Þjóðviljinn - 13.12.1991, Síða 12

Þjóðviljinn - 13.12.1991, Síða 12
B ó k a r ý n i Þar sem baráttan er ekki dautt orb Nadine Gordimer Saga sonar míns Ólðf Eldjárn þýddi Mál og menning 1991. Það var þörf þversögn á ópólit- ískum tímum að hápólitískur höf- undur eins og Nadine Gordimer skyldi hljóta bókmenntaverðlaun Nóbels. Hápólitísk segi ég, ekki barasta vegna þess, að hún hefúr sjálf stað- ið í andófi gegn kynþáttakúgun í sínu landi, Suður-AÍTÍku, heldur vegna þess að áleitnar pólitískar spumingar vaka i hveiju hennar verki eða svo gott sem. Það verður ekki undan þeim komist. Annað mál er að skáldkonan tekur ekki á þeim eins og stjómmálamaður - hún er á öðru sviði: hún er að segja ffá því hvað getur gerst, frá mögu- leikum einstaklinganna - og um leið frá því hvað það er í samfélag- inu og menningunni sem knýr þá í eina átt fremur en aðra. Doris Lessing (sem menn eru eitthvað að kvarta yfir í blöðum hér og segja vera „ofmetna" skáld- konu!) hún hefur skrifað ágæta hugleiðingu um það, að menn megi ekki vanmeta þann eiginleika og möguleika skáldsögunnar að miðla þekkingu. Og það er vissulega gert í bókum Dorisar sem eiga rætur til Ródesíu (Zimbabve) og Nadine Gordimer. Við fræðumst blátt áfram um það í hvaða farveg mannlíf fer og kemst við þær að- stæður þegar litarháttur ræður ör- lögum hvers og eins. Um leið fræðumst við um það, að sú kúgun er bæði framhald af því ranglæti sem fylgir því að fæðast í tötrum eða með silfurskeið í munni - og þó annað um leið. Við ffæðumst um fleira: líka það að þótt Suður- Afríka hafi verið með skelfilegustu löndum, þá hefur landið mikið að- dráttarafl, merka töffa, sem einmitt eru tengdir ranglætinu: Suður-Af- rika „sogar fólkið í kring að sér, ekki af efnahagsástæðum einum saman, heldur einnig af töffaljóma þess að geta helgað sig pólitískri Árni Bergmann skrifar um bækur baráttu“. Eins og segir í þeirri bók sem hér er um fjallað. Já, það er merkilegt að lesa um land þar sem baráttan er ekki út- jaskað orð. Þessi nýlega saga Nad- ine Gordimer er svo sannarlega baráttusaga. Saga af kennaranum sem kallaður er Sonni. Hvemig hann elst upp á „gráa svæðinu" milli hinna hvítu og hinna svörtu (hann er í því hólfi mannlífsins sem kynþáttalögin kalla ,,litaða“). Hvemig hann hefur reynt að halda höfði með því að „auðga anda sinn“, lesa bækur, vita ekki minna en þeir hvítu. Og hvemig að því kemur að hann gengur inn í barátt- una og lendir í fangelsi og hlýtur nokkra frægð og virðingu í ffelsis- samtökum. En við lifum ekki í árdaga bar- áttunnar: saga Sonna er ekki bar- asta um sigra hans í hugrekki og í því að „gera gagn“, hún er líka um ósigra hans. Osigra sem tengdir eru því, að upp úr vináttu við hvíta konu, sem Ieggur pólitískum fong: um lið, sprettur ást í meinum. í meinum vegna þess að þau em af ólíkum litarhætti og vegna þess að hann er kvæntur maður fyrir og vill standa við þær skyldur. Sagan er um undur þessarar ástar og fegurð og um svik þau sem hún ber með sér (a.m.k. þegar við sjáum elsk- enduma með augum Villa, sonar Sonna, Villa sem heitir í höfuðið á William Shakespeare). Við sjáum líka þann ósigur Sonna sem tengist flokkadráttum í Hreyfingunni miklu og þeirri tortryggni sem fylgir ólöglegu starfi og því að fyr- irmyndin sem sem vonuðu að nýt- ast mætti i Suður-Afríku, kommún- isminn austurevrópski, hún er að gliðna og hrynja. Og þó er einn