Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 JjV
~lend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Davld Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
2. Dlck Francls:
Wild Horses.
3. Colin Forbes:
Fury.
4. Doug Naylor:
The Last Humen.
5. Terry Pratchett:
Interestlng Tlmes.
6. Robert Goddard:
Borrowed Tlme.
7. Wllbur Smlth:
The Seventh Scroll.
8. Pat Barker:
Regeneratlon.
9. Maeve Blnchy:
The Glass Lake.
10. Penny Vincenzl:
Forbldden Places.
Rít almenns eölis:
1. Wlll Hutton:
The State Welre In.
2. Alan Bennett:
Wrltlng Home.
3. Ranfurly:
To War with Whltaker.
4. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
5. Nelson Mandela:
Long Walk to Freedom.
6. S. Blrtwistle & S. Conklln:
The Maklng of Prlde and Prejudlce.
7. S. Nye & P. Dornan:
The A-Z of Bahavlng Badly.
8. lan Botham:
Botham: My Autoblography.
9. Peter de la Bllllére:
Looklng for Trouble.
10. Jung Chang:
Wlld Swans.
(Byggt á The Sunday Tlmes)
Danmörk
1. Lise Nergaard:
De sendte en dame.
2. Jung Chang:
Vllde svaner.
3. Klrsten Thorup:
Elskede ukendte.
4. Robert J. Waller:
Broerne i Madlson County.
5. Josteln Gaarder:
Sofles verden.
6. Bret Easton Ellls:
Uskrevne regler.
7. Peter Hoeg:
De máske egnede.
(Byggt á Politiken Sendag)
Solzhenitsyn út í
rússneska kuldann
Aðdáendur rússneska rithöfund-
arins Alexanders Solzhenitsyns,
sem hlaut bókmenntaverðlaun
Nóbels árið 1970 fyrir einstæð rit
sín um fórnarlömb Stalíns í sovéska
Gúlaginu, eru afar ósáttir við þá
meðferð sem andófsmaðurinn gamli
hefur fengið hjá löndum sínum að
undanfornu.
Sérstaklega sárnaði þeim að rík-
issjónvarpiö rússneska, ORT, skyldi
fella niður hálfsmánaðarlegan þátt
skáldsins. Gefin var sú skýring af
hálfu stjórnenda sjónarpsins, sem
er í meirihlutaeigu ríkisins, að eng-
inn heföi lengur áhuga á að hlusta á
gamla Ijónið flytja einræður sinar
um vandamál rússnesku þjóðaririn-
ar. Aðrir hafna þessu og segja
ástæðuna pólitíska en Solzhenitsyn
var afar gagnrýninn á stjórnarfar
og stjórnmálamenn í Rússlandi í
sjónvarpspistlum sínum.
Sjálfur hefur hann ekkert látiö
eftir sér hafa um málið en eiginkon-
an hefur ekki legið á þeirri skoðun
að um pólitíska aðgerð sé að ræða.
Hætt við að gefa út
heildarritsafnið
Fleira sýnir það þessa dagana að
rússneskir ráðamenn eru lítt hrifn-
ir af Solzhenitsyn, sem var, ásamt
Andrei Sakharov, helsta hetja bar-
áttunnar gegn sovéska alræðiskerf-
inu.
Þannig var fyrirhugað að hefja
útgáfu á heildarsafni allra rita
Solzhenitsyns. Forsenda útgáfunnar
var loforð rússneskra stjórnvalda
um fjárveitingu til að gera almenn-
ingsbókasöfnum landsins kleift aö
kaupa hvert um sig eitt eintak af
ritsafninu. Nú hefur ríkisvaldið
Alexander Solzhenitsyn.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
kippt að sér hendinni og forlagið
hætt útgáfunni.
Andstæðingar Solzhenitsyns
segja þetta allt merki um að hann
hafi ekkert fylgi lengur meðal þjóð-
arinnar þar sem skoðanir hans á
málefnum samtímans séu óraun-
hæfar og í meira lagi afturhalds-
samar. Hann leggur mikla áherslu á
andleg gildi rússnesku þjóðarinnar
og gagnrýnir landa sína harðlega
fyrir skammsýni, græðgi og eftir-
sókn eftir vindi. Og hann segir þess-
ar skoðanir sínar svo umbúðarlaust
að marga svíður undan.
Tvær bækur um
baráttuna við KGB
Á sama tíma og margir landar
Solzhenitsyns viija sem minnst af
honum vita hafa komið út í Banda-
ríkjunum tvær bækur sem gefa að
sögn gagnrýnenda þar í landi ljósa
mynd af áralangri baráttu hans við
sovésk stjórnvöld; og þá ekki síst
sovésku leyniþjónustuna, KGB, og
stjórnendur kommúnistaflokksins.
