Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Page 20
unglingaspjall
LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996
Birna Hjaltadóttir nemandi.
börn. Þá hélt ég að maður gæti orð-
ið allt það sem mann langaði til,
bara ef maður væri nógu gamall.
Málið er ekki alveg svo einfalt en ef
mann dreymir nógu heitt um eitt-
DV-mynd Jóhanna Sigþórsdóttir
hvað verður að bera sig eftir björg-
inni og láta drauminn verða að
veruleika.
Birna Hjaltadóttir, Framhalds-
skólanum á Laugum
Að velja
sér framtíð
Þegar við höfum lokið grunn-
skóla stöndum við frammi fyrir því
að ákveða hvað við viljum gera í
nánustu framtíð. Valið er erfitt,
margt stendur til boða og viðhorf
manns til lífsins taka sífelldum
breytingum. En á endanum verðum
við öll að taka afstöðu og vona að
við höfum valið það eina rétta fyrir
okkur.
Þegar litið er á það sem stendur
til boða að grunnskólanámi loknu
kemur í ljós að við höfum um margt
að velja. Það er til dæmis hægt að
faraií framhaldsskóla ef efni og að-
stæður leyfa. Margs konar fram-
haldsskólar eru tO, t.d. bændaskól-
ar, iðnskólar, menntaskólar, með
heimavist eða án, og svo framvegis.
Kostirnir eru margir og þetta val er
því hreint ekki auðvelt. I þessum
skólum eru margar ólíkar brautir,
með mismunandi heitum og náms-
greinum. Nemendur í framhalds-
skóla eru yfirleitt ekki búnir að
ákveða hvað þeir ætla að verða,
heldur ræðst það oft meöan þeir eru
í framhaldsnámi.
Nú á dögum er stúdentspróf lykill
að mörgum ágætis störfum. Fólk
hugsar því gjarnan um að ljúka því
fyrst og ákveða svo hvað það vill
gera að ævistarfi sínu. En við val á
námsbraut í framhaldsskóla er gott
að hafa til hliðsjónar hvaða starf við
getum hugsað okkur að leggja stund
á og hvað við ætlum að læra í há-
skóla. Þegar við höfum gert það upp
við okkur hvað við viljum gera, er
bara að hefjast handa við að læra og
sjá til hvort við höfum valið rétt.
Ef rangt er valið
Ef raunin verður nú sú að okkur
líkar engan veginn það námsefni
sem við höfum valið okkur og
ákveðum að hætta námi, höfum við
eytt töluverðum peningum og tíma í
eitthvað sem við höfum kannski lít-
ið sem ekkert gagn af. Þá er rétt að
setjast niður og hugsa málið vel og
lengi, og finna út hvað það er sem
við viljum virkilega gera. Auðvitað
leiðum við hugann að því að það
hefði kannksi verið rétt að halda
ekki strax áfram námi eftir grunn-
skólann heldur bíða bara, fá sér
vinnu og hugsa málið. Þá hefði mað-
ur getað kynnt sér alla möguleika,
íhugað þá vandlega og fundið út
hvað það raunverulega er sem
mann langar að verða. Svo þegar
við höfum gert upp hug okkar hell-
um við okkur á nýjan leik og af full-
um krafti út í námið, því allt er
miklu skemmtilegra ef við höfum
áhuga á því.
En hvort sem við förum nú beinu
brautina í námi eða tökum það í
áföngum þá komumst við að því að
hlutirnir eru ekki eins auðveldir og
þeir litu út fyrir að vera í framtíðar-
draumum okkar þegar við vorum
jjin hliðin
Langar mest að hitta Sókrates og Chirac
- segir útvarpsmaðurinn Árni Þór Jónsson
Útvarpsþátturinn Með sítt að aft-
an, sem hljómar á útvarpsstöðinni
X-inu á laugardögum, hefur vakið
veröskuldaöa athygli. Þótt umsjón-
armaður þáttarins hafi vart verið
af barnsaldri þegar tónlistin sem
hann leikur var vinsælust þá ferst
honum starfið vel úr hendi. Um-
sónarniaðurinn er enginn annar
en Árm Þór Jónsson, sem auk þess
að fást við þáttagerð er þúsund
þjala smiður hjá kvikmyndagerð-
aifyrirtækinu Saga Film. Árni Þór
sýnir á sér hina hliðina að þessu
sinni:
Fullt nafn: Ámi Þór Jónsson.
Fæðingardagur og ár: 17. júlí
1975.
Maki: Enginn.
Böm: Engin.
Bifreið: Peugot 205, ár-
gerð ’88.
Starf: Útvarpsmað-
ur, plötusnúður,
nemi og sendill.
Laun: Fín.
Áhugamál:
Tónlist, kvik-
myndir, körfu-
bolti, tölvuleikir og
bækur.
Hefur þú unnið í
happdrætti eða
lottói? Nei, enda
tek ég ekki þátt í
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag að þínu mati? Ég
held að fáir geti litið framhjá Mic-
hael Jordan.