ósigur Sonna ótalinn: sá að konan hans, Aila, hún hefur einnig bland- að sér í baráttuna - án þess að spyija hann, án þess að nokkur vissi hefur orðið „kvennavakning" innan dyra hans... Frá þessu segir Nadine Gord- imer með því öryggi og næmleika sem einkennir svo margar af henn- ar stuttu sögum. Og lætur reyndar betur að lýsa undrum ástar í mein- um en því pólitíska stríði, þótt svo lesandinn viti vel af magnaðri blöndu þessara tveggja lífssviða. Og er vitaskuld fengur góður að slíkri bók. Ólöf Eldjám gerir ýmislegt vel, en fellur um oft í gryfju mjög þýð- ingarlegs og heldur svona félags- ffæðilegs málfars... „finna leið til að samþætta hversdagslífið í sam- ræmi við það“ (bls 19), „það var sjálft afmörkunarleysið sem aldrei mátti vefengja“ ( 20), „þjáning Maríu meyjar var endurgerð á svæðum blökkumanna“ ( 23). Það er talað um þá ákvörðun Sonna „að fóma sjálfsbótinni", og rétt hjá er kyndug orðaröð í lýsingu á réttar- höldum þar sem talað er um „sam- kundu þar sem skipst var á athuga- semdum og skilgreiningum á því hvemig málsvömin gengi í hvísl- ingum“. Slíkt og annað þessu líkt hefði mátt laga. B r i d g e Skráning hafin í sveitakeppnina Reykjavíkurmótið í sveita- keppni, sem jafnframt er úrtöku- mót fyrir íslandsmótið í sveita- keppni, hcfst mánudaginn 6. janú- ar. Skráning er hafin á skrifstofu BSI. 11 efstu sveitimar ávinna sér rétt til þátttöku í íslandsmótið, en 4 efstu sveitimar munu spila til úr- slita um Reykjavíkurhomið. Efsta sveit velur sér andstæðing. Mótið verður reiknað út í Butl- er- útreikningi, sem þýðir að sömu spil verða spiluð um allan sal. Kristján Hauksson mun annast þá hlið málanna, auk þess sem hann stýrir blaðamennsku. Forráðamenn félaganna eru minntir á að skila inn áunnum meistarastigum fyrir 10. janúar á nýja árinu. Með stigunum fylgi greiðsla árgjalda, sem er nú 60 kr. pr. spilara á spilakvöldi. Engin stig verða skráð nema greiðsla hafi bor- ist. 444 Vonir standa til að heimsmeist- arabókin „Bermudabrosið" fari í dreifingu í þessari viku. Aðstand- endum spilaáhugafólks er sérstak- lega bent á þessa bók til jólagjafa, en búast má við að fyrsta prentun seljist upp. Nánari upplýsingar á skrifstofu BSÍ. 444 Hægt er að nálgast spilagjöfina úr Kauphallarmótinu í Sigtúni, en eins og menn kannski rekur minni til, var umsjónarmaður að kvarta í síðasta þætti um spilagjafaleysið í mótslok. Þetta atriði raunar vekur upp þá spumingu hvort ekki sé hægt að gera meira í þessum efn- um. Láta fylgja með lista yfir dreif- ingu gjafa (handa) í viðkomandi móti. Með því væri hægt að bera saman hin ólíku mót, fjölda skipt- ingahanda og hlutfall, punktadreif- ingu o.fl. 444 Óli Björn Gunnarsson og Mar- inó Kristínsson sigruðu í 5 kvölda barometerkeppni Bridgefélags Breiðholts. 20 pör tóku þátt í keppninnr. 444 Hjálmar S. Pálsson og Sveinn Þorvaldsson sigruðu í barómeter- keppni Bridgefélags Kópavogs, sem lauk í síðustu viku. 28 pör tóku þátt í keppninni. 4 4 4 Að loknum 12 umferðum af 13 í aðalsveitarkeppni Skagfirðinga í Reykjavík, er staða efstu sveita þessi: Steingrímur Steingrímsson 216, Sigmar Jónsson 216, Magnús Sverrisson 210, Sigurður Ívarsson 200, Hjálmar Pálsson 199, Rúnar Lárusson 197. Að lokinni spilamennsku næsta þriðjudag (í sveitakeppni) verður spilaður stuttur (mjög) jólatví- menningur. Spilamennska hefst svo að nýju, þriðjudaginn 7. janúar á nýju ári, á 1 kvölds tvímenningskcppni. 