Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Side 23
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
31
Fréttir
Langholtssöfnuður að klofna:
Kanna möguleika á
stofnun fríkirkjusafnaðar
- rétt að kalla saman almennan safnaðarfund, segir séra Ragnar Fjalar
„Það kemur mér ekki á óvart
þótt einhverjir séu búnir að fá nóg
af þessum deilum og hugleiði þann
möguleika að stofna fríkirkjusöfn-
uð. Ég tel að það réttasta sem menn
gerðu nú í Langholtssöfnuði væri
að kalla saman almennan safnað-
fund til að ræða málin. Enda þótt
slikur fundur hafi ekkert ákvarð-
anavald í málinu þá á hvert sóknar-
barn rétt á því að fá að heyra um
það frá safnaðarstjórn," sagði séra
Ragnar Fjalar Lárusson prófastur
sem manna mest hefur komið ná-
lægt sáttatilraunum í deilu séra
Flóka Kristinssonar og Jóns Stef-
ánssonar organista, aðspurður um
þær hræringar til klofnings Lang-
holtssafnaðar sem nú eru hafnar.
Nokkrar manneskjur úr Lang-
holtssókn hafa rætt saman um þann
möguleika að segja sig úr söfnuðin-
um og stofna fríkirkjusöfnuð. Þetta
fólk segist vera búið að fá nóg af
þeim deilum sem uppi eru í söfnuð-
inum og það fái ekkert um að vita
nema í gegnum fjölmiðla.
„Ég hef ekki heyrt fólk tala um að
segja sig úr söfnuðinum og stofna
nýjan. Hins vegar vil ég taka fram
að um það hefur verið rætt 1 alvöru
að kalla saman almennan safnaðar-
fund, enda þótt hann hafi ekki
ákvörðunarvald í deilumálinu,"
sagði Guðmundur Pálsson, formað-
ur stjórnar Langholtssafnaðar, í
samtali við DV í gær.
Safnaðamefndarmaður sem DV
ræddi við um þessa deilu sagði að
hún væri einfaldlega komin á það
stig að annar hvor þeirra séra Flóka
eða Jóns organista yrði að víkja.
Þeir gætu aldrei úr þessu unnið
saman, slíkt væri hatrið orðið.
Hann sagði það litlu eða engu skipta
hvernig skýrsla Eiríks Tómassonar
prófessors yrði, hvað sáttum við-
kemur. Því væru aðeins tveir mögu-
leikar fyrir hendi. Annar er sá að
Jón Stefánsson fari burt með sinn
ágæta kór eða þá að biskup reyni að
finna eitthvert þaö starf handa séra
Flóka sem hann gæti sætt sig við.
Hann sagði að enda þótt hvorug
lausnin væri líkleg væri ekkert ann-
að sem gæti leyst deiluna. -S.dór
DV-mynd GS
Frá fundi sóknarnefndar Langholtssoknar fyrr i manuöinum.
Fundur um rétt-
indi barna í Genf
Fyrsta kvótauppboð ársins:
Leiguverð á þorskkvóta
milli 90 og 95 krónur
- en 540 krónur ef um varanlega sölu er að ræða
Fyrsta uppboð ársins á afla-
kvóta fór fram síðastliðinn þriðju-
dag. Að sögn Árna Guðmundsson-
ar hjá Kvótamarkaðnum var
leiguverð þorskkvóta 90 til 91
króna kílóið á þessu uppboði.
Undanfarið hefur verðið rokkað á
milli 90 og 95 krónur kílóið. Ef
hins vegar er um varanlega kvóta-
sölu að ræða þá er verðið 540
krónur fyrir kílóið af þorski.
Ámi sagði að það færi nokkuð
eftir afurðaverði hvert kvótaverð-
ið er. „En síðan ræður það líka
nokkru um verðið að sumir fara
fram úr sínum kvóta og verða því
að leigja eða kaupa kvóta hvað
sem það kostar," sagði Árni.
Leiguverð á ýsukvóta er lágt
eða 9 til 10 krónur fyrir kílóið og
lítil spenna í kringum það. Leigu-
verð á ufsakvóta er um 6 krónur
en varanlegur kvóti er á um 60
krónur kílóið. Leiguverð á kola-
kvóta hefur verið 18 krónur að
undanfórnu en varanlegur kvóti
fer á 130 til 135 krónur kílóið.