Önnur bókin er eftir Solzhenitsyn
sjálfan. Hún nefnist Invisible Allies
og var reyndar samin fljótlega eftir
að hann var rekinn úr landi árið
1974. Birtingu bókarinnar var
frestað um árabil vegna þess að í
henni segir Solzhenitsyn frá því
fólki með nafni sem hjálpaði honum
að leika á KGB.
Að sögn gagnrýnanda Was-
hington Post er þessi frásögn æsileg
aflestrar eins og besta spennusaga.
Sérstaka athygli vekur að það voru
fyrst og fremst einstæðar mennta-
konur sem lögðu sig í hættu til að
hjálpa Solzhenitsyn þegar hann var
að rita verk sín og koma þeim á
framfæri i svokölluðum samizdat-
útgáfum. Með aðstoð kvennanna
tókst honum að vera skrefi á undan
KGB sem reyndi ítrekað að komast
yfir minnisblöð hans og ófullgerð
handrit.
Hin bókin heitir The
Solzhenitsyn Files og er safn skjala
úr fórum sovéskra stjórnvalda um
baráttu þeirra gegn nóbelsskáldinu.
Þar eru birtar fundargerðir stjórn-
málanefndar kommúnistaflokksins
og skýrslur KGB. Gagnrýnandi
Washington Post segir að vísu að
hér sé aðeins um brot af fyrirliggj-
andi gögnum að ræða, valin í flýti,
og vinnubrögð lítt fræðimannsleg.
Engu að siður séu þessi gögn ómet-
anlegur vitnisburður um misheppn-
aðar tilraunir kerfisins til að þagga
niður í einum öflugasta andstæð-
ingi sínum.
vísindi
Drap krabbi
risaeðlurnar?
Bandaríski vísindamaðurinn
Juan Collar leiðir að því getum
að krabbamein af völdum fi-
seinda hafi orðið til þess að risa-
j eðlurnar dóu út fyrir 65 milljón-
um ára. Fiseindirnar, sem eru
minni en atóm, komu frá deyj-
andi stjörnum í sólkerfi okkar.
Fiseindir, sem rekast á kjarna
lifandi atóma, gætu skaddað
DNA erfðaefnið og valdið stökk-
breytingum sem leiða til krabba-
meins.
í grein í timaritinu New Sci-
entist segir Collar að deyjandi
stjörnur í allt að 20 Ijósára fjar-
lægð frá jörðu geti myndað 12 ill-
kynja frumur í hverju kílói af lif-
andi vef. Stjörnuhrun, þegar
stjarna lætur undan eigin þunga,
í 20 ljósára fjarlægð frá jörðu ger-
ist á 100 milljón ára fresti.
Fuglaforfaðír
fundinn
í Kína hafa fundist tveir stein-
gervingar sem þarlendur vís-
! indamaður segir vera af elstu for-
feðrum nútíma fugla. Annar
steingervingurinn er með mjög
þróað bringubein sem hefði getað
þolað sterka flugvöðva. Hinn er
| með stutt rófubein.
Talið er að báðir steingervin-
garnir séu frá júratímabilinu og
1 eru aðeins örlítið yngi'i en það
sem talið er vera elsti þekkti
fuglinn sem margir segja fiðraða
risaeðlu.
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Vísindamenn uppgötva rofa sem stjórnar svefni okkar:
Mikil blessun fyrir þá
sem þjást af svefnleysi
Langt inni í iðrum
heilans hefur fundist
eins konar aðalrofi sem
stjórnar svefni manns-
ins, uppgötvun sem gæti
orðið til mikillar bless-
unar fyrir þá sem þjást
af svefnleysi.
Uppgötvun þessi er
einnig mikill hvalreki
fyrir vísindamenn sem
eru áfjáðir í að skilja
svefntruflanir og þróa
lyf sem geta veitt eðlileg-
an og endurnærandi
svefn.
„Það væri dásamlegt
ef við gætum fengið eðli-
legan svefn, án timbur-
mannanna eftir svefnlyf-
in,“ segir Clifford Saper,
vísindamaður við Beth
Israel sjúkrahúsið í
Boston í Bandaríkjunum. Saper og
félagar hans við læknadeild
Harvard háskólans birta niðurstöð-
ur rannsókna sinna í tímaritinu
Science.
„Rofinn" sem hér um ræðir er
taugafrumuklasi, að öllum líkind-
um ekki stærrri en títuprjónshaus, í
undirstúkunni, innarlega í heilan-
um. Þetta er sá hluti heilans sem
stjórnar svefni okkar, áti, drykkju
og kynhegðun. „Öllu þessu
skemmtilega," segir Saper.
Þessi frumuklasi, sem er staðsett-
ur nálægt frumum sem stjórna lík-
amsklukku okkar, sendir bein boð
til þriggja annarra tauga-
frumuklasa, sem svo aftur stjórna
taugaboðefnunum þremur sem
tengjast örvun.
Þessi taugaboðefni eru histamín,
sem talið er stuðla að vökuástandi;
noradrenalín, sem er örvandi og
hækkar blóðþrýsting; og serótónín,
sem tengist svefni og skynjun.
