Þjóðviljinn - 14.12.1991, Blaðsíða 18
Erlendar
Benazir Bhutto (hér við málverk af föður sinum, sem Zia ul-Haq einræðisherra lét taka af llfi) - reyna andstæð-
ingar hennar nú að koma henni á kné með nauðgunum á konum (stuðningsliði hennar?
Pakistan:
Hópnauðgun í brennidepli stjómmála
Mikil ólga er nú í Pakistan
út af nauðgunarárás á
Farhönu Hayat, vinkonu
og kjólameistara Benazir
Bhutto, fyrrum forsætisráðherra
landsins og nú leiðtoga stjórnar-
andstöðunnar þar. Að sögn Far-
hönu og IjöIskyJdu hennar rudd-
ust í s.l. mánuði fimm menn inn
á heimili hennar í Karachi og
reyndu að fá út úr henni upplýs-
ingar um Bhutto. Þeir nauðguðu
henni allir.
Mál þetta hefur vakið feikna
athygli í Pakistan og má segja að
stjómmálabaráttan þar snúist nú
um það.
Farhönu Hayat og fjölskyldu
hennar grnnar að ódæðisverk þetta
hafi verið framið að ráði þeirra
Jams Sadiqs Ali, forsætisráðherra
fylkisins Sind, og ráðunautar hans
um innanríkismál sem Irfanullah
Marwat heitir. Marwat þessi er
tengdasonur Ghulams Ishaqs
Khan, forseta Pakistans.
Benazir Bhutto sakaði forset-
ann í gær um að reyna að þagga
málið niður. Kvaðst hún álíta að
illvirkið sem framið hefði verið á
vinkonu hennar væri liður í við-
leitni valdhafa til að hræða stjóm-
arandstöðuna og gera henni,
Bhutto, erfitt fyrir sem leiðtoga
hennar. Benazir Bhutto og flokkur
hennar, Alþýðuflokkur Pakistans,
hafa sætt miklum þrýstingi frá nú-
verandi valdhöfúm frá því að hún
neyddist til að láta af embætti for-
sætisráðherra.
Þetta mál vakti ekki síst hvað
athygli vegna þess að nauðgunin
skyldi yfirhöfuð vera kærð. Mikið
er um nauðganir i Pakistan, enda
þýðir varla fyrir konu, sem fyrir
slíku verður, að kæra nema því að-
eins að hún geti leitt fram fjögur
vitni, sem allir verða að vera karl-
Skærur standa yfir í
Moldovu milli lögreglu stjórnar-
innar þar og vopnaðs varðliðs
þjóðernisminnihluta Rússa og
Úkraínumanna. Fimm menn
féllu í þeim viðureignum í gær og
nokkrir særðust.
Þctta em mannskæðustu átökin
menn og múslímar. Mikil skömm
verður hlutskipti þeirra kvenna,
sem nauðgað er, ef upp kemst, og
er því reglan að fjölskylda konunn-
ar leyni glæpnum. En allalgengt
mun að konur sem verða fyrir slíku
svipti sig lífi.
Fjölskylda Farhönu Hayat
ákvað hinsvegar að bregða út af
venjunni. Faðir hennar sagði: „Um
það var að velja að dóttir mín
fremdi sjálfsvíg eða ég stigi fram
til að bjarga dætmm Pakistans. Eg
valdi síðari kostinn."
Síðan uppvíst varð um glæpinn
í s.l. viku hafa mótmælaaðgerðir af
þessu tilefni verið næstum daglega
í helstu borgum landsins.
sem hingað til hafa orðið í lýðveld-
inu ffá því að glasnost og pere-
strojka hófust. Ult er þar í botn og
gmnn á milli meirihluta lands-
manna, sem em Rúmenar og vilja
margir sameinast Rúmeníu, og
þjóðernisminnihluta Rússa og
Ukraínumanna sem ekki mega
heyra það nefnt.
Heitt í kolunum í Moldovu
JOLATRESSALA139AR
Reynslan skapar meistarann
Við erum upphafsmenn þess að pakka jólatrjám í net.
Við erum upphafsmenn þess að gera jólatrésskóga.
Við erum upphafsmenn þess að hafa jólatré í pottum.
Þessi jól höfum við fallegustu jólatrén. Komið og sjáið.
Það er ekki sama Jón eða séra Jón.
VERÐ A JOLATRJAM
Þinur Þinur íslensk íslenskt íslensk
Stærð 1. flokkur úrvals fl. fura rauðgr. pottatn
cm. kr. kr. kr. kr. kr.
70-100 950 1.250 870 600 2.235
101-125 1.400 1.800 1.375 880 3.225
126-150 1.900 2.600 1.980 1.320 4.215
151-175 2.400 3.300 2.640 1.800
176-200 3.100 4.100 3.300 2.420
201-250 3.900 4.995 3.960 2.900
251-300 5.300 5.600 4.400 3.700
301-350 6.330
Takið b'órnin með í jólatrésskóginn.
Nóg aflitlum, fallegum trjám í auraleysinu;
það kennir reynslan okkur.
