Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Side 16
16
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
Fréttir
r»v
Opinberrar rannsóknar krafist vegna gjaldþrotamáls A. Finnssonar hf. á Akureyri:
Islandsbanki sakaður um
að blekkja iðnaðarmenn
- ofstæki og ekki hirt um staðreyndir, segir útibússtjóri bankans á Akureyri
Gyffi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Vilhjálmur Ingi Ámason, form-
aður Neytendafélags Akureyrar og
nágrennis, hefur skorað á bústjóra
þrotabús byggingarfyrirtækisins
A. Finnsonar hf. að hann vísi
ákveðnum þáttum gjaldþrotamáls
fyrirtækisins til Rannsóknarlög-
reglu ríkisins og saksóknara til
rannsóknar. Um er að ræða það
sem Vilhjálmur Ingi kallar „víta-
verða framkomu íslandsbanka af
störfum fyrirtækisins fyrir gjald-
þrotið og blekkingar sem hafðar
voru uppi gagnvart iðnaðarmönn-
um sem unnu fyrir fyrirtækið".
Afrit af bréfinu til bústjóra voru
send Seðlabanka íslands, ríkissak-
sóknara, dómsmálaráðherra, við-
skiptaráðherra, skattrannsóknar-
stjóra, {jármálaráðherra, bæjar-
stjórn Akureyrar og bankastjórn
íslandsbanka.
„Það sem ég vil að verði leitt í
ljós er hvemig íslandsbanki hefur
blekkt viöskiptavini sína meö því
að telja þeim trú um að hagur A.
Finnsonar hf. væri í lagi og færi
batnandi á þeim 30 mánaða tíma
sem fyrirtækið starfaði. Með þessu
fékk útibússtjóri bankans verktaka
tíl að vinna fyrir fyrirtækið og þeg-
ar greiðslur komu fyrir þau verk
runnu þær til bankans en verktak-
amir voru skildir eftir með sárt
ennið. Á 30 mánaða tímabili mynd-
uðust á þennan hátt um 100 millj-
óna króna kröfur verktaka á Akur-
eyri gagnvart fyrirtækinu sem ekki
fást greiddar.
Ég vil að það verði rannsakað
hvemig bankinn blekkti menn til
að ná inn fjármagni. Þess vegna tel
ég að þessir iðnaðarmenn eigi
skaðabótakröfur á hendur bankan-
um. Þeir héldu fyrirtækinu gang-
andi á meðan það var með 116 millj-
óna króna yfirdrátt en á sama tíma
sagði bankastjórinn að hagur fyrir-
tækisins væri góður og færi batn-
andi. Frá fyrsta degi fyrirtækisins
var það með 20 milljóna króna yfir-
drátt í bankanum sem endaði í 116
milljónum og þar af voru tæpar 50
milljónir í óheimilum yfirdrætti. Á
sama tíma gaf bankinn það út m.a.
til bæjarfulltrúa að fyrirtækið
hefði yfirburðastöðu byggingarfyr-
irtækja á Akureyri. Ég hef öll gögn
til aö sanna þetta mál og ef þetta
er ekki blekking þá veit ég hvað
er blekking," segir Vilhjálmur Ingi.
„Ofstækisfullur“
„Það er erfitt að henda reiður á
málflutningi Vilhjálms Inga, enda
er hann bæði ofstækisfullur og
hirðir htt um staðreyndir eða sann-
leikann í málinu. Það er ljóst að
bankinn hefur hvorki haft fé af iðn-
aðarmönnum né öðrum viðskipta-
mönnum A. Finnsonar. Bústjóri
getur upplýst hvaða greiðslur bár-
ust bankanum vegna A. Finnsson-
ar hf., máhð er ekki flóknara en
það,“ segir Guðjón Steindórsson,
útibússtjóri íslandsbanka á Akur-
eyri, um þessar ásakanir Vilhjálms
Inga.
Ægir Már Kárason, DV, Suðumœgum:
Ljósfari GK, sem er f eigu ís-
lenskra aðalverktaka, hefur verið
í shpp í Njarðvík undanfama
daga. Útbúa á skipið á hnu með
beitingarvél. Þá verður nafni
skipsins breytt úr Ljósfara í
Njarðvík KE 93 frá Reykjanesbæ.
Einnig verður skipið ailt málaö.
Eins og fram kom í DV hafa ís-
lonskir aðalverktakar leigt bæði
skip sín til Útgerðarfélags Akur-
eyringa. Bæði skipin verða gerð
út frá Reykjanesbæ sem verður
heimahöfn þeirra.
Reykjanesbær:
Ný skokkbraut
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þetta er til að mæta þörf íbúanna
í bænum sem hafa verið á vetuma á
hlaupabrautinni í kolniðamyrkri og
spjó og átt í erfiðleikum. Með þessum
framkvæmdum er komið til móts við
almenning í þessu trimmi og verður
hægt aö nota brautina allt árið,“
sagði Ragnar Öm Pétursson, form-
aður íþróttaráðs Reykjanesbæjar.
Framkvæmdir við skokkbraut fyr-
ir almenning við aöalvöhinn í Kefla-
vík hafa mælst mjög vel fyrir hjá
trimmurum og öðrum íbúum. Hring-
urinn, sem er 500 metrar, verður
upphitaður og einnig verður sett lýs-
ing til að lýsa upp skokkbrautina.
