Þjóðviljinn - 14.12.1991, Blaðsíða 5
Frétttr
Sigfrlð Þormar, starfsmannastjóri hjá Nóa og Siriusi, fyrir miðju. Hún er hrædd
um að til uppsagna starfsfólksins kunni að koma, verði áform rlkisstjómarinnar
um að hætta niðurgreiðslum á mjólkurdufti að veruleika. Mynd: Kristinn.
Þióðfélagið getur
eKki lagt meira
á láglaunafólk
Láglaunafólkið getur ekki
lagt á sig meiri byrðar fyrir
þjóðfélagið. Það sér það
hver maður að fólk sem rétt hef-
ur til hnífs og skeiðar getur ekki
misst meira en það gerir í dag,
sagði Sigfríð Þormar, starfs-
mannastjóri hjá Nóa og Síríusi
hf., er hún var beðin að leggja
orð í belg um ástandið í þjóðfé-
laginu í dag.
Sigfríð, sem er í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur, sagðist
hafa áhyggjur af starfsfólkinu hjá
Nóa og Síriusi ef mjólkurduft
hækkaði í verði.
- Framleiðslan héma byggist
mikið á mjólkurduftinu og ef það
hækkar mun fólk minnka kaup á
sælgæti. Þá verður samdráttur hjá
okkur í leiðinni með tilheyrandi
uppsögnum.
Sigfrið sagðist halda að langt.
væri í land í kjarasamningum, því
jafnframt erfiðleikum launafólks
við að láta enda ná saman, væru at-
vinnurekendur síður en svo á
grænni grein.
Aðspurð um afstöðu sína til
verkfalla sagði Sigfrið að þau væm
slæmur kostur; neyðarúrræði sem
hún teldi i raun úrelt fyrirbrigði.
- Samt sem áður skila þau ár-
angri, því samningar nást yfírleitt
alltaf eftir skamman tima i verk-
falli. Ég skil ekki hvers vegna
menn drífa sig ekki í að semja, því
það vita allir að það er hægt, og á
að vera hægt án átaka, sagði Sig-
frið. -sþ
Atvinnuleysið
eykst stöðugt
Skráð atvinnuleysi hefur
aukist um 0,2% miðað við
sama tíma á síðasta ári.
Það jafngildir því að um
2000 manns hafi veríð atvinnu-
lausir í nóvember, sem er 1,5%
af áætluðum mannafla á vinnu-
markaðinum. Bein útgjöld ríkis-
sjóðs vegna atvinnuleysins í nóv-
embermánuði eru um 84 miljón-
ir króna.
I nóvembermánuði sl. voru
skráðir tæplega 44 þúsund at-
vinnuleysisdagar á landinu öllu
með svotil jafnri skiptingu milli
kynja. Samkvæmt þessu hefur at-
vinnuleysisdögum fjölgað um
9000 miðað við síðasta manuð.
Útgjöld ríkisins vegna 1,5% at-
vinnuleysis er samkvæmt upplýs-
ingum frá atvinnuleysistiygginga-
sjoði um 975 miljómr króna á árs-
grundvelli. Auk þess verður ríkis-
sjóður af skatttekjum upp á 450
miljónir króna á ári, se litið til
meoaltekna starfsmanna á landinu.
Um aukningu var að ræða á
öllum skráningarsvæðum nema
Suðumesjum, þar sem ástandið var
svo til óbreytt miðað við október-
mánuð. Ef atvinnuleysið er borið
saman við sama tíma í fyrra, kem-
ur í ljós að það hefur vaxið um
0,2%. Mesta atvinnuleysið á land-
inu var á Suðumesjum eða 4,3%.
Hjá konum á Suðumesjum var at-
vinnuleysið 7,9%, en 2,0% hjá
körlum. Minnsta atvinnuleysið var
á höfuðborgarsvæðinu eða 0,8%
og skiptist það nokkuð jafht á milli
kynja.
Vinnumálaskrifstofa félags-
málaráðuneytisins gerir ráð fyrir
auknu atvinnuleysi í desember,
jafhvel umfram venju. -sþ
Útvarpsráð ber fyllsta
traust til Friðriks Rafnssonar
Bókaútgáfan Fjölvi gerir það hins vegar ekki. í auglýsingum í
Morgunblaðinu segir það fyrirtæki hann vera bókmenntapáfa
sem setji bækur á svartan lista og í bann. Verkakonan er undir
hans virðingu, segir þar, og hann þeytir ljóðabókum Fjölva út í horn.
Allmikill þrýstingur virðist nú
vera á „Gufunni“ svo að notað sé
algengt gælunafn á ríkisútvarpinu,
rás ejtt.
Útvaipsráð hefur sent fjölmiðl-
um yfirlysingu um fullt traust til
Friðriks Rafnssonar, Bókmennta-
ráðgjafa RÚV, og lætur þess getið
þar að bækur frá bókaútgáfunni
Fjölva njóti sömu umsýslu og ann-
að efni er út kemur um þessar
mundir.
Þessu máli er lokið frá minni
hálfu, segir Friðrik Rafnsson. Þetta
upphlaup er eins og hvert annað
slys sem getur hent undir álagi
desembermánaðar. Það hafa engar
bækur verið settar í bann hjá Rik-
isútvaipinu.
Bókaútgáfan Fjölvi lítur hins
vegaj ekki svo á að málinu sé lok-
ið. I Morgunblaðinu í fyrradag
hótar útgáfan að kæra opinberan
embættismann fyrir valdníðslu.
