Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELIAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVIK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@ismennt.is - Auglýsingar: dvaugl@ismennt.is. - Dreifing: dvdreif@ismennt.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftan/erð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Kleinubann kerfisins Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað, að Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur hafi farið offari árið 1992, þeg- ar það stöðvaði kleinubakstur í bílskúr einbýlishúss. Var eftirlitið dæmt til að greiða baksturskonunni tæplega tvær milljónir króna, að vöxtum á tímabilinu meðtöld- um. Skaðabætur og miskabætur konunnar nægja þó ekki til að bæta henni upp fjárhagstjón, sem hlauzt af aðgerð- um eftirlitsins. Mál hennar lenti í hefðbundnum seina- gangi kerfisins og verzlanir þorðu ekki að taka vöru hennar, þegar hún gat loksins byrjað bakstur að nýju. Konan lenti í fj árhagsvandræðum og missti húsið á þessu tímabili. Ekki er því hægt að segja, að litli maður- inn hafi unnið sigur á kerfinu í máli þessu, þótt niður- staða dómsins feli í sér nokkrar sárabætur fyrir dólgs- lega framgöngu Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur. Kerfið á íslandi starfar samkvæmt þeirri sannfæringu, að matur verði að koma úr flóknum verksmiðjum til þess að vera söluhæfur. Að mati eftirlitsins er heimabakstur svo hættuleg iðja, að ætla mætti, að það hefði upplýsing- ar um fjöldaandlát í heimahúsum um hver jól. Dæmi eftirlitsins sýnir, hvernig fer, þegar fullkomnum bjálfum er falið fullkomið vald. Og verra er, að hrokinn er svo fullkominn á þeim sama bæ, að dómsniðurstaðan í kleinumálinu hefur engin áhrif á gang mála. Eftirlitið segir bara, að dómarinn hafi rangt fyrir sér. Heilbrigðisreglur eru öfgafullar hér á landi og sömu- leiðis eftirlit með framgangi þeirra. Til dæmis er ekki hægt að fá í verzlunum alvörumjólk, sem súrnar með aldrinum, heldur verður fólk að kaupa hitaða og geril- sneydda verksmiðjumjólk, sem fúlnar með aldrinum. Ekki er heldur unnt að kaupa hér osta, nema þeir séu gerilsneyddir. Slíkir ostar eru aðeins léleg eftirlíking al- vöruosta, alveg eins og gerilsneydd mjólk er léleg eftir- líking alvörumjólkur. Eðlilegt væri, að fólk mætti hafna gerilsneyddu verksmiðjuvörunni, ef það kærði sig um. Til skamms tíma var bannað að selja hér á landi ófrysta kjúklinga, sem eru mun betri matur en freðfugl- inn. Auðvitað kallar sala ferskrar vöru á meiri tilfinn- ingu fyrir hreinlæti, en erfitt er að sjá, að íslendingar geti ekki verið eins hreinlátir og til dæmis Frakkar. Sem dæmi um markleysi heilbrigðisreglna hér á landi er, að reglur um frágang veitingahúsa eru hertar að miklum mun, ef þar á að selja vín. Svo virðist, sem kerf- ið telji tappatogun og glasahellingar vera mun alvarlegra heilbrigðisvandamál en meðhöndlun matvælanna. Einu sinni amaðist heilbrigðiskerfið við fögrum antik- húsgögnum, sem voru í setustofu sveitahótels, og krafð- izt þess, að í stað þeirra kæmu samstæð verksmiðjuhús- gögn. Bréf eftirlitsins komst í fjölmiðla, en kerfið skildi samt