Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Side 52

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1996, Side 52
FRETTASK0 TIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER 550 5000 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 1996 Halldór Ásgrímsson: Margt jákvætt hefur gerst „Miðað við þau erfíðu viðfangs- efni, sem við höfum verið að glíma við, sérstaklega ijárlögin, þá tel ég að þetta sé mjög góð niðurstaða. Við átt- um von á því að þetta yrði okkur erfitt en ég er viss um að á móti kem- ur að margt jákvætt hefur gerst á sviði atvinnumála. Ég tel að þetta sé góð niðurstaða fyrir ríkisstjórnina og fjórflokkarnir virðast vera að treysta sig heldur í sessi,“ segir Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra um niðurstöður skoðanakönnunar DV sem sýnir að Framsóknarmenn bæta við sig og ríkisstjórnin hefur nú fylgi meirihluta þjóðarinnar að baki. -GHS Margrét Frímannsdóttir: Við megum sæmilega við una „Mér kemur svolítið á óvart að ríkisstjórnarflokkarnir, og þá sér- staklega Framsóknarflokkurinn sem fer með heilbrigÖisráðuneytið, skuli bæta við sig fylgi. Að öðru leyti finnst mér þetta vera í takt við það sem maður heyrir. Við megum sæmilega vel við una miðað við skoðanakönnunina síðast. Hins veg- ar sýnist mér að þetta sé ábending til okkar að vera duglegri við að koma málflutningi okkar á fram- færi,“ segir Margrét Frímannsdótt- ir, formaður Alþýðubandalagsins, um niðurstöður skoðanakönnunar DV sem sýnir að Alþýðubandalag eykur aðeins fylgi sitt en Þjóðvaki þurrkast nánast út. -GHS - sjá bls. 2 og 4 brother. tölvu límmiða prentari I ;M h _!•] zk i Nýbýlavegi 28 - sími 554-4443 TVOFALDUR 1. VINMNGUR 'þetta hafa verið óvenju KRÖFTUG VITNI! Fjórir menn í gæsluvarðhald vegna tryggingasvika: Fengu á annan tug milljóna króna fyr- ir sviðsett slys Fjórir menn hafa að kröfu Rannsóknarlögreglu ríkisins verið úrskurðaðir í hálfsmánaðar gæsluvarðhald vegna gruns um stórfelid tryggingasvik. Fimm menn voru handteknir vegna málsins á miðvikudaginn en ein- um sleppt að loknum fyrstu yfír- heyrslum. Hinir fjórir voru svo settir í gæsluvarðhald á frnuntu- daginn. Mennirnir eru grunaðir um að hafa sett á svið fjögur umferðar- slys á síðasta ári. Tvö þeirra voru uppi 1 Hvalfírði, eitt á Grindavík- urafleggjaranum og eitt viö Straumsvík. Tryggingarfélög hef- ur þegar greitt mönnunum á ann- an tug milijóna í bætur eftir þessi slys. Rannsókn hjá tryggingafélaginu leiddi í ljós að eitthvað var gruggut við slys þessi og hófst þá rannsókn. Málinu var svo skotið til RLR. Hörður Jóhannesson, yfirlög- regluþjónn hjá RLR, staðfesti í samtali við DV i gær að grunur léki á um milljónasvik og nefndi hann á annan tug milljóna í því sambandi. Hann vildi þó ekki nefna nákvæma tölu. Hörður sagði að rannsókn málsins væri enn ekki komin langt á veg. Hörður vildi ekki útskýra á hvern hátt mennirnir hefðu svið- sett slysin enda væri sök ekki sönnuð á þá. „Það eru ýmsar aðferðir tU að sviðsetja þetta en ég ætla þó ekki að útlista það í smáatriðum," sagði Hörður Jóhannesson. -GK Félagar í verkamannafélaginu Dagsbrún greiddu atkvæði um nýja stjórnendur í félaginu í gær og var prýðileg þátt- taka í kosningunum. Síðdegis í gær höfðu um 700 verkamenn greitt atkvæði og átti hann von á því að að minnsta kosti 1.000 hefðu sett atkvæði í kjörkassann áður en kjörstað yrði lokað. Kjörstaður á skrifstofu Dagsbrúnar við Lindargötu verður opinn frá 9-21 í dag. Búist er við að niðurstaða liggi fyrir um miðnætti. DV-mynd BG Alvarlega slasaður eftir árekstur Ökumaður fólksbifreiðar var fluttur á slysadeild í gær eftir harð- an árekstur við malarflutningabíl á mótum Reykjanesbrautar og Lækj- argötu í Hafnarfirði. Var fólksbíllinn á leið yfir Reykjanesbrautina en flutningabíll- inn var að koma sunnan að. Maður- inn slasaðist alvarlega en var samt í gærkveldi ekki í lífshættu. Bíll hans skemmdist mikið og var dreginn af slysstað. -GK Vitni króuðu af ölvaðan ökumann Vitni króuðu af ölvaðan öku- mann, eftir að hann hafði stungið af frá árekstri i Garðabæ í gær. Eltu þeir sem sáu áreksturinn bíl hins ölvaða og barst leikurinn inn í Kópavog. Þar handtók lögreglan flóttamanninn. Litlar skemmdir urðu á farartækjum í hasar þessum. -GK Ók milli strætós og skýlis Litlu munaði að ekið væri yfir barn á Álfhólsvegi í Kópavogi þegar bíll tróðst milli strætisvagns og bið- •skýlis í gær. Tildrögin voru þau að ökumaður bílsins náði ekki að stöðva hann í tæka tíð þegar strætisvagninn stopp- aði við skýlið. Brá ökumaðurinn þá á það ráð til að forðast aftanákeyrslu að fara milli vagnsins og skýlisins. í sama mund var barn á leið út úr vagninum en fyrir mildi varð það ekki fyrir bflnum. Svo þröngt var milli vagnsins og skýlisins að spegl- ar brotnuðu af bílnum. -GK Tvö börn á slysadeild Flytja varð tvö börn á slysadeild eftir bílveltu á Reykjanesbrautinni í gær. Þau fengu bæði að fara heim eftir skoðun en annað þeirra hafði fengið höfuðhögg. Fernt var í bflnurn og sluppu þeir fullorðnu ómeiddir. Bíllinn er mikið skemmdur og þurfti að draga hann af slysstað. -GK Mánudagur Veðrið á sunnudag og mánudag: Sunnanatt og slydda eða rigning Á morgun verður fremur hæg breytileg átt. Skýjað með köflum og slydduél á stöku stað. Hiti verður frá -1 til +3 stig. Á mánudaginn verður aflhvöss sunnanátt og slydda eða rigning sunnan- og vestanlands en hægari og þurrt að mestu norðaustan til. Hlýnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 53

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.