Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1996, Page 26
26
MIÐVIKUDAGUR 3. JANÚAR 1996
Afmæli
Bragi Guðmundsson
Bragi Guðmundsson verkfræð-
ingur, Hjarðarhaga 36, Reykjavik,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Bragi fæddist á bænum Lauga-
læk við Kleppsveg í Reykjavík en
ólst upp á Kirkjusandi við Laug-
amesveg. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1946 og verkfræðiprófi frá
KTH í Stokkhólmi 1954 með land-
mælingar sein sérgrein og stund-
aði framhaldsnám við KTH
1960-64.
Bragi starfaði við landmælingar
og landskipta- og landamerkjamál
hjá Landnámi ríkisins 1954-59 og
við landmælingar, myndmælingar
og útreikninga hjá Forverki hf. og
hjá Skipulagi ríkisins um skeið
1959-60.
Hann var prófdómari og kenn-
ari við KTH í Stokkhólmi 1961-76
og var samtímis ráðgefandi verk-
fræðingur, einkum við þríhym-
ingsmælingar og kortagerð, h)á
Ingenjörsbyrán VIKAK AB í
Stokkhólmi en þar hafði hann
umsjón með skipulagningu mæl-
inga og kortagerðar fyrir marga
stærri og minni þéttbýlisstaði og
sveitarfélög i Svíþjóð. Þá vann
hann þar á tölvudeild við forritun
og úrvinnslu gagna. Bragi var for-
stjóri Landmælinga íslands
1976-85, kenndi landmælingar við
HÍ 1976-85 og var aðjunkt um
helming þess tíma og var yfir-
verkfræðingur Landmælinga ís-
lands frá 1985 en lét af störfum
fyrir aldurs sakir í ársbyrjim
1993.
Bragi var tilnefndur í nefiid
vegna undirbúnings laga um land-
mælingar á íslandi, hefúr verið
meðdómari í landamerkja- og
landskiptamálum í héraðsdómi og
yfirskiptadómi og var skipaður af
ráðherra í vixmuhópa vegna til-
raunaverkefnis um gerð staf-
rænna staðfræðikorta og land-
fræðilegs upplýsingakerfis og var
formaður vinnuhópa um landmæl-
ingar og myndmælingar.
Bragi keppti með Ármanni í
frjálsum íþróttum og í handbolta
en hann varð Reykjavíkurmeist-
ari og íslandsmeistari í þeirri
grein auk þess sem hann var í
fyrsta keppnisliðinu sem fór utan.
Þá var hann virkur þátttakandi í
skátahreyfingunni og einn af
stofnendum skátafélagsins Völs-
unga í Laugamesskóla.
Fjölskylda
Bragi kvæntist 21.6.1953
Katrínu Helgu Karlsdóttur, f.
27.11.1932, húsmóður. Hún er
dóttir Karls Hjálmarssonar, kaup-
félagsstjóra á Þórshöfn og síðar á
Hvammstanga, sem lést 1964, og
Haildóru Ásgrímsdóttur húsmóð-
ur sem lést 1936. Bragi og Katrín
slitu samvistum.
Böm Braga og Katrínar em
Guðmundur Karl, f. 27.12.1953,
hijómlistarmaður í Svíþjóð; Hall-
dóra, f. 27.3. 1957, skrifstofumaður
í Svíþjóð, gift Lars Gunnari
Gunnarssyni skrifstofustjóra og
em börn þeirra Erik, f. 1.4.1982,
og Kristin, f. 2.10.1985; Bragi Már,
f. 7.9.1961, rafmagnsverkfræðing-
ur í Reykjavík en sambýliskona
hans er Sigurlaug Jakobsdóttir,
setjari og deildarstjóri. Systiu-
Braga em báðar látnar en þær
vom Helga, gift Ólafi Vilhjálms-
syni í Bólstað í Garðabæ; Ám-
heiður, var gift Ágústi Hafberg,
forstjóra í Reykjavík.
Foreldrar Braga vora Guð-
mundur Jóhannes Guðmundsson,
f. 30.10. 1897, d. 10.10. 1982, bif-
reiðastjóri í Reykjavík, og k.h.,
María Ámadóttir, f. 24.4.1888, d.
11.1.1981, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur var sonur Guð-
mundar Jóhannessonar, bónda í
Straumfjarðartungu, ættaður frá
Elliða í Staðarsveit, og k.H. Odd-
nýjar Kristjánsdóttur sem ættuð
var frá Skógamesi. Oddný var
móðursystir Jóhanns Jónssonar
skálds. Guðmundur og Margrét
Bragf Guömundsson.
Þorbjörg, kona Thors Jensen,
vom bræðraböm.
María var dóttir Áma Þorláks-
sonar, bónda og sjómanns í Berg-
skoti, og k.h. Helgu Kjartansdótt-
ur sem ættuö var úr Borgarfirði.
Bragi er að heiman.
