Dagblaðið Vísir - DV - 19.01.1996, Side 28
36
FÖSTUDAGUR 19. JANÚAR 1996
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra kemur víða við í starfi sínu.
Hrærir með
sinni sleif
„AUt þetta setur hann svo í
einn pott og hrærir svo með
sinni sleif í glásinni svo úr verð-
ur kattarláfujafningur sem hann
nefnir fjárlög."
Gísli S. Einarsson, í DV.
Blaðafulltrúi Friðriks
„Ingibjörg Pálmadóttir virðist
hafa þann eina starfa að koma
fram sem blaðafulltrúi Friðriks
Sophussonar."
Össur Skarphéðinsson, í Al-
þýðublaðinu.
Handkurra og hankatrog
„Það getur vel verið að Bene-
Ummæli
dikt Sveinsson telji sig eiga
skuld að gjalda, en hann er alltof
gegn maður til að gerast hand-
kurra og hánkatrog Þorsteins
Pálssonar."
Sverrir Hermannsson, í Morg-
unblaðinu.
Kurteisi á hæsta stigi
„Mér sýnist það nánast orðið
þannig að vilji menn sýna öðr-
um fulla kurteisi þá orða þeir þá
við þá forsetaframboð."
Jón Sigurðsson, f Alþýðublað-
inu.
Bíkini er vinsælasti strandfatn-
aður ungra stúlkna.
Bíkini í fimm-
tíu ár
I ár eru fimmtíu ár frá því bík-
inibaðföt voru fyrst kynnt. Það
var franski tískuhönnuðurinn
Louis Réard sem fyrstur kynnti
djörf tvískipt baðföt í júlí 1946 og
nefndi hann þau bíkini. Réard
valdi þetta nafn á baðfótin vegna
þess að hann taldi að í þeim
væri fólgið jafn mikið sprengi-
efni og í bandarísku kjarnorku-
sprengjunni sem sprengd var á
Bikini-rifi í Kyrrahafinu fjórum
dögum áður en tískusýningin fór
fram.
Stutta tískan
Fyrstur til að setja stuttkjóla á
markaðinn var tískuhönnuður-
inn Mary Quant en hún rak á
sjöunda áratugnum tískuverslun
á Kings Road í London. Það var
vorið 1965 sem hún kom með
þessa byltingu í kvenfatnaði. Um
sama leyti skapaöi franski tísku-
hönnuðurinn Courréges fastmót-
aðan stíl þar sem stutta tískan
Blessuð veröldin
var sett fram á framúrstefnuleg-
an máta.
Fyrsta tískusýningin
Fyrsta eiginlega tískusýningin
fór fram i London 1908 og virðist
hafa verið tengd fatnaði frá
tískuhúsi lafði Duff-Gordons.
Sama ár var haldin sýning af
svipuðu tagi hjá Paquin og
Poiret í París. Áöur höfðu tísku-
húsin sýnt ákveðnum viðskipta-
vinum tískuna þegar óskað var
eftir.
Fer að rigna suðvestanlands
í dag snýst í vaxandi sunnan- og
suðaustanátt og þykknar upp. Um
og upp úr hádegi verður komin all-
hvöss eða hvöss suðaustanátt með
rigningu um landið suðvestanvert
og síðdegis verður stormur eða rok
á stöku stað vestanlands. Á Norð-
Veðrið í dag
austur- og Austurlandi verður
stinningskaldi eða allhvasst og úr-
komulítið. í kvöld og nótt lægir
smám saman. Vægt frost verður í
fyrstu en fer hlýnandi, hiti verður á
bilinu 0 til 5 stig, svalast norðaust-
an til. Á höfuðborgarsvæðinu verð-
ur sunnan- og suðaustankaldi eða
stinningskaldi og þykknar upp. All-
hvöss eða hvöss suðaustanátt og
rigning síðdegis. Hægari suðaustan-
átt með skúrum í nótt. Hlýnandi
veður og verður hitinn 3 til 5 stig í
dag.
