Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
11
Fréttir
Fjallaskór á fótum Agnesar:
Tók eftir þessu
á frumsýningu
- segir búningahönnuöur kvikmyndarinnar
„Það er alveg rétt, þetta gerðist.
Þetta skot átti að vera í hálfmynd en
var í heilmynd. Mér finnst þetta
auðvitað ekki í lagi en ég sá mynd-
ina ekki fyrr en á frumsýningu, þá
tók ég eftir þessu,“ sagði Helga Stef-
ánsdóttir, búningahönnuður í kvik-
myndinni Agnesi.
í myndinni kemur fyrir skot þar
sem sést að María EUingsen, sem
leikur Agnesi, er í fiallaskóm með
gulu merki en eins og kunnugt er
voru slíkir skór ekki til á fyrri hluta
nítjándu aldar þegar myndin gerist.
Helga sagði að myndin hefði verið
unnin í miklum flýti og ekki komið
til landsins fyrr en daginn fyrir
frumsýningu.
„Maríu var dauðkalt í þessari
senu enda var þetta í snjó og í þessu
atriði var hún í fjallaskóm svo að
henni yrði ekki eins kalt. Ég vil
taka það fram að þetta voru einu
skómir sem voru notaðir i mynd-
inni sem ekki passa við tímann
enda áttu þeir ekki að sjást.
Það tóku mjög fáir eftir þessu, ég
spurði einmitt fólk sem sá myndina
hvórt það hefði séð þetta vegna þess
að ég sá þetta. Enginn tók eftir
þessu nema skriftan en hún tekur
líka eftir öllu. Þetta skot var í
fjarska, Agnes var í dragsíðu pilsi,
það lyftist upp á einum stað og þá
sást í gult merki á skónum, svona á
stærð við títuprjónshaus, í mynd-
inni. Ég vona bara að fólk hafi tek-
ið jafn vel eftir öllu öðru,“ sagði
Helga. -ÞK
Fyrsta barn ársins fæddist á Landspítalanum í Reykjavík tveimur mínútum
fyrir eitt á nýársnótt. Um var að ræð? stúlkubarn, 2.548 grömm og 41 sm.
Stúlkan fæddist fimm vikum fyrir tímann og var því á vökudeild þegar DV
heimsótti hana í gærkvöldi. Foreldrar litlu stúlkunnar eru Sóley Sveinbjörns-
dóttir og Gunnar Ingvarsson. Hér má sjá þá litlu ásamt Ijósrnóður.
DV-mynd S
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Borgarráðsmenn
mæta ekki þegar
hundahald verður
tekið fýrir
Vegurinn um Fljótsheiöi:
Framkvæmdir
hefjast á
næsta ári
DV, Akureyri:
Áformað er að heíja vinnu við
uppbyggingu nýs vegar yfir Fljóts-
heiði, milli Bárðardals og Reykja-
dals í S- Þingeyjarsýslu, snemma
árs 1997. Frestur til að skila inn at-
hugasemdum um nýtt vegarstæði
yfir heiðina er útrunninn og engar
athugasemdir bárust.
Núverandi vegur yfir heiðina, frá
Goðafossi að Einarsstöðum í
Reykjadal, er mörgum þyrnir í aug-
um og slæmur kafli á hringveginum
svokallaða, og er yfirleitt ófær flesta
vetrarmánuöina. Nýi vegurinn
verður tæplega 10 km langur og
mun að mestu verða lagður sunnan
núverandi vegar. -gk
Kindum bjargað
úr klettabelti
DV, Seyðisfirði:
Sigurður bóndi á Dvergasteini
hér í firðinum hafði í nokkra daga
leitað 20 kinda og séð þær eftir
nokkra leit í svonefndum Sultar-
botnum í norðurhlíö Bjólfsins inn-
arlega í Vestdalnum. Þær voru þar í
700 metra hæð á grastó undir kletta-
belti og umhverfis mikil svellalög
og hálka svo ekki komust þær burt
hjálparlaust.