Leiguverð á karfa er að minnsta
kosti 35 krónur kílóið og á varan-
legum kvóta um 160 krónur kílóið.
Kvótaverð á grálúðu er alveg það
sama og á karfanum.
Varanlegur humarkvóti fer á
2.100 krónur kílóið en ekkert verð
er uppi í rækjunni vegna þess að
kvótaframboð er ekkert. -S.dór
„Gullárin" á Dalvík
- höfðar til fólks á öllum aldri
Júlíus Guðmundsson og Freygerð-
ur Snorradóttir í „ellismellasýning-
unni“ á Dalvík á síðasta ári.
„Við ætlum að vera með frumsýn-
ingu föstudaginn 2. febrúar í Sælu-
húsinu á Dalvík," segir Ragnheiður
Rut Friðgeirsdóttir um sýningu
sönghópsins Ellismellir á skemmti-
kvöldinu Gullárunum en sönghóp-
urinn setur nú saman skemmtidag-
skrá fjórða árið í röð.
Eins og nafn sýningarinnar gefur
vísbendingu um byggist sýningin á
flutningi vinsælla dægurlaga frá ár-
unum 1950-1970 en við bætist grin,
glens og gaman. Þessar sýningar
Eldur í
gardínum
Eldur kom í fyrrakvöld upp í her-
bergi á sambýli fyrir fatlaða á Sel-
fossi. Brunnu gluggatjöld en starfs-
menn á heimilinu náðu að slökkva
eldinn áður en hann breiddist út.
Einn maður var í herberginu var
honum bjargað út í tæka tíð.-GK
hafa fengið mjög góðar undirtektir
undanfarin ár og hefur sönghópur-
inn farið með dagskrána í nærliggj-
andi byggðarlög, s.s. til Grímseyjar,
Hríseyjar, Ólafsfjarðar og Blöndu-
óss.
„Sýningin aldri en lögin frá þess-
um tíma eru ýmist rokklög eða róm-
antiskar ballöður. Flutt eru um 30
lög og reynt að vanda til alls, m.a.
með viðeigandi klæðnaði og förðun
söngvaranna," segir Ragnheiður
Rut.
Fundur fulltrúa íslenskra stjórn-
valda með nefnd Sameinuðu þjóð-
anna um réttindi bamsins hófst í
Genf 16. janúar sl. Þar er rædd
fyrsta skýrsla íslands um réttindi
barna hér á landi. Nefndin starfar
samkvæmt samningi Sameinuðu
þjóðanna um réttindi barnsins frá
árinu 1989 sem ísland gerðist aðili
að árið 1992. Samkvæmt samningn-
um eru aðildarríki að honum skuld-
bundin til að skila reglulega skýrsl-
um um ráðstafanir sem þau hafa
gert til að koma í framkvæmd þeim
réttindum sem samningnum er ætl-
að að tryggja.
í tilkynningu frá dóms- og kirkju-
málaráðuneytinu segir að ísland
hafi skilað fyrstu skýrslu sinni um
réttindi barnsins í lok árs 1994 og er
Ók inn í
húsagarð
Bil var í fyrradag ekið inn í
húsagarð við Kársnesbraut í
Kópavogi. Ökumaðurinn missti
stjórn á farartækinu í hálku og
því fór sem fór.
Harður árekstur tveggja bfia
varð einnig á sömu götu í gær-
kvöldi og þurfti að draga annan
bílinn burt. Slys urðu ekki á
fólki. -GK
hún tekin til umfjöllunar á fundi
nefndarinnar. Þar sitja fulltrúar frá
ráðuneytum utanríkismála, dóms-
mála, menntamála, heilbrigðismála
og félagsmála fyrir svörum um efni
hennar og veita upplýsingar um
stöðu barna hér á landi.
Nefndin birtir síðan álit sitt á
hvernig til hefur tekist hjá íslensk-
um stjórnvöldum að uppfylla samn-
ingsskuldbindingar sínar um rétt-
indi barnsins. -ÞK
STEIKHÚS ADRÍA
Strandgötu 30, Hafnarfirði
Sími 555-3777
HÁDEGISTILBOÐ
Á HVERJUM DEGI
Laugardagskveðjan
- Þú pantar og
sækir fjóra
skammta af mat og
færð ódýrasta
réttinn frítt
AUSTURLENSKUR
MATUR
TAKE - AWAY