Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.1995, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þð í
síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er
notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
550 5555
MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 550 5000
uuU uUUU MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER | Frjaist ohaö dagblaö
FÖSTUDAGUR 6. OKTÖBER 1995.
Siglufjörður:
Vatn f læddi
inn í hús
— -grjóthrunávegum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii;
„Þaö flæddi inn í fjögur hús viö
Gránugötu og Grundargötu í gær-
kvöldi og vatnið olli einhverjum
skemmdum í fjórum íbúöum. Þaö er
búið aö rigna geysilega mikið en svo
viröist sem eitthvað sé að draga úr
þessu núna,“ sagöi Guöni Sölvason,
bæjarverkstjóri á Siglufiröi, í morg-
un.
Bæjarstarfsmenn á Siglufirði voru
á vakt í afla nótt og unnu viö aö halda
niðurföllum opnum, aö sögn Guðna.
Hann segir að mesta hættan á að
niðurföll stíflist sé liðin hjá þar sem
kólnaö hafi og dregið úr úrkomúnni.
—-* Mikiö gijóthrun hefur verið á leið-
inni frá Ketilási í Fljótum til Siglu-
fjarðar síðan í gær. Að sögn Gísla
Felixsonar hjá Vegagerðinni á Sauð-
árkróki hefur gijóthrunið verið mest
í Mánárskriðum. Stórir flutningabíl-
ar komust þó til Siglufjarðar í nótt
en vegurinn var í morgun talinn
mjög varhugaverður og varla fær
litlum bílum.
Á Þverárfjalli, mifli Skagafjarðar
og Húnavatnssýslu, hafa orðið
skemmdir á veginum hjá brúnni yfir
,-Þverá og öxulþungi á þeirri leið er
nú miðaður við 5 tonn. Þá er vegur-
inn yfir Lágheiði illa farinn, þar hafði
snjóað áður en vatnsveðrið tók við
og þar eru einnig takmarkanir á öx-
ulþunga.
Hótel ÓlafsQörður:
sjússa-
mælar í 15 ár
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfirði:
Af og til heyrast fréttir um að lög-
— reglan taki til hendinni hj á fyrirtækj -
um þegar þau svindla á viðskiptavin-
um sínum. Nú gerðist það hér í Ólafs-
firði að opinber víneftirlitsmaður,
sem var hér á ferð, gerði rassíu á
Hótel Ólafsfirði og viti menn: sjússa-
mælarnir voru ólöglegir og þeir auð-
vitað teknir úr umferð. Það ólöglega
við þá var aö þeir reyndust of stórir.
Þórhildur Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri hótelsins, segir aö
mælarnir hafi fylgt hótelinu síðustu
15 árin Og því hafi Ólafsfirðingar
drukkið ólöglega í hálfan annan ára-
tug.
Reyndar vissi enginn um þetta ná-
kvæma mál sjússamælanna en nú
má hótelið sem sagt ekki lengur gera
^jæl við viðskiptavini sína. Nú þarf
f)að að panta nýja sjússamæla á
10.000 kr. stykkið.
...B_
LOKI
Að minnka sjússamælana á
Ólafsfirði hlýtur að teljast
alvarleg kjaraskerðing!
tonn af kartöf I
B fanginu
„Ég fann að vélin var að velta
og reyndi að grípa f það sem hendi
var næst. Það var þá kartöflusekk-
urinn og við svifum út af vélínni
og ég varð undir hlassinu,“ segir
Friðrik Þór Einarsson, 23 ára gam-
afl vinnumaður á Háfi II í
Þykkvabæ, en hann varð fýrir
skömmu undir 500 kílóum af kart-
öflum og marðist illa á baki og
mjöðmum.
Slysið varð þegar Friðrik var
ásamt Fannari bónda Ólafsyni og
tveimur mönnum öðrum að taka
upp kartöflur í rokinu síðasta laug-
ardag. Miklir sviptibyljir voru og
rétt áður en verkum dagsins lauk
kom hnútur á þá félaga og skellti
fjögurra tonna upptökuvélinni á
hliöina.
Friðrik er nú kominn heim í
Þykkvabæ en hann varð að vera
nokkra daga á sjúkrahúsi eftir slys-
iö. Hann er enn óvinnufær og er í
sjúkraþjálfun. Mjúk mold var und-
ir þar sem Friðrik og kartöflurnar
komu niður og átti það sinn þátt í
að ekki fór verr.