UNDRALAND JÓLANNA
MIKLATORGI, sími622040
BREIÐHOLTI. sími 670690
JL 1 JLJMl AUmsión: Daeur Þorleifsson
Mið-Asíulýðveldi
vilja í samveldið
Forsetar sovésku Mið- Asíu-
lýðveldanna fimm, Kasakst-
ans, Úsbekistans, Kírgisist-
ans, Tadsjíkistans og Túrkmen-
istans, lýstu þvi yfir sameiginlega
f gær á ráðstefnu sinni í Ashk-
habad, höfuðborg síðastnefnda
landsins, að ríkin fimm væru
reiðubúin að ganga í hið tæplega
vikugamla samveldi Rússlands,
Úkraínu og Hvíta-Rússlands.
Forsetar Mið-Asíulýðveldanna
setja þó það skilyrði að þau fái að
teljast meðal stofnenda samveldis-
ins. Kemur ffam i því skilyrði
gremja ráðamanna lýðvelda þess-
ara út af því, að forsetar Rússlands,
Úkraínu og Hvíta- Rússlands
skyldu lýsa því yfir að Sovétríkin
væru ekki lengur til án þess að láta
svo lítið að hafa fyrst samráð við
stjómir Iýðvelda þeirra níu, sem
enn hafa ekki formlega með öllu
sagt sig úr Sovétríkjunum.
Eftir þessa ákvörðun Mið- As-
íuforsetanna fimm virðist mörgum
sem barátta Gorbatsjovs fyrir því
að viðhalda Sovétríkjunum sem
einhverskonar sambandsríki sé
vonlaus, ef hún var þá ekki orðin
það fyrir. í gærkvöldi sögðu tals-
menn hans þó að hann teldi enn
ekki tímabært að segja af sér.
Stríðsþreyta
í Serbíu
Bardagar milli Króata ann-
arsvegar og júgóslavneska
sambandshersins og serb-
neskra sjálfboðaliða hinsvegar
halda áfram í Króatíu og færð-
ust heldur í aukana í gær. Kenna
stríðsaðilar hvor öðrum um og
hermálafulltrúar við vestræn
sendiráð í Belgrad báðum.
Javier Perez de Cuellar, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna, varar stjómir Þýskalands
o.fl. Evrópuríkja eindregið við því
að viðurkenna Króatíu og Slóveníu
sem sjálfstæð ríki, segir að þá auk-
ist hættan á að stríðið breiðist út til
Bosníu- Herzegóvínu, þar sem
bæði Króatar og Serbar em fjöl-
mennir auk múslíma, og Makedón-
íu. Undir þetta taka eftirlitsmenn
Evrópubandalags í Júgóslavíu.
Þýska stjómin hefur lýst því
yfir að hún muni viðurkenna Króa-
tíu og Slóveníu sem sjálfstæð ríki
fyrir jól og búist er við að fleiri
EB- ríki og Austurríki geri svo
fljótlega.
Sagt er að stríðsþreytu sé farið
að gæta nokkuð í Serbíu og kemur
hún fram í því m.a. að ungir menn
fela sig til að komast hjá að verða
kvaddir í sambandsherinn.
Gakktu ekki í
skóginn er skyggja fer
Um 95 af hundraði vændis-
fólks þess af báðum kynjum,
sem stundar atvinnu sína í Bou-
logneskógi (Bois de Boulogne) í
París er HlV-smitað og það
smitar allt að 40 viðskiptavin-
um á dag. Það kann þegar að
hafa smitað allt að 14.000 við-
skiptavinum.
Þetta er samkvæmt skýrslu frá
lögreglunni þar í borg, og segist
hún hafa notið aðstoðar lækna við
rannsóknir sem voru undanfari
skýrslunnar.
Boulogneskógur, sem er raun-
ar trjágarður, á að baki langa hefð
sem vettvangur keypts og selds
kynlífs. Síðustu árin hafa karl-
kyns klæðskiptingar farið að
stunda þar vændi í auknum mæli
og eru þeir nú rúmur helmingur
vændisfólksins. Fjórir af hverjum
fimm af þeim um 350 manneskj-
um sem stunda þama vændi em
frá Rómönsku Ameríku, einkum
frá Kólombíu og Ekvador.
Um 8500 manns hafa dáið úr
alnæmi í Frakklandi. Talið er að
um 16.000 manns séu þar nú
veikir af sjúkdómnum og um
200.000 í viðbót HlV-smitaðir.
Flugsam-
starf
✓
Ira og
Hvít-Rússa
Aer Lingus, írska ríkisflugfé-
lagið, hefur gert samning um
flugsamsöngur og samstarf við-
víkjandi þeim við stjórnvöld
Hvíta-Rússlands og flugfélag
þess. Mun hvítrússneska flugfé-
lagið samkvæmt samningnum
fljúga einu sinni í, viku til
Shannonflugvallar á írlandi og
flytja þangað farþega sem halda
áfram með Aer Lingus til New
York.
Ekki er laust við að írar séu
hreyknir af þessu og kallar Aer
Lingus samning þennan söguleg-
an, þar eð hann sé sá fyrsti er félag
sem er með flug á alþjóðaleiðum
geri við nýju flugfélögin í sovésku
lýðveldunum.
HANDBRAGÐ MEISTARANS
Bakarí
Brauðbergs
Ávallt nýbökuð brauð
-heilnæm og ódýr-
Aðrir útsðlustaðir:
Hagkaup-Skeifunni
-Kruigluxmi
-Hólagarði
Verslunin Vogar,
Kópavogi.
tsrauooerg
I^whökr 2-6 stai 71539
ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. desember 1991
Síða18