Dagblaðið Vísir - DV - 02.10.1995, Side 7
MÁNUDAGUR 2. OKTÓBER 1995
7
Fréttir
Hlýsjávareldið Máki á Sauðárkróki:
Tugmilljóna fjárstyrkur
- Evrópusambandið styrkir rannsóknarverkefnið
13 v Sandkom
Skæringur
Halldór
Blöndalsaro-
gönguráðherra
hefurveriðá
fleygiferð að
undanfómu
með skærin
sín.klipptá
borðahérog
þarumlandið
ogtekiðþánnig
í notkun form-
lega ný samgöngumannvirki. Aðdá-
endur ráðherrans eru ánægðir með
sinn menn og segja hinar tiðu klipp-
ingar hans sýna það hversu miklu
hefur verið komið í verk í hans mála-
flokki og glæsileg mannvirki hafi ris-
ið víða um land. Gárungarnir s vo-
kölluðuhafa hins vegar haft gaman
af þessum tíðu klippingum ráðherr-
ans og ferðalögum hans um landið
með skærin. Hafa þeir gefið honum
nafhíð „Skæringur" af því tilefní.
Tindstælingar
Iþróttafrétta-
mennútvarps-
stöðvarBylgj-
unnarfóru
geysterl.um-
ferðúrvals-
deiidárinnarí
kört'ubolta var
ieikin sl.
timmtudagog
lýstufráöfium .
Hkjumum-
ferðarinnar.
Mestur var hasarinn á Sauðárkróki
þar sem heimamenn í Tindastóli
lögðu Reykjavikumeistara ÍR í
hörkuleik. Heimamaður sem iýsti
leiknum var orðinn ansi strekktur
undir lok leiksins þegar hans menn
voru að innbyrða sigur sinn og sagði
„Tindstælingana" vera komna með
mminn ieik. Skemmtilegthlutskipti
það, að vera bæði Sauðkræklingur
og Tindstælingur.
Kísiliðjan, hvað?
Andstæöing-
arKísiIiðjunn-
ariMývatns-
svcitvoruekki
i vafa ttm þaö
þegarsilungs-
veiðiníMý-
vatni mitmkaði
mjögfvrir
nokkrum árutn
aðástæðaþess
væri starfscmi
verksmiöjunn-
ar. enhráefhi verksmiðjunnarer
dælt úr vatninu. Stór orð féllu eins
og að verksmiðjan væri að ganga af
lífríki vatnsins dauðu og flelra í þeim
dúr. Nú bregður hins vegar svo við
að mjög góð veiði var í vatninu í sum-
ar og var silungurinn feitur og vei
haldinn. Monn vilja sem minnst tjá
sig um ástæðuna, en lítið er um það
að andstæðingar verksmiðj unnar
nefni hana á nafn þessa dagana.
Óheppinn
Stangaveiði-
mennerunú
flestirhverjir
a.m.k.húniraö
gangafrá
veíðidótinu
sínufyrirvet-
urinn.efur
sumarsem
reyndist sum-
um vel en öðr-
um miður.
Veiðisögurnar
eru margar tíl, jafht frægðarsögur
sem sögur af hrakföllum en sennilega
á Akureyríngur einn metið þegar um
er að ræða hrakfarir við veiðiskap
sumarið 1995. í einum af tyrstu veiði-
ferðum sumarsins óð hann of iangt
út í ána þannig að hann „flaut upp“
og úr veiðivestinu hans flutu
flugubox og flciri nauðsynjahlutir og
sáust ei meir. Skömmu síöar missti
umræddur veiðimaður rándýr gler-
augu í sama vatnsfall sem einnig töp-
uöust. í sömu veiðiferð komust kýr
síðan í Orvis veiðistöngina hans dýru
á árbakkanum og hreinlega átu haiía
að hluta. Loks var vinurinn í veiði-
ferð með flugustöng að láni og var
þá svo óheppinn að flugan fór af í
eínu kastinu og því miður gerðist það
um leiðaðefti hluti stangarinnar
sagðí skiliö við hinn neðri ogfór fram
af línunni þar sem flugan var ekki
lengur tíl að veita mótstöðu. Hefur
stangartpppur þessi ekki sést síðan.
UmBjón: Gylfi Kristjánsson
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
„Þessi styrkur er mjög mikilvægur
fyrir okkur og ég held að það sé mik-
ill fengur fyrir héraðið að þessi þekk-
ing komi hingað," segir Guðmundur
Örn Ingólfsson, framkæmdastjóri
Máka, en fyrirtækið fékk nýlega út-
hlutað 55 milljóna króna styrk frá
Evrópusambandinu vegna 2ja rann-
sóknarverkefna sem Máki hefur
umsjón með. Máki fær um helming
þessa fjár, hinn helmingurinn renn-
ur til samstarfsaöilanna í 3 löndum.
Máki hefur yfirumsjón með 2 sam-
evrópskum verkefnum sem unnin
eru í samvinnu við Frakka, Norð-
menn og Svía. Um er að ræða verk-
efni sem tengist eldi barra, lífræna
þættinum og endurnýtingarkerfi, og
hins vegar verkefni er tengist þróun
hreinsiþúnaðar vegna sjótöku.
Kostnaður við verkefnin er áætlað-
ur um 100 millj. króna og styrkir ESB
verkefnið að hálfu. ESB veitir 5 millj.
kr. styrk til skipulagningar verkefna.
Hlutur Máka er 25 milljónir, Frakkar
fá 20 milljónir og Norðmenn og Svíar
5 milljónir. Skýringin á mismunin-
um milli landa er að Frakkarnir
vinna aö uppsetningu eldisstöðvar
eins og Máki en í Noregi og Svíþjóð
er barreldið enn á undirbúningsstigi.
I vor komu að nýju barrahrogn í
eldisstöð Máka eftir slys er varð við
eldið á síðasta ári. Um 10 þúsund
fiskar eru nú í uppeldi. Dafna þeir
samkvæmt áætlun að sögn Guð-
mundar Arnar og er reiknað með að
þeir verði komnir í sláturstærð um
mitt næsta ár. í vetur bætist síöan
við í stöðina svipað magn og kemur
þaö inn í þremur skömmtum, 350
þúsund hrogn í hvert sinn.