4 4 4 Að loknum 8 umferðum af 12 í aðalsveitakeppni Bridgefélags Reykjavíkur hafa sveitir nokkuð skorið sig úr. Staðan var þessi: L.A. Café 162 stig S. Ármann Magnússon 154 stig Bemódus Kristinsson 138 stig Verðbréfamarkaðurinn 136 stig Erla Sigurjónsdóttir 131 stig í sveit L.A. Café eru: Valur Sigurðsson, Guðmundur Sveins- son, Jónas P. Erlingsson og Júlíus Sigurjónsson. 1 sveit S. Ármanns Magnússon- ar eru: Ólafur Lárusson, Hermann Lárusson, Ásmundur Pálsson, Hjördís Eyþórsdóttir og Jakob Kristinsson. 444 Bridgefélag yngstu spilaranna hefur vcrið starfrækt 3 sunnudaga í haust. Undirtektir hafa verið mjög góðar. Umsjónarmaður er Dröfn Guðmundsdóttir. Er áhugi fyrir slíkri starfsemi á nýju ári. 444 Keppnisstjórar í dag taka vel- flestir 8 þús. fyrir kvöldið. Innifal- ið í því kaupi er uppröðun borða, frágangur stiga og töflugerð, auk þess að halda til haga keppenda- skýrslum og úrslitum. Viðveran á einu kvöldi getur spannað þetta 6-7 klst., auk heimavinnu. Eða um 1 þús. kr. á tímann í eftirvinnu. Samsvarandi kaup mega móts- haldarar reikna með að þurfa að greiða fyrir stjómun og úteikning í mótun á eigin vegum. Viðmiðunin er 28-30 spil í Iotu, þannig að fyrir 90 spila mót er ekki óeðlilegt að greiddar séu 24 þús. krónur fyrir. Slík vinna er alfarið unnin um helgar eða í eftirvinnu og tíma- kaupið hið sama, um 1 þús. á klst. Og þætti ekki hátt hjá iðnaðar- mönnum í dag, eða hvað? 444 Einn af 6 bestu spilurum heims, Jón Baldursson, var illa sviðinn (átti upptökin, kveikti í, gekk í logann og sviðnaði) í síð- ustu umferð Kauphallarmótsins. Er ekki ffáleitt að eftirfarandi spil hafi kostað hann ein 200 stig og 100 þúsund krónur. Lítum á spilið. Spil nr. 97. Gjafari Norður. Allir utan hættu. 4 DG972 V 2 O ÁD4 * Á642 4 Á64 ÁKD865 xxK *D87 4 K83 'v 743 xN G10987 * 109 Jón sat í Norður og hóf leikinn á 1 spaða. Hermann Lámsson kom inn á 2 hjörtum í Austur. Aðal- steinn Jörgensen sagði 2 spaða í Suður og Ölafur Lámsson 3 hjörtu í Vestur. Jón stökk þá í íjóra spaða og eftir smáhik sagði Hermann 5 hjörtu, sem fóm hringinn til Jóns, sem doblaði. Útspil Aðalsteins var spaða þrír. Lítið, gosi og tekið á ás. í öðr- um slag kom lítið lauf frá Her- manni (taktískt í stöðunni), og eftir smáhik (þetta örfina sem vegur salt í stöðum eins og þessum) setti Her- mann upp laufakóng. Jón tók á ásinn, horfði brúnaþungur á blind- an og spilaði síðan spaðadömu. Átti slaginn og spilaði sig út á trompi. Þá var sviðið sett. Her- mann tók nú trompin í botn. Jón fann snömna herða að og fómaði tígulás í síðasta trompið. Þá kom tígulkóngur, loks laufadama og laufagosi varð 11. slagur sóknar- innar (Jón er óverjandi yfirspilaður í laufi og tígli, með fjórlitinn í laufi). Eins og glöggir lesendur hafa eflaust séð, er Jón með þriðja slag vamarinnar á hendinni (tígulás), en kaus þess í stað að berjast um fleiri slagi (einatt kallað græðgi). Og 650 til A/V var dýrt spil fyrir N/S, miðað við að 100 til N/S hefðu gefið ógrynni af stigum til N/S. (í þessum sterka sal fengu allt of margir að spila 4 hjörtu í A/V, þeg- ar nánast liggur við að 4 spaðar vinnist. Ef tígulkóngur finnst, em 10 slagir upplagðir í N/S.) Ekkert annað, takk fyrir. NÝTT HELGARBLAÐ 12 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991 4 105 S7G109 C- 6532 ♦ KG53

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.