Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 20
2» fHveran MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 3D"V" Ætli fólk sér aö grennast er hreyfingin nauðsynleg. Draga þarf skynsamlega úr neyslu matar og dreifa máltíðum reglubundið yfir daginn. Skjótur árangur í megrun getur þýtt að kílóin komi fljótt aftur og þá kannski fleiri en voru ffyrir áður en megrunin hófst. Úlafur Sæmundsson næringarráðgjafi: Skyndimegrunarkúrar eru dæmdir til að mistakast - „kílóin burt", eitt af áramótaheitunum Eina leiðin til þess að vinna sigur á ofíitunni er að draga skynsamlega úr neyslunni, sérstaklega úr neyslu á fitu og að dreifa máltíðunum reglubundið yfir daginn. Máltíðimar eiga að vera til staðar, morgunverður, há- degisverður, miðdegisverður, kvöldmatur og jafnvel ein- hver kvöldhressing, ávöxtur eða eitthvað slíkt. í þriðja lagi er síðan hreyfíngin nauðsynleg. Hún er þriðji póst- urinn í þessu,“ segir Ólafur Sæmundsson, næringarráð- gjafi hjá Mætti. DV leitaði til hans um ráð handa þeim fjölmörgu sem án efa heita sjálfum sér því nú um ára- mót, meðal annars, að fækka kílóunum. Ólafur segist leggja gríðarlega mikla áherslu á það í sínu starfi að fólk læri að þekkja innihald afurða, bæði með tilliti til kaloría og samsetningar, þannig að það geti sjálft sett fæðutegundir þannig saman að bær nái að fíillnægja hinum svokölluðu manneldismarkmiðum. Fólkið verði að taka ábyrgðina í eigin hendur en sé ekki að stóla á einhverja kúra eða einhvem einstakling sem komi til með að gera þetta fyrir það. Það gangi aldrei upp. Kílóunum fjölgi á ný „Skyndimegrunarkúrar em dæmdir til þess að mis- takast. Ef fólk ætlar sér að ná árangri þýðir ekkert að ætla sér í skamman tíma að breyta um lífsmunstur, reyna að grennast á skömmum tíma en detta svo inn í gamla farið á ný. Reynslan hefúr sýnt að skjótur árang- ur í megrun getur þýtt að kUóin komi skjótt aftur og þá jafhvel fleiri en vora fyrir áður en megrunin hófst,“ seg- ir Ólafur Sæmundsson. -sv s. ijiúcfóý {ffiöasut/ Smiðsbúð 9, 210 Garðabœr, s. 895 0795 StíS-9, '030. Konur á öllum aldri eiga rétt á ytri sem innri fegurð JffliamsFœAfi — duíffsnœkt ÁTAK, ÁRAMÓTAHEIT Fitubrennsluátak námskeið hefst 8. janúar. Lokaðir hópar -fyrir konur sem slást við 15-30 kíló eða meira... Opnir hópar - 0-15 kíló. Framhaldshópar... Morgun,- hádegis,- síðdegis,- og kvöldtímar Ljós - Nuddpottur Bamagœsla virka daga frákl. 9.00-15.30 Fagmannlegt aðhald - haldfastur árangur Snyrti- og hárgreiðslustofan Saloon Ritz, Heiðar Jónsson snyrtir og tískuvöruverslunin Stórar Stelpur * . .. .. sjá um fyrirlestur og cy ltClA, /t/ÚOOU/* 20. a/c/cUH/UiCl/1 aðhlynningu. Sameining - Þjónusta - Gleði persónulegur sigur Strengir þú áramótaheit? Um áramót taka margir sig tU og lofa sjálfum sér bót og betrun. Sumir ætla að taka sig verulega á í heUsuræktinni og kUóin eiga svo sannarlega að fjúka. Aðrir era staðráðnir í að hætta að reykja, einhverjir hafa þörf fyrir að minnka drykkjuna verulega og enn aðrir ætla að eyða meiri tíma með fjölskyldunni á árinu. Sumir strengja svo aldrei áramótaheit DV hitti fólk á götunni og spurði hvort það strengdi áramótaheit og hvort áramótin hefðu einhverja sérstaka merkinu í huga þess. Nýjar áherslur Heiðrúji Amsteinsdóttir: „Nei, ég strengi aldrei áramótaheit. Ég sé enga ástæðu tU þess að vera að gefa sjálfri mér einhver loforð sem síðan er undir sjálfri mér komið hvort ég stend við eða ekki. Ég lít svo á að maður eigi bara að vera bjartsýnn um áramót og horfa fram á næsta ár með jákvæðu hugarfari. Mér finnst aUtaf ákveðin stemning yfir því að kveðja gamla árið og byija á nýjum áherslum." -sv Bæta heilsuna Birgir Már Guðmundsson: „Já, ég hyggst reyna að bæta heUsuna á árinu, fara í vaxtarrækt og reyna að styrkja mig svolítið. Ég hef átt í basli með bakið á mér og ég ætla að reyna að bæta úr því með teygjum og styrkjandi æfingum. Mér finnst áramótin helst hafa merkingu í sambandi við námið hjá mér. Ég er í háskólanámi og við hver áramót lýkur einum áfanga og þar með styttist tíminn tU loka. Síðan tekur vitaskuld nýr og spennandi áfangi við. -sv Þýðir ekkert Ingibjörg Stefánsdóttir: „Það þýðir ekkert fyrir mig að vera að strengja áramótaheit því ég svík þau aUtaf. Ef eitthvað þá myndi ég vUja geta lofað sjálfri mér því að verja meiri tíma með dóttur minni. Áramótin hafa sérstaka merkingu í mínum huga því þau marka ákveð- in tímamót. Maður hugsar aUtaf í upphafi nýs árs að nú sé kominn tími á eitt eða annað en það er þó ekkert sérstákt sem kemur upp í huga minn.“ -sv Engin þörf fyrir það Janus Eiríksson: „Nei, ég strengi aUs ekki áramótaheit og hef aldrei gert. Mér hefur ekki fúndist ég hafa þörf fyrir það. Af hveiju skyldi maður þurfa að lofa sjálfiun sér einhveiju sérstöku um áramót frekar en á öðrum tímum? í mínum huga hafa áramótin ekkert breyst í gegnum tíðina. Þau hafa enga merk- ingu í mínum huga og þannig upp- lifi ég þau aUtaf eins frá ári tU árs.“ -sv

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.