Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 27
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995
39
Fréttir
Blysför og sameiginlegar útvarps- og sjónvarpssendingar:
Samhugur um söfnun
fyrir Flateyringa
- tæplega 300 gáfu vinnu sína um helgina
Allir íjölmiðlar landsins, Póstur og
sími, Hjálparstofnun kirkjunnar og
Rauði kross íslands standa að lands-
söfnuninni Samhugur í verki fórn-
arlömbum eyðileggingar snjóflóð-
anna á Flateýri til handa. Söfnunin
hófst á laugardag og lýkur á morgun.
Tæplega 300 sjálíhoðaliðar frá
Rauða krossi íslands, fjölmiðlum,
aðventistum, Félagi framhaldsskóla-
nema og fleiri tóku í gær við framlög-
um frá almenningi og fyrirtækjum
og var svarað í um 40 síma en fjöl-
mörg fyrirtæki lögðu einnig fram
tæki, þjónustu og vinnu starfsmanna
sinna. í dag verður símunum fjölgað
í 90 en fjölmiðlar leggjast á eina sveif
þennan dag tfl að minna fólk ræki-
lega á hvemig það geturorðið að liði.
Sameiginleg útsending allra útvarps-
stöðva verður í dag frá klukkan 9 til
hádegis og aftur frá klukkan 13 til
16. Munu ákveðnir þáttagerðarmenn
frá öllum útvarpsstöövum taka þátt
í útsendingunni sem fer fram í hús-
næði rásar 2 í Efstaleiti. í stað stilli-
myndar munu sjónvarpsstöðvarnar
vera með beinar útsendingar frá
söfnunarmiðstöð og samsendingu
útvarpsstöðvanna.
Aukinheldur munu sjónvarps-
stöðvarnar, Stöð 2 og ríkissjónvarpið
síðan vera með samsendingu, frá
klukkan 20.30 til 22.00, sem helguð
er landssöfnuninni vegna náttúru-
hamfaranna á Flateyri. Þar mun
fjöldinn allur af landsþekktum hsta-
mönnum koma fram og fylgst verður
með framgangi söfnunarinnar í
beinni útsendingu. í útsendingunni
verður einnig sjónvarpað frá blysfór
sem Félag framhaldsskólanema hef-
ur skipulagt. Gengið verður frá
Hlemmi klukkan 20 niður á Ingólfs-
torg og eru allir hvattir til þátttöku.
Forseti íslands fer fyrir göngunni og
lýkur athöfninni á Ingólfstorgi um
kl. 21 með því að forsetinn flytur
kveðju og biður þjóðina að sameinast
í einnar mínútu þögn.
Til að koma framlagi til skila er
eingöngu hægt að hringja í grænt
númer 800-5050 frá klukkan 9 til 22 í
dag og á morgun eða með því að
leggja beint inn á söfnunarreikning
númer 1183-26-800 í Sparisjóði Ön-
undarfjarðar, Flateyri. Gíróseðlar
hggja frammi í öllum bönkum, spari-
sjóðum og pósthúsum á landinu. Þótt
söfnuninni ljúki formlega á morgun
er rétt að geta þess að söfnunarreikn-
ingurinn verður eftir sem áður opinn
fyrir frekari fjárframlögum. Að
gefnu tilefni er minnt á að hvorki er
gengið í hús né hringt eftir framlög-
um á vegum söfnunarinnar.
Fulltrúar í sjóðsstjórn verða skip-
aðir af forsætisráðuneyti, sveitar-
stjórn Flateyrar, Rauða krossi ís-
lands, Hjálparstofnun kirkjunnar og
íjölmiðlum.
-PP
ARM0RC0AT-0RYGGISFILMAN
ER LÍMDINNAN Á VENJULEGT GLER
• Breytir rúðunni í öryggisgier
(innbrot, fárviöri, jarðskjálftar)
• Sólarhiti minnkar um 75%
• Upplitun minnkar um 95%
• Eldvarnarstuðull F-15
ARMORCOAT
SKEMMTILEGT HF.
SÍMI587-6777
V BÍLDSHÖFÐA 8 J
__ i
arunaur
með borgarstjóra
Páll Þorsteinsson, talsmaður söfnunarinnar Samhugur í verki, Páll Stefánsson, í söfnunarstjórn, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri og fleiri taka á móti framlögum í söfnunarmiðstöðinni. DV-mynd Ólafur Jónsson •
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri
heldur fund með íbúum
Túna-
Holta-
Norðurmýrar-
» og Hlíðahverfis
í Ráðhúsinu mánudaginn 30. október
kl. 20.00
Á fundinum mun borgarstjóri m.a.
ræða um áætlanir og framkvæmdir í
hverfunum. Síðan verða opnar umræður
og fyrirspumir með þátttöku fundar-
manna og embættismanna borgarinnar.
Jafnframt verða settar upp teikningar af
fyrirhuguðum framkvæmdum í
hverfunum ásamt öðru fróðlegu efni.
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.
Hrútafjörður:
Reykvíkingum
vísaðúrsýslunni
Lögreglan á Hólmavík vísaði
tveimur Reykvíkingum úr Stranda-
sýslu eftir að þeir játuðu að hafa
neytt eiturlyíja og tól til shkrar
neyslu fundust í bfl þeirra í Hrúta-
firði um helgina.
Athuguhr vegfarendur létu lög-
regluna vita af undarlegu aksturslagi
á bíl í Hrútafirðinum. Við leit í bíln-
um fundust ekki flkniefni og þótti
því ekki ástæða til að vista Reykvík-
ingana í fangageymslum.
-GK
Ljósá
Tjörninni
Flateyringar, jafnt burtfluttir sem
þeir sem komu til Reyjavíkur um
helgina, og aðstandendur þeirra
komu saman við Tjörnina á laugar-
dagskvöldið með kertaljós til að
minnast látinna ættingja og ástvina.
Hér er Sóley Eiriksdóttir, fyrir miðju,
ásamt tveimur ungum Flateyringum
að setja kerti á Tjörnina en Sóley
var í hópi þeirra sem björguðust úr
snjóflóðinu. Hún missti systur sina,
Svönu, í flóðinu og vin hennar, Hall-
dór Ólafsson. Blysförin var farin að
frumkvæði unglinganna á Flateyri.
DV-mynd S
Skorið á bíldekk:
Unglingur sást
með blikandi hníf
Skorið var á bekk á allmörgum ingar munu og hafa verið þar á
bílum í Rofabæ í fyrrinótt og einnig ferð.
voru eyðilögð dekk á dráttarvél við Þegar fólk við Rofabæ kom út í
Hábæ. gærmorgun haiði verið skorið á
dekk á bílum þar.
Sjónarvottur sá til unglings með Höíðu allmargir bfleigendur orð-
blikandi hnif við dráttarvélina. Lét iö fyrir tjóni vegna þessa. Lögregl-
sá lögreglu vita en ekki hafíSist an rannsakar máhn sem enn eru
uppi á sökudólgnum. Fleiri ungl- óuppplýst. -GK