Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.1995, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 1995
33
Bcker er á batavegi
lóf í gær keppni á nýjan leik eftir að hafa átt í vandræðum vegna bakmeiðsla að
ia ekki búinn að ná sér fyllilega tókst honum að sigra Svíann Magnus Gustafsson,
íu móti í Essen. Becker þarf að ná langt á mótinu til að öðlast þátttökurétt í heims-
furt i næsta mánuði en þar keppa þeir átta bestu. Símamynd Reuter
Valsmenn
mæta Braga
í Höllinni
- leika heima og heiman viö Portúgalina
íslandsmeistarar Vals í handknatt-
leik munu leika heimaleik sinn gegn
portúgalska hðinu ABC Braga, í 2.
umferð Evrópukeppni meistarahða,
í Laugardalshöhinni og fer leikurinn
fram helgina 10.-12. nóvember.
Eins og kunnugt er léku Valsmenn
báða leiki sína gegn rússneska hðinu
CSKA Moskva í Þýskalandi vegna
fjárhagsástæðna og tryggðu sér þátt-
tökurétt í 2. umferð með því aö gera
jafntefli í fyrri leiknum og vinna síð-
ari leikinn með eins marks mun.
Að sögn Brynjars Harðarsonar,
formanns handknattleiksdehdar
Vals, hafa Valsmenn verið að kanna
með hópferð á síðari leikinn sem
fram fer í Portúgal 18. eða 19. nóv-
ember. „Það er mjög erfitt að fá flug-
vél á leigu á þessum tíma og mér
sýnist að þetta mál sé úr sögunni,"
sagði Brynjar.
Sluppu þokkalega frá
leikjunum við CSKA
Brynjar sagði að Valsmenn heföu
sloppið þokkalega hvað peningahhð-
ina varðar út úr leikjunum gegn
CSKA og tapið hafi ekki verið svo
ýkja mikið. Nái Valur að slá portúg-
alska hðið út úr keppninni er ljóst
að liðið mun leika nokkra Evrópu-
leiki til viðbótar en þegar 2. umferð-
inni lýkur verður Uðunum 8 sem eft-
ir eru skipt í tvo riðla og leikið heima
og heiman.
Fram vann með 31 marki
Cruyff Í5
leikja bann
Johan Cruyff, hinn frægi þjálfari spænska
stórliðsins Barcelona, var í gær úrskurðað-
ur í fimm leikja bann í spænsku knattspym-
unni og sektaður um rúmlega 250 þúsund
krónur. Cruyff fékk rauða spjaldið þegar
Barcelona mætti Valencia um helgina. Brot-
ið var á ungum leikmanni Barcelona og
ekkert dæmt, og þá rauk Cmyff inn á völl-
inn og hundskammaði dómarann. Cmyff
þurfti að setjast á meðal áhorfenda og sagði
að sem betur fer hefði hann átt frátekið
sæti þar! Þetta er í fjórða sinn sem Cruyff
er rekinn af bekknum í leik með Barcelona.
Skosku meistararnir í knatt-
spymu, Glasgow Rangers, féllu í
gærkvöldi út úr deildabikarnum
þegar þeir töpuöu, 2-1, fjmir
Aberdeen í undanúrslitum á
Hampden Park í Glasgow. Bihy
Dodds skoraði bæði mörk
Aberdeen en Oleg Salenko
minnkaði muninn fyrir Rangers.
Aberdeen leikur til úi'slita gegn
sigurvegaranum úr viðureign
Dundee og Airdrie sem mætast í
kvöld.
Fram vann yfirburðasigur á Ár-
manni, 42-11, í 2. deild karla í hand-
knattleik þegar félögin mættust í
Laugardalshöhinni í gærkvöldi.
Staðan í hálfleik var 20-5.
Jón Andri Finnsson var marka-
hæstur hjá Fram með 9 mörk. Oleg
Titov og Einar Sigurðsson skoruðu 6
mörk. Hjá Ármanni var Arnar Æv-
arsson markahæstur með 3 mörk.
Staðan í 2. deild er þannig:
HK 4 4 0 0 123-70 8
Fram 4 3 0 1 112-75 6
Fylkir 4 3 0 1 103-83 6
Þór A 3 2 0 1 78-69 4
ÍH 3 2 0 1 56-61 4
BÍ 3 1 0 2 80-83 2
Breiðablik... 3 1 0 2 72-76 2
Fjölnir 3 0 0 3 44-77 0
Ármann 5 0 0 5 100-174 0
Juninho bara varamaður?
Brasihski knattspyrnumaðurinn daginn. Hinn 22 ára gamli Juninho
Juninho, sem enska úrvalsdehdarl- kemur ekki til Englands fyrr en ann-
iðið Middlesbrough festi kaup á fyrir að kvöld og getur því ekki æft með
skömmu, er búinn að fá atvinnuleyfi hðinu fyrr en á föstudag. Hann segir
í Bretlandi en óvíst er hvort hann sjálfur aö það sé ekki sanngjarnt að
verður í byrjunarliði Middlesbrough hann fari beint í hðið án þess að
gegn Manchester United á laugar- þekkja leikmennina og leikstíhnn.
ona ekki til solu
einf alt er það“
kringum Cantona og það er útilokað
að Cantona sé á þeim buxunum að
fara frá okkur.“
Þessi svör hafa ekkí dugað forráða-
mömium Inter og margir eru orðnir
þeirrar skoöunar að þeir þurfi á
enskunámskeiði að halda. Skhji
hreinlega ekki að Cantona sé ekki til
sölu. Edwards sagöi einnig í gær:
„Eftir aht það sem á félaginu og Can-
tona hefur duniö síðasta árið ætti
engum að detta í hug að hann sé til
sölu í dag.