Sólarlag í Reykjavík: 16.31
Sólarupprás á morgun: 10.44.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.37.
Árdegisflóð á morgim: 6.03.
Heimild: Almanak Háskólans.
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri léttskýjaó -2
Akurnes léttskýjaö 1
Bolvík snjóél á síö. klst. -4
Egilsstaöir skýjaö -1
Keflavíkurflugv. snjóél -1
Kirkjubkl. snjóél á síö. klst. -2
Raufarhöfn alskýjað -2
Rvík snjóél á slö. klst. -1
Stórhöföi snjóél 2
Helsinki kornsnjór -4
Kaupmannah. skýjaö 0
Ósló kornsnjór -1
Stokkhólmur kornsnjór -1
Þórshöfn léttskýjaö 2
Amsterdam hrímþoka -2
Barcelona þokumóóa 5
Chicago snjókoma -11
Frankfurt kornsnjór -3
Glasgow mistur 8
Hamborg þokumóöa -2
London þokumóöa 6
Los Angeles skýjaö 14
Madríd skýjaö 1
Paris þokumóóa 3
Róm þokumóóa 2
Mallorca léttskýjaó 6
New York rigning 13
Nice léttskýjaö 4
Nuuk skafrenningur -17
Orlando léttskýjaó -19
Valencia skúr á síð. klst. 10
Vín þokumóóa -3
Guðjón Birgisson garðyrkjubóndi:
Tómatar á mark-
aðinn í febrúar
„Ég mun reyna að koma fyrstu
tómötunum á markaðinn fyrstu
eða aðra vikuna í febrúar og er
það tveimur mánuðum fyrr en
áður hefur gerst hjá mér,“ segir
Guðjón Birgisson, garðyrkjubóndi
á Melum á Flúðum, en hann er
einn þeirra bænda sem hafa nýtt
sér nýja gerð af lömpum sem gefa
meira ljós miðað við orku heldur
en áður hefur þekkst í þessari at-
vinnugrein og árangurinn lætur
ekki á sér standa: nýir íslenskir
tómatar verða á boðstólum í febrú-
ar.
Maður dagsins
„Við prófuðum þessa lýsingu í
fyrra og hún reyndist svo vel að
ákveðið var að gera alvöru úr
þessu. Það ber þó að taka fram að
þetta er enn á tilraunastigi. Það
eru margir sem koma nálægt þess-
ari tilraun, meðal annars Atvinnu-
þróunarsjóður, Rarik og Lands-
virkjun."
Guðjón sagði að það væri mikil
vinna í kringum þetta: „Ég er með
Guðjón Birgisson.
þessa ræktun á níu hundruð fer-
metrum og reikna með að fá
kannski kíló á fermetrann í hverri
viku, en þetta er gífurleg yfirlega,
það má ekkert út af bera og það
þarf að hafa gætur á Ijósunum þá
sextán tíma sem logar á þeim.“
Guðjón ræktar meira en tómata
og selur allt sitt hráefni í gegnum
Sölufélag garðyrkjuhænda: „Ég
hóf þessa gróðurhúsaframleiðslu
árið 1980, þá í smærri stO, en hef
verið að stækka þetta hægt og bit-
andi og hef auk tómataframleiðsl-
unnar verið með kínakál og blóm-
kál.“
Guðjón er eini garöyrkjubónd-
inn sem hefur reynt að rækta
tómatana með þessari lýsingu: „Ég
vil nú ekki alveg fullyrða það, en
ég held að ég sé sá eini í Evrópu
sem er að reyna ræktun á tómöt-
um með þessari aðferð."
Guðjón, sem er, alinn upp í
Kópavoginum, er lærður garð-
yrkjumaður: „Ég hef eiginlega
ekki unnið við neitt annað alla
mína tíð en garðyrkju, ef undan
eru skildir fjórir mánuðir sem ég
vann við trésmíðar.“
Guðjón sagði að þessa dagana
gæfist litill tími til að sinna áhuga-
málum: „Ég hef annars mjög gam-
an af fjallaferðum á veturna og
einnig erum við hér með hesta
okkur til skemmtunar." Eiginkona
Guðjóns er Sigríður Helga Karls-
dóttir og eiga þau þrjú börn.
-HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1421:
ÍBV-Selfoss
í handbolt-
anum
Það verður keppt í handbolta,
körfubolta og blaki i kvöld. Aðal-
leikur kvöldsins er viðureign
ÍBV og Selfoss í 1. deildinni í
handbolta karla. Fer leikurinn
fram á Selfossi. Vestmannaey-
íþróttir
ingar hafa átt erfitt uppdráttar í
vetur en eru á heimavelli og það
telst þeim til tekna. Leikurinn
hefst kl. 20.00. Tveir leikir verða
í 2. deild karla. I Fylkishúsi leika
Fylkir og Ármann, hefst sá leik-
ur kl. 20.00, og í Höllinni á Akur-
eyri leika Þór og BÍ, hefst hann
kl. 20.30.
Einn leikur verður í bikar-
keppni kvenna í blaki i kvöld. I
íþróttahúsi KA á Akureyri leika
KA og Völsungur. Leikurinn
hefst kl. 21.30. Þá er einn leikur í
kvöld í 1. deild karla í körfunni.
Reynir, Sandgerði, og ÍH leika
kl. 20.00 í Sandgerði.
Veggmyndir
og þrívíð
verk
í Nýlistasafninu stendur nú
yfír sýning þriggja myndlistar-
manna. Eru það Ásta Ólafsdóttir,
Guðmundur Thoroddsen og Jón
Sýningar
Sigurpálsson sem þar sýna verk
sín. Jón og Guðmundur sýna
veggmyndir í neðri sölum safns-
ins og Ásta Ólafsdóttir sýnir þrí-
víð verk og málverk í efri sölum.
Gestur í setustofu safnsins er
Nina Ivanova frá Rússlandi. Hún
dvelur hér sem gestanemandi í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands. Sýningarnar eru opnar
daglega frá kl. 14.00-18.00 og lýkur
þeim 28. janúar.
Bridge
Um síðustu helgi var bridgehátíð í
Borgarnesi, sveitakeppni með monrad-
fyrirkomulagi á laugardaginn og tví-
menningur með mitchel-fyrirkomu-
lagi á sunnudaginn. Sveit Háspennu A
var næsta öruggur sigurvegari í
sveitakeppninni en Helgi Sigurösson
og ísak Orn Sigurðsson náðu naumum
sigri i tvímenningnum. Segja má að
úrslitin í sveitakeppninni hafi ráðist
þegar sveitir Roche og Háspennu A
mættust í sjöundu umferð mótsins.
Sveit Háspennu hafði sigur í þeim leik
með miklum mun og átti eftirfarandi
spil þátt í þeim sigri. Norður var gjaf-
ari og allir á hættu:
4 ÁG10876
V 765
♦ --
* KG86
* D92
» Á9
f 10542
* 7542
* K52
* K42
-f ÁK96
* ÁD9
Norður Austur Suður Vestur
Erlendur Helgi Þröstur ísak
1* 2* Dobl 4*
Dobl 4f 6G p/h
Erlendur og Þröstur náðu þarna
gullfallegri slemmu sem ólíklegt er að
hefði náðst ef norður hefði ekki opnað
á einum spaða. Tveir spaðar lýstu
a.m.k. 5-5 skiptingu í hjarta og láglit
og ijögur lauf vesturs voru hindrun í
öðrum hvorum láglitanna. Sagnhafi
var ekki í neinum vandræðum með að
vinna spilið vegna hinnar upplýsandi
sagnar austurs, Þröstur spilaði eðli-
lega spaða á kónginn og svínaði síðan
fyrir spaðadrottninguna. Samningur-
inn var 4 spaðar á hinu boröinu og 14
impar til sveitar Háspennu A.
fsak Örn Sigurðsson
Sláandi tölur
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.