Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995 Fréttir Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í næstu viku: Mikil spenna í loftinu meðal kvenna í f lokknum - segir Bima Friðriksdóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna „Það hefur verið hætt við, eða salt- að í bili að minnsta kosti, að bæta við ritaraembætti í æðstu stjórn flokksins eins og við sjálfstæðiskon- ur vildum. Það eru mér og fleiri kon- um mikil vonbrigði. Ég veit að það er mikil spenna í loftinu meðal kvenna í flokknum. Og enda þótt ekki sé verið að vinna að því kerfis- bundið að kona bjóði sig fram sem varaformaöur flokksins veit maður aldrei hvað gerist á landsfundinum. Þar gæti hæglega myndast stemning fyrir slíku,“ sagöi Bima Friðriksdótt- ir, formaður Landssambands sjálf- stæðiskvenna, í samtab við DV í gær. Eftir alþingiskosningarnar í vor og að lokinni ríkisstjórnarmyndun kom fram mikil óánægja hjá konum í Sjálfstæðisflokknum með hlut þeirra út úr öllu saman. Þá voru haldnir fundir og konur hvattar til að láta til sín taka á landsfundinum sem hefst í næstu viku eða 2. nóvember. í allt sumar hafa konur í Sjálfstæðis- flokknum verið að skrifa pistla í blöð, tvær til fjórar saman, þar sem her- hvöt hefur hljómað. Hugmynd kom fram um að taka upp ritarastarf í æðstu stjóm flokksins og að kona yrði kosin í það embætti. Nú er það úr sögunni í bili að minnsta kosti. „Ég var hrifin af þessari hugmynd. Þegar maöur horfir á aðra stjóm- málaflokka em þeir með mun breið- ari forystu en við. Það þykir mér miður, enda tel ég að með því að breikka forystuna megi ná betri tengslum við hinn almenna flokks- mann en nú er. Þetta mæltist þó misjafnlega fyrir, bæði hjá konum og körlum. Fyrir bragðið má segja að flokksforystan hafi orðið dálítiö ringluð. Samt var bréf sent til mið- stjómar flokksins og farið fram á að hún beitti sér fyrir fjölgun í foryst- unni. Máhnu var síðan vísað til fram- kvæmdastjórnar sem fundaði um það og sendi það aftur til miðstjórn- ar. Þá var ákveðið að fresta málinu. Og nú er nákvæmlega ekkert að ge- rast í málum okkar kvenna í flokkn- um. Boltinn er hjá körlunum," sagði Bima. Hún sagðist telja að andstaða gegn þessu í flokknum hefði byggst á mis- skilningi. Fólk hefði talaö um þetta embætti sem dúsu fyrir konur. „Eitt af æðstu embættum flokksins getur aldrei orðið dúsa að mínu mati, hvorki fyrir karla né konur. Þaö er einfaldlega ábyrgðarstaða. Þess vegna veldur niðurstaðan mér von- brigðum,“ sagðiBirnaFriðriksdóttir. Norðurleiðarrútan var ekki á nagladekkjum: Ekki var tími til að setja undir nagladekk - segir Þorsteinn Kolbeins, framkvæmdastjóri hjá Norðurleið „Reglan er sú að hafa nagladekk undir rútunum að vetri til ef bílstjór- amir óska þess. í þessu tilviki hafði ekki unnist tími til að setja dekkin undir enda skammur fyrirvari þegar þetta hret skall á,“ segir Þorsteinn Kolbeins, framkvæmdastjóri Norð- urleiðar í fjarveru forstjórans. Að sögn Þorsteins vom sjö rútur frá fyrirtækinu í notkun um síðustu helgi þegar Akureyrarrútan valt út af veginum í Hrútafirði og tvær kon- ur létu lífið en nær 30 farþegar slös- uðust. Flestar vom rútumar á nagla- dekkjum. Rútan sem valt i Hrútafirðinum var á grófmynstruðum sóluðum dekkjum. DV-mynd ST Sérstakir naglar hafa verið hann- aðir fyrir stóra bíla vegna þessa aö hefðbundnir naglar duga ekki. Nagl- ar þessir hafa reynst vel undir þung- um rútum og flutningabílum við flestar aðstæður. Þó munu þeir gagnslitlir ef krapi er á vegi sam- kvæmt upplýsingum frá Umferðar- ráði. Ekki er skylda að nota nagladekk en að öðru jöfnu má setja þau undir 1. nóvember. Þó er heimilt að nota nagladekk fyrr ef veður og færð þyk- ir gefa tilefni til. Sérstök rannsóknarnefnd á vegum dómsmálaráðherra rannsakar nú til- drög slyssins í Hrútafirði auk þess sem slysið er rannsakað með hefð- bundnum hætti heima í héraði. Búist er við niðurstöðu úr rannsókninni ínnan fárra daga en enn er engar upplýsingar að hafa um gang mála. Rútan sem valt í Hrútafirðinum var á grófmynstruðum