Roy Hodgson, nýráðinn þjáifari
Inter, sagði í gær: „Við vhjum kaupa
Cantona og nú er það forráðamanna
United að láta hann af hendi.“
Alex Ferguson, ffamkvæmdastjóri
Man. Utd, tjáöi sig einnig um máhð
í gær og sagði: „Þetta er ekki einu
sinni spurning um peninga. Viö get-
um ekki séö af leikmönnum í eldri
kantinum í dag og alls ekki eins
snjöllum leikmanni og Cantona. Ég
hef ekki rætt við nokkurn mann hjá
Inter og þeir eru að eyða tíma sínum
til ónýtis. Cantona fer ekki frá Un-
ited.“
ekki aö hann er ekki til sölu.
Kevin Phillips fagnar effir að hafa komið Watford yfir gegn meisturum Black-
burn í gærkvöldi. Blackburn tókst að knýja fram sigur áður en yfir lauk.
Símamynd Reuter
Bergkamp í aðalhlutverki
Dennis Bergkamp var í aðalhlut-
verki hjá Arsenal í gærkvöldi þegar
hðið vann öruggan sigur á 1. deildarl-
iði Bamsley, ú-3, í 3. umferð ensku
dehdabikarkeppninnar í knatt-
spyrnu.
Bergkamp átti glæsilegt skot úr
aukaspyrnu, markvörður Bamsley
varði en Steve Bould fylgdi á eftir
og skoraði. Síðan skoraði Bergkamp
sjálfur með þmmufleyg af 20 metra
færi. Lokaorðið átti Martin Keown.
Úrshtin í dehdabikarnum:
Barnsley - Arsenal...........0-3
Birmingham - Tranmere........1-1
Bolton - Leicester............0-0
Reading - Bury............. hætt
(0-2 eftir 28 mínútur, vatnsveður)
Watford - Blackburn...........1-2
Blackbum lenti í miklum vand-
ræðum í Watford og Kevin Phhhps
skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyr-
ir heimamenn. Alan Shearar og Mike
Neweh náðu að tryggja meisturun-
um sigur.
Bolton átti ahan leikinn gegn Leic-
ester, en var fyrirmunaö að skora
þrátt fyrir fjölda dauðafæra og á fyr-
ir höndum erfiðan útheik.
Íþróttír
Knattspyma:
PSV vann góðan útisigur, 1-1, á
FC Utrecht i hohensku 1. dehd-
inni í knattspymu í gærkvöldi.
Það blés ekki byrlega fyrir PSV
í upphafi leiks er Utrecht náði
forystunni. Leikmenn PSV sýndu
siðan styrk sinn er á leiö leikinn
og sigurinn var öraggur. PSV er
nu f öðra sæti deildarinnar með
28 stig og fylgir toppliðinu Ajax
fast eftir. Ájax er taplaust með
30 stig og á leik imh á PSV.
Lewis ætlar í
mál við Brano
Breski hnefaleikakappinn
Lennox Lewis hefur ákveðið að
höfða mál á hendur landa sínum
og heimsmeistara í þungavigt,
Frank Brano.
: Astæðah er sú að Lewis telur
að Bruno eigi að slást næst við
sig um heimsmeistaratitilinn en
ekki Mike Tyson sem er laus úr
fangelsi eins og kunnugt er. Lew-
is er kokhraustur að hætti hnefa-
leikakappa sem enn liafa sloppiö
við heilaskaða. Hann segir Bruno
enn minnast högganna 17 sem
hann gaf Bruno og heimsmeistar-
inn gat ekki svarað í síðasta bar-
daga þeira. Lewis segir Bruno
ekki þora að mæta sér.
Keegan bestur
í allri Evróou.
segir Sir John
Sir Jolin Hall, eigandi enska
knattspyrnuliðsins Newcastle, er
ánægöur með Kevin Keegan sem
framkvæmdastjóra og ef marka
má ummæli nhlljónamæringsins
er Keegan ekki á föram frá félag-
inu.
„Keegan er besti framkvæmda-
stjórimi í Evrópu i dag. Skihiing-
ur hans á knattspyrnu er hreint
ómilegur." sagði Sir John í gær.
„Ég útvega þá
peningasem
Keegan vantar“
Sir John Hall veit- ekki aura
sinna tal. Hann býr í 200 her-
bergja húsi skammt utan við
Newcastle og líf hans snýst að
mestu leyti um knattspyrnu.
Það hlýtúr að vera gaman og
þægilegt hjá Keegan aö vera
framkvæmdastjóri félags sem
lýtur flármálalegri yfirstjórn
þessa ríka aðalsmanns. Sir John
hefm' nefnhega látið hafa það eft-
ir sér að Keegan nefni þá leik
menn scm hann vilji fá th Newc-
astle og hann útvegi svo pening-
ana.
I}H0k Inr OTK
KOVI1IO VH0I ;
mikið á óvart“
Enn um Keegan og Sir John hjá
Newcastle.
Sir John segir að Keegan hafi
oft komið sér á óvart „Ég hélt
að Peter Beardsley væri of gam-
all. Keegan sagði nei. Hann hefur
sannað að ég hafði rangt fyiir
mér. Það tók Keegan klukku-
stund að sannfæra mig um rétt-
mæti sölunnar á Andy Cole til
Manchester United. Og á þessu
augnabliki getur enginn stuðn-
ingsmanna liðsins verið ósam-
mála þessari ákvörðun okkar á
sinum tíma,“ sagði Sir John Hall
sem telur titla mnan seihngai' hjá
Newcastle.