Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
Fréttir
Þjóðminjavörður áminn-
ir fornleifafræðing
- Vilhjálmur segist ætla aö ráðfæra sig við lögmann sinn
Þór Magnússon þjóðminjavörður
hefur áminnt Vilhjálm Öm Vil-
hjálmsson, fomleifafræðing á Þjóö-
minjasafninu, fyrir framgöngu hans
í starfi.
Eins og kunnugt er hafði Vil-
hjálmur Örn talsverð afskipti af
Miðhúsasilfurmálinu allt frá upp-
hafi þegar breskur sérfræðingur var
kallaður hingað til lands í þeim til-
gangi að ganga úr skugga um upp-
runa þess.
„Ég áminnti hann vegna fram-
komu hans í starfl. Ég vil ekki fara
frekar út í það í smáatriðum hvers
vegna áminningin er til komin.
Þjóðminjaráð hefur líka fjallað um
hans mál og svarað honum,“ sagði
Þór við DV í gærkvöld.
„Mér finnst þetta mál hið undar-
legasta þar sem það fyrsta sem ég
heyrði af því var þegar ég fékk
áminninguna. Ég fékk aldrei að
flytja mál mitt fyrir þjóðminjaráði
og vil ekkert tjá mig um það hvort
eftirmál verða nema að höfðu sam-
ráði við minn lögmann," var það
eina sem Vilhjálmur vildi láta eftir
sér hafa.
Þór segist ekki hafa þurft að
áminna starfsfólk Þjóðminjasafns-
ins áður í starfi og veit ekki til þess
að forverar sínir hafi gert slíkt.
„Svona gerir maður nú ekki fyrr en
i fulla hnefana." Hann segir að láti
Vilhjálmur sér ekki segjast verði að
skoöa það í mjög alvarlegu ljósi.
„Þetta snertir ekki bara viðkomandi
persónu og yfirmann heldur líka
vinnustað mannanna." -pp
Kaupfélag Húnvetninga:
Hundrað ár í
Húnaþingi
DV, Húnaþmm- Upp á 100 ára afmæli ÞeSS Um helg-
—1----1---------- ina. Á laugardag var mikil örtröð í
Það voru mörg hundruð manns aðalverslunarhúsi félagsins. Þar lék
sem lögðu leið sína í Kaupfélag Bubbi Morthens og söng fyrir búð-
Húnvetninga þegar þar var haldið argesti. Einnig var boðið upp á af-
Samkórinn Björk söng á hátíðarsamkomunni.
Fjölmenni sótti afmælishátíð Kaup-
félags Húnvetninga og meðal þeirra
var Páll Pétursson ráðherra.
DV-myndir Magnús
mælisköku á skrifstofum félagsins.
Á sunnudag 17. des. var hátíðar-
samkoma í félagsheimilinu og sótti
hana á fjórða hundrað manns. Þar
flutti stjómarformaður KH, Jón B.
Bjamason, bóndi og oddviti í Ási,
hátíðarræðu og mörg ávörp vora
flutt og kaupfélaginu færðar gjafir í
tilefni tímamótanna. Einnig sungu
tveir kórar og feðginin frá Litladal
sungu einsöng og tvísöng.
-MÓ
Samningur menntaskólanema við leigubíla:
Aftur með strætó
- aldrei hugsaö til frambúðar, segir fulltrúi nemenda
Þegar strætisvagnafargjöldin
hækkuðu 1. október sl. urðu fram-
haldsskólanemar óánægðir og nem-
endur í Menntaskólanum við Sund
leituðu til BSR um að flytja sig til og
frá skóla. Þetta var gert í viku til tíu
daga en þá virðist botninn hafa dott-
ið úr öflu saman og þeir aftur farið
að fara með strætó.
„Þetta var aðallega hugsað til að
vekja athygli á hækkun strætisvag-
nafargjaldanna og aldrei hugsað til
frambúðar. Þetta tókst ágætlega
sem slíkt, við vöktum athygli á þess-
ari hækkun, og þaö var þónokkur
fjöldi nemenda sem notfærði sér
leigubílana þá daga sem þetta stóð
yfir,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, ár-
maður Skólafélagsins í MS, í sam-
tali við DV. „Þessi hugmynd kom
upp hjá Félagi framhaldsskólanema
en við í MS útfærðum hana,“ sagði
hún enn fremur.
-ÞK
Líf og fjör á Laugum:
Brúðkaup sett á
svið á hjónaballi
- með hár- og tískusýningu
Á árlegu hjónaballi, sem haldið
var nýlega í félagsheimilinu Breiðu-
mýri í Þingeyjarsýslu, var bryddað
upp á þeirri nýjung að vera með
hár- og tískusýningu. Sýningin
tókst mjög vel og fékk frábærar við-
tökur ballgesta.