sóluöum dekkjum. Slysið hefur verið rakið til þess að rútan fór upp úr hjólfórunum í sama mund og sterk viökviða kom á hana. Snjór var á veginum og hált. -GK í dag mælir Dagfari Mínir menn Dagfari er mikill knattspymuá- hugamaður og hefur fylgt einu af knattspymufélögum höfuðborgar- innar að málum frá bamæsku. Þeirri félagstryggð fylgir sú kvöð aö fara á völlinn og hrópa með sín- um mönnum og standa með þeim í bhðu og stríðu og fylgjast með ungviðinu í félaginu til að athuga hvort ekki séu ungir og efnilegir knattspymumenn á leiðinni til að taka við af þeim gömlu. Og vinna nýja og sæta sigra. Auðvitað er það raunalegt að leggja það á sig að fylgja kapphði sem tapar leik eftir leik en sigrarn- ir em þá líka því sætari loksins þegar þeir koma og maður er stolt- ur af strákunum sínum og klappar þeim á öxlina og stjóminni og þjálf- aranum og hrósar þeim í hástert. Já, þjálfaranum. Þjálfaramir eru að verða sífellt mildlvægari, ekki bara vegna þess hversu misjafnir þeir em heldur líka vegna þess að þeir em orðnir félög út af fyrir sig. Þjálfarar ganga kaupum og söl- um og nú er það í rauninni orðið kapphlaup um þjálfara eftir hvert keppnistímabil því leikmenn keppa ekki lengur fyrir félög. Þeir keppa fyrir þjálfara! Þetta þýðir að þegar þjálfari er ráðinn frá einu félagi til annars fylgir honum hópur leikmanna, enda er það orðið aukaatriði undir hvaöa merkjum leikmennirnir keppa. Þeir keppa fyrir þjálfarann. Einn leikmanna hjá bikarmeistur- um KR sagði í sumar: Ég keppi fyr- ir Guðjón. Og auðvitað fór hann þegar Guðjon fór. Nú vissi Dagfari ekki að Guðjón væri félag sem tæki þátt í íslands- mótum eöa bikarkeppni en það var heldur ekki það sem leikmaðurinn meinti. Það sem hann átti við var að hann keppti þar sem Guðjón þjálfaði, enda gengur það eftir að þegar Guðjón þessi skiptir um þjálfarstöðu kemur helmingurinn af leikmönnunum með honum yfir í hið nýja félag. Og svo er um fleiri þjálfara. Var ekki Grindavík að missa þjálfarann hjá sér yfir í annað félag og hvað gerðist: þrír leikmenn tilkynntu félagaskipti með honum! Nú er það sem sagt orðið þannig að í hverju knattspymufélagi eru þeir einir eftir sem sækja völhnn af gömlum vana og bíða þess svo spenntir hvaða hð hleypur inn á. Kannske veröur það hðið sem andstæðingarnir tefldu fram í fyrra. I raun og veru er orðiö úrelt með öhu að halda með einhverju til- teknu íþróttafélagi, einfaldlega vegna þess að fótboltaliðið er ekki lengur neinir leikmenn sem eru úr félaginu. Leikmennirnir eru þeir sem fá best borgað og fylgja sínum þjálfara af því að það er þjálfarinn en ekki félagið sem skiptir máh. Dagfari hefur verið að velta þessu fyrir sér og vill ekki vera gamal- dags. Dagfari nennir ekki lengur að halda með sínu gamla félagi sem skiptir um hð á hveiju ári og mað- ur veit í rauninni alls ekki hvort það vinnur nokkra sigra þegar þar að kemur. Dagfari ætlar að halda með þjálf- ara og Dagfari hefur vahð Guðjón sem sinn mann. Guðjón á sér trygga og fasta leik- menn sem fylgja honum í gegnum þykkt og þunnt og áður en yfir lýk- ur verður Guðjón þessi kominn með heilt fótboltalið sem fylgir honum hvert á land sem er og hann verður ósigrandi í deildinni og bik- arnum og það er miklu meira gam- an að fylgja hði sem sigrar en að standa með sínu gamla félagi sem aldrei vinnur neitt og fehur niður um deildir og skiptir um lið á hveiju ári. Með því að halda með Guðjóni eða einhveijum öðrum frambæri- legum þjálfara kemst festa í tilver- una og maður horfir á sinn mann og sína menn ár eftir ár og gildir þá einu undir hvaða merkjum og hjá hvaða félagi þeir keppa. Þetta verður liðið hans Guðjóns og þeir standa saman strákarnir og skítt veri með félagið. Þeir standa með Guðjóni. Og framvegis verður það ekki ÍA, KR, Fram eða Valur sem verða ís- landsmeistarar. Það verður þjálf- arinn. Dagfari Opel eðali OQfio/ cnliionlsn merki á uppl inn ó ÓKÍnn annoA óriíS í mA leið ■0- fcwiw /V M Hl " ,W5 14! !■ IUU Hl 1 1 UU 1 □PEL

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.