Ingunn Thorarensen sagði í
samtali við Þjóðviljann að um
etta væru engar reglur eða lög, en
vaðst hafa fylgst með þáttum
Friðriks og ekki bera traust til
hans.
Hann hefur frá fyrstu tið verið
afskaplega tregur til að fjalla um
okkar bækur, sagði Ingunn. Hann
hefur lagt þær til hliðar án þess að
lesa þær og það finnst okkur skrýt-
ið þegar við erum með bækur effir
íslei>ska höfunda, sagði Ingunn.
íslenskar bækur Fjölva eru ljóð
eftir Sverri Stormsker, Pjetur Haf-
stein Lárusson, Jónas Friðgeir og
Þóru Jónsdóttur. Þessar bækur
voru það seint á ferðinni, sagði
Ingunn, að varla er hægt að búast
við aí) um þær hafi verið fjallað
enn. Ágreimngurinn stendur fyrst
og ffernst um skáldsögur þeirra
Þorvarðar Helgasonar og Auðar
Ingvars.
Stjórn BSRB mótmælir harð-
lega fyrirliggjandi tillögum
ríkisstjórnarinnar um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum. 1 sam-
þykkt stjórnarinnar segir m.a.
að á sama tíma og rúmlega hálf-
ur miljarður sé tekinn úr vasa
barnafólks og annað eins frá
sjúklingum og einstaklingum
sem þurfi á læknishjálp að
halda, sé hvergi hreyft við fjar-
magnsokri né hróflað við gróða-
öflunum í landinu.
I samþykktinni segir einnig að
ráðstafamr ríkisstjómarinnar séu
ranglátar og vanhugsaðar og taki
engan veginn á þeim vanda sem
Ríkisfjölmiðill ber meiri
ábyrgð en aðrir, sagði Ingunn.
Hann má ekki kasta sumum höf-
undum út í hom. Þetta árið koma
út 25 íslenskar skáldsögur, sagði
Ingunn sem lítur svo á að þær ættu
allar að fá einhveija umfjöllun í
ríkisútvarpinu.
- En hvað á að gera þegar Rik-
isútvarpið treystir sinum manni og
hann telur að útgáfan gefi út fár-
vondar bækur?
- Hann segir það! En hann hef-
ur ekki einu sinni iesið þær, sagði
Ingunn Thorarensen. Við getum
eldci litið öðm vísi á þetta en svo,
að þessar bækur okkar séu í banni.
-kj
menn standi frammi fyrir. Tillög-
umar muni því torvelda kjara-
samninga, nái þær fram að ganga,
enda sé augljóst að þær muni ryra
kjör almennings og leiða til endur-
skoðunar á kröfugerðum.
„Tillögur ríkisstjómarinnar eru
í engu samræmi við veruleikann.
Áform um að flytja verkefni frá
ríki til sveitarfélaga sem jafnffamt
em svipt tekjum em ekki hugsuð
út ffá þörfum fólksins í landinu,"
segir í samþykktinni. Stjóm
BSRB sendir einnig Dagsbrúnar-
mönnum baráttu- og samstöðu-
kveðjur í veiðleitni þeirra til að
knýja fram kjarasammnga. -sþ
Gróðaöflin halda sínu
Ný rannsóknastofa
tekin í notkun á Landspítala
riðji ársfundur Ríkisspítal-
anna var haldinn á Land-
spítalanum í gær. Starfsfólk
var heiðrað og nýtt húsnæði
endurhæfingardeildar formlega
opnað, sem og ný rannsókna-
stofa í blóðmeina- og meinefna-
fræði.
Davíð Á. Gunnarsson forstjóri
spítalanna setti fundinn og sagði
m.a. í setningarræðu að hagræðing
í heilbrigðisgeiranum væri erfið
viðfangs og mótsagnakennd. Það
sýndi sig í pví að síðasta ár skilaði
færra fólk sömu afköstum en árið
áður, en það hefði eðlilega falið í
sér meiri yfirvinnu.
Guðmundur G. Þórarinsson
formaður stjómamefndar Ríkis-
spítalanna rakti ffamfarir og tækja-
kaup í fjögurra ára tíð ffafarandi
stjómamefndar og nefndi meðal
merkra áfanga gl^safrjóvgun sem
hefst um áramót. Áætlað er að þörf
sé fyrir 150 slíkar aðgerðir á ári.
Þá verður lögð áframhaldandi
áhersla á að fjölga hjartaskurðað-
gerfium hérlendis.
I ársskýrslu Ríkisspítalanna
fyrir árið 1990 kemur fram að
rekstarkostnaður var rúmir 6,2
milljarðar og er það 4,6% hækkun
á milli ára á verðlagi ársins 1990.
-vd.
Þriðji ársfundur Ríkissplt-
alanna var haldinn I gær.
Mynd: Kristinn.
JOLAGLAÐNINGUR
Alþýðubandalagsins íKópavogi
verður haldinn í Þinghóli í kvöld.
Dagskrá:
Upplestur:
Guðmundur Andri Thorsson
Steinunn Sigurðardóttir
Gylfl Gröndal
Söngur og fleira til gamans gert.
Húsið opnar kl. 20.30 og dagskrá hefst kl. 21.00
Mætum og skemmtum okkur öll!
Stjórnin
loginn brann
Viðtöl Haraldar Jóhannssonar við
ýmsa forystumenn sósíalisma 09
verkalýóshreyfingar, lífs 09 lióna
aBókaútgáfan
Hildur
AUÐBREKKU 4 - 200 KÓPAV0GUR
SÍMAR 91-641890 OG 93-47757
Síða 5
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. desember 1991