Ragnar Sveinn Olgeirsson
Ragnar Sveinn Olgeirsson,
fyrrv. bóndi á Oddsstöðum I í
Lundarreykjadal er sjötugur í
dag.
Starfsferill
Ragnar fæddist á Innri-Skelja-
brekku í Andakílshreppi en ólst
upp í Borgamesi. Hann gekk í
Tll hamingju
með afmælið
3. janúar
85 ára
Einar A. Araalds,
Miklubraut 52, Reykjavík.
80 ára
Bjami Helgason,
Fellsmúla 13, ReyHjavík.
Elín Ólafsdóttir,
Naustahlein 5, Garðabæ.
Sigríður S. Jóhannesdóttir,
Borgarhlíð 3 B, Akureyri.
Georg Jensson,
Hásteinsvegi 54, Vestmannaeyj-
um.
75 ára
Sigrún Guðbrandsdóttir,
Hlunnavogi 10, Reykjavík.
Þórsbergi 18, Hafnarfirði.
Guðbergur Magnússon,
Bergsstaðastræti 11 A, Reykjavík.
Sambýliskona
hans er Guðný
Ragnarsdóttir.
Þau taka á móti
gestum að Suð-
urhvammi 13,
Hafnarfirði,
laugardaginn
6.1. nk. milli kl
17.00 og 20.00.
Guðjón Jósefsson,
Strandhöfn, Vopnafjaröarhreppi.
Hafsteinn H. Jónsson,
Vallarbarði 11, Hafnarfirði.
Gylfi Matthíasson,
Hofslundi 1, Garðabæ.
Sigurbjöra Friðriksson,
Vailhólmi, Seyluhreppi.
70 ára
Jón Hólmsteinn Júlíusson,
Skólagerði 38, Kópavogi.
Þórarinn S. ÖQörð,
Laugamesvegi 102, Reykjavík.
Gúðbjörg Árnadóttir,
Kringlumýri 11, Akureyri.
40 ára
60 ára
Ásgeir Sigurðsson,
pipulagninga-
meistari,
Hlégerði 21,
Kópavogi.
Kona hans er
Erla Bjamadótt-
ir
skrifstofumaö-
ur.
Þau em fjarverandi.
Dagrún Kristjánsdóttir,
Holtagerði 2, Kópavogi.
50 ára
Árai Helgi Karlsson,
Álfheimum 11, Reykjavik.
Böðvar Hermannsson,
Jóhannes Páll Héðinsson,
Rimasíðu 29 E, Akureyri.
Guðmundur E. Hallsteinsson,
Hrauntungu 85, Kópavogi.
Sigurður J. Bergsteinsson,
Bláhömrum 25, Reýkjavík.
Elin Guðný Bjarnadóttir,
Torfufelli 24, Reykjavík.
Elín Sigurðardóttir,
Álakvísl 74, Reykjavík.
Hallgrímur Sveinn
Vilhelmsson,
Fossvegi 17, Siglufirði.
Pétur Ulrich Fenger,
Grenibyggð 32, Mosfellsbæ..
Ásta Karen Rafnsdóttir,
Eikjuvogi 13, Reykjavík.
Gestur Björasson,
Kambaseli 26, Reykjavík.
Guðrún Sigrfður
Kristjánsdóttir,
Daðastöðum, Öxarfjarðarhreppi.
Maria Madalena Carrilha,
Nóatúni 32, Reykjavík.
Linda Björasdóttir,
Langholtsregi 29, Reykjavík.
Bama- og unglingaskóla Borgar-
ness og Reykholtsskóla 1943-1944.
Hann var tvö sumur á sUdveiðum
við Norðurland, vetrarvertíð í
Vestmannaeyjum, veghefilsstjóri
eitt ár og í ígripum síðar, mjólk-
urbUstjóri hjá KB í átta ár og
bóndi á Oddsstöðum í Lundar-
reykjadal 1953-1984. Þá fiutti hann
í Borgames og hefur verið skrif-
stofumaður þar síðan.
Ragnar var formaður UMF
SkaUagríms i Borgamesi um 1950,
UMF Dagrenningar í Lundar-
reykjadal 1956-58 og UMS Borgar-
fjarðar 1958-62, formaður Búnað-
arfélags Lundarreykjadalshrepps
1966-73, í stjóm Skógræktarfélags
Borgarfjarðar 1978-89, í stjóm KB
í níu ár, í stjóm Búnaðarsam-
bands Borgarfjarðar 1972-82, í
hreppsnefnd Lundarreykjadals-
hrepps í tólf ár og í sýslunefnd
svipaðan tíma og formaður sókn-
amefhdar Lundarkirkju 1958-62.
Fjölskylda
Ragnar kvæntist 29.1.1952
Hönnu Vigdísi Sigurðardóttur, f.
