aðgengilegar nú-
tímalesendum. Búum
þær þannig úr garði að
menn geti haft bæði
gagn og gaman af að lesa skálda-
málið og reynum að kveikja i fólki
áhuga á sjálfstæðri túlkun.
Lykillinn
Tveir
hugmyndaheimar
Bergljót: Það samfélag sem
Heimskiringla er sprottin úr og fjall-
að er um í verkinu er auðvitað ger-
ólíkt íslensku samfélagi okkar tíma.
Afstaða okkar til guðdómsins er
t.d. allt önnur er miðaldamannsins
Snorra sem alinn var upp í klerk-
legum miðaldafræðum. Af samfé-
lagslýsingunni gætum við hins veg-
ar ýmislegt lært t.d. að tortryggja
allt vald, taka valdsmönnum með
vara.
Ömólfur: Og Heimskringla er
líka ögrun 20. aldar mönnum, bæði
lesendum og rithöfundum, af því
hve listilega Snorri lýsir mönnum
og samfélagi með náttúrlegri tækni.
Persónulýsingar hans og sviðsetn-
ingar em margar eftirminnilegar og
ljóslifandi, og hann er launfyndinn
í stíl. Það skiptir okkur Islendinga
miklu meira máli hve Snorri er list-
fengur höfundur en hitt, hversu ná-
kvæmur sagnfræðingur hann kann
að vera.
Bergljót: Maður sækir i hann
aftur og aftur m.a. af þvi hvað hann
er margræður og segir margt í fáum
orðum. Frásögnin af því þegar Ól-
afúr Tryggvason ætlar að gefa Er-
lingi Skjálgssyni systur sína er
ágætt dæmi. Astriði þykir Ólafúr
ekki velja henni nægilega göfugt
mannsefni og hafnar Erlingi. Þá
segir sagan að Ólafúr „lét taka
hauk er Astriður átti og lét plokka
af fjaðrar allar og sendi henni síð-
an“. Þetta er ekki aðeins lýsing á
persónu Ólafs og kúgun kvenna,
heldur má túlka haukinn á ýmsan
veg. Segir hann fyrir um hver örlög
Astríði sjálfri eru búin ef hún lætur
ekki að vilja bróður síns? Eða er
haukurinn tákn karlmennsku og
konungdóms?
Ömólfur: Og Heimskringla er
umfram allt skemmtileg saga.
Snorri er án efa frægasti rithöfund-
ur okkar, ásamt Halldóri Laxness.
Heimskringla hefur verið þýdd á
íjölmörg tungumál og Norðmenn
hafa auðvitað sinnt henni sérstak-
lega, hún er þeim eins og Sturlunga
okkur. íslendingar hafa hins vegar
ekki verið eins handgengnir
Heimskringlu og vænta mætti, en
við vonum vitaskuld að þessi út-
gáfa okkar færi hana nær einhverj-
um þeirra.
Um útgáfuna
Ömólfúr: Þessi útgáfa er að
miklu leyti framhald af fyrri útgáf-
um okkar og vinnunni við þær. Við
byggjum vitanlega á þeirri reynslu
sem við höfúm aflað okkur, reyn-
um t.d. að lagfæra það sem okkur
finnst hafa farið aflaga í fyrri verk-
um. Textabækumar tvær em hvor
um sig 400-450 síður. Þar er texti
Ömólfur: Þriðja bindið er svo
eins konar handbók fyrir þá sem
vilja vita meira. Vitaskuld er hægt
að lesa Heimskringlu eins og hún
kemur af kúnni, sem bókmennta-
verk milliliðalaust. Fyrir þá sem
em forvitnir og vilja skyggnast
lengra inn í þessa veröld, kynnast
frændum Snorra, venslum konunga
eða landafræði, höfum við útbúið
þessa lykilbók. I hana höfúm við
dregið saman töluvert efni sjálf og
fengið til liðs við okkur fjölmarga
sem hafa liðsinnt okkur á ýmsa
lund.
Bergljót: í lykilbókinni er fyrst
alllangur inngangur þar sem gerð er
grein fyrir Snorra Sturlusyni og
konungasagnaritun almennt, en síð-
an fjallaö um Heimskringlu sjálfa.
Við reynum ekki að sundurgreina í
smáatriðum föng og efnivið Snorra
eða leggja dóm á það hversu rétt
hann fer með staðreyndir, né velta
fyrir okkur stöðu Heimskringlu í
konungasagnarituninni í heilu lagi.
Frekar reynum við að skyggnast
inn í verkið sem bókmenntaverk.
Ömólfur: I lykilbókinni em ljka
tvær ritgerðir, eftir Guðrúnu Asu
Grímsdóttur og Sverri Tómasson.
Þar em einnig allmargir fomir text-
ar, textar sem kallast á við Heims-
kringlu eða tengjast henni eins og
brot úr Ólafs sögu helga hinni sér-
stöku. Þama er ýmiss konar fróð-
leikur, landaffæði úr miðaldahand-
ritum, alfræðitextar og heimslýs-
ing. Við köllum þann hluta ffæði.
Þar reynum við að draga saman
efni sem gæti hafa verið Snorra
kunnugt án þess að við fullyrðum
nokkuð um bein tengsl þar á milli.
Við vonum aftur á móti að þetta
auki skilning og skerpi sýn á
sagnaritara fyrri tíma, sýni hversu
auðugur sá jarðvegur var sem þeir
spmttu úr. Þeir kynntust ekki að-
eins munnlegri sagnalist, heldur
líka því besta úr evrópskri menntun
og menningu.
Bergljót: Það er eins og Halldór
Laxness hefur margáréttað: allir
góðir íslenskir rithöfundar hafa
þekkt það besta úr íslenskri og er-
lendri menningu. Og Snorri er
prýðilegt dæmi um það.
Ömólfur: í lykilbókinni era
ýmsar myndir, bæði yfirlit yfir
vensl manna, ættartölur og landa-
kort. Þá em þar töflur sem em von:
andi til nokkurrar skemmtunar. I
fyrsta lagi töflur þar sem meginat-
riði Heimskringlu em dregin út og
sett í rétta tímaröð, við hlið úrdrátta
úr tveimur gömlum annálum. Þá er
yfirlit yfir helstu konunga og jarla
þessa tíma. Þama er einnig all-
nokkurt orðasafn og bókin endar á
digmm skrám að hefðbundnum
hætti. Lykilbókin er hugsuð sem
lykill að veröld Snorra og Heims-
kringlu. Ekki svo að skilja að
Heimskringla sé harðlæst öðrum en
þeim sem hafa lykilinn, fremur er
lykill ætlaður þeim sem vilja
skyggnast um afkimana. -Sáf
NÝTT HELGARBLAÐ
1 1 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991