Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Qupperneq 7
27
Dyrvítis
Alastair MacNeill
Þegar fyrr-
verandi eig-
inmaöur
Nicole er
myrtur í E1
Salvador og
ung dóttir
þeirra hverf-
ur er aðeins
einn maöur
sem hún getur leitað til - fyrr-
verandi elskhugi hennar,
málaliðinn Richard Marlette.
En hann á yfir höfði sér
dauðadóm ef hann snýr aftur
til E1 Salvador og þar eru
samsærismenn á hverju strái
og svik við hvert fótmál.
279 blaðsíður.
Iðunn.
Verð: 2.680 kr.
Ennislokkur einvaldsins
Herta M'ller
Óvenjuleg
skáldsaga frá
síðustu dög-
um einræðis-
ins í Rúmen-
íu. Herta
M”ller (f.
1953) nær á
ljóðrænan
hátt að sýna
okkur hvernig sekt og sak-
leysi eru samofin í fórnar-
lömbum allra einræðis-
stjórna. Skáldkonan fæddist í
Rúmeníu en hún tilheyrir
hinum þýska minnihluta í
landinu. Hún býr nú í Þýska-
landi þar sem hún hefur feng-
ið nokkur bókmenntaverð-
laun.
286 blaðsíður.
Ormsttmga.
Verð: 2.800 kr.
Feginn mun ág fylgja þér
Gore Vidal
Hér segir frá
Blondel,
hirðskáldi
Ríkharðs
ljónshjarta,
sem fylgir
húsbónda
sínum heim
úr krossferð
og fómar öllu til að koma
honum til hjálpar þegar kóng-
ur fellur i óvinahendur. Vidal
spinnur þráð miðaldasögunn-
ar með allri þeirri ógn, fá-
fræði og töfrum sem hún býr
yfir en skrifar hana með hlið-
sjón af eigin lífsreynslu.
224 blaðsíður.
Skerpla.
Verð: 1.980 kr.
GOREVIDAL
FEGINN
MUN ÉG
FYLGJA
ÞER
Fegurst allra
, , Barfaara Cartland
_feart]and— jarlinn
af
Fegurst allra Eldridge erf-
ir mikil auð-
æfi og ákveð-
ur að deila
happi sínu
með bestu
vinum sin-
um. Hann
® heldur mikla
veislu fyrir þá og setur upp
eitt skilyrði: Hver þeirra
verður að koma með unga,
fallega stúlku með sér. Þær
eiga svo að keppa um það
hver er fegurst allra. Sigur-
vegarinn mun tilheyra jarlin-
um. Einn vina hans, Sir Ed-
ward Howe, sem er þekktur
sem Harry, er niðurdreginn
þegar sú sem hann var búinn
að velja með sér getur ekki
komist. En honum tekst að
finna aðra stúlku til að fara
með sér, stúlku sem gæti ver-
ið fegurst allra. Það er þessi
stúlka sem kemst aö því að
ætlunin er að byrla jarlinum
eitur og hún finnur einnig
Harry þar sem hann liggur
meðvitundarlaus.
176 blaðsíður.
Skuggsjá.
Verð: 1.995 kr.
Fín og rík & liðin lík
Suzanne North
Sagan gerist
á dýrum
heilsurækt-
arstað í
kanadísku
Klettafjöllun-
um. Ódæði
er framið en
hver var þar
að verki? Sjónvarpsþula með
þúsund vatta bros, herða-
breiður kúreki með grannar
lendar, japanskur listakokk-
ur, eða einhver annar af þeim
sérstaka hópi sem leiddur er
til sögunnar?
224 blaðsíður.
Úrvalsbækur.
Frjáls fjölmiðlun.
Verð: 895 kr.
Framtíðarvonir
Eva Steen
Hún elskaði
hann af öllu
sínu hjarta
en það grúfði
skuggi yfir
sameigin-
legri framtíð
þeirra. Hún
hafði játast
honum en
það var ekki víst að vonir
þeirra rættust. Myndi dauð-
inn aðskilja þau áður en líf
þeirra saman hafði yfirleitt
hafist? Það valt allt á því að
lyfið sem þar til nú hafði að-
eins virkað í einu tilfelli
læknaði aftur.
152 blaðsíður.
Skuggsjá.
Verð: 1.995 kr.
Frú Bovary
Gustave Flaubert
Eitt umtalað-
asta skáld-
verk Flau-
berts. Frú
Bovary lýsir
á ógleyman-
legan hátt
mannlegu
eðli: heitum
ástríðum sem vakna skjótt en
slævast fljótt. Pétur Gunnars-
son þýddi.
265 blaðsíður.
Bjartur.
Verð: 2.980 kr.
Gullauga
John Gardner
Þú þekkir
nafnið, þú
þekkir núm-
erið. 007,
James Bond,
með leyfi til
að drepa. Hér
glímir Bond
við illsku og
spillingu i Rússlandi eftir
Sovétárin.
Gullauga er jafhframt ein af
jólamyndum Sambíóanna í
ár, með Pierce Brosnan í hlut-
verki Bond.
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur.
Frjáls fjölmiðlun.
Verð: 895 kr.
Göngulag tímans
Sten Nadolny
Skáldsaga
sem Qallar
um hinn
fræga enska
sæfara og
GönGulaq íandkönnuö
T I M A N S John Frank-
lin (1786-
1847). Höf-
undur dregur upp mynd af
persónu sem er sérkennilega
hæg í tali og hugsun og legg-
ur annan mælikvarða á tím-
ann en flestir í kringum
hann. Samt kemst hann
lengra en aðrir að lokum.
310 hlaðsiður.
Mál og menning.
Verð: 3.480 kr.