8.1.1927, húsfreyju, dóttur Sigurð-
ar Bjamasonar, b. frá Hömmm í
Reykholtsdal, og Vigdísar Hannes-
dóttur frá DeUdartimgu.
Synir Ragnars og Hönnu era
Sigurður Oddur, f. 12.6.1953, b. og
búfræðikandidat á Oddsstöðum,
kvæntur Guðbjörgu Ólafsdóttur
og em böm þeirra Ólafur Ágúst,
f. 6.6. 1979, Ragnar Finnur f. 17.6.
1983, Sigurður Hannes, f. 24.1.
1989, og Sigurborg Hanna, f. 28.2.
1991, en sonur Sigurðar fyrir
hjónaband með Kristbjörgu Jörg-
ensdóttur er Jörgen, f. 10.5. 1976;
Olgeir Helgi, f. 29.3. 1966, rekstrar-
fræðingur og nemi við Samvinnu-
háskólann á Bifröst og fréttaritari
DV í Borgamesi, kvæntur The-
odóra Þorsteinsdóttur, skólastjóra
Tónlistarskóla Borgarfjarðar, og
er dóttir þeirra Sigríður Ásta f.
15.4. 1994.
Hálfbróðir Ragnars, sammæðra,
var ÁrsæU Jóhannsson f. 29.1.
1912, d. 1981.
Foreldrar Ragnars: Olgeir Frið-
Ragnar Sveinn Olgeirsson.
finnsson f. á Borgum í Vopnafirði
19.2. 1900, d. 6.8. 1989, verkamaður
í Borgamesi, og Helga Finnsdóttir
frá Ferstiklu á Hvalfjarðarströnd,
f. 20.4. 1881, d. 30.7. 1970.
Ragnar verður að heiman.
Sigrídur
Guömimdsdóttir
Sigríður Guðmundsdóttir hús-
móðir, Lyngbrekku 19, Kópavogi,
er sjötug í dag.
Starfsferill
•Sigríður fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp í Miðstrætinu og síð-
an við Öldugötu. Hún stundaði
nám við Verslunarskóla íslands í
tvö ár.
Sigríður flutti með manni sín-
um tU Keflavíkur 1954 þar sem
hún var húsmóðir í tuttugu ár en
þau fluttu síðan i Kópavoginn þar
sem hún hefur átt heima siðan.
Hún starfaði við símavörslu og
skrifstofústörf hjá Sláturfélagi
Suðurlands 1979-1992.
Sigríður hefur sungið með ýms-
um kórum, fyrst með telpnakór,
síðan í Samkór Reykjavíkur hjá
Robert Abraham, í Kvennakór
Keflavíkur og loks í Fílharmon-
íukómum.
Fjölskylda
Eiginmaður Sigríðar var Bene-
dikt Þórarinsson, f. 25.1. 1921, d.
16.1.1983, yfirlögregluþjónn á
KeflavíkurflugveUi. Hann var son-
ur Þórarins Eyjólfssonar, trésmiðs
í Keflavík, og Elínrósar Benedikts-
dóttur, ljósmóður þar.
Böm Sigríðar og Benedikts em
Þorvaldur, f. 29.9.1943, vélstjóri í
Reykjavík, kvæntur Rósu Ólafs-
dóttur; Benedikt Rúnar, f. 13.7.
1948, trésmiður í Keflavík, kvænt-
ur Hrefnu Sigurðardóttur; Mar-
grét Ragnarsdóttir, f. 13.10. 1946,
húsmóðir í Kópavogi, gift Albert
Sævari Guðmundssyni; Guðmund-
ur Öm Ragnarsson, f. 21.3. 1949,
kerfisfræðingur á Selfjamamesi,
kvæntiu- Ólínu Erlendsdóttur;
Kristín Benediktsdóttir, f. 17.7.
1957, kennari í Svíþjóð, gift Ulf
Andersson; Sigrún Ingibjörg Bene-
diktsdóttir, f. 3.5.1959, gjaldkeri í
Reykjavík, var gift Þórði Jónssyni
lögreglumanni en þau skUdu.
Bamaböm Sigríðar eru fimmtán
talsins.
Systkini Sigríðar eru öU al-
systkini, búsett í Reykjavík. Þau
em Vigfús, f. 10.7. 1927, trésmíða-
meistari; Guðrún, f. 28.7.1928,
sjúkraliði; FUippus, f. 6.6.1932,
málarameistari; Ingibjörg, f. 16.2.
1935, læknaritari; Sigurður, f. 3.6.
Sigríður Guðmundsdóttir.
1938, trésmíðameistari; Kristín, f.
3.6.1940, læknaritari.
Foreldrar Sigríðar voru Guð-
mundur FUippusson, f. 15.12.1891,
d. 28.7. 1955, málarameistari í
Reykjavík, og k.h., Kristín Vigfús-
dóttir, f. 11.4. 1901, d. 9.1. 1987,
húsmóðir.
Sigríður er að heiman í dag.