Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1995, Blaðsíða 25
MÁNUDAGUR 30. OKTÓBER 1995 37 Fréttir Löng saga hörmunga og slysfara í Önundarfirði: Nýtt fólk kemur og gömlu slysin gleymast - segir Gunnlaugur Finnsson, fyrrverandi alþingismaöur „Stóru slysin gleymast með tíman- um, nýtt fólk kemur en svo er eins og allar hörmungarnar gangi yfir að nýju með reglulegu milhbili," segir Gunnlaugur Finnsson, fyrrverandi alþingismaður og bóndi í Önundar- firði, um langa og átakanlega slysa- sögu byggðarlagsins. Aðfaranótt fimmtudagins -fórust 20 menn á Flateyri í snjóflóðinu mikla. Þar urðu Önfirðingar að sjá á eftir ungu fólki og börnum. Líkar hörm- ungar hafa áður sótt byggðina heim. í október árið 1964 fórust sjö Flateyr- ingar á besta aldri þegar vélbátarnir Snæfell og Mummi sukku á sama sólarhringnum. Tveir komust af. Enn ægilegri sjóslys urðu þó í Ön- undarfirði árið 1812 þegar sjö skip fórust í áhlaupsverðri um mitt sum- ar. Þá drukknuðu 54 menn eða nær allir vinnufærir karlmenn í firðin- um. Setti mannskaðinn þá svip sinn á byggðina lengi á eftír. Snjóflóð hafa einnig tekið sinn toh þótt aldrei hafi orðið mannskaði á Flateyri áður. Árið 1934 fórust þrír í snjóflóði á hlíðinni fyrir utan Flat- eyri. Voru þeir að leita kinda 27. okt- óber en komu aldrei aftur. Þann dag gekk svipað áhlaupsveður yfir landið og gerði í síðustu viku. „Hörmungar sem þessar setja auð- vitað mark sitt á Utlar byggðir. Þetta hefur verið mikil blóðtaka í gegnum árin,“ sagði Gunnlaugur. -GK „Eg held ég gangi heim"! Eftir einn -ei aki neinn Sjálfvirkir ofnhitastillar. Öryggi, sparnaður, þægindi. VATNSVIRKINN hf. ÁRMÚLA 21, REYKJAVÍK Smáauglýsingar Vörubílar Scania 141. Til sölu góður fjölnota bíll neð 20 tonna spili og lyftibúnaði, 8 iús. 1 vatnstanki og 3 pöllum. Til P'eina kemur að taka ódýrari, 6 hjóla ■'örubíl upp í. Uppl. í símum 893 6736, 153 6736, vs. 564 3870 eða hs. 554 4736. Þjónusta 3assamyndir. Brúðar-, barna-, fermingar-, fjölskyldu- ig einstaklingsmyndatökur. Nýja Vlyndastofan, Laugavegi 18, a'rni 551 5125. Hei/sa frimform Berglindar býður alla velkomna í frían prufutíma. Komið þangað sem árangur næst. Erum lærðar í rafnuddi. Opið frá 7.30-22 v. daga. Visa/Euro. S. 553 3818. Láttu ekki flutninginn valda þér óþarfa kostnaði og óþœgindum. Auðveld leið til að greiða reikninginn. Mikilvægt er að tilkynna flutning tímanlega og fá flutningsálestur. Flutningsálestur á réttum tíma tryggir að hver notandi greiðir aðeins sinn hlut. Ef þú ert að flytja hafðu þá samband við flutn- ingsálestur í síma 560 4630 og tryggðu að þú borgir ekki rafmagnið fyrir þann sem flytur inn! Það er ekki aðeins þægilegt að greiða rafmagnsreikninga með sjálfvirkum, mánaðarlegum millifærslum. Með boðgreiðslum Visa og Eurocard og beingreiðslum af banka- og sparisjóðsreikningum sparar þú þér einnig peninga. Hver boðgreiösla veitir þér 19 kr. greiðsluafslátt og hver beingreiðsla 37 kr. greiðsluafslátt. Auk þess færð þú 623 kr. aukaafslátt í byrjun. Vilt þú vita meira? Hringdu í afgreiðslusíma okkar 560 4610, 560 4620 eða 560 4630. 3 RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR SUÐURLANDSBRAUT 34 108 REYKJAVIK SÍMI 560 4600 FAX 581 4485

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.