Heimili dökku fiðrildanna
Leena Lander
Juhani Jo-
hansson
verkfræðing-
ur rifjar upp
bernsku sína
á heimili fyr-
ir munaðar-
lausa drengi.
Skáldsaga
um illsku, ótta, ást og von.
Saga um flókið samband
manneskjunnar við sjálfa sig
og aðra og ekki síst við nátt-
úruna.
252 blaðsíður.
Forlagið.
Verð: 1.980 kr.
Hetja vorra tíma
Mikhaíl
Lermontov
Rússnesk
skáldsaga
frá fyrri
hluta 19. ald-
ar um hinn
rómantíska
illvirkja Pet-
sjorín. Árni
Bergmann ritar eftirmála.
200 blaðsíður,
Mál og menning.
Verð: 890 kr.
Hringadróttinssaga III: Hilmir
snýr heim
J.R.R. Tolkien
Lokabindi
sagnabálks
Tolkiens.
Umsátrið
mikla um
Mínas Tíríð.
Aragorn rís
upp sem
konungur í
göfugri tign. Fróði og Sómi
brjótast fram á eldbarm
Hryðjugígs.
Um 400 blaösíður.
Fjölvi.
Verð: 3.860 kr.
Hvað varð um barnið mitt?
Patricia Wright
Sally Martin
var gift
Argentinu-
manni sem
herforingja-
stjórnin þar í
landi lét
„hverfa“.
Sjálf ól hún
barn í myrkum fangaklefa en
var síðan rekin úr, landi.
Henni var sagt að barnið
hefði fæðst andvana, þó
fannst henni hún hafa heyrt
barnsgrát. Þremur árum síð-
ar snýr hún aftur til Argent-
ínu undir nýju nafni til þess
að komast að því hvað hafi
orðið um bamið hennar.
320 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1.990 kr.
Hægur vals í Cedar Bend
IIKI.I I! UI.S
i ittiu; isrvu
Robert James
Waller
Ný bók eftir
höfund met-
sölubókar-
innar Brýrn-
ar í Madi-
sonsýslu.
Hægur vals í
Cedar Bend
segir frá Jellie Braden sem er
innilokuð í ástríðulausu
hjónabandi og einfaranum
Michael Tilman. Þau laðast
hvort að öðru og smám saman
breytist líf þeirra beggja. Er
hún hverfur á braut til þess
að glíma við leyndarmál úr
fortiðinni kastar hann öllu frá
sér og heldur á eftir henni.
231 blaðsíða.
Vaka-Helgafell.
Verð: 1.990 kr.
Hönd að handan
Arlene Shovald
Spenna - ást-
ir - afbrýði
er undirtitill
þessarar
sögu sem er
í senn
spennusaga,
ástarsaga og
jafnvel
draugasaga!
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur.
Frjáls fjölmiðlun.
Verö: 895 kr.
í allri sinni dýrð
Kirsten Holst
Hér segir
Holst frá lög-
reglumann-
inum Hoyer
sem kominn
er á eftir-
laun, en læt-
ur til leiðast
aö leita að
vinkonu
fyrrverandi vinnufélaga síns,
en vinkonan er týnd á Kanari-
eyjum. Og fyrr en varir er
Hoyer kominn á kaf í mál sem
er allt annað en hættulaust.
Bækur
192 blaðsíður.
Úrvalsbækur.
Frjáls fjölmiðlun.
Verð: 895 kr.
Konan sem man
Linda Lay Shuler
Skáldsög-
unni hefur
verið líkt við
bækur Jean
M. Auel um
stúlkuna
Aylu. Sagan
gerist í lok
13. aldar í
Ameríku. Kvani er ung
indjánastúlka sem hrakin er
burt frá ættbálki sínum sök-
um þess að hún hefur blá
augu og er því talin norn. Sag-
an lýsir leit hennar að nýjum
heimkynnum, nýrri ást, en
óvinir og óblíö náttúra fylgja
henni við hvert fótmál. í fjar-
lægu gljúfri gerir hún síðan
uppgötvun sem gjörbreytir
öllu lífi hennar.
429 blaðsíður.
Vaka-Helgafell.
Verð: 2.990 kr.
Láttu hjartað ráða för
Susanna Tamaro
Þessi bók
kom fyrst út
í heimalandi
höfundar,
Ítalíu, fyrir
18 mánuðum
og hefur
selst þar í 2
milljónum
eintaka. Og
hefur nú komið út á 20 tungu-
málum og hvarvetna hlotið
góöar viðtökur. Amman er
dauðvona og skrifar bréf til
ungrar dótturdóttur sinnar í
Ameríku. Hún rifjar upp lið-
inn tíma og leyndarmálin
streyma fram. Segir frá harm-
sögu dóttur sinnar, móður
stúlkunnar, foreldrahúsum,
hjónahandi, skrifar um djúp-
ar tilfinningar, sorg og gleði.
160 blaðsiður.
Setberg.
Verð: 1.980 kr.
Litla skólahúsið
Jim Heynen
Bandaríski
rithöfundur-
inn Jim
Heynen hefur
sent frá sér
smásagna-
söfn og
einnig nokkr-
ar ljóðabæk-
ur. Sögur
hans njóta nú vaxandi vin-
sælda vestur í Bandaríkjun-
um en sumarið 1994 kom
hann til íslands og las þá upp
úr verkum sínum fyrir ís-
lenska áheyrendur. Sögurnar
sem ílestar eru örstuttar ger-
ast í sveitahéruðum Iowa og
greina frá lífi drengjanna á
akuryrkjubýlunum á slétt-
unni og óvæntum uppátækj-
um þeirra. Gyrðir Elíasson
rithöfundur valdi sögurnar og
íslenskaði.
151 blaðsíða.
Hörpuútgáfan.
Verð: 1.780 kr.