„Aðalrofinn" aftengir öll þessi þrjú
örvunarkerfi samtímis.
Vísindamenn hafa vitað í áratugi
að áverkar á þessum
hluta heilans geta
valdið svefnleysi en
þar til þessi uppgötv-
un var gerð, vissu þeir
ekki hvers vegna það
var eða hvernig.
Uppgötvun þessi varp-
ar ekki einasta ljósi á
svefnirin sem slikan,
heldur gefur hún vís-
indamönnum færi á
að kanna virkni ým-
issa efna eða efnasam-
banda sem gætu leitt
til nýrra svefnlyfja.
Saper og félagar hans
gera sér til dæmis
vonir um að gera til-
raunir með melatónín
til að staðfesta eða
hrekja allar auglýs-
ingarnar sem halda
því fram að hægt sé að nota það sem
svefnlyf.
Vísindamennirnir framkvæmdu
tilraunir sínar á rottum og notuðu
við þær prótín sem kallað er Fos.
Magn þessa prótíns eykst við dag-
legt amstur og minnkar við svefn,
nema á.þessu eina svæði þar sem
virkni taugafrumnanna jókst á með-
an sofið var.
Vísindamenn vita að uppbygging
þessa hluta heilans er mjög svipuð
hjá rottum og mönnum.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Rlchard Paul Evans:
The Chrlstmas Box.
2. Terry McMillan:
Waitlng to Exhale.
3. David Guterson:
Snow Falllng on Cedars.
4. Richard North Patterson:
Eyes of a Child.
5. Mary Hlgglns Clark:
The Lottery Wlnner.
6. Tom Clancy & Steve Pleczenik:
Mlrror Image.
7. Dean Koontz:
Dark Rivers of the Heart.
8. James Patterson:
Klss the Glrls.
9. V.C. Andrews:
Hlddel Jewel.
10. Judith Plnsker:
Robln's Diary.
11. Jude Deveraux:
The Heiress.
12. Nora Roberts:
Born in Shame.
13. Tami Hoag:
Night Sins. /
14. Carol Shlelds:
The Stone Diaries.
15. Jonathan Kellerman:
Self-Defense.
Rit almenns eölis:
1. Tlm Allen:
Don't Stand to Close
To a Naked Man.
2. Davld Wlld:
Friends.
3. Paul Relser:
Copplehood.
4. Richard Preston:
The Hot Zone.
5. H. Johnson & N. Rommelmann:
The Real Real World.
6. B.J. Eadle & C. Taylor:
Embraced by the Llght.
7. Tom Clancy:
Flghter Wing.
8. Doris Kearns Goodwin:
No Ordinary Tlme.'
9. Delany, Delany & Hearth:
Havlng Our Say.
10. Clarlssa Plnkola Estés:
Women Who Run wlth the Wolves.
11. Joe Montana & Dlck Schaap:
Montana.
12. Mary Plpher:
Reviving Ophella.
13. Brian Lowry:
The Truth Is out there.
14. Thomas Moore:
Care of the Soul.
15. John Paul II:
Crossing the Threshold of Hope.
(Byggt á New York
Tlmes Book Review)
Færri kaloríur
lengja lífið
Við getum Iengt líf okkar ef við
látum mun færri kaloríur ofan í
okkur en viö gerum alla jafna. Sú
var að minnsta kosti niðurstaða
tilraunar sem gerð var á rottum í
Bretlandi og lifðu þær allt að 42
prósent lengur.
„Okkur tókst að fá rottu, sem á
að lifa í þrjú ár, til að lifa í um
fjögur og hálft ár,“ segir Brian
Merry, öldrunarsérfræðingur við
háskólann í Liverpool.
Kaloríuinntaka rottanna var
minnkuð um allt að sjötíu pró-
sent en þær fengu næringarríkt
; fæði og sultu ekki.
Sextíu sjálfboðaliðar taka nú
þátt í tilraun til að sjá hvort hið
sama gildir um menn og rottur í
þessum efnum. Búist er við að
; bandarísk yfirvöld samþykkti
sams konar tilraun siðar á árinu.
Kynlíf hægir
á öldrun
Allir þeir sem óttast krumlur
i elli kellingar ættu að leggja sig
: fram um að stunda gott kynlíf. Ef
marka má nýlega breska rann-
i sókn gæti það orðið til þess að
hægja á öldrunarferlinu.
Rannsóknin náði til 3500
; manna og kvenna sem litu út fyr-
j ir að vera allt að 14 árum yngri
en þau voru i raun og veru. Nið-
urstaðan bendir til þess að kynlíf
oftar en tvisvar í viku og önnur
: líkamsrækt geri fólk ungt bæði á
j sál og líkama. Þátttakendur í
: rannsókninni komu frá Bret-
landi, Bandaríkjunum og megin-
landi Evrópu og voru á aldrinum
20 til 100 ára.