Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Qupperneq 18
26 FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996 íþróttir dv Körfubolti - unglingaflokkur karla: Það yrði toppurinn að spila með íslenska landsliðinu - sagði Guðjón Gylfason, fyrirliði unglingaflokks Keflavíkur sem sigraði Val, 77-93, í íþróttahúsi Vals Unglingaflokkur Keflavíkur hefur sýnt mikla yfirburði í íslandsmót- inu í körfubolta það sem af er keppni og hafa strákarnir unnið alla sína leiki til þessa - nú síðast Val, 77-93, og fór leikurinn fram að Hlíðarenda. Framan af veittu Valsstrákarnir verðuga mótspyrnu og var staðan í hálfleik 40-49 fyrir Keflavík. En eft- ir því sem á leikinn leið jukust yfir- burðir Suðurnesjaliðsins og þegar dómararnir flautuðu til leiksloka var Ijóst að Keflavík hafði unnið, réttlátt, 77-93. Umsjón Halldór Halldórsson Valsliðið er skipað kröftugum strákum sem eiga eftir að bæta sig mikið. Þeirra tími kemur áreiðan- lega. Eftirtaldir piltar skoruðu stig Keflavíkur: Guðjón Gylfason 23, El- entínus Margeirsson 16, Gunnar Einarsson 15, Ásgeir Gunnarsson 10, Halldór Karlsson 7, Þorsteinn Húnfjörö 6, Gunnar Sigurðsson 5, < Guðmundur Valsson 5, Sveinn Magnússon 3 og Kjartan Jakobsson 2 stig. Stig Vals: Gunnar Már 19, Bjarki Gústafsson 10, Hjalti Pálsson 10, Bergur 9, Gunnar Zoéga 7, Hjörtur Lindsbanki 'i**«nkí ísönd$ ■^tevðf íf '' líiV JM Í t i f fí««tetonki \ tóancs ! Jém v> Hið frábæra lið Keflavíkur í unglingaflokki er þannig skipað: Gunnar Einarsson (4), Elentínus Margeirsson (9), Þorsteinn Húnfjörð (5), Ásgeir Guðmundsson (13), Guðjón Gylfason (10), Unnar Sigurðsson (15), Halldór Karlsson (11), Sveinn Magnússon (7), Guðmundur Valsson (12), Kjartan Jakobsson (14), Skarp- héðinn Ingimundarson (8) og Sigurður Stefánsson (6). Þjálfari þeirra er Einar Einarsson. DV-myndir Hson Guðjón Gylfason, fyrirliði unglinga- flokks Keflavíkur. Hjartarson 6, Guðmundur Björns- son 5, Pétur Fannar 5, Ámundi 4 og Magnús Guðmundsson 2 stig. Seinir í gang Guðjón Gylfason, fyrirliöi Kefla- víkurliðsins, var að vonum ánægð- ur með sigurinn en honum fannst liðið heldur seint í gang: „Við höfum ekki tapað leik í tvö ár, ef ég man rétt. Þetta er mjög samhentur hópur og höfum við leik- ið upp alla yngri flokkana saman. Ásgeir er nýr leikmaður í liðinu en hann er búinn að dvelja í Banda- ríkjunum undanfarin ár og á hann eftir að finna sig betur í liðinu en átti þó góðan leik gegn Val. Við erum fimm sem höfum spilað með meistaraflokki, Gunnar Einars- son, Elentínus Margeirsson, Halldór Karlsson, Þorsteinn Húnfjörð og ég. Mér finnst mikill munur að leika með meistaraflokknum og er barátt- an þar mun meiri og miklu meira í húfi. En allt þetta gerir leikinn mun skemmtilegri og að ógleymdu er breiddin miklu meiri í meistara- flokki og samkeppnin hörð um sæti í liðinu. En að sjálfsögðu er mjög gaman að leika með unglingaflokkn- um sem er mjög sterkur um þessar mundir. Við höfum sett stefnuna á að vinna tvöfalt í vetur eins og á síð- asta ári og finnst mér það eigi að geta tekist. Ég, eins og fleiri í liðinu, stefni hiklaust að landsliðssæti. Það yrði toppurinn að fá tækifæri til þess að spila fyrir ísland," sagði Guðjón. * Gunnar Zoéga, Val (13), í keppni um boltann við Unnar Sigurðsson, Keflavík (15). Báðir eru þessir strákar mjög efni- legir. Staðan í körfu unglingaflokks karla: Keflavík hefur unniö alla leiki sína Unglingaflokkur Keflavíkur, Keflavík-Haukar . . . .100-80 núverandi bikar- og íslandsmeist- KR-Unglingal 80-52 ari í körfubolta hafa góöa forystu Haukar-KR 86-45 í yfirstandandi íslandsmóti. Strák- Valur-lR . . . .104-66 arnir hafa unnið alla leiki sína til Njarðvík-ÍA 88-65 þessa sem verður að teljast frábær Breiöablik-ÍR 60-65 árangur. Valur-Keflavík 77-93 Urslit síðustu leikja: Haukar-Unglingal . . . .90-64 Haukar-ÍA 85-53 Valur-Breiöablik .... 90-59 Staðan í íslandsmótinu: Njarðvik-Valur 103-70 Keflavik 9 9 0 800-551 18 ÍA-Fylkir 83-67 Haukar 10 8 2 838-606 16 ÍR-Unglingalandsi. . . . 75-82 Njarðvik 8 7 1 763-529 14 Keflavík-KR 2-0 Valur 10 5 5 750-797 10 Ungliandsl.-Keflavik . 71-130 ÍA 8 4 4 562-570 8 Haukar-ÍR 95-46 Breiðablik 10 4 6 725788 8 Valur-ÍA 69-61 KR 9 4 5 604-577 8 Breiöablik-Njarövik . 68-92 Fylkir 7 2 5 483-536 4 'ÍA-Breiðablik 103-77 Unglingal. 9 1 8 580-796 2 ÍR-Fylkir 73-83 ÍR 10 1 9 585940 2 Valsliðið tekur sér pásu. Liðið er skipað eftirtöldum strákum: Bjarki Gústafs- son (14), Gunnar Zoéga (7), Gunnar Már Sigurðsson (7), Bergur (5), Hjörtur Þ. Hjartarson (11), Guðmundur Björnsson (12), Hjalti Pálsson (9), Ámundi (10) og Pétur Fannar (6). Þjálfari strákanna er Torfi Magnússon.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.