Tólf fyrirsætur frá Laugum og ná-
grenni sýndu kvenfatnað frá versl-
uninni Esar á Húsavík og karl-
mannafatnað frá herradeild KÞ á
Húsavík. Sett var á svið brúðkaup
og klæddist ein fyrirsætan brúðar-
kjól sem saumaður var á Laugum.
Brúðarvöndurinn kom frá blóma-
versluninni Björk á Húsavík.
Elínborg Benediktsdóttir, hár-
greiðslumeistari á Hárstofunni á
Fjalli, sá um hárgreiðslu á fyrirsæt-
unum og annan undirbúning sýn-
ingarinnar.
Fyrirsæturnar tólf sem þátt tóku f hár- og tískusýningu á hjónaballi á Breiöu-
mýri nýlega ásamt Elínborgu Benediktsdóttur hárgreiðslumeistara, sem er
lengst til vinstri í fremstu röð, en hún undirbjó sýninguna.
DV
Akureyri:
Höfuökúpubrot
á bílastæði
DV, Akureyri:
Ungur maður varð fyrir bif-
reið á bílastæði verslunarmið-
stöðvar á Akureyri um helgina
og hlaut af alvarleg meiðsli.
Tildrög óhappsins munu hafa
veriö þau að eldri maður, sem
átti þar leiö um, varð fyrir að-
kasti hóps unglinga þegar hann
var að setjast upp í bifreið sína.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu mun hafa komiö fát á
manninn sem ók á einn ungling-
inn en stakk síðan af.
Lögreglan hafði fljótlega upp
á bifreiðinni og manninum sem
viðurkenndi eftir nokkurt þóf að
hafa ekið á unglinginn. Sá sem
ekið var á slasaðist alvarlega,
höfuðkúpubrotnaði m.a. og var
fluttur með sjúkraflugi til
Reykjavíkur um nóttina. -gk
íbúum fækkar
á Akranesi
DV, Akranesi:
íbúum á Akranesi hefur fækk-
að um 54 frá síðasta ári sam-
kvæmt bráðabirgðatölum Hag-
stofu íslaiids. Þann l.desember
1994 vora íbúar á Akranesi 5156
en l.desember í ár voru þeir
5102 sem þýðir að íbúum hefur
fækkað um 1%. Fækkunin er
einkum tilkomin vegna þess að
nokkuð atvinnuleysi hefur verið
á Akranesi undanfarin ár. -DÓ
Áramót á Húsavík:
Einn á sjúkra-
hús eftir
slagsmál
Einn maður var fluttur á
sjúkrahúsið á Húsavík til að-
hlynningar eftir slagsmál á göt-
um bæjarins á nýársnótt. Mað-
urinn reyndist ekki alvarlega
slasaður. Að sögn lögreglu voru
áramótin erilsöm þar sem marg-
ir voru úti við í blíðviðri langt
fram á nýársdag. -bjb
Norðmenn
safna fyrir Hat-
eyringa
Eftir náttúruhamfarirnar á
Flateyri í október síðastliðnum
höfðu ýmsir aðilar í Noregi sam-
band við sendiráð íslands í Ósló
og vildu rétta hjálparhönd þeim
sem áttu um sárt að binda. Opn-
aður var bankareikningur í Nor-
egi undir heitinu Samhugur í
verki - Flateyri.
í árslok höfðu safnast tæplega
3,8 milljónir íslenskra króna.
Upphæðin hefur verið lögð inn á
landssöfnunarreikninginn í
Sparisjóði Önundarfjarðar á
Flateyri.
Framlög bárust frá bæjarfé-
lögum, ýmsum félagasamtökum,
ekki síst norrænu félögunum, og
ótal einstaklingum. Riflega
helmingur söfnunarfjárins er
frá einstaklingum og sveitarfé-
lögum á Mæri þar sem séra Jens
Terje Johnsen i Fosnavogi beitti
sér fyrir fjársöfnun í nokkrum
byggðarlögiun. -ÞK
Sinubruni
í Borgarnesi
DV, Borgarneai:
Slökkviliöið í Borgamesi var
tvívegis kallað út á nýjársnótt
vegna sinubrana sem líklegt er
að hafi komið upp vegna flug-
elda. Veður var stillt en kalt.
Að öðru leyti fór áramótagleö-
in vel fram í Borgamesi. Dans-
leikur var á Hótel Borgarnes og
mikið um samkvæmi í heima-
húsum. -OHR