Guðjón Sigurðsson, formaður
björgunarsveitarinnar ísólfs, fór í
gær ásamt vöskum félaga og mönn-
um frá Dvergasteini á vettvang.
Þeim tókst óhappalaust að ná kind-
unum úr fjallinu og koma þeim til
húsa svo þama urðu farsælar mála-
lyktir. JJ
Leiðrétting
Vegna mistaka viö vinnslu blaðsins
í gær var í dálkinum Með og á móti í
stað myndar af Vjlhjálmi H. Vil-
hjálmssyni hjá Stúdentaráði birt
mynd af alnafna hans. Hér kemur
rétta myndin. Blaðið biðst velvirð-
ingar á mistökunum.
Munnlegur málflutningur í máli
Runólfs Oddssonar, bróður forsætis-
ráðherra og hundaeiganda í Grafar-
vogi sem sviptur var leyfi til hunda-
halds nýlega, til ógildingar á svipt-
ingu leyfis til hundahalds i fjölbýlis-
húsinu að Álakvísl 124-136 í Reykja-
vik fer fram í Héraðsdómi Reykja-
víkur í lok janúar. Dómstjóri hefur,
að beiðni Runólfs, óskað eftir því að
boigarráðsmenn mæti í dóminn en
því verið hafnað, að ráði Hjörleifs
B. Kvaran borgarlögmanns.
„Ég sé enga ástæðu til þess að
borgarráðsmenn mæti í dóminn.
Málið liggur þannig fyrir að það er
ekkert í þeirra framburði sem ætti
að geta skýrt málið frekar. Málið er
að öllu leyti upplýst með samþykkt
borgarráðs, þeim bókunum sem
gerðar hafa verið í málinu og þeim
álitsgerðum sem borgarráð hefur
tekið afstöðu til. Ég sé ekki að það
sé neitt sem geti upplýst málið frek-
ar. Það er að öllu leyti upplýst,“ seg-
ir Hjörleifur.
- Má túlka þetta þannig að borg-
arráðsmennimir sjálfir reyni að
koma skilaboðum á framfæri með
því að mæta ekki?
„Nei, nei. Ég hef ekki einu sinni
borið þetta undir borgarráðsmenn-
ina. Ég sé ekki að það sé neitt sem
þeir geti upplýst í málinu sem þeg-
ar liggur ekki fyrir," segir hann.
Fulltrúar Heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkur og íbúar við Álakvísl
munu gefa skýrslu í Héraðsdómi.
-GHS
Nauðungarsala á lausafé
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík fer fram nauðungarsala á
eftirfarandi lausafé tal. eign Árna Más Jenssonar.
Ofn (Saario oy, semr. 3213).
Nauðungarsalan fer fram þar sem lausaféð er staðsett að Eir-
höfða 13, Reykjavík, miðvikudaginn 10. janúar 1996 kl. 11.00.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík
Blaðbera vantar
á Akureyri.
Uppl. í síma 462-7494.
TT
Blaðburður
er holl og
góð hreyfing
.....,|Li I
rnáwrn
Stakkholti 4 (inng. frá Brautarholti). S. 5631631
Skokknámskeið
Ný 16 vikna námskeið hefjast 8. janúar 1996 og verður
kennt á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Byrjendur kl. 19.15-21.15
Framhaldshópur kl. 17.15-19.15
Áætlun:
Þrekmælingar
Einstaklings/hópáætlanir
Mataræði
Teygjur/teygjuæfingar
Þrekleikfimi
Aörir viöburðir:
Ferð í Flóahlaupið í Vorsabæ
Auðragatnagleði NR
Námsflokkahlaup '96
Víðavangshlaup ÍR sumard. fyrsta
Gautaborgarhálfmaraþon í maí
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóianum að Fríkirkjuvegi 1.
Innritun hefst 4. janúar og upplýsingar veittar í símum
551 2992 551 4106
Kjörorð: Aldrei of seint
Kennari: Jakob Bragi Hannesson