Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Side 29
U> V LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996
33
Guðrún Gísladóttir, 93 ára íbúi á Húsavík:
Fimm ættliðir í beinan kvenlegg
- mikil frjósemi ríkjandi í ættinni
Þaö eru ekki margir sem geta
státað af því að eiga flmm ættliði,
þaðan af síður í þeinan kvenlegg í
tvær áttir. Af þessu státar þó Guð-
rún Gísladóttir á Húsavík, á 94. ald-
ursári, fædd 8. júní á árinu 1903.
Guðrún fæddist í Presthvammi í
Aðaldal og ólst þar upp en bjó lengst
af ævi sinnar í Ystahvammi í Aðal-
dal við búskap (fram til ársins 1966).
Guðrún var gift Jóni Gunnlaugs-
syni sem látinn er fyrir meira en
tveimur áratugum. Guðrún dvelur
nú á elliheimilinu á Húsavík.
Guðrún er löngu orðin langalan-
gamma, raunar tvisvar sinnum, þar
Ættmóðirin fyrir miðju, Guðrún Gísladóttir, fædd 1903, og afkomendur henn-
ar, Ásta Jónsdóttir, f. 1926, Auður Hermannsdóttir 1945, Ásta Sigurðardóttir
1962 og Aðalbjörg Katrín Gunnlaugsdóttir 1978.
Hér er ættleggnum raðað upp í réttri röð: Frá hægri talið eru það Guðrún
Gísladóttir 1903, Ásta Jónsdóttir 1926, Hera Kristín Hermannsdóttir 1948,
Árninna Ósk Stefánsdóttir 1969 og Karólína Kristín Gunnlaugsdóttir 1989.
TIL SÖLU
BRIMBORG
Faxafeni 8 - Sími 515-7010
OPID
LAUGARDAG 12-16
OG SUNNUDAG 13-16
Toyota
LandCruiser,
dísil, turbo,
árgerð 1995, vél
24 ventla,
170 hestöfl,
fimm gíra,
ekinn 16 þús. km.
Upphækkaður,
35" dekk,
brettakantar,
útvarp/segulband,
sex dyra.
Verð kr. 3.980.000.
Mjög góð kjör
og möguleiki á
skiptum á ódýrari.
á ofan i beina kvenleggi. í öðrum
leggnum er bamabarnabarnabarnið
hennar 17 ára gamalt og því er ekki
loku fyrir það skotið að bæst geti
við sjötti liðurinn.
Guðrún á sjálf 7 börn sem öll eru
á lífl og afkomendur hennar eru
orðnir æði margir, á annað hund-
rað. Frjósemi virðist einkenna ætt-
menni hennar. Sjö börn Guðrúnar
eiga samtals 32 böm. Guðrún er
sjálf úr fjölmennum systkinahópi, 9
talsins, en börn systkina hennar eru
30 talsins, 37 með hennar börnum.
Annar beini kvenleggurinn frá
ættmóðurinni talið er þannig: Guð-
rún Gísladóttir, fædd 1903, dóttir
hennar Ásta Jónsdóttir, fædd 1926,
dóttir hennar er Auður Hermanns-
dóttir, fædd 1945, dóttir hennar Ásta
Sigurðardóttir, fædd 1962 og dóttir
hennar, Aðalbjörg Katrín Guðlaugs-
dóttir, fædd 1978,17 ára gömul.
Hinn kvenleggurinn er þannig:
Guðrún, fædd 1903, Ásta Jónsdóttir,
fædd 1926, Hera Kristín Hermanns-
dóttir, fædd 1948, Árninna Ósk Stef-
ánsdóttir, fædd 1969, og Karólína
Kristín Gunnlaugsdóttir, fædd 1989.
-ÍS
Villi karlinn veit ekki að hann þarf aðeins að nýta sér
Hann ýtir bara á 0 leggur á og notar
timann til annars. Þegar hitt simtalið
er búið, hringir siminn hjá Vi11 a
og brátt er hann kominn i samband.
Simtalspöntun kostar aðeins
9,97 krónur.
POSTUR OG SIMI