Uppáhaldstímarit: CMJ Music.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Irene
Jakob.
Ertu hlynntur eða andvígur rik-
isstjóminni? Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest
að hitta? Sókrates
og langar
að eiga
nokkur
orð
Jacques
flárhættuspil-
um.
Hvað finnst þér
skemmtilegast
að gera? Hlusta
I á góða tónlist,
horfa á góða
kvikmynd og
lesa góða bók.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Bíða eftir leigubíl klukkan 4
1 að morgni um helgar.
Uppáhaldsmatur: Mexíkóskur og
rjúpur að hætti mömmu.
Uppáhaldsdrykkur: Bjór.
Arni Þór Jónsson, umsjónarmaður útvarps
Chirac.
Uppáhaldsleikari: Geri ekki á
milli Harvey Keitel og Robert De
Niro.
Uppáhaldsleikkona: Juliette Bin-
oche.
Uppáhaldssöngvari: Lou Barlow.
Uppáhaldsstjómmálamaður:
Zhírínovskíj.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi í Tomma og Jenna.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Star
Trek: Next generation.
Uppáhaldsmatsölustaður:
Subway.
Hvaða bók langar þig mest að
lesa? Biblíuna og ég ætla mér að
gera það í náinni framtíð.
Hver útvarpsrásanna
finnst þér best?
X+ið og Rás 2
getur verið góð.
Uppáhaldsút-
varpsmaður:
Steinn Ármann
Magnússon.
Á hvaða sjón-
varpsstöð horfir
þú mest?
Stöð 2.
Uppáhalds-
sjónvarps-
maður:
Paul King.
Uppáhalds-
skemmti-
staður: 22 og
Café au Lait.
Uppáhaldsfé-
lag í íþrótt-
um? KR.
Stefnir þú aö
einhverju sér-
stöku í framtíð-
inni?. Fá einka-
rétt á nafninu:
Með sítt að aftan,
ferðast , læra
meira, stofna fjöl-
skyldu og eignast
börn.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu?
Ég vann i sumarfríinu og mun
líka vinna í næsta sumarfríi.
Don Johnson mætir aftur til leiks:
Margir kannast við sakamála-
þættina Miami Vice þótt þeir hafi
ekki lengi verið sýndir hér á landi.
Leikarinn Don Johnson sló þar í
gegn og þótt hann sé atvinnulaus og
nýskilinn er hann ekki öllum
gleymdur. Don Johnson er 46 ára
gamall og býr í Los Angeles.
Á miðjum níunda áratugnum
hljóp Don um götur Miami, sokka-
laus í skónum, en í fallegum og dýr-
um Armanifötum. Undir jakkanum
var hann með byssu og settist und-
ir stýri í rándýrum Ferrari eða
sportbát og varð stjarna fyrir.
Það voru ekki síst kvenmennirn-
ir sem féllu fyrir hinum kynþokka-
fulla Don Johnson. Hjá Don varð líf-
ið eins sæla. Hann hafði fullar hend-
ur fjár og gat vaðið í kvenfólki. En
lífið er hverfult.
Bóndasonur
Don Johnson er bóndason-
ur, fæddur í smábænum
Galena í miðvesturríkjunum.
Þetta var allt of lítill staður
fyrir töffarann Don Johnson
sem ungur komst í kast við
lögin. Hann flutti þá með
móður sinni til Kansas og
settist í skóla. Don tók meðal
annars þátt í uppfærslu skól-
ans á West Side Story. Það
var kveikjan að því að hann
hélt til Hollywood aðeins 19
ára gamall.
„Ég var ákveðinn í að
verða stjarna. Ég ætlaði að
verða stærri en James
Dean,“ segir hann. Það gekk
þó ekki eftir. í fyrstu fékk
hann hlutverk í léttbláum
kvikmyndum og því fylgdi
mikil áfengis- og fikniefna-
neysla. Don fór í sína fyrstu
meðferð árið 1983.
Það var ekki fyrr en Don
fékk hlutverk sitt sem Sonny
Crockett í Miami Vice að
hann varð frægur. Og þá
hafði hann stritaö í
Hollywood í 16 ár. Hann
reyndi líka fyrir sér sem söngvari
og gaf út plötur.
Eiginkonan fór
I fyrra reyndi Don fyrir sér í
nýrri sakamálasyrpu sem gerist í
San Francisco. Hann datt fljótlega
út og drakk frá sér ráð og rænu.
Hann áttaði sig þó og lagðist inn á
Betty Ford meðferðarstofnunina til
aö þurrka sig upp. Á sama tíma
gafst eiginkonan, Melanie Griffith,
upp á honum og byrjaði að vera
með sjarmörnum Antonio Bander-
as.
Hvort Don Johnson fær fleiri
möguleika í kvikmyndaborginni er
ómögulegt að segja til um. Sjálfur
segist hann vera á uppleið aftur og
að byrja í nýjum framhaldsþætti.
Við sjáum hvað setúr.
Lífið hefur ekki verið dans á rósum hjá Don
Johnson.
Drakk sig frá frægðinni