Rúmlega 60 manns á öllum aldri og
flestir komnir yfir miðjan aldur
skokka reglulega. Með tilkomu
brautarinnar eiga eflaust fleiri eftir
að bætast við þann hóp. Þá getur
fólkið notað búningsaðstöðu í kjaU-
ara sundmiðstöðvarinnar og verður
opið á vissum tímum. HeUdarkostn-
aður viö brautina nemur 5,5 núlljón-
um.
EUert Skúlason verktaki sér um
verkið og verður brautin tilbúin í
nóvember.
Flugfélag Vestmannaeyja
kaupir tveggja hreyf la f lugvél
Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum:
Fyrir síðustu helgi skrifaði Valur
Andersen, aðaleigandi Flugfélags
Vestmannaeyja, undir samning um
kaup á tveggja hreyfla flugvél í Eng-
landi.
Valur sagði að véhn væri af gerð-
inni Partenavia P68B, þeirri sömu og
flugvél félagsins sem fórst í sumar.
„Ég fór út og skoðaði flugvélina í
síðustu viku. Mér leist strax mjög vel
á hana og skrifaði undir kaupsamn-
ing úti,“ sagði Valur.
Flugvéhn er sex tU sjö sæta einka-
vél og hefur lítið verið flogið. Hún
lítur mjög vel út enda var hún öll
yfirfarin á síöasta ári og er mjög vel
búin tækjum.
„Vélin er sérstaklega hentug til
flugs á BakkaflugvöU og Selfoss. Nú
bíðum við bara eftir hagstæðu veðri
til að fljúga henni tíl landsins en þá
á eftir að umskrá hana. Þaö tekur
einhveija daga en ég er að vonast tíl
þess að vélin verði komin í notkun
eftir viku til hálfan mánuð,“ sagði
Valur.
Fyrir á Flugfélag Vestmannaeyja
eina tveggja hreyfla vél og þrjár eins
hreyfils.
Vestmannaeyjar:
Fiskbúð-
inni lokað
Ómar Garðaras., DV, Vestmannaeyjum;
„Þrátt fyrir að við höfum reynt
að bjóða upp á mikið og gott úr-
val af ferskum fiski og fiskréttum
hefur viðskiptavinina vantað.
Síðustu mánuöi höfum við borg-
að meö búöinni og sjáum viö okk-
ur því tilneydda að loka,“ sögðu
þeir Björgvin Jóhannsson og
Bergur Sigmundsson sem eiga og
reka Fiskbúðina við Herjólfsgötu.
Þeir hafa ákveöið að loka henni
um helgina og verður þá engin
fiskbúð i Vestmannaeyjum.
Samhhða fiskbúöinni reka þeir
fiskverkunina Heimafisk og held-
ur starfsemin áfram þar.
Bjarni Svendsen, starfsmaður hjá Ellert Skúlasyni verktaka sem sér um framkvæmdir við nýja skokkbraut í Keflavík.
Viðbyggingu
Helgi Jónœan, DV, Ólafafirði:
Framkvæmdir við viðbyggingu
og safnaðarheimili Ólafsfjaröar-
kirkju hefjast næsta vor. Upphaf-
leg áætlun var að byija á þessu
haustí. Útboð fer fram í vetur.
Stefnt er að þvi aö öUum fram-
kvæmdum verði lokiö um alda-
mót, eða innan fjögurra ára. Ól-
afsfjarðarkirkja þarf að fjár-
magna bygginguna sjálf en auk
þess kemur flármagn frá jöfnun-
arsjóði sókna.
Allir eru sammála um að það
sé aðkallandi verkefni að stækka
kirkjuna tU að hún geti tekið á
móti fólki sem sækir fjölmenn-
ustu kirkjuathafnir, sérstaklega
fermingar og jarðarfarir.
Næst á dagskrá er að kynna
teikningar og áform sóknar-
nefndarinnar og mun það standa
næstu tvo mánuði. Sérstaklega
gefst fólki, sem býr í nágrenni við
kirkjuna, tækifæri á aö kynna sér
málið og koma athugasemdum á
framfæri ef einhvetjar eru.
Þaö var Fanney Hauksdóttir,
arkitekt á Akureyri, sem teiknaði
safhaðarheimihð og viðbyggingu
kirkjunnar.
félagsheimilis-
insboðinnút
Helgi Jónsson, DV, Ófafafiröi:
Rögnvaldur Ingóifsson, sem
hefur rekið félagsheimihð Tjarn-
arborg undanfarin ár, hefur sagt
starfi sínu lausu. Ekki er ljóst
hvað tekur við en að sögn Helgu
Jónsdóttur, formamis stjómar
Tjarnarborgar, eru ýmsar hug-
myndir um rekstrarform í fram-
tíðinni komnar fram. Langlíkleg-
ast er að reksturinn verði boðiim
út á ahra næstu dögum. Mynd-
bandaleiga hússins hefur gengið
illa enda ótnilega mikil sam-
keppni á því sviði hér í bæ. Þrjár
leigur eru í bænum. Kvikmyndir
eru sýndar tvis var í viku og hefur
gengið á ýmsu með þann þátt
rekstrarins en aðsókn hefur
minnkað mikið frá því fyrir
nokkrura árum. .