Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.1995, Page 24
24
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 1995
Sviðsljós__________________________________________________
Rúmur mánuður í brúðkaup Jóakims og Alexöndru:
Bjór og postulín
ber nafn hennar
^ Alexandra, veröandi eiginkona
Jóakims prins, kemur eins og himna-
sending fyrir danska framleiöendur
og kaupmenn. Rúmur mánuður er í
brúðkaup þeirra og nú þegar er ríf-
andi sala í alls kyns hlutum sem bera
nafn Alexöndru eöa vísa til hennar
á einn eöa annan hátt. Til sölu er
Alexöndrukonfekt, fjórar brugg-
verksmiðjur bjóða Alexöndrubjór, fá
má Alexöndrupostulín, Omvötn,
skartgripi og margt fleira. Danska
einkaleyfastofan hefur ekki viö aö
svara ,símtölum en þar á bæ segja
menn ekki geta gert neitt við því vilji
menn nota Alexöndrunafnið. En noti
menn Alexöndrunafnið og orðið
prinsessa í einu er málið skoðað
vandlega.
Meðan danska þjóðin, sem þykir
yfirleit frekar konungholl, undirbýr
sig fyrir brúðkaup áratugarins, eru
hin verðandi brúðhjón smám saman
að koma sér fyrir í Schackenborgar-
höll á Jótlandi. Alexandra hefur
fengið búslóðina sína senda frá Hong
Kong, um 200 troðfulla kassa af
stærri gerðinni.
En hún var ekki búin að taka upp
úr kössunum þegar fyrsta veislan
var haldin í boði hjónaleysanna. Það
var árleg uppskeruhátíð fyrir starfs-
fólk hallarinnar og maka. Þar er
starfrækt myndarlegt bú og Jóakim,
sem menntaður er í búfræðum,
ánægður með afrakstur ársins. Stóðu
DV býður öllum landsmönnum í afmæli
hringinn í kringum landið
TÍGRI verður í afmælisskapi
'Z HOPPKASTALI fyrir fjörkálfa
SAGA DAGBLAÐSINS í máli og myndum
'C' ALLIR HRESSIR krakkar fá blöðrur,
stundatöflur og annan glaðning
Blcnduós
DV og Samband austurhúnvetnskra
kvenna bjóða þér og allri fjölskyldunni
til afmælishátíðar í félagsheimilinu (fremri
sal) fimmtudaginn 19. september
frá klukkan 17-19.
Skemmtiatriði:
/ Félagar í harmoníkuklúbbnum
flytja nokkur lög
4 Atriði frá Leikfélagi Blönduóss
/ Nemendurfrá Tónlistarskóla
Austur Húnvetninga spila
nokkurlög
Gómsætt í gogginn:
'Z Kaffi
/ Afmælisveitingar
/ Ópal sælgæti
V Tomma og jenna ávaxtadrykkir í
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR PIG
OG ALLA FJÖLSKYLDUNA!
veisluhöldin fram undir morgun og
var mikið sungið og dansað við und-
irleik orgelleikara frá nærliggjandi
krá.
Sérstakt frímerki hefur verið gefið
út með myndum af hjónaleysunum
og kostar örkin 300 krónur íslenskar.
Peningamir fara til sérstakrar þjóð-
argjafar sem er viðgerð og endur-
bygging á SchackenborgarhöU, en
hún er í heldur lélegu ástandi. Mjög
skiptar skoðanir eru um réttmæti
þessarar gjafar og hafa margir þekkt-
ir Danir sagt að þeir gefi ekki krónu
til söfnunarinnar. Jóakim og Alex-
andra eigi ekki eftir að líða skort,
öðru nær, og skynsamlegra væri að
nota peningana í meira aðkallandi
verkefni. Konungsfjölskyldan geti
sjálf séð um viðhald á sínum eignum,
enda feitur póstur á fjárlögum.
Danskir framleiðendur og kaupmenn selja nú allt milli himins og jarðar I
nafni Alexöndru, verðandi prinsessu Dana.
Söngvarinn Tony Bennett og leikkonan Roseanne taka hér lagið saman á
samkomu sem haldin var til fjáröflunar fyrir fórnarlömb fíkniefnaneyslu í
Columbiaháskólanum í Los Angeles í fyrrakvöld. Bill Clinton forseti sótti
samkomuna en þar var Betty Ford, fyrrum forsetafrú, heiðruð sérstaklega
fyrir framlag sitt til baráttunnar gegn ofneyslu áfengis og fíkniefna. Meðal
gesta voru einnig Bob gamli Hope og Anette Bening, eiginkona Warrens
Beattys. Símamynd Reuter
Adua Pavarotti, eiginkona
stórtenórsins samnefnda, hefur
faliö lögfræðingum sínum að sjá
um skilnað þeirra hjóna. Það
gerðist á 34 ára brúðkaupsafmæl-
inu. Hún var þá í Mónakó en
hann með einkaritaranum sínum
í Manchester á Englandi. Orsök
skilnaöarins er að sjálfsögðu
hliðarspor söngyarans meðp rit-
aranum, hinni fógru Nicolettu
Mantovani.
Kókmeðfína
víninu
Jack Nicholson var í Frakk-
landi um daginn og hneykslaði
þarlenda þjóna meira en nokkur
maður hafði áður gert um langt
árabil. Hann skolaði fína vininu
sem hann var að drekka niður
með sykurskertum kóladrykk.
Þjónarnir reyndu hvaö þeir gátu
að fá hann ofan af þessu en Jack
botnaöi bara ekkert í öllum lát-
unum.
Hárkollanvarð
Frank Sinatra, sá bláeygi söng-
fugl, skildi hárkolluna eftir
heima þegar hann brá sér á tón-
leika með Placido Domingo
óperusöngvara í Los Angeles fyr-
ir skömmu. í ofanálag var Frank
búinn að láta sér vaxa skegg og
leit alveg út fyrir að vera átoæð-
ur, eins og hann er.
Stallone leidd-
ur í gildru
Ofurvöövabúntið Sylvester
Stallone lét heldur betur leiöa sig
í gildru. Hann hafði fimlega kom-
ið sér undan stefnu vegna slags-
mála sem hann lenti í við þós-
myndara einn fyrir utan
skemmtistað. Ekki fyrir löngu
kom maður að Stailone þar sem
hann var að borða og bað um eig-
inhandaráritun. Stallone upp-
götvaði of seint að hann hafði
undirritað stefnuna. Auminginn.