Fannar Ólafsson segir að hann
hafi reynt að snúa upptökuvélinni
undan rokinu þegar hann sá að
allt ætlaði um koll að keyra. Hnút-
urinn kom hins vegar á vélina áður
en henni varð snúið og því fór sem
fór.
„Þaö er hreint ótrúlegt að Friðrik
skyldi sleppa lifandi frá þessu en
þetta er hraustmenni. Hinir tveir
sem stóðu á vélinni .náðu að grípa
í færiband og héngu þar þegar vél-
in stöðvaðist," segir Fannar.
Óverulegar skemmdir m-ðu á
upptökuvéiinni en litlu munaði að
dráttarvélin, sem dró hana, færi
um koll Uka. Þar sat Fannar og
horfði á atburðina eins og í hægri
endursýningu.
-GK
W@DoDQ QQOuD
Friðrik Þór Einarsson, vinnumaður i Háfi II í Þykkvabænum, slapp lifandi en marinn eftir að hann fékk yfir sig hálft
tonn af kartöflum á dögunum. Upptökuvél, sem hann stóð á, fauk um koll og varð Friðrik undir stórum sekk sem
hann greip í. DV-mynd Fannar Ólafsson
Hæstaréttardómur:
Tryggingafé-
lögin verða
að hlýða
- segir Jón Steinar
„Þetta er dómur sem hefur þýðingu
fyrir flölda annarra mála. í fyrsta
lagi þýðir ekkert fyrir tryggingafé-
lögin að láta meta svokallaða fjár-
hagslega örorku. Það er hin læknis-
fræðilega sem gildir. í öðru íagi ber
tryggingafélögunum að greiða drátt-
arvexti mánuði eftir að krafa kemur
fram ef dráttur verður á greiöslu,"
segir Jón Steinar Gunnlaugsson, lög-
maður konu sem í gær vann fyrir
Hæstarétti mál þar sem Sjóvá/Al-
mennum er gert að greiða henni
nærri 2,9 milljónir í bætur og drátt-
arvexti vegna líkamstjóns sem hún
varð fyrir árið 1990.
„Það er alveg skýrt nú að það þýð-
ir ekkert að koma með mat um fjár-
hagslega örorku og ég held að trygg-
ingafélögin ættu að spara sér þá fjár-
muni sem fara í að meta slíka ör-
orku,“sagðiJónSteinar. -GK
Tvöfaraí
20 mánaða
fangelsi
- fyrir fíkniefnasmygl
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
iæmt Ingu Lind Gunnarsdóttur, 22
ára, og Braga Róbertsson, jafnaldra
bennar, í 20 mánaða fangelsi fyrir
að hafa staðið að innflutningi á 303
töflum af alsælu og 288 grömmum
af amfetamíni frá Amsterdam í apríl
úðastliðnum.
Inga Lind bar efnin á sér og í lík-
ama sínum við komuna til landsins
an Bragi stóð að því að fjármagna
afnin og keypti þau í Hollandi. Þau
komu í sömu flugvél til íslands.
Hvorugt sakborninganna hafði sak-
arferil sem máli skipti við ákvörðun
refsingar í þessu máli - 20 mánaða
áskilorðsbundið fangelsi þótti hæfi-
iegt með hliðsjón af eðli brotsins,
magninu og hættu efnanna. Pétur
Guðgeirsson héraðsdómari kvað upp
ióminn. -Ott
DV seinkaði:
Bilun í prentvél
DV var víða seint á ferð í gær vegna
bilunar í prentvél. Kaupendur blaðs-
ins eru beðnir afsökunar á töfinni.
Veðriðámorgun:
Dálítil
úrkoma
Á morgun verður allhvöss eða
hvöss norðaustanátt á Vestíjörð-
um en annars fremur hægur
vindur. Vænta má dálítiflar úr-
komu í flestum landshlutum,
einkum þó á annesjum norðan-
lands og á norðanverðum Vest-
fjörðum.
Hiti verður á bilinu 3 til 8 stig.
Veðrið í dag er á bls. 36
Rxother
PT-7000
Merkivél
m/íslensku
Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443