aldrei, hvers vegna það varð að athlægi. Það er raunar mjög líkt kerfinu að fara hamforum, þegar kona bakar heima hjá sér kleinur, sem verða svo vinsælar, að þær komast út fyrir hóp ættingja og vina og komast í almenna sölu. Verksmiðju- og gervivöruáráttan lýsir sér vel í baráttu þess gegn heimabakstri. Heilbrigðiseftirlitið lætur hins vegar sér vel líka, að matvöruverzlanir eru fullar af óætu rusli, svo sem niður- sneiddu, vatnskenndu og bragðlausu hlaupi, sem fram- leitt er í verksmiðjum í áleggssneiðum og selt undir vill- andi nöfnum á borð við skinku og hangikjöt. Hérlendar reglur um heilbrigðiseftirlit og framkvæmd þeirra eru sumpart óviðkomandi heilbrigðu og náttúru- legu mataræði og sumpart í beinni andstöðu við það. Jónas Kristjánsson „Sléttanesið hefir veitt fyrir meira en 100 milljónir á mánuði í allt haust kvótalaust í Smugunni...“ segir m.a. í grein Önundar. Auðnuleysi fiskveiði- stjórnunarinnar Enn er ein ógæfan skollin yfir íslenska útgerð. Mbl. skýrir frá því fyrir jólin að stór þorsktorfa hafi enn einu sinni gengið undan hafísnum upp á Halann fyrir vest- an. Þorskurinn, vænn og stór, flækist fyrir veiðunum því að „helvítis kvótakerfið" hindrar það að togararnir geti þurrkað þessa óværu af botninum í hvelli. Skip- stjórar ganga því fram í blöðum og í fjölmiðlum og heimta stækkun þorskkvótans. Heyra sögunni til Tveir skipstjórar lýsa því vel og ítarlega hvers konar ófögnuður þessi þorskgepgd er. Skipstjórinn á Stefni ÍS-28 segir 16/12: „í gær fékk einn 25 tonn á 25 mínútum á Halanum." „Menn verða að eiga þorskkvóta til að fá að veiða ann- an fisk, eins og ýsu, karfa og grá- lúðu. Sá sem er kominn í þrot með þorskkvóta stundar ekkert annað því að þorskurinn kemur alltaf með. Karfa- og grálúðuveiðar á hefðbundnum slóðum heyra sög- unni til. Það er óhætt að segja að veiðin sé engin hjá þeim sem eru með venjuleg veiðarfæri." „Menn eru að moka upp fiski dag eftir dag alls staöar á þessu svæði. En það er gert í neyð.“ „Menn kalla það hefndargjöf að fá 20 tonn í hali.“ „Vandamálið er nefnilega að aðrir stofnar eru horfnir vegna þess að þorskurinn var friðaður.“ Sléttanesið hefir veitt fyrir Kjallarinn Önundur Ásgeirsson fyrrv. forstjóri Olís meira en 100 milljónir á mánuði í allt haust kvótalaust í Smugunni og skipstjórinn segir meiri og betri þorsk fyrir vestan nú en í Smugunni og hann vill burt með kvótann og allar hindranir. í Smugunni henda menn 60-70%' af aflanum strax aftur í hafið auk þess sem ekki tekst að vinna úr. Þar fékk einn togari 3 tonn af bein- um og rotnuðum fiski í hali í haust. Engu skal þyrmt Ofanritað er ekki tilbúningur minn heldur er þetta lýsing at- vinnumannanna á framkvæmd ís- lenskrar fiskveiðistefnu eftir 6 ára stjómun núverandi fiskiráðherra. Við erum hreinlega að drepa síð- ustu þorsktorfuna sem komið hef- ir undan hafisnum norður af Vest- fjörðum og aðrar tegundir eru að mestu uppveiddar. Hafísinn er nú orðinn eina athvarf þorsksins. Alls staðar annars staðar er setið um hann og hann gjördrepinn. Allir kantar og hrygningar- stöðvar þorsksins hafa verið slétt- aðir út og hann á hvergi athvarf. „Fjöllin“ á Reykjaneshrygg eru orðin rennislétt og fisklaus. Um 40 rækjutogarar eru nú að jafnaði á veiðum innan fiskveiðilögsögunn- ar að drepa æti þorsksins. Fiski- ráðherrann hefir heimilað loðnu- veiði í þéttklæddar flotvörpur fram til loka febrúar 1996 því að loðnan hafði tekið upp þann varn- arleik að lyfta sér ekki frá botni og mældist því ekki uppi í sjó. Litlar líkur er því á að nokkur loðna verði eftir til hrygningar þegar kemur fram í mars eða apr- íl. Gjöreyðingarstríð stjórnvalda gegn fiskveiðum innan íslenskrar fiskilögsögu minnir á útrýmingu Hitlers á gyðingum eða Stalíns á Mongólum. Engu skal þyrmt. Búsetan í veði Framtíð búsetu á íslandi er í veði því að án fiskveiða er ekki líf- vænlegt á íslandi. Enginn hefir gefið 63 alþingismönnum umboð til að útrýma fiskveiðunum og þar með búsetu í landinu. Þeir eru réttlausir að þeirri ákvörðun. í Jónsbók frá 1281 er réttur allra Islendinga skilgreind- ur þannig: „Allir menn eigu at veiða fyrir utan netlög (165 faðma frá stórstraumsfjöru) at ósekju." Þetta er fæðingarréttur allra ís- lendinga frá upphafi byggðar hér og hann verður ekki af mönnum tekinn með valdboði. Það varðar uppreisn innan þjóðfélagsins og það fyrr en varir. Önundur Ásgeirsson „Gjöreyðingarstríð stjórnvalda gegn fisk- veiðum innan íslenskrar fiskveiðilögsögu minnir á útrýmingu Hitlers á gyðingum eða Stalíns á Mongólum. Engu skal þyrmt.“ Skoðanir annarra Nauðsynleg uppstokkun „Margir eru þeirrar skoðunar að Alþýðuflokkur- inn hafi gott af því að vera utan stjórnar um hríð eft- ir átta ára völd ... Innbyrðis sundrung og óeining sem einkennt hafa síðustu misseri verður að til- heyra fortíðinni ... Mikil gerjun er í íslenskum stjórnmálum um þessar mundir, einkum meðal þeirra sem skilgreindir eru sem vinstrimenn. Ef Al- þýðuflokkurinn vill rísa undir því að kallast róttæk- ur umbótaflokkur hljóta flokksmenn að taka þátt í umræðum um nauðsynlega uppstokkun flokkakerf- isins." Úr forystugrein Alþýðubl. 29. des. Lífeyrissjóðir hins opinbera „Talið er að flestir þeirra sjóða, sem fé er safnað í og ávaxtað, séu sæmilega færir um að standa við þær skuldbindingar um lífeyrisgreiðslur, sem til er stofnað og eigendur þeirra hafa unnið fyrir ... Hall- inn á Ríkisútvarpinu vegna lífeyrisgreiðslna til fyrr- verandi starfsmanna endurspeglar þau miklu vanda- mál sem opinberir lífeyrissjóðir standa frammi fyr- ir. í áranna rás hefur verið samið um alls kyns líf- eyrisréttindi sem enginn er borgunarmaður fyrir nema skattgreiðendur framtíðarinnar." Úr forystugrein Tímans 29. des. Tekjutengingin „Tekjutenging í skattkerfinu er nú orðin svo víð- tæk - og tekur til tekna, sem ekki geta talist meira en meðaltekjur - að jaðarskattur á íslandi er í ýms- um tilfellum með því hæsta sem gerist ... Ríkis- stjórnin hlýtur að einbeita sér að því á næstu mán- uðum að ráða bót á þessu vandamáli og koma í veg fyrir að það verði almenn skoðun í landinu að það borgi sig ekki að vinna fyrir sér og fjölskyldu sinni ... Efnahagsbatinn, sem nú sjást æ fleiri merki um, ætti að veita svigrúm til að lækka skattbyrðina.“ Úr forystgugrein Mbl. 29. des.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.