Þjóðviljinn - 13.12.1991, Síða 14

Þjóðviljinn - 13.12.1991, Síða 14
Erlendar fréttir Skíncmdi skrú&a þinn skuggarnir flýja í dag er Lúsíudagurinn, sem almennt er haldinn hátíðlegur með Svíum og raunar fleirum núorðið. Lúsíuhátíðin heyrir til aðdraganda jólanna, sem i Sví- þjóð hafa á sér sérkennilegan blæ fagnaðar og smekkvísi. Hvert ár er valin Lúsía fyrir Svíþjóð alla og auk þess kjósa óteljandi aðilar aðrir sínar eigin Lúsíur. Báðar rásir sænska sjón- varpsins hafa t.d. sínar Lúsíur. Há- tíðin hefur náð vinsældum langt út íyrir landamæri Svíþjóðar og í ár hefur sænska sjónvarpið gefið sjónvörpum Eistlands, Frakklands og Rússlands sitt Lúsíuprógramm. Hámark Lúsíuhátíðarinnar er þegar Lúsian kemur fram hvít- klædd með kertakórónu á höfði og í fylgd með hennar hópur Lúsíu- meyja sem eru eins búnar. Þær syngja þá Lúsíusönginn. Inntakið að baki hátíðinni er vissan um sigur ljóssins yfir myrkrinu, jafnvel þegar nóttin er lengst. Vaninn er að Lúsíur séu ljós- hærðar og háar vexti og grannar. Upp á síðkastið hefur og orðið venja að stúlkur, sem eru táp- mannskjur eða líklegar til að verða það, verði öðrum fremur fyrir val- inu. Lúsía allrar Svíþjóðar í ár er Monika Andersson frá Lidköping, tvítug að aldri og nemur lögfræði í Gautaborgarháskóla. Hún stefhir að því að verða lögffæðingur hjá fyrirtæki eða sérfræðingur í málum Evrópubandalagsins. Lúsíudýrkunin á sér fomar ræt- Umsjón: Dagur Þorleifsson ur. I Vestur-Svíþjóð, líklega einna helst í héruðunum kringum Vanem, stóð fólki fyrr á öldum mikil ógn af vætt sem nefnd var Lussi og Iagði Ieið sína um byggð- ir manna nótt eina um þetta leyti, á einskonar gandreið með miklu fylgdarliði, trúlega sálum látinna. Allt starf varð að liggja niðri þá nótt, annars var von á því versta frá Lussi. Trúarbragðafræðingar sumir telja sennilegt að i heiðni hafa hún verið gyðja þar um slóðir, ef til vill nákomin Freyju eða hugsanlega hún sjálf undir öðm nafni. I þjóð- trúnni er hún háskaleg forynja. Það getur hafa komið til í kristnum sið, en að vísu var og er algengt að gyðjur séu öðmm þræði gefendur og viðhaldendur lífsins en hinum tortímandi tröllkonur. Freyja var ásamt með öðm striðs- og dauða- gyðja. Lussi hin foma rann í kristnum sið saman við Lúcíu helgu (Sánkti Lúcíu), dýrling sunnan af Sikiley. Einhvemtíma á fyrstu öldum kristninnar, meðan kristnir menn vom ofsóttir í Rómaveldi, átti hún að hafa stungið úr sér augun til að koma i veg fyrir að heiðnir ofsækj- endur hennar settu hana í vændis- hús. Nöfnin Lussi og Lucia hljóma líkt og mun það hafa orðið til þess að Svíar bræddu þær tvær saman. Þetta er síður en svo eina dæm- ið um að heiðin goð og kristnir dýrlingar hafi ruglað reitum. Monika Andersson, Lúsia allra Svía í ár, stefnir að því að verða sérfróð um Evrópubandalagið. Óformleg endalok Sovétríkjaþings Þingmenn á þingi Sovétríkj- anna komust í gær að óformlegu samkomulagi um að nefndir þingsins skyldu sjá til þess að „aðrar stofnanir“ tækju við hlut- verkum þess. Má ætla að þar með hafí þingið ákveðið að leggja sig niður, þar eð því sé of- aukið eftir að stjórnir Rússlands, Úkraínu og Hvíta-Rússlands lýstu því yfir fyrir sitt leyti að Sovétríkin væru ekki lengur til. í samþykkt forseta lýðveldanna þriggja, sem þing þeirra allra hafa nú staðfest, er ekki gert ráð fyrir neinni miðstjóm fyrir samveldið nýja. Þingið tók enga ákvörðun formlega um mál þessi á fundi sín- um í gær, því að hann var of illa sóttur til að vera gildur sem þing- fundur. Slavnesku lýðveldin þrjú, sem hafa um 70 af hundraði íbúa Sovétríkjanna og þar með mikinn meirihluta á þingi þeirra, höfðu kvatt af scwéska þinginu þingmenn sína þar. I gær mættu þeir þar því annaðhvort ekki eða aðeins sem áheymarfúlltrúar. Gert hafði verið ráð fyrir að Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétríkjafor- seti, ávarpaði þingið í dag til að tala máli sambandsríkisins, sem hann enn berst gegn að lagt verði niður. En hann kom ekki á þing- fundinn. Honecker neitaö um landvist í Chile Smith fyrir rétti - fortíð konunnar talin hafa stuðlað að dómsúrskurð- inum. Kennedy- frændi sýknaður William Kennedy Smith, af Kennedyættinni frægu, var í gær sýknaður af ákæru um að hafa nauðgað þrítugri konu á grasflöt fyrir framan hús fjöl- skyldunnar í Flórída 30. mars s.l. Sérfræðingar um þessháttar mál segja að fortíð konunnar hafi stuðlað að úrskurðinum. „Hún hef- ur haft ástarsambönd við fjöl- marga karlmenn og fjölskylda hans (Smiths) er þess ekki megnug að halda buxnaklaufinni lokaðri," sagði kona ein í New York af essu tilefni. Margir sögðu eitt- vað svipað um þetta. Sumir sögðu að mikil frjáls- hyggja Bandaríkjamanna í ástalífi gerði að verkum að erfitt væri orð- ið að fá kviðdómendur til að taka gildar ákæmr um nauðgun, ef meintar nauðganir hefðu átt sér stað á einhverskonar stefnumóti. Erich Honecker, fyrrum leið- togi austurþýska ríkisins og kommúnistaflokksins þar, hefur leitað hælis í sendiráði Chile í Moskvu, eftir að stjórn Rússlands hafði tilkynnt að hún myndi visa honum úr landi. Patricio Aylwin, forseti Chile, segir að Honecker fái ekki landvistarleyfi þar nema með samþykki þýsku stjórnarinn- ar. Þýska stjómin vill að Honecker svari til saka fyrir ábyrgð á drápun- um á fólki, sem á stjómartíð hans reyndi að flýja frá Austur-Þýska- landi til Vestur- Þýskalands. Honec- ker lítur á sig sem pólitískan flótta- mann, en Aylwin segir að þar sem Þýskaland sé ekki einræðisríki, heldur með lýðræðislega kjöma og löglega stjóm, sé ekki hægt að taka gilda þá fullyrðingu Honeckers að hann sæti pólitískum ofsóknum. Honecker, sem er 79 ára, á dótt- ur búsetta í Chile, gifta manni sem er félagi í kommúnistaflokknum þar. Þau eiga tvö böm. Þau Honec- ker og Margot, kona hans, sem er í Moskvu með honum, hafa áður látið í Ijós ósk um að fá að flytja til Chile. Sósíalistar í stjóm Aylwins hafa lagt fast að honum að veita Honec- kerhjónunum landvistarleyfi. Meðal chilískra vinstrimanna em margir, sem fengu hæli í Austur- Þýskalandi eftir valdarán hægrisinnaðra herfor- ingja í Chile 1973. Núverandi am- bassador Chile í Moskvu er Chlo- domiro Almeyda, fyrrum formaður chilíska sósíalistafiokksins. Hann dvaldist um hríð sem fióttamaður í Austur- Þýskalandi og Sovétríkjun- Svo er að heyra að ráðamenn flestra eða allra þeirra níu lýð- velda, sem enn hafa ekki formlega sagt skilið við Sovétríkin, hafi nú komist eða séu að komast að þeirri niðurstöðu að heppilegast sé fyrir lýðveldi þeirra að ganga í hið nýstofnaða samveldi Rúss- lands, Úkraínu og Hvíta-Rúss- lands. Þeir Nursultan Nazarbajev og Rakhmon Nabíjev, forsetar Ka- sakstans og Tadsjíkistans, sem á mánudag og þriðjudag tóku ein- dregið afstöðu með Gorbatsjov og sovésku sambandsríki eða einhvers- um eftir valdaránið. Sagt er að viðvíkjandi þessu máli sé Aylwin það efst í huga að gera ekkert, sem spillt gæti pólitísk- um og viðskiptalegum samböndum stjómar hans við Þýskaland. Þeir Kohl, sambandskanslari Þýskalands, eru báðir kristilegir demókratar. konar miðstjóm fyrir öll sovésku lýðveldin áfiram, virðast nú vera að snúast á sveif með stjómum slav- nesku lýðveldanna þriggja. Armenía og Kirgisistan hafa þegar látið í ljós ósk um að ganga í samveldið. Forsetar Mið-Asíulýðveldanna fimm, Kasakstans, Úsbekistans, Kírgisistans, Tadsjíkistans og Túrk- menistans komu í gær saman á fúnd um málið í Ashkhabad, höfuðborg síðastnefnda landsins. I efhahags- málum em lýðveldi þessi mjög háð slavnesku lýðveidunum þremur og kann vera að það valdi einhveiju um sinnaskipti leiðtoga þeirra. Sögulegar sættir Kór- euríkja Kóreönsku ríkin tvö hafa komist að samkomulagi um griðasáttmála sín á milli og þar með væntanlega bundið enda á ástand svarins fjandskapar sem staðið hefur allt frá því að ríkin voru stofnuð upp úr hernáms- svæðum þeim, sem Bandaríkin og Sovétríkin skiptu Kóreu í á milli sín í lok heimsstyrjaldar- innar síðari. Kalla menn þetta tímamótaat- burð. Undanfarið hafa landamæri Norður- og Suður-Kóreu, sem enn em formiega í stríði hver við aðra síðan i Kóreustríðinu 1950-53, verið kölluð síðustu landamæri kalda stríðsins. Nauöaanir aöfero í stiórn- móla baróttu? Mótmælafundir stjórnar- andstæðinga hafa síðustu daga verið haldnir víða í Pakistan eft- ir að fimm menn vopnaðir byss- um réðust á Farhönu Hayat, sem er vinkona Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráðherra og nú leiðtoga stjórnarandstöðunnar, og nauðguðu henni. Gerðist þetta í Karachi, höfuðborg fylk- isins Sind. Bhutto og stuðningsmenn hennar saka stjómvöld um að hafa staðið á bak við ódæðisverk þetta og fleiri álíka undanfarið og telja að þetta sé gert með það fyrir aug- um að hræða stjómarandstöðuna til undirgefni. Hayat, fjölskylda hennar og sumir leiðtogar stjómar- andstæðinga halda því fram að Jam Sadiq Ali, forsætisráðherra Sind, og tengdasonur hans, sem jafnframt er ráðunautur hans um innanríkismál, hafi fyrirskipað árásina á Hayat. Flest sovésku lýöveldin aö snúast ó sveif meö samveldi NÝTT HELGARBLAÐ